Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ungur hugsjónamaður á BMX-hjóli "Fyrst var gert svolítið grín að mér og sagt að ég væri alltaf á þessu hjóli en nú eru allir hættir því. Þegar maður er líka farinn að gera flott myndbönd þá öðlast maður smá virðingu,“ segir Magnús Þórlindsson, ungur BMX-hjólreiðamaður á Selfossi. Hann hefur sýnt áhugamálinu sínu mikla ástríðu þrátt fyrir að vera nánast sá eini í bæjarfélaginu sem hjólar á slíku hjóli. Hann tekur til að mynda strætó með hjólið sitt yfir Hellisheiðina allar helgar til að æfa sig í Reykjavík því aðstaðan, að hans sögn, er ekki uppá marga fiska í heimabænum. 22.8.2011 12:30
Ha var brúðkaupið flipp á fylleríi? American Pie leikkonan Tara Reid, 35 ára, hætti í febrúar á þessu ári með danska viðskiptamanninum Michael Lillelund eftir þriggja mánaða samband en í meðfylgjandi myndasafni má sjá þau saman í París. Tara, sem hefur átt við áfengisvandamál að stríða í gegnum tíðina, giftist skyndilega manni að nafni Zack Kehayov þar síðustu helgi í Grikklandi. Daninn kom af fjöllum þegar hann frétti af brúðkaupi Töru en lét hafa eftir sér að hann væri ekki sá heppni í þetta sinn og óskaði nýgiftu hjónunum góðs gengis. Meðfylgjandi má sjá myndir sem leikkonan póstaði á Twitter síðunni sinni úr brúðkaupsferðinni en margir sem þekkja til hennar vilja meina að hún líti ekki út fyrir að vera edrú á myndunum. Nýgift í Grikklandi. Ég elska að vera eiginkona! skrifaði Tara jafnframt á Twitter. 22.8.2011 11:12
Dætur Demi flýja ljósmyndara Dætur Bruce Willis og Demi Moore, Rumer og Scout Willis, voru myndaðar yfirgefa Adele tónleika í Hollywood 17. ágúst síðastliðinn. Eins og sjá má í myndasafni er Scout eins og snýtt úr nösum föður síns. Þau eru nákvæmlega eins burtséð frá hárgreiðslunni. Tallula, þriðja systirin, var fjarri góðu gamni. 22.8.2011 10:39
Elsa María gerist vínframleiðandi „Nei, ég átti nú ekki von á því að enda sem vínframleiðandi,“ segir fyrrverandi Kastljósstjarnan Elsa María Jakobsdóttir. 22.8.2011 10:00
Diaz og Lopez engar vinkonur Leikkonurnar Jennifer Lopez og Cameron Diaz fara báðar með hlutverk í kvikmyndinni What to Expect When You're Expecting og að sögn heimildarmanna andar köldu á milli leikkvennanna. 22.8.2011 08:00
Boðið upp á bíó í fjórvídd Þeir sem fara á kvikmyndina Spy Kids 3 í bíó geta kynnst fjórvíddarbíói. Auk þrívíddargleraugna fá þeir afhent lyktarspjald við innganginn. 22.8.2011 06:00
Kardashian giftist sínum heittelskaða Raunveruleikasjónvarpsstjarnan Kim Kardashian giftist körfuboltamanninum Kris Humphries í gær. 21.8.2011 14:06
Á stefnumót Það er greinilegt að Lindsay Lohan er í makaleit en hún hefur sést á stefnumótum með þremur mönnum á síðustu vikum. Nú síðast skemmti daman sér prýðilega með hávöxnum dökkhærðum manni á tónleikum bresku söngkonunnar Adele í Los Angeles. 20.8.2011 18:00
Bieber fær götu nefnda eftir sér Á meðan flestir jafnaldar hans eru að öngla saman fyrir fyrstu fartölvunni hefur gata verið nefnd eftir ungstirninu Justin Bieber. Ellefu ára gömul Texas-mær kom því í gegn þegar hún varð bæjarstjóri í smábænum Forney í Texas í einn dag. 20.8.2011 17:00
Fengu forskot á Game of Thrones sæluna Sýningar á sjónvarpsþáttunum Game of Thrones hefjast á Stöð 2 annað kvöld. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting ríki fyrir þáttunum og því var mikil spenna í Bíói Paradís í gær þar sem sérstök forsýning var á fyrstu tveimur þáttunum. 20.8.2011 16:00
Rokk og plokkfiskur Haukur S. Magnússon hefur fengið foreldra sína í heimsókn frá Ísafirði yfir Menningarnótt. Saman bjóða þau til veislu úti á Granda í kvöld. 20.8.2011 15:30
Fjölmennt á fatahönnunarkeppni Úrslitakvöld fatahönnunarkeppninnar Reykjavík Runway fór fram á fimmtudagskvöldið og fjölmennti áhugafólk um íslenska tísku í Hafnarhúsið. Harpa Einarsdóttir bar sigur úr býtum en þarna sýndu einnig merkin Eygló, Shadow Creatures og Rosa-Bryndís. 20.8.2011 15:00
Gott kynlíf lykillinn að góðu hjónabandi Stórleikarinn Jeff Bridges hefur verið kvæntur konu sinni, Susan Geston, frá árinu 1977 og eiga þau hjónin saman þrjár dætur. Í nýlegu viðtali sagði Bridges að lykillinn að farsælu hjónabandi væri ást og nóg af kynlífi. 20.8.2011 14:00
Gömlu brýnin komin í gull Gleðin sveif yfir vötnum á skemmtistaðnum Vellinum á Grensásvegi á fimmtudagskvöldið þegar þrír af vinsælustu tónlistarmönnum landsins tóku við gullplötu fyrir sölu á plötu sinni. Þetta voru þeir Gylfi Ægisson, Rúnar Þór og Megas sem hafa selt yfir fimm þúsund eintök af plötunni MS GRM sem kom út á síðasta ári. 20.8.2011 13:00
Langaði mest til að flýja land Bókin er loksins á leiðinni, útgáfupartíið verður 25. ágúst,“ segir Tobba Marinós og á þá að sjálfsögðu við framhald metsölubókarinnar Makalaus, sem fengið hefur nafnið Lýtalaus. Blaðamanni þykir orðinu loksins eiginlega ofaukið, því aðeins er rétt rúmt ár síðan Makalaus kom út og í millitíðinni gaf Tobba út bókina Dömusiði. 20.8.2011 12:00
Hrifin af besta vini kærasta síns Ný kærasta leikarans George Clooney, Stacy Keibler, er sögð hrifnari af besta vini Clooney en honum sjálfum. Vinurinn sem um er rætt mun vera enginn annar en Brad Pitt. 20.8.2011 12:00
Ósátt við skyndilega kvenhylli bóndans Leikarinn Jason Momoa hefur slegið í gegn í hlutverki sínu sem villimaðurinn Conan úr samnefndri kvikmynd. Þessi skjóti frami hans mun ekki hafa lagst vel í sambýliskonu hans, Lisu Bonet, sem er óánægð með nýfengna kvenhylli Momoa. 20.8.2011 11:00
Kim giftir sig í dag (loksins) Þá eru aðeins örfáir klukkutímar þar til raunveruleikastjarnan Kim Kardashian, 30 ára, gengur í heilagt hjónband. Fjölmiðlar bíða spenntir og undirbúningur í hámarki. Í meðfylgjandi myndaalbúmi má sjá væntanlegan eiginmann Kim, körfuboltamanninn Kris Humphries, kela við Kim fyrir ljósmyndara þegar fjölskyldur þeirra æfðu sig fyrir stóra daginn. Sjónvarpsstöðin E! tekur athöfnina upp og öryggisgæslan verður skotheld. Þá má sjá loftamynd af brúðkaupstjaldinu í Santa Barbara í Kaliforníu í myndasafni. 20.8.2011 10:15
Týnda kynslóðin fagnar frumsýningu Meðfylgjandi myndir voru teknar í Bíó Paradís á Hverfisgötu þegar fyrsti skemmtiþátturinn í stjórn Björns Braga Arnarssonar og Þórunnar Antoníu Magnúsdóttur, Týnda kynslóðin, var frumsýndur. Margt var um manninn og frábær stemning eins og sjá má á myndunum. Þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum kl. 19.55. 20.8.2011 09:16
Ætlar að hitta Dorrit í New York „Ég er að lenda eftir kvöldið, sem var frábært í alla staði,“ segir Harpa Einarsdóttir fatahönnuður, en hún bar sigur úr býtum í fatahönnunarkeppninni Reykjavík Runway á fimmtudagskvöld. 20.8.2011 08:00
Erum drengir í karlmannsfötum Mér líður afskaplega vel hér á Íslandi. Ég hef ferðast töluvert um Skandinavíu en aldrei komið hingað fyrr og vissi í raun ekki við hverju ég ætti að búast. Landið er fallegt og ég hef lært smá íslensku, núna kann ég að segja „jæja“ og „förum að veiða“. 20.8.2011 07:00
Gaga lærir á brimbretti Lady Gaga er fær í flestan sjó. Allavega er hún farin að læra á brimbretti og stundar nú íþróttina af miklum móð í sumarfríi sínu við strendur Mexíkó. Poppdívan hefur verið mynduð við iðjuna við Puerto Vallarta og þótti standa sig nokkuð vel en hún sást þiggja ráð frá reyndum brimbrettakappa. "Miðað við byrjenda tók hún sig bara vel 19.8.2011 21:00
Gott að fá útrás í rokkinu Ellefu ár eru síðan fyrsta og eina plata hljómsveitarinnar Stolið kom út. Sveitin var endurvakin í fyrra og kemur fram á Menningarnótt á laugardaginn. Meðlimir Stolið eru í kringum fertugt og segja það ágætt að fá útrás fyrir barnið í sér á hljómsveitaræfingum. 19.8.2011 19:00
Rihanna djammaði í Bergen Gestir barsins Garage í Bergen áttu ekki von á því að enda miðvikudagskvöldið á djammi með einni af vinsælustu söngkonum heims, Rihönnu. Rihanna heldur tvenna tónleika í Bergen í vikunni og ákvað að kanna skemmtanalíf bæjarins eftir þá fyrri. 19.8.2011 16:00
Bíddu á þetta að vera dans? Meðfylgjandi má sjá félagana Heiðar Austmann og Svala á FM957 gera tilraun til að dansa eftir áskorun á Facebooksíðunni þeirra. Um er að ræða Blinkmints-leik á FM957 sem gengur út á að hlustendur senda inn myndband af sér dansandi við sérstak Blinkmintslag. Sjá nánar hér (Facebooksíða FM957). 19.8.2011 14:47
Gefið prinsessunni eitthvað að borða núna Vilhjálmur Bretaprins og eiginkona hans, hertogaynjan af Cambridge, Kate Middleton, voru mynduð saman í Birmingham í England í dag. Eins og sjá má á myndunum er prinsessan stórglæsileg í dökkbláu pilsi með slegið hárið. Það fer hinsvegar ekki fram hjá nokkrum einasta manni hvað hún hefur horast mikið á örskömmum tíma. Sjá myndirnar hér. Hér má skoða brúðarkjólinn hennar. 19.8.2011 14:17
Hafa ekki trú á sambandinu með Jennifer Leikarinn Justin Theroux á ekki eftir að giftast Jennifer Aniston, samkvæmt fullyrðingum vina hans sem hafa ekki mikla trú á sambandinu. 19.8.2011 14:00
Baltasar fær nýjan frumsýningardag Kvikmyndaverið Universal hefur ákveðið að færa frumsýningardag Contraband sem Baltasar Kormákur leikstýrir fram til 13. janúar en til stóð að myndin yrði frumsýnd um miðjan mars. Leikstjórinn leggur lokahönd á myndina um þessar mundir. 19.8.2011 14:00
Spice Girls í Eurovision Þó að stutt sé frá Eurovision-keppninni í Düsseldorf eru margir farnir að hugsa til næstu keppni í Aserbaídsjan. Þessa dagana loga allar Eurovision-fréttaveitur eftir að það spurðist út að hin eina sanna stelpusveit, Spice Girls eða Kryddpíurnar, gæti tekið þátt fyrir Bretlands hönd. 19.8.2011 13:30
Lisbeth að vakna til lífsins Það var nánast óhjákvæmilegt að Millennium-þríleikur Stiegs Larsson myndi lenda í klónum á stórlöxum í Hollywood; bækurnar seldust eins og heitar lummur og sænsku myndirnar sýndu að það var langt í frá ógerlegt verk að skila þríleiknum á hvíta tjaldið. Nú er loks að koma í ljós hvernig David Fincher sér hugarheim sænsku metsölubókanna. 19.8.2011 13:00
Síðbúin útrás Ný danskrar „Þetta verður í fyrsta skipti sem við spilum í Kaupmannahöfn Og raunar í fyrsta skipti sem við spilum erlendis síðan við reyndum að meika það á Englandi í „den“. Það næsta sem við höfum komist útlöndum síðan þá eru bara Vestmannaeyjar,“ segir Jón Ólafsson, hljómborðsleikari Ný danskrar. 19.8.2011 12:00
Dorrit stal senunni Hæ! Sæl og gott kvöld, takk fyrir að bjóða mér, sagði Dorrit Moussaieff sem stal senunni á fatahönnunarkeppni Reykjavik Runway sem fram fór í Hafnarhúsinu í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi. Dorrit var áberandi hlý og innileg í gær eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði þegar hún faðmar sigurvegarana. Takið eftir þegar sonur Hörpu Einars, sigurvegara keppninnar, faðmar mömmu sína eftir að úrslitin voru kynnt. 19.8.2011 11:04
Hreyknari af megrun en Óskarnum Leik- og söngkonan Jennifer Hudson sagði í nýlegu viðtali að hún væri hreyknari af þyngdartapi sínu en Óskarsverðlaununum sem hún hlaut fyrir leik sinn í Dreamgirls. 19.8.2011 10:00
Skilur tvíburana eftir heima "Þetta verður alveg æðislega skemmtilegt og eitthvað sem enginn má missa af,“ segir Sigríður Beinteinsdóttir söngkona sem kemur fram á væntanlegum afmælistónleikum Bylgjunnar annað kvöld. 19.8.2011 10:00
Íslandsmyndband Bon Iver frumsýnt Íslandsmyndband indí-rokkarans Bon Iver við lagið Holocene var frumsýnt á heimasíðu National Geographic í gær. Myndbandinu er leikstýrt af Nabil Elderkin, sem hefur unnið mikið með rappofurstjörnunni Kanye West. Fjallað var um myndbandið á vefsíðu pitchfork.com í gær en það hefur þegar vakið mikla athygli. 19.8.2011 10:00
Harpa Einars sigraði Ég er bara rosalega þakklát að fá þetta tækifæri, segir Harpa Einarsdóttir meðal annars í meðfylgjandi myndskeiði en hún sigraði fatahönnunarkeppni Reykjavik Runway sem fram fór í Hafnarhúsinu í gær. Harpa fær samning við Reykjavik Runway þar sem haldið verður áfram að vinna að uppbyggingu tískumerkis hennar, Zizka, á tískuvikunni í New York. Í meðfylgjandi myndasafni eru myndir frá Reykjavík Runway. 19.8.2011 09:33
Hlakkar til að gefa Beckham-fjölskyldan verður seint sökuð um að hata sviðsljósið. Og hún virðist aldrei þreytast á að tala um fjölskyldulífið sitt. Þannig hefur David Beckham upplýst að hann hlakki mikið til að gefa nýfæddri dóttur sinni að borða. Victoria, eiginkona Davids, hefur haft stúlkuna á brjósti eins og lög gera ráð fyrir en er nú farin að mjólka sig og setja móðurmjólkina á pela. 19.8.2011 09:00
Fjölmenni á Reykjavík Runway Reykjavik Runway stóð fyrir glæsilegu úrslitakvöldi í fatahönnunarkeppni í Hafnarhúsinu í gærkvöldi fyrir troðfullu húsi. Fjórir hönnuðir voru valdir í úrslit í keppninni; þær Eygló Margrét Lárusdóttir, Sólveig og Edda Guðmundsdætur, og Rosa Denise Winther Denison og Bryndís Þorsteinsdóttir og sigurvegarinn, Harpa Einarsdóttir. Harpa fær samning við Reykjavik Runway þar sem haldið er áfram að vinna að uppbyggingu tískumerkis hennar, Zizka, á tískuvikunni í New York. Í meðfylgjandi myndasafni má sjá gesti, Dorrit Moussaieff afhenda Hörpu Einarsdóttur verðlaunin og Sigríði Sigurðardóttur taka við lyklunum af Mercedes-Benz bifreið en hún vann afnot af Mercedes-Benz GLK sportjeppa í fimm daga. 19.8.2011 08:27
Svíaprinsessa á von á barni Sænska þjóðin er í skýjunum eftir að Viktoría krónprinsessa og Daníel prins tilkynntu að þau ættu von á sínu fyrsta barni. Barnið er væntanlegt í mars á næsta ári og prinsessan því rétt komin þrjá mánuði á leið. 19.8.2011 08:00
Ási Már á skjáinn „Ég er með smá fiðrildi í maganum út af þessu en maður verður að henda sér í djúpu laugina til að halda áfram að þroskast,“ segir Ásgrímur Már Friðriksson fatahönnuður, sem birtist á sjónvarpsskjánum í fyrsta sinn í vetur. 19.8.2011 07:00
Söluhæstu stjörnurnar Tískutímaritin geta þakkað stjörnum á borð við Lady Gaga, Rihönnu og Kim Kardashian fyrir hærri sölutölur á þessu ári. Vefsíðan WWD hefur nú tekið saman þau andlit sem selja flest tímarit og sýnir rannsóknin fram á að ritstjórar ættu að setja einhverja af þessum þremur konum á forsíðuna til að ná sem hæstum sölutölum. 19.8.2011 06:00
Konungleg tískufyrirmynd Hún hefur ekki langt að sækja fegurðina og tískuvitið, prinsessan Charlotte Casiraghi. Móðir hennar er Karólína prinsessa af Mónakó og amma hennar sjálf Grace Kelly. 19.8.2011 05:00
Kínverskir úrvalsnemendur klára BA-próf í íslensku „Þeir eru margir í fjölskyldum nemendanna sem hneykslast á þeim að eyða tíma í að læra minnsta tungumál í heimi. Þau eru hins vegar alsæl og finnst námið skemmtilegt,“ segir Gísli Hvanndal, sem útskrifar sextán nemendur með BA-gráðu í íslensku við Háskólann í Beijing næsta vor. 18.8.2011 23:00
Robin Gibb syngur inn jólin með Bó Robin Gibb verður gestur Björgvins Halldórssonar á árlegum jólatónleikum söngvarans í Laugardalshöll. Þetta kom í fréttatilkynningu frá Senu í gær. 18.8.2011 22:00
Meðaljóninn Tom Hanks Tom Hanks hefur tekist að halda sig í nágrenni við toppinn í Hollywood þrátt fyrir að þykja hvorki töff né kynþokkafullur. Og ferillinn spannar fjölbreyttari svið en hjá mörgum öðrum. 18.8.2011 21:00