Fleiri fréttir

Spilar í fimm klukkutíma

Óli Ofur heldur upp á tíu ára plötusnúðaafmælið sitt á laugardaginn með því að slá upp stóru klúbbakvöldi á Nasa. Hann ætlar sjálfur að spila allt kvöldið, eða í um fimm klukkutíma.

Stjörnu-sýning í Nokia-höllinni

Engin hörgull var á stórstjörnum þegar People‘s Choice Awards voru afhent í Nokia-höllinni í Los Angeles þrátt fyrir að helstu sigurvegarar kvöldsins hefðu verið víðsfjarri.

Uppselt hálfu ári fyrir sýningu

Miðar á sérstakar miðnætursýningar The Dark Knight Rises, nýjustu Batman-myndarinnar, eru þegar orðnir uppseldir í Bandaríkjunum, um sex mánuðum áður en myndin kemur út 20. júlí.

Björk tilnefnd til BRIT verðlaunanna

Tónlistarkonan Björk hefur verið tilnefnd til BRIT verðlauna sem áhrifamesti alþjóðlegi kvennlistamaðurinn. Ásamt Björk eru Beyonce, Feist, Lady Gaga og Rihanna tilnefndar.

Þórunn Antonía og Nilli í skyrglímu

Sjónvarpsþátturinn Týnda kynslóðin hefur aftur göngu sína á föstudagskvöld. Í fyrsta þætti ársins verður Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, aðalgestur þáttarins og herma fregnir Vísis að Nilli hafi fengið vægast sagt slæma útreið hjá leikmönnum landsliðsins.

Ný klipping Kutcher í krúttlegri kantinum

Eins og sjá má á myndunum er ný klipping leikarans Ashton Kutcher í krúttlegri kantinum. Ashton, sem gekk að eiga leikkonuna Demi Moore 24. september árið 2005, skildi við hana nokkrum framhjáhöldum síðar...

Eins árs stúlka lætur ljósmynda sig með stórstjörnum

Þrátt fyrir að vera aðeins eins árs gömul hefur Tyler litla hitt stjörnur á borð George Clooney, Johnny Depp og Meryl Streep. Móðir hennar hefur mætt á rúmlega 60 frumsýningar og krefst þess að stjörnurnar sitji fyrir á mynd ásamt dóttur sinni.

Rísandi stjarna í tónlistinni

Nýrrar plötu Lönu Del Rey hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Flestir telja að þessi bandaríska söngkona muni slá rækilega í gegn á þessu ári.

Krabbamein og Margaret Thatcher

Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi um helgina í kvikmyndahúsum borgarinnar. Krabbamein, Margaret Thatcher og Prúðuleikararnir eru viðfangsefnin að þessu sinni.

Spielberg gerir dekkri myndir

Steven Spielberg hefur viðurkennt að kvikmyndir sínar hafi orðið dekkri eftir árásirnar á Tvíburaturnana 2001. Spielberg hefur í gegnum árin verið þekktur fyrir frekar fjölskylduvænt bíó með E.T, Indiana Jones og Jurassic Park í broddi fylkingar.

Svakalegur munur

Meðfylgjandi myndir eru úr herferð hönnuðarins Philipp Plein sem fékk leikkonuna Lindsay Lohan til að auglýsa vöruna sína. Það sem er áhugavert er gríðarleg breytingin...

Endurkoma Prúðuleikara fær ótrúlegar viðtökur

Fyrsta Prúðuleikara-myndin í tólf ár, The Muppets, verður frumsýnd hér á landi um helgina. Hún hefur verið gagnrýnd af bandarískum íhaldsmönnum fyrir kommúnisma og öfga-umhverfisvernd á meðan gagnrýnendur og áhorfendur hafa lýst yfir einskærri ást sinni á þessum höfuðpersónum hins sáluga Jim Henson.

Blur í hljóðver eftir Brits

Hin goðsagnakennda hljómsveit Blur, með fyrrum Kaffibarseigandann Damon Albarn fremstan í flokki, mun væntanlega koma fram á Brit-verðlaununum í næsta mánuði. Talið er líklegt að hljómsveitin muni í kjölfarið bregða sér í hljóðver.

Þessi kona kemst upp með grifflurnar

Ef einhver kemst upp með að vera með rauðar leðurgrifflur við síðkjól þá er það 53 ára Madonna sem var vægast sagt glæsileg á rauða dreglinum í London í gærkvöldi...

Safna sögum af litlum systrum og bræðrum

Æfingar fyrir leikverkið Skrímslið litla systir mín standa nú yfir í Norræna húsinu, en verkið verður sýnt þar í febrúar. Í tengslum við sýninguna safna þær Helga Arnalds, höfundur og túlkandi, og Charlotte Böving leikstjóri reynslusögum barna af því að eignast lítið systkini.

Downey ánægður með Iron Man 3

Robert Downey Jr. er þess fullviss að þriðja myndin um vopnasölukónginn Tony Stark og ofurhetju-skyldur hans sem Iron Man verði jafnvel besta ofurhetjukvikmynd allra tíma. Downey lét þessi stóru orð falla í viðtali við vefsíðuna Omelete og bætti því við að hann hlakkaði mikið til að vinna með leikstjóranum Shane Black, sem hefur gert kvikmyndir á borð við Kiss Kiss Bang Bang og Leathal Weapon 4.

Ókeypis í eina viku

Ný plata tónlistarmannsins Black Valentine, Polygamy Is Alright By Me, verður fáanleg ókeypis til niðurhals á heimasíðu hans blackvalentine.bandcamp.com í eina viku.

Líkir 2012 við árið 1991

Rokkarinn Dave Grohl úr Foo Fighters hefur líkt tónlistarlandslaginu í dag við það sem var uppi árið 1991 þegar fyrrum hljómsveit hans Nirvana braust fram á sjónarsviðið með látum.

Stjörnur skjálfa á beinunum vegna Golden Globe

Golden Globe-verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á sunnudagskvöld. Kynnirinn Ricky Gervais hefur lofað því að hann muni ekki draga neitt undan í upphafsatriði afhendingarinnar.

Tígurinn í Rotterdam gleðiefni fyrir Svartur á leik

„Við prófuðum bara að senda hana inn og vissum ekkert hverju við áttum von á. Núna erum við bara að hamast við að ganga frá smáatriðum og klára myndina,“ segir Þórir Snær Sigurjónsson framleiðandi.

Þá er Halle Berry gengin út

Skartgripahönnuðurinn Gurhan bjó til einstakan risastóran hring með grænum eðalsteini fyrir franska leikarann Olivier Martinez sem bað leikkonunnar Halle Berry, 45 ára, yfir hátíðarnar...

Hátt í tvö hundruð keppa um tíu sæti í leiklistarnámi

„Það eru ansi margir umsækjendur í ár en við höfum svo sem séð álíka háar tölur áður. Þetta er hins vegar góð þróun og gott að aðsóknin í listina fari hækkandi með hverju ári,“ segir Stefán Jónsson, leikari og fagstjóri leiklistardeildar Listaháskóla Íslands, en í ár bárust um 173 umsóknir í leiklistardeild skólans.

Börn Bo með hittara

Hljóðblanda (sem má heyra hér) af laginu Devil In Me með Krumma Björgvinssyni hefur farið eins og eldur í sinu um internetið síðustu tvo daga. Steed Lord, hljómsveit systur hans, Svölu Björgvins, endurhljóðblandaði lagið...

Brynhildur Ólafs stýrir Eddunni

Alls bárust 98 verk til Eddunnar, íslensku sjónvarps-og kvikmyndaverðlaunanna. Þetta eru ögn fleiri verk en bárust í fyrra að sögn Brynhildar Ólafsdóttur, nýráðins framkvæmdastjóra Eddunnar. Brynhildur var um árabil fréttamaður á Stöð 2, var síðan upplýsingafulltrúi hjá Saga Capital en hefur að undanförnu unnið fyrir framleiðslufyrirtækið Saga Film og verið leiðsögumaður.

Þrautreyndur Gijs aldrei heyrt um Maus

„Ég vissi ekki að þeir væru til,“ segir Gijs van Veldhuizen í hollensku hljómsveitinni Maus. Hann hefur ákveðið að breyta nafni hljómsveitarinnar, líkast til í Mauz, eftir að Biggi í Maus kvartaði yfir nafni þeirra, enda hefur hin íslenska Maus einkaréttinn á nafninu í Evrópu.

Norskar poppstjörnur á Íslandi

Tökur á nýju tónlistarmyndbandi með norsku poppstjörnunni Atle Pettersen og hinum upprennandi Rex hefjast í Reykjanesbæ á morgun.

Tímamótum fagnað á Kex

Spurningaþátturinn Nei hættu nú alveg í umsjón Vilhelms Antons Jónssonar hefur átt nokkrum vinsældum að fagna á Rás 2 upp á síðkastið.

Til mikils að vinna fyrir ungt hæfileikafólk

Hin sívinsæla stuttmynda- og handritahátíð ungs fólks, Ljósvakaljóð, stendur fyrir dyrum. Einstaklingum á aldrinum 15 - 25 ára gefst kostur á að senda til keppni stuttmynd eða frumsamið handrit. Hátíðin er haldin 28. janúar næstkomandi í Bíó Paradís...

Björn Hlynur leikur Ragnar í Smára í Kill the Poet

Undirbúningur fyrir tökur á kvikmynd Jóns Óttars Ragnarssonar, Kill the Poet, er nú á lokametrunum. Fréttablaðið hefur sagt frá helstu hlutverkaskipan í myndinni; Anita Briem leikur Louisu Matthíasdóttur, Nína Dögg Filippusdóttir leikur Nínu Tryggvadóttur, Nick Stahl leikur Stein Steinarr auk þess sem Gísli Örn Garðarsson verður í leikarahópnum.

Björgvin Páll: Líður alltaf best á klakanum

Ég er staddur á Íslandi þessa dagana þar sem við erum að undirbúa okkur fyrir EM í Serbíu og svo þess á milli að brasa í þessu Sport Elítu dæmi. Manni líður alltaf best á klakanum góða og nýtur hverrar mínútu til fulls, segir Björgvin Páll Gústavsson...

Nýr upplýsingavefur opnaður

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar nýr upplýsingavefur www.iceland.ja.is var formlega opnaður í Listasafni Reykjavíkur í gær...

Sjokkerandi útlit (65 ára)

Leikkonan Suzanne Somers, 65 ára, höfundur bókarinnar Sexy Forever [Kynþokkafull að eilífu] sem mokseldist vestan hafs er þekkt í Hollwyood fyrir lausnir sínar gegn öldrun...

Hraunaði yfir Kim

Undanfarið hefur fyrirsætan Amber Rose hraunað yfir Kim greyið Kardashian...

Mauz vill hita upp fyrir Maus

„Hann bauðst til þess að hita upp fyrir okkur ef við myndum koma saman á nýjan leik,“ segir Biggi í Maus um kollega sinn Gisj í Maus.

Stjörnustríð í undirheimum

Nýir sjónvarpsþættir byggðir á kvikmyndunum Star Wars hafa fengið vinnuheitið Star Wars: Underworld. Ekki hefur verið ákveðið hvenær þættirnir verða framleiddir en handritið er engu að síður tilbúið.

Með tréskrúfur undir hlaupaskónum

Hlaupagarpurinn Guðmundur Guðnason brá á það ráð á dögunum að setja tréskrúfur undir hlaupaskóna sína til að geta fótað sig í hálkunni.

David Beckham og drengirnir

Fótboltakappinn David Beckham og synir hans, Brooklyn Joseph, Romeo James og Cruz David voru myndaðir á LAX flugvellinum í Los Angeles í gær. Ég er meðvitaður um hvað mér hefur verið gefið í vöggugjöf og ég er líka meðvitaður um að hæfileikar mínir hverfa ekki svo fljótt, lét David hafa eftir sér. Eins og sjá má á myndunum fengu feðgarnir fylgd sökum ágengra ljósmyndara.

Fyrsta barnabókin í 13 ár

Rithöfundurinn Andri Snær Magnason er með nýja barnabók í smíðum sem fjallar um konung sem hefur sigrað heiminn.

Ellefu ára hlé á enda

Bandaríska rokkhljómsveitin At the Drive-In ætlar að snúa aftur eftir ellefu ára fjarveru. Hljómsveitin hefur verið bókuð á tónlistarhátíðina Coachella sem verður haldin í Kaliforníu í apríl. Þar koma einnig fram Radiohead, Pulp, Bon Iver og Snoop Dogg.

Dökkklædd Rooney Mara

Leikkonan Rooney Mara fer með hlutverk Lisbeth Salander í kvikmyndinni The Girl with the Dragon Tattoo sem byggð er á þríleik Stiegs Larsson. Mara hefur verið tilnefnd til Golden Globe-verðlaunanna í flokki Bestu leikkvennanna fyrir hlutverkið.

Brynja ætlar að fela tilvitnanir í hverjum þætti Eurovision

Söngvakeppni Sjónvarpsins, forkeppni Eurovision, hefur göngu sína um næstu helgi. Þetta árið er það sjónvarpskonan Brynja Þorgeirsdóttir sem heldur um stjórnartaumana í þremur undanþáttum og sjálfum úrslitunum í Sjónvarpinu.

Nýtt sýnishorn úr kvikmyndinni EINN

Vísir frumsýnir hér sýnishorn úr svörtu gamanmyndinni EINN, sem verður frumsýnd í byrjun mars. EINN fjallar um kvikmyndagerðarmanninn Helga sem er að gera sína fyrstu mynd í fullri lengd. Helgi byggir handrit myndarinnar á sínu eigin lífi og nákomnum persónum. Þegar framleiðendur koma við sögu vilja þeir sjá breytingar á handritinu. Hægt og rólega fara breytingarnar að hafa bein áhrif á líf Helga. Hann missir þá tök á veruleikanum og kemur sér og sínum í óborganlegar aðstæður.

Æfir fimm daga vikunnar

Nat Bardonnet einkaþjálfari leikkonunnar Halle Berry hefur stigið fram og sagt opinberlega frá því hvernig leikkonan sem er 45 ára gömul heldur sér í þetta líka fantaformi. Halle borðar fimm máltíðir á dag, þambar prótein og æfir 4 - 5 daga vikunnar. Ef við getum tekið á fjórum vöðvum í einu þá leggjum við okkur fram við það! sagði Nat. Meðfylgjandi myndir voru teknar í matvöruverslun í Beverly Hills í gær þar sem Halle verslaði með franska unnusta sínum, leikaranum Olivier Martinez. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að hún er slösuð á fæti en hún varð fyrir óhappi þegar hún dvaldi á Spáni á dögunum.

Tók upp lag með Ratt

Dave Grohl úr Foo Fighters hefur tekið upp nýtt lag með bandarísku rokksveitinni Ratt, sem naut vinsælda á níunda áratugnum. Lagið verður hluti af nýju verkefni sem Grohl er með í gangi sem gengur undir heitinu TBA nú um stundir.

Sjá næstu 50 fréttir