Tígurinn í Rotterdam gleðiefni fyrir Svartur á leik 12. janúar 2012 11:00
Kvikmyndin Svartur á leik hefur verið valin til að keppa um Tígurinn á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. Myndin verður því heimsfrumsýnd í hollensku borginni í byrjun febrúar en hérna heima í mars. Svartur á leik er byggð á samnefndri sögu Stefáns Mána og skartar þeim Þorvaldi Davíð og Jóhannesi Hauki Jóhannessyni í aðalhlutverkum. Þórir Snær Sigurjónsson segir þetta vissulega mikið gleðiefni. „Við prófuðum bara að senda hana inn og vissum ekkert hverju við áttum von á. Núna erum við bara að hamast við að ganga frá smáatriðum og klára myndina,“ segir Þórir en mikill áhugi virðist vera fyrir myndinni, sýningarrétturinn hefur þegar verið seldur til Bretlands, Sviss og Skandinavíu. „Við erum síðan á leiðinni til Berlínar og gerum okkur vonir um góðar viðtökur þar,“ bætir Þórir við. Hann viðurkennir að nafn Nicolas Winding Refn hafi hjálpað myndinni en hann er einn af framleiðendum hennar. Nýjasta mynd Refns, Drive, hefur slegið rækilega í gegn og hefur verið á toppi flestra árslista kvikmyndavefsíða. „Það hjálpar og svo skemmir heldur ekkert fyrir að myndin er í hans anda.“ Alls keppa tólf myndir um Tígurinn í Rotterdam en verðlaunin eru veitt fyrir bestu fyrstu eða aðra mynd leikstjóra. -fgg
Mest lesið Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Lífið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Lífið „Hæ ástin mín, Nýtt í hverjum mánuði á fimmtudaginn, ertu laus?“ Áskorun Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Lífið Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Lífið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Lífið Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Lífið Brigitte Bardot er látin Lífið Fleiri fréttir Blysröð í anda þjóðhátíðar í stað brennu Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Spurt var um fólkið sem var grátandi, ælandi og öskrandi Kryddsíld fagnar afmæli og öllum er boðið Melanie Watson er látin Telur notkun á lagi í Miðflokks-stuðningsmyndbandi siðlausa Stjörnulífið: „Ég get ekki frestað þessu lengur“ Heldur ótrauð áfram þrátt fyrir að ná ekki milljónamarkmiðinu Brigitte Bardot er látin Glódís Perla og Kristófer gengu í það heilaga Bæði sorg og gleði að ala upp fimm börn með sérþarfir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein