Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sátt um Norse Norskir fjárfestar hafa fallið frá kröfu um lögbann á sölu Norse Securities til Íslandsbanka. Nú stendur yfir áreiðanleikakönnun Íslandsbanka á Norse og er búist við að endanleg kaup geti gengið fljótt fyrir sig. Greint var frá því í norskum fjölmiðlum á þriðjudaginn að stjórnarformaður B2 Holding hélt að hann væri í samningaviðræðum um kaup á Norse þegar það var skyndilega selt Íslandsbanka. 9.12.2005 07:30
Fá ekki "eu" endingu Aðilar utan Evrópusambandsins geta aðeins fengið "eu" endingu að því tilskyldu að þeir séu með skráð vörumerki eða útibú innan ESB-landanna. Þessu hafa EES- og EFTA-ríkin mótmælt harðlega. Evrópusambandið hefur hafið skráningu á lénum með "eu" endingu. Búist er við hundruð þúsunda skráninga fyrstu dagana. 9.12.2005 07:00
Íslensk heimili rík Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að árið 2005 hafi verið gjöfult fyrir íslensk heimili. Kaupmáttur hafi farið vaxandi, atvinnuleysi minnkað, framboð af lausum störfum verið mikið, verð eigna hækkað, aðgangur að lánsfjármagni batnað og langtímavextir lækkað. Þar að auki hafi staðan verið góð í upphafi árs þegar meðal annars kaupmáttur og eignaverð var í sögulegu hámarki og atvinnuleysi hverfandi lítið. 9.12.2005 06:00
Methalli í Bandaríkjunum Viðskiptahalli í Bandaríkjunum í september nam 66 milljörðum dala, um það bil 4.300 milljörðum króna. Innflutningur jókst um 2,4 prósent á meðan útflutningur dróst saman um 2,6 prósent. Á sama tima var viðskiptajöfnuður Kínverja við útlönd jákvæður um 12 milljarða dollara, jafnvirði 780 milljarða króna. 8.12.2005 12:15
Microsoft brýtur lög Microsoft var dæmt til greiðslu 32 milljóna dollara, rúma tvo milljarða íslenskra króna sektar af samkeppnisstofnun Suður-Kóreu. Samkeppnisstofnunin komst að þeirri niðurstöðu að það væri brot á samkeppnislögum að msn-skilaboðaforritið væri innifalið með windows-stýrikerfinu. 8.12.2005 11:45
Erlend verðbréf aldrei vinsælli Hrein kaup innlendra aðila á erlendum verðbréfum hafa aldrei verið meiri en í október síðastliðnum en þá námu þau tæpum 28 milljörðum króna. Þetta kemur fram í fréttum greiningardeildar Íslandsbanka sem fékk tölur frá Seðlabanka Íslands. 8.12.2005 10:15
Huga þurfi að ráðandi matvöruverslunum Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ber saman umhverfi matvöruverslana í Bretlandi og Íslandi. Ásta Möller, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur ástæðu til þess að huga að aðgerðum gegn samþjöppun í matvöruverslun hér á landi. Hún spurði Valgerði Sverrisdóttur viðskiptaráðherra á Alþingi á mánudag hvort hún teldi nauðsynlegt að grípa til sömu aðgerða og í Bretlandi þar sem þingnefnd fjallar nú um aðgerðir gegn samþjöppun og markaðsráðandi stöðu verslunarkeðjunnar Tesco. 8.12.2005 09:00
Á 100 milljarða í Aker-samsteypunni Verðmæti hlutabréfa orska athafnamannsins Kjells Inge Rökke í Aker-fyrirtækjasamsteypunni eru orðin eitt hundruð milljarða króna virði. Á árinu hefur eignarhluturinn hækkað um hvorki meira né minna en 360 prósent samkvæmt frétt Aftenposten, eða sem nemur 80 milljörðum króna. 8.12.2005 07:45
Óska upplýsinga Samkeppnisyfirvöld, fjármálaeftirlit og einkavæðingarnefnd Búlgaríu hafa óskað eftir upplýsingum um fyrirhuguð kaup Novators, félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, á eignarhaldsfélaginu Viva Ventures. Viva Ventures eignaðist 65 prósenta hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC við einkavæðingu þess í fyrra. 8.12.2005 06:30
Önnur atlaga að Whittard Te- og kaffikeðjan hefur fallið hratt niður á árinu. Baugur Group og Pálmi Haraldsson stefna að því að gera yfirtökutilboð í Whittard of Chelsea eins og Markaðurinn greindi frá í gær. Ef af kaupunum verður hyggjast fjárfestarnir sameina rekstur Whittard við sælkerakeðjuna Julian Graves sem er í eigu sömu aðila. 8.12.2005 06:00
Framleiðniaukning í Bandaríkjunum Framleiðni í Bandaríkjunum jókst meira en væntingar stóðu til um á þriðja ársfjórðungi þessa árs eða um 4,7 prósent. Þetta er mesti framleiðnivöxtur þar vestra í 2 ár. Athygli vekur að þessi mikli framleiðnivöxtur verður þrátt fyrir að að þúsundir starfa hafi tapast eftir að fellibylirnir Ríta og Katrín riðu yfir suðurströnd Bandaríkjanna. 7.12.2005 08:30
Stór hluti greiðir niður íbúðarlánin "Aðgangur að lánsfé og kjör er snerta húsnæðiskaup eða bygginga hafa ekki áður verið betri hér á landi. En hinu er ekki að leyn að stór hluti bankakerfisins er sennilega að greiða niður húsnæðislán sín um þessar mundir," sagði Davíð Oddsson seðlabankastjóri á fundi Viðskiptaráðs á mánudaginn. 7.12.2005 07:15
Kögun kaupir hugbúnaðarfyrirtæki í Bandaríkjunum Kögun hf. hefur skrifað undir samning um kaup á bandarísku hugbúnaðarfyrirtæki. Ekki hefur verið greint frá nafni fyrirtækisins. Það verður ekki gert fyrr en áreiðanleikakönnun hefur verið framkvæmd af hálfu endurskoðenda og lögfræðinga Kögunar. 7.12.2005 06:00
Hækkanir í Evrópu og BNA Evrópskar kauphallir náðu í gær hæstu gildum í meira en í þrjú og hálft ár en einnig hækkuðu hlutabréf í Bandaríkjunum. Olíuverð hefur haldist undir 60 dölum á fatið sem sem hefur jákvæð áhrif á hlutabréfamarkaði en einnig voru birtar tölur um 4,7 prósenta framleiðniaukningu í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi sem er mesta hækkun í tvö ár. 7.12.2005 05:45
Nóbelsverðlauna- hafinn Dr. Linda Buck sest í stjórn DeCODE Dr. Linda Buck hefur tekið sæti í stjórn Íslenskrar erfðagreiningar. Hún hlaut Nóbelsverðlaunin í læknisfræði árið 2004 fyrir rannsóknir sínar á lyktarskyni mannsins. Hún vinnur við Fred Hutchinson Krabbameinsmiðstöðina í Seattle og er einn af vísindamönnum Howard Hughes læknisfræðistofnunarinnar. Hún gegnir einnig stöðu prófessors í lífeðlisfræði við University of Washington. 6.12.2005 20:33
Horfur í heimsbúskapnum góðar samkvæmt OECD Horfur í heimsbúskapnum eru almennt góðar samkvæmt skýrslu OECD um alþjóðlega þróun efnahagsmála sem fjallað er um á vef fjármálaráðuneytisins. Þrátt fyrir umtalsverða hækkun olíuverðs á þessu ári hefur hagvöxtur í heiminum haldist stöðugur og gert er ráð fyrir að svo verði áfram á næsta ári. 6.12.2005 11:00
Fær 59 milljónir í stað kaupréttar Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, hefur fallið frá rétti sínum til að kaupa 2,9 milljónir hluta í bankanum á genginu 3,58. Landsbankinn greiðir Halldóri laun sem nemur mismuninum á núverandi markaðsgengi, sem stendur í 24 krónum á hlut, og kaupréttargenginu. 3.12.2005 17:00
Hlutlaus ákvörðun "Ákvarðanir Seðlabankans í dag eru nokkuð hlutlausar og ættu ekki að hafa afgerandi áhrif á þróunina á gjaldeyrismarkaði. Miklu skiptir þó hvort útgáfur á skuldabréfum í íslenskum krónum taka við sér í desember. Ef svo fer ekki má gera ráð fyrir að krónan sígi áfram," sagði í fréttum greiningardeildar Landsbankans í gær eftir að tilkynnt var um hækkun stýrivaxta Seðlabankans. 3.12.2005 16:00
Síðasta vaxtahækkun skilaði sér að fullu "Enn eru verðbólguhorfur ekki nógu góðar. Bankastjórnin hefur því ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur," sagði Davíð Oddsson, seðlabankastjóri í gær, þegar hann kynnti forsendur vaxtaákvörðunar bankans í fyrsta skipti eftir að hann tók við stöðu seðlabankastjóra. 3.12.2005 08:00
Verðmiðinn 400 pens á easyJet Baugur Group og KB banki meðal hluthafa í easyJet. Meðalkaupverð FL Group 192 pens á hlut. 3.12.2005 06:00
Orðaður við Alfred Berg KB banki er orðaður við norska fjármálafyrirtækið Alfred Berg að sögn Dagens Industri. Einnig munu Sampo, Invik og fjárfestingarsjóður frá London hafa sýnt Alfred Berg áhuga. 1.12.2005 08:15
Hver hagnast yfir 30 milljónir króna Átta lykilstjórnendur í KB banka gengu í fyrradag frá kaupum á hlutabréfum í bankanum fyrir 232 milljónir króna. Um framvirka samninga var að ræða, sem voru gerðir til þriggja mánaða, um kaup á 400 þúsund hlutum á genginu 580 krónur á hlut. 1.12.2005 08:00
Ósammála um hvernig verðbólgan muni þróast Óvissa um gengisþróun krónunnar gerir Íslandsbanka og KB banka erfitt fyrir að spá um verðbólgu næstu tvö árin. Greiningardeild KB banka telur að verðbólgan muni skjótast hratt upp, líkt og gerðist árið 2001, ef gengi krónunnar veikist. Þar sem áhrifa gengisveikingarinnar muni ekki gæta fyrr en undir lok næsta árs muni verðbólgan ekki hækka að marki á næsta ári. Hún muni hins vegar verða hærri árið 2007. 1.12.2005 07:00
Standa við verðmatið á Jarðborunum Þórður Pálsson, forstöðumaður Greiningardeildar KB banka, vísar á bug gagnrýni Magnúsar Jónssonar, forstjóra Atorku Group, um að vinnubrögð bankans vegna greiningar á Jarðborunum hafi verið ófagleg. Hann segir eðlilegt að verð yfirtökutilboðs sé rætt og ekki sjálfgefið þótt einn vilji kaupa að annar vilji selja. 1.12.2005 06:00
SPH býður vildarþjónusta fyrir fyrirtæki Sparisjóður Hafnarfjarðar (SPH) býður fyrirtækjum upp á vildarþjónustu sem sniðin er að þörfum fyrirtækja. Vildarþjónusta hefur verið í boði fyrir einstaklinga og fengið afar góðar viðtökur. Markaðsstjóri SPH segir þetta þjónustu sem hafi vantað á fyrirtækjamarkaði. 30.11.2005 16:30
Tvö ný samheitalyf hjá Actavis Dótturfélag Actavis Group í Bandaríkjunum, Amide Pharmaceutical Inc., hefur fengið markaðsleyfi fyrir tvö ný samheitalyf í landinu. Bandaríska Matvæla- og lyfjastofnunin hefur samþykkt að félagið fái að markaðssetja tvö lyf, annars vegar er um að ræða verkjastillandi lyf og lyf sem er notað til meðhöndlunar á krampa. 30.11.2005 09:15
Stjórnendur rukkaðir Á árunum 2002 til 2004 hafa rúmlega 300 stjórnendur fyrirtækja verið teknir til rannsóknar hjá skattyfirvöldum vegna vanframtaldra tekna. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við skriflegri fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur þingmanni Samfylkingarinnar. Rannsókn skattyfirvalda hefur leitt til þess að skattgreiðslur þessara einstaklinga hafa verið hækkaðar um 450 milljónir króna. 30.11.2005 08:30
Baugur kaupir hlut í dönsku fasteignafélagi Forstjóri fasteignafélagsins Keops sem Baugur á stóran hlut í kaupir ásamt Baugi ríflega fimmtungs hlut í fasteignafélaginu Nordicom. Félagið er metið á rífleag tuttugu milljarða. Baugur er ásamt forstjóra Keops, Ole Vagner, kaupandi að 22 prósenta hlut í danska fasteignafélaginu Nordicom sem skráð er í dönsku kauphöllinni. 30.11.2005 08:00
Coast fær verðlaun Á árlegri verðlaunahátíð breska tímaritsins Drapers í síðustu viku var Mosaic Fashions veitt verðlaun fyrir Coast-vörumerkið. Verðlaunin eru annars veitt Coast fyrir öran vöxt en sala vörumerkisins hefur þrefaldast á síðastliðnum fjórum árum. Hins vegar fyrir að hafa á stuttum tíma skapað Coast þá stöðu að vera fyrsti valkostur fyrir konur í leit að tækifærisklæðnaði. 30.11.2005 07:00
Hampiðjan hagnast um kvartmilljarð Hagnaður Hampiðjunnar fyrstu níu mánuði ársins var um 250 milljónir króna eða um 3.361 milljón evra. Á þriðja ársfjórðungi hagnaðist félagið um 87 milljónir króna. Hagnaður félagsins jókst um ellefu prósent á milli ára en um 28 prósent fyrir skatta. 30.11.2005 06:30
Sækist eftir fleiri börum Robert Tchenguiz hefur gert tilboð í bresku barkeðjuna Spirit Group. Talið er að KB banki standi við bakið á honum. Tchenguiz hefur boðið um 2,8 milljarða punda, sem samsvarar rúmum 300 milljörðum íslenskra króna, í félagið. Fleiri eru um hituna og má reikna með niðurstöðu í dag eða næstu daga. 29.11.2005 09:00
Jarðboranir eru meira virði Greiningardeild KB banka hvetur hluthafa í Jarðborunum til að ganga ekki að líklegu yfirtökutilboði Atorku Group sem hefur eignast meira en helming hlutafjár í Jarðborunum. Hún hefur komist að þeirri niðurstöðu í nýju verðmati á Jarðborunum að markaðsvirði þess ætti að vera 2,3 milljörðum meira en það er í raun og veru. 29.11.2005 08:00
Bakkavör segir upp hundrað Bakkavör Group hefur ákveðið að segja upp um hundrað starfsmönnum á skrifstofu félagsins í Bretlandi. Í tilkynningu til Kauphallarinnar í gær kemur fram að uppsagnirnar séu hluti af þeim aðgerðum félagsins að samþætta og hagræða í rekstri í kjölfar yfirtöku Bakkavarar á Geest Ltd. 29.11.2005 07:00
Tesco vex hægar Vöxtur verslunarkeðjunnar Tesco hefur ekki verið minni í tvö ár en aðstæður á breskum smásölumarkaður eru erfiðar um þessar mundir. Með miklum vexti á erlendum mörkuðum jókst þó velta félagsins um tæp fjórtán prósent á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra. 27.11.2005 11:00
Tímabundið skot Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga á þessu ári verði 3,8 prósent. Verðbólgan muni hjaðna nokkuð á allra næstu mánuðum en hækka svo hressilega þegar líður á næsta ári, 2006. 27.11.2005 09:45
Traustið skiptir okkur miklu máli Seðlabankastjóri segir mikilvægt að varðveita traustið alveg eins og gullið í bönkunum. Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir að þegar nýr banki ryður sér til rúms á nýjum mörkuðum þá snerti hann samkeppnisaðila. 27.11.2005 08:45
Skýrsla skrifuð í lest veldur látum Hroðvirknislega unnin skýrsla Royal Bank of Scotland olli talsverðu fjaðrafoki sem varð að nokkrum hænum. Íslenskir bankar eru vel metnir af fagaðilum en hafa lítillega fengið að kenna á því að þegar neikvæður og rangur orðrómur fer á stjá, þá þarf að kveða hann niður með sannfærandi hætti. 27.11.2005 08:00
Ráðstefna um viðskiptalífið The Economist og Viðskiptaráð Íslands standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu 15. maí á næsta ári. Viðskiptaráðið átti frumkvæði að þessari ráðstefnu en Kynning og Markaður er ráðgjafi The Economist. 26.11.2005 12:00
Sterk króna setur mark sitt á afkomuna hjá HB Granda HB Grandi hagnaðist um 585 milljónir á þriðja ársfjórðungi en samanlagður hagnaður ársins nam um 934 milljónum króna. Þetta er mikil aukning á milli ára því hagnaður félagsins var aðeins 78 milljónir á þriðja ársfjórðungi síðasta árs. Uppgjörið var í samræmi við væntingar markaðarins. 26.11.2005 11:00
Mikill halli á vöruskiptum Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 15,9 milljarða króna og inn fyrir 21,5 milljarða króna. Vöruskiptin í október voru því óhagstæð um 5,6 milljarða króna samkvæmt frétt frá Hagstofu Íslands. 26.11.2005 08:00
Kauphöllin hafnar samruna Kauphöll Íslands ætlar ekki að hefja samrunaviðræður við norrænu OMX kauphallirnar. OMX leitaði hófanna eftir samruna Kauphallarinnar við samstæðuna með sama hætti og þegar danska kauphöllin gekk inn í samstarfið. 26.11.2005 07:00
Bankarnir fara með gát Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, segir að allar upplýsingar sem hafi borist frá KB banka sýni að hann fari með gát. Það eigi bæði við um kröfur um eigið fé og lausafjárstöðu. Bankinn geti fjármagnað sig sjálfur í nægilega langan tíma til þess að þurfa ekki að lúta því að taka kjörum á lánsfjármarkaði sem honum hugnist ekki. 26.11.2005 06:00
Kaffi kemur í stað öls Kaffi til að taka með, kebab-skyndibiti, sturtugel og duft í megrunardrykki eru meðal nýrra neysluvara í vörukörfu bresku hagstofunnar. Í vörukörfunni eru 650 vöru- og þjónustutegundir og endurspeglar hún neyslumunstur almennings. 26.11.2005 05:00
Aðgengi bankans gott "Sú umræða sem hefur verið um KB banka hefur vissulega áhrif á Íslandsbanka. Ég vil þó leggja áherslu á að það er ekki neikvæð umræða um Íslandsbanka, þvert á móti hefur sérstaklega verið tekið fram í umræðunni að Íslandsbanki hafi sérstöðu meðal íslenskra banka hvað varðar áhættutöku, hún sé minni en annarra íslenskra banka," segir Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka. 25.11.2005 09:30
Kaupin á Norse frágengin Íslandsbanki hefur fest kaup á öllum hlutabréfum í norska verðbréfafyrirtækinu Norse Securities ASA eins og greint var frá í Markaðinum á miðvikudag. 25.11.2005 08:45