Óttast ekki gjaldþrot og útbreitt atvinnuleysi 16. janúar 2008 13:24
Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segist ekki óttast mikil gjaldþrot og útbreitt atvinnuleysi þrátt fyrir óróleika á fjármálamarkaði þessa dagana. „Það er órói um allan heim og erfitt við þann óróa að etja. Hann er sérstaklega áberandi hjá okkur núna," sagði Eríkur í hádegisviðtalinu á Stöð 2. „Að sjálfsögðu horfum við á þessi mál. Við höfum áhyggjur af þessu verðfalli sem hefur verið á hlutabréfum," segir Eiríkur. Hann segir þó að bankinn muni ekki breyta þeim fyrirætlunum sem hafi verið gerðar um þróun vaxta. Næst verði vextir ákveðnir 14 febrúar, en áætlanir geri ráð fyrir að vextir fari að lækka undir lok ársins. Sem kunnugt er hefur Seðlabankinn lagst gegn því að Kaupþing fái að gera upp í evrum. Eiríkur segir ástæðuna vera þá að megin viðskipti Kaupþings séu ekki í þeim gjaldmiðli. Kaupþing uppfylli því ekki lög til þess að gera upp í evrum. Auk þess segir hann eðlilegt velta því fyrir sér hvort sömu lög eigi að gilda um fjármálafyrirtæki og önnur fyrirtæki. Hvort takmarkanir á að fjármálafryritæki færi sig yfir í erlendan gjaldmiðil eigi ekki að vera fleiri en takmarkanir á önnur fyrirtæki. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði á Alþingi í gær hvort Davíð Oddsson seðlabankastjóri gæti gefið hlutlæga umsögn um fyrirtækin Landic property og Kaupþing þegar forsagan væri höfð í huga. Hún velti því þannig fyrir sér hvort pólitík litaði afstöðu Seðlabankans. „Ég skal ekki segja hvort hans ferill í pólitík hefur áhrif á þessi mál en ég get bara fullyrt að við vinnum faglega í þessu máli og lakara ef Valgerður heldur að Davíð sé einn í Seðlabankanum," segir Eiríkur við þessum vangaveltum Valgerðar.
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira