Bíó og sjónvarp

Nýtt sýnishorn úr kvikmyndinni EINN

Tinni Sveinsson skrifar

Vísir frumsýnir hér sýnishorn úr svörtu gamanmyndinni EINN, sem verður frumsýnd í byrjun mars.

EINN fjallar um kvikmyndagerðarmanninn Helga sem er að gera sína fyrstu mynd í fullri lengd. Helgi byggir handrit myndarinnar á sínu eigin lífi og nákomnum persónum. Þegar framleiðendur koma við sögu vilja þeir sjá breytingar á handritinu. Hægt og rólega fara breytingarnar að hafa bein áhrif á líf Helga. Hann missir þá tök á veruleikanum og kemur sér og sínum í óborganlegar aðstæður.

Leikstjóri er Elvar Gunnarsson en hann skrifar einnig handritið ásamt Guðfinni Ými. Með aðalhlutverk fara Arnþór Þórsteinsson, Guðfinnur Ýmir, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Darren Foreman, Vivian Didriksen Ólafsdóttir, Guðný Lára Árnadóttir og María Ellingsen.

Plakat myndarinnar.

Framleiðendur eru Valur Hermannsson, Guðfinnur Ýmir, Canon, Rósa Ásgeirsdóttir og Elvar Gunnarsson.

Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu myndarinnar, facebook.com/einnkvikmynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×