Með tréskrúfur undir hlaupaskónum 11. janúar 2012 11:00 Guðmundur í hlaupagallanum rétt áður en hann hljóp heim úr vinnunni seinni partinn í gær. fréttablaðið/anton
Hlaupagarpurinn Guðmundur Guðnason brá á það ráð á dögunum að setja tréskrúfur undir hlaupaskóna sína til að geta fótað sig í hálkunni. „Ég var búinn að leita lengi að einhverri lausn sem virkar hvort sem maður er í hálku eða á beru malbiki,“ segir Guðmundur, sem hleypur fimm daga vikunnar, sama hvernig viðrar. Samanlagt um 70 til 90 kílómetra. „Ég sá hvernig ástandið var síðasta föstudag. Það var búin að vera glerhálka og ég ætlaði að hlaupa á laugardagsmorgun, þannig að ég græjaði þetta á föstudagskvöldið. Ég fór inn í bílskúr, fann mér tréskrúfur og skellti þeim undir gamla hlaupaskó sem ég átti og þetta svínvirkaði.“ Guðmundur setti myndir af „nýju“ hlaupaskónum sínum á Facebook og vöktu þær mikla athygli hlaupafélaga hans. „Þeir voru að forvitnast hvernig þetta hefði gengið. Einhverjir ætluðu að græja þetta strax fyrir sig.“ Ekki veitir af því enda hafa margir dottið illa í hálkunni að undanförnu, þar á meðal vinur hans sem fór út að hlaupa og rotaðist eftir að hafa runnið á hausinn. „Það er stórhættulegt oft og tíðum þetta færi, þannig að ég er ánægður með að vera kominn með einhverja lausn.“ Guðmundur vakti athygli í sumar þegar hann hljóp í kringum landið til styrktar krabbameinsveikum börnum ásamt eiginkonu sinni og tveimur öðrum. Sjálfur hleypur hann í vinnuna á hverjum morgni úr Garðabæ til Reykjavíkur og var einmitt fljótari á staðinn í gærmorgun en vinnufélagi hans sem kom akandi úr Hafnarfirðinum, enda umferðin afar hæg vegna slæmrar færðar.- fb
Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… árið 2010? Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Skandinavíska merkið Ninepine komið til Lín Design Lífið samstarf Fleiri fréttir Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ Sjá meira