Skilur tvíburana eftir heima 19. ágúst 2011 10:00 Sigríður Beinsteinsdóttir fullyrðir að enginn megi missa af tónleikunum annað kvöld á Ingólfstorgi. Hér er hún með konu sinni, Birnu Maríu Björnsdóttur. Fréttablaðið/valli „
Þetta verður alveg æðislega skemmtilegt og eitthvað sem enginn má missa af," segir Sigríður Beinteinsdóttir söngkona sem kemur fram á væntanlegum afmælistónleikum Bylgjunnar annað kvöld. Mikið hefur verið að gera hjá Sigríði í sumar en hún eignaðist tvíbura, stúlku og strák, í maí ásamt unnustu sinni, Birnu Maríu Björnsdóttur. „Það er brjálað að gera og gaman," segir Sigríður og bætir við að tvíburarnir verði nú ekki baksviðs á tónleikunum enda þeir of seint um kvöldið fyrir ungabörn. Útvarpsstöðin Bylgjan heldur upp á 25 ára afmæli stöðvarinnar með því að slá upp allsherjar tónlistarveislu á Ingólfstorgi á Menningarnótt. „Ég bara trúi því ekki að það séu komin 25 ár, mér finnst eins og það séu svona tvö ár síðan þetta byrjaði," segir Sigríður, sem hefur fylgt Bylgjunni frá upphafi árið 1986. „Stjórnin var í mörg ár svona sumarsveit Bylgjunnar og við höfum því fylgt stöðinni lengi." Ásamt Sigríði koma fram forsprakkar margra vinsælustu sveita landsins á borð við Egil Ólafsson, Pál Óskar, Helga Björns, Bubba Morthens og Björgvin Halldórsson. Sigríður kemur fram ásamt Grétari Örvarssyni en þau hafa ekki sungið saman á sviði í langan tíma. „Nei, það má segja að þetta sé eins konar endurkoma hjá okkur. Við höfum ekki sungið saman lengi og ætlum að taka fullt af skemmtilegum slögurum," segir Sigríður en hún ætlar einnig að syngja með Björgvini Halldórssyni á tónleikunum en samstarf þeirra hefur vakið mikla lukku hlustenda gegnum tíðina. Dagkráin hefst á Ingólfstorgi klukkan 13.30 og koma þar fram Sveppi og Villi, Jón Jónsson og Friðrik Dór og Páll Óskar. Um kvöldið, klukkan 20, heldur svo fjörið áfram en stjörnuhljómsveitin stígur á svið klukkan 21. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Við unnum í nágrannalottóinu“ Lífið Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Tíska og hönnun „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Steiney frumsýnir kærastann Lífið „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Lífið Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Fleiri fréttir „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Sjá meira