Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gott grín í fæðingu Ben Stiller, Vince Vaughn og Rosemarie DeWitt hafa öll fallist á að leika í gamanmyndinni Neighborhood Watch. Seth Rogen og Evan Goldberg eiga heiðurinn að handritinu en það var fínpússað af Justin Theroux, ástmanni Jennifer Aniston og handritshöfundi Tropic Thunder. 18.8.2011 15:00
Frostrósa-aðdáendur vilja hitta Jóhönnu „Við höfum verið saman í tuttugu ár og það er ein af ástæðum þess að við ætlum að koma aftur. Svo verð ég líka fimmtugur um þetta leyti,“ segir Craig Murray, Frostrósa-aðdáandi númer eitt frá Ástralíu. 18.8.2011 14:00
Það er rosalegt að sjá þig núna - 30 kg léttari Óskarsverðlaunahafinn, söngkonan Jennifer Hudson, 29 ára, var stórglæsileg klædd í hvítan þröngan kjól eins og sjá má í myndasafni. Söngkonan hefur lést um rúmlega 30 kíló en samhliða því hafa háværar gagnrýnisraddir um vaxtarlag hennar hljómað. Jennifer segir að hún hafi ekkert pælt í vaxtarlaginu eða tölunni sem vigtin sýndi áður en hún flutti til Hollywood. "Mér fannst ég aldrei feit. Mér fannst ég nokkuð eðlileg. Allar stúlkurnar í Chicago litu eins út og ég þannig að þetta var aldrei vandamál," segir Jennifer sem hefur náð að létta sig með því að hreyfa sig daglega og huga sérstaklega vel að mataræðinu. Facebooksíða Jennifer. 18.8.2011 13:06
Forvitnileg stripparamynd Steven Soderbergh er þekktur fyrir að feta ótroðnar slóðir þegar kemur að kvikmyndagerð og víst er að næsta kvikmynd hans, Magic Mike, á eftir að vekja mikla athygli. Hún fjallar um karlkyns strippara og líf hans á Flórída. Myndin verður að hluta til byggð á lífsreynslu bandaríska leikarans Channing Tatum, sem var strippari í Flórída áður en Hollywood uppgötvaði hann. 18.8.2011 13:00
Rómantísk mynd með dönsku ívafi Danski leikstjórinn Lone Scherfig vakti mikla athygli í Ameríku fyrir mynd sína An Education sem gerð var eftir handriti breska rithöfundarins Nick Hornby. Myndin var tilnefnd til þriggja Óskarsverðlauna og allar dyr í Hollywood stóðu Scherfig opnar. 18.8.2011 12:30
Crispin Glover til Íslands "Ég var staddur á tónlistarhátíð á Englandi fyrir tveimur árum og þá var hann með þessa sýningu sína. Ég varð mjög spenntur fyrir því að fá hana til Íslands enda var þetta eitthvað það magnaðasta sem ég hef séð,“ segir Sigurður Magnús Finnsson. Hann stendur fyrir óvenjulegum viðburði í Bíó Paradís í næsta mánuði. 18.8.2011 12:00
Frændur og vinir þenja raddir sínar í Áskirkju Þrír upprennandi íslenskir söngvarar, sem allir eru nemendur íslensks tenórsöngvara í Hollandi, munu þenja raddir sínar í Áskirkju í dag. Auk þeirra munu ýmsir aðrir koma fram, og eru þeir flestir tengdir blóðböndum. 18.8.2011 11:30
Í stresskasti fyrir brúðkaupið Brúðkaup raunveruleikadrottningarinnar Kim Kardashian, 30 ára, sem skoða má í myndasafni, og NBA-leikmannsins Kris Humphries, fer fram eftir aðeins þrjá daga, næsta laugardag. Gestalistinn er fyrir löngu sprunginn og stressið farið að gera vart við sig. Kim var mynduð klædd í skyrtu og stuttbuxur í morgun þegar hún hitti fatahönnuðinn Veru Wang, sem hannar brúðkaupskjólinn hennar, í allra síðasta skipti fyrir stóra daginn. Kim hefur æft eins og brjálæðingur undanfarnar vikur með einkaþjálfara og næringarfræðing sér við hlið svo hún líti sem allra best út þennan mikilvæga dag í lífi hennar. 18.8.2011 11:00
Blása nýju lífi í Gamla bíó Tvö leikverk verða frumsýnd á fjölum Gamla bíós í haust. Fræg íbúð á efstu hæð hússins verður til leigu undir listasýningar og móttökur. 18.8.2011 10:30
Árni og félagar aflýsa Breska hljómsveitin The Vaccines, með bassaleikarann Árna Hjörvar Árnason innanborðs, hefur neyðst til að aflýsa þrennum tónleikum. Ástæðan er þrálát vandamál með rödd söngvarans Justin Young. 18.8.2011 10:00
50 bönd til viðbótar á Airwaves Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves tilkynntu í gær um fimmtíu listamenn sem bæst hafa við dagskrá hátíðarinnar í ár. 18.8.2011 09:00
Nýtt plötuumslag Bjarkar slær í gegn á Facebook Söngkonan Björk frumsýndi í dag umslagið á plötunni Biophilia og lét aðdáendur sína vita á Facebook-síðu sinni og víðar. Viðbrögðin voru vægast sagt jákvæð en á aðeins tíu mínútum voru 5000 manns búnir að "læka" myndina og ríflega 500 búnir að lýsa yfir aðdáun sinni. 17.8.2011 21:00
Kristrún Ösp ólétt Faðernið skiptir ekki máli eins og er, ég tek ofurmömmuna á þetta enda hef ég alltaf verið sjálfstæð og þarf engan maka til að láta hlutina ganga upp....... 17.8.2011 17:11
Ertu með rass eins og Kim Kardashian? Guðlaug Dagmar Jónasdóttir sem landaði 2. sæti í fegurðarsamkeppni Ungfrú Ísland í ár og vinkona hennar, Eva Rakel Jónsdóttir, sem var valin ljósmyndafyrirsæta í sömu keppni, sýna í meðfylgjandi myndskeiði hvernig hægt er að velja hárrétta gallabuxnasniðið á auðveldan máta. Eva Rakel, sem starfar í Levi´s búðinni í Kringlunni finnur út hvaða gallabuxnasnið fer Guðlaugu best. Gallabuxnaframleiðandinn Levi´s gerði mælingar á 60 konum til að sjá hvernig best væri að finna rétt snið fyrir konur út frá vexti. Útfærslurnar urðu þrjár: Slight, Demi eða Bold en sjónvarpsraunveruleikastjarnan Kim Kardashian er einmitt þekkt fyrir síðastnefnda vaxtarlagið. 17.8.2011 15:45
Ótrúlegur fjöldi listamanna á risatónleikum Bylgjunnar Það verður mikið um dýrðir á Ingólfstorgi á Menningarnótt þegar Bylgjan heldur 25 ára afmælistónleika sína. Veislan hefst klukkan 13 og nær hápunkti klukkan 21 þegar ótrúlegur fjöldi af vinsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar mætir á sviðið og tekur sín þekktustu lög sem öll hafa hlotið sess meðal topplaga síðustu 25 ára. Í sumarlok 1986 varð bylting í tónlistarlífi okkar Íslendinga þegar hleypt var af stokkunum fyrstu einkareknu íslensku útvarpsstöðinni og nú fagnar Bylgjan 25 ára afmæli sínu. 17.8.2011 15:15
Fleiri hljómsveitir á Airwaves Í dag var tilkynnt um fimmtíu listamenn sem koma munu fram á Iceland Airwaves til viðbótar. Meðal þeirra sem kynntir voru í dag eru Hjaltalín, HAM, Reykavík!, Lára, Prins Póló, Clock Opera og Active Child. 17.8.2011 15:00
Seacrest á Kanann Útvarpsstöðin Kaninn hyggst hefja beinar útsendingar frá þætti Ryans Seacrest, American Top 40, á næstunni. Þættirnir hafa verið sagðir þeir vinsælustu í heimi en Seacrest fær til sín stærstu stjörnurnar í bandaríska skemmtanabransanum. 17.8.2011 15:00
Bieber mætti í gullbuxum Það líður varla dagur án þess að rauði dregillinn sé dreginn út í Hollywood. Um helgina stóð sjónvarpsstöðin VH1 fyrir hátíðinni Do Something Awards eða "Gerðu eitthvað verðlaunin". 17.8.2011 14:30
Heyrðu þau leigðu heila lest Angelina Jolie, 36 ára, og Brad Pitt, 47 ára, leigðu heila lest fyrir sig, börnin og allan farangurinn sem fylgir þeim til Lundúna í gær. En fjölskyldan er stödd í Bretlandi á meðan Brad er upptekinn við tökur í nýrri mynd sem ber heitið World War Z. Börnin Maddox, 10, Pax, 7, Zahara, 6, Shiloh, 5 og tvíburarnir Knox, og Vivienne, 3, eru greinilega byrjuð að aðlagast Hollywood-lífstílnum því þau voru innan við fimm mínútur að yfirgefa vettvang. 17.8.2011 12:47
Sigurjón með De Niro til Toronto "Þetta er dýrasta óháða kvikmyndin í Bandaríkjunum árið 2010, hún kostaði 65 milljónir dala,“ segir Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi. Kvikmynd hans, Killer Elite, hefur verið valin inn á kvikmyndahátíðina í Toronto þar sem hún verður frumsýnd 10. september í svokölluðum gala-flokki. 17.8.2011 12:00
Victoria tekur mataræðið föstum tökum Victoria Beckham, 37 ára, sem eignaðist sitt fjórða barn, stúlkuna Harper Seven, 10. júlí síðastliðinn er staðráðin í að komast aftur í stærð núll. Sagan segir að hún ætli sér að vera komin í barnastærð fyrir tískuvikuna í New York sem stendur yfir 8.-15. september. Victoria borðar sex máltíðir á dag sem innihalda reyktan lax, chilli-rækjur, túnfisk, sushi og grænmeti. Þá drekkur hún endalaust af vatni samhliða 10 mínútna pilates æfingum á hverjum degi. Eina 'snakkið' sem Victoria leyfir sér eru ber og möndlur. 17.8.2011 11:15
Vekur athygli vestanhafs „Það er búið að ganga vel og ég er að finna mig í faginu,“ segir Ása Helga Hjörleifsdóttir, meistaranemi í kvikmyndagerð við Columbia-háskólann í New York. Ása Helga er stödd hér á landi til að taka upp útskriftarverkefnið sitt við skólann, en hún hefur vakið eftirtekt fyrir góða handritasmíð. Reyndar svo mikla að Ása Helga er komin með umboðsmann, en það þykir vel af sér vikið og sérstaklega þar sem hún á ennþá eitt ár eftir í skólanum. 17.8.2011 11:00
Skrifar handrit að teiknimyndaseríu Sigurjón Kjartansson og Hugleikur Dagsson eru að þróa nýja teiknimyndaseríu fyrir sjónvarp. Þeir unnu síðast saman að gerð gamanþáttaraðarinnar Hlemmavideó en það er framleiðslufyrirtæki Sigurjóns, Ídea Filmcompany, sem hefur þáttaröðina á sinni könnu. 17.8.2011 10:00
Fyrsta sýnishorn úr heimildarmynd um níumenningana Ge9n er kvikmynd um níumenningana svokölluðu, sem voru þátttakendur í pólitískri aðgerð á pöllum Alþingis 8. desember 2008. 17.8.2011 09:45
Þú lítur ekki út fyrir að vera 53 ára Madonna mætti á Heathrow flugvöllinn í Lundúnum á 53 ára afmælisdeginum sínum með nýja elskhuganum, 24 ára franska dansaranum Brahim Zaibat, og fjórum börnum sínum, Lourdes, Rocco, David, og Mercy. Eins og sjá má í myndasafni lítur söngkonan ekki út fyrir að vera rúmlega fimmtug. 17.8.2011 09:04
Hilary Duff á von á barni Leikkonan úr sjónvarpsþáttunum Gossip Girl og barnastjarnan Hilary Duff er ólétt af sínu fyrsta barni. Duff, sem er 23 ára gömul, staðfesti fregnirnar á heimasíðu sinni á sama degi og hún átti eins árs brúðkaupsafmæli. Duff er gift hokkíleikmanninum Mike Comrie. 17.8.2011 08:00
Ellý og Q4U rokka á Menningarnótt Menningarnótt verður haldin í Reykjavík næstkomandi laugardag. Fjölmargir eru því að leggja lokahönd á dagskránna þar sem boðið verður upp á alls kyns skemmtun og tónleika. Skemmtistaðurinn Dillon við Laugaveg býður upp á tónleikadagskrá sjöunda árið í röð sem byrjar klukkan 15 og endar rétt fyrir flugeldasýninguna klukkan ellefu. 16.8.2011 22:30
Erpur heldur keppni - Önnur leiðin til Færeyja í vinning Rapparinn Erpur Eyvindarson, BlazRoca, hefur blásið til keppni í samvinnu við Prikið og fleiri aðila þar sem hann hvetur tónlistarmenn til að endurhljóðblanda lög sín á sem flottastan máta. Með honum í dómnefnd eru President Bongo úr Gusgus og Óttarr Proppé borgarfulltrúi. 16.8.2011 22:00
Nilli fær að kenna á sviknum loforðum Þórunn Antonía og Björn Bragi virðast ætla að svíkja öll loforð sem þau gefa og greyið Nilli fær að gjalda fyrir það í Týndu kynslóðinni. Þátturinn verður í opinni dagskrá á Stöð 2 á föstudagskvöldum og hefur göngu sína 19. ágúst næstkomandi. 16.8.2011 21:06
Tökulið Game of Thrones væntanlegt hingað í vetur Tökur á einum umtalaðasta þætti Bandaríkjanna um þessar mundir, Game of Thrones, munu fara fram að hluta til hér á Íslandi í lok þessa árs. Þetta kom fram í máli eins aðalleikara þáttanna, Kit Harrington. Harrington sat fyrir svörum á myndasöguhátíðinni ComicCon í lok júlí og upplýsti þar að hann fengi að kynnast alvörukulda á Íslandi. „Það var kalt síðast en nú förum við til Íslands. Og það verður sko kalt,“ hefur vefsíðan Access Hollywood eftir honum. 16.8.2011 17:00
Spurlock sækir Ísland heim Einn vinsælasti heimildarmyndagerðarmaður heims um þessar mundir, Morgan Spurlock, sækir Ísland heim í næstu viku. Hann hyggst sýna nýjustu kvikmynd sína, The Greatest Movie Ever Sold, í Háskólabíói miðvikudaginn 24. ágúst og sitja svo fyrir svörum. Myndin fjallar um svokallaðar vöruinnsetningar í bandarískum afþreyingariðnaði en áhorfendur fá að fylgjast með því hvernig leikstjóranum tekst að fjármagna áðurnefnda heimildarmynd með slíkum innsetningum. 16.8.2011 16:00
Ánægð með brjóstin sín (auðvitað) Leikkonan Salma Hayek, 44 ára, prýðir forsíðu Allure tímaritsins í YSL kjól en hana má skoða í meðfylgjandi myndasafni. Þar svarar Salma spurð út í líkamslögun hennar: Brjóstin á mér, þau eru alls ekki slæm skal ég segja þér. Ég get ekki kvartað yfir þeim. En þegar ég byrjaði í bransanum í Hollywood var mér eingöngu boðið að leika latneskar fáklæddar konur sem sögðu fátt en staðreyndin er sú að ég var aldrei þannig þegar ég bjó í Mexíkó. 16.8.2011 15:00
Svona lítur þú þá út? Meðfylgjandi má sjá myndir af söngkonunni Rihönnu án andlitsfarða og án hárkollu en hún eyðir 1.500.000.- krónum á viku í hárkollur og greiðslur. Eins og sjá má á myndunum er Rihanna gullfalleg með hárið tekið í tagl, án appelsínugula hársins sem hún hefur sést með undanfarið. 16.8.2011 14:00
Læti á lokasprettinum í Reykjavík Runway „Hér er allt á fullu og mikill hamagangur að ganga frá síðustu smáatriðum fyrir úrslitin,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri keppninnar Reykjavik Runway, en úrslitakvöldið er á fimmtudaginn. 16.8.2011 13:00
Jólin komu snemma í ár með sigri KR „Við vorum að grínast með að salan þetta eina kvöld hefði verið meiri en allan júlímánuð,“ segir Hafsteinn Egilsson, vert á Rauða ljóninu á Eiðistorgi. 16.8.2011 12:00
Klámstjarna komin með hárband Hárbönd eru vinsæl hjá stjörnunum í Hollywood. Ashlee Simpson, Paris Hilton, Olsen tvíburarnir, Nicole Richie og fleiri stjörnur sjást oftar en ekki með hárbönd. Nú síðast í fyrradag sást bandaríska klámstjarnan Jenna Jameson með nokkur mismunandi hárbönd á höfðinu í sundlaug á Miami ásamt unnusta sínum, Tito Ortiz. Skoða má klámstjörnuna og fleiri Hollywoodstjörnur með hárbönd. 16.8.2011 10:30
Madonna kelar við unglambið Madonna, sem er 53 ára í dag, var mynduð í nágrenni við New York kela við 24 ára franska elskhuga sinn, dansarann Brahim Zaibat, á meðan börnin hennar, David og Mercy, léku sér í sandinum. Móðir Zaibat, sem Madonna kynntist í september síðastliðinum þar sem hann var einn af hip-hop dönsurum sem skemmtu þegar fatalína Madonnu var kynnt í Macy´s verslun, er 8 árum yngri en Madonna. 16.8.2011 09:30
Rifja upp 16 ára ástarfund Það var í Þjóðleikhúskjallaranum. Þá sé ég þessa fallegu konu koma inn í salinn..." segir Baldvin Örn Berndsen í meðfylgjandi myndskeiði en hann kynntist elskunni sinni, Berglindi Helgadóttur, fyrir 16 árum. Í dag eru þau hamingjusamlega gift og eiga saman þrjú börn. Sögu þeirra má finna á Ástarkorti TM sem er einstakt kort af Íslandi því þar getur fólk getur séð hvar Facebookvinir þeirra sem og aðrir, sem hafa sett merkt inn skemmtilegar minningar, varð ástfangið. Margar skemmtilegar ástarsögur eru nú þegar komnar inn á ástarkortið. Ef fólk á góða ástarsögu getur það merkt hana inn á kortið nákvæmlega þar sem ástin kviknaði. Sjá nánar astarkort.tm.is. Föstudaginn 19. ágúst verður valin besta sagan og parið sem setti söguna inn fær í verðlaun rómantíska helgarferð innanlands með öllu tilheyrandi. Einnig verða önnur minni verðlaun í boði næstu vikurnar. 16.8.2011 07:58
Einstök stund fyrir okkur Ólafur Björn Loftsson tryggði sér keppnisrétt á Wyndham-meistaramótinu í golfi um helgina. Foreldrar hans eru sömuleiðis miklir golfarar og íhuga að fljúga út til að styðja við bakið á stráknum. 16.8.2011 07:00
Yorke veitti innblástur Bassaleikarinn Flea úr Red Hot Chili Peppers fer fögrum orðum um Thom Yorke úr Radiohead. Þeir unnu saman í ofurgrúppunni Atoms For Peace með Patti Smith og Damon Albarn og segir Flea að Yorke hafi kennt honum svo margt. „Hann er ótrúlega góður tónlistarmaður og falleg manneskja. Hann er svo hreinn listamaður. Það hjálpar mikið að vera í kringum manneskju sem sendir frá sér svo jákvæða orku,“ segir Flea. 15.8.2011 16:00
Var einhver að tala um sléttan maga? David Beckham, 36 ára, svamlaði á brimbretti með syni sínum Brooklyn á föstudaginn var í Los Angeles. Daginn eftir voru bræður Brooklyn, Romeo og Cruz, með í för. Eins og sjá má á myndunum er kappinn í hörkuformi. 15.8.2011 14:41
Myndir þú bera þig fyrir góðan málstað? Meðfylgjandi má sjá myndir af þekktum konum, og manni, í Hollywood sem hafa berað sig fyrir góðan málstað. Flest hafa þau pósað léttklædd fyrir dýraverndunarsamtökin Peta sem berjast fyrir réttri meðferð á dýrum. Í myndasafni má sjá Pamelu Anderson, Brook Hogan, Ditu Von Teese, Audrinu Patridge, Holly Madison, Khloe Kardashian, Jennu Jameson, Steve-O og Evu Mendes hátta sig til að vekja athygli á málstaðnum. 15.8.2011 13:17
Fimm dagar í brúðkaupið Fjölmiðlar vestan hafs standa á öndinni yfir væntanlegu brúðkaupi sjónvarpsstjörnunnar Kim Kardashian og Kris Humphries, en nú eru aðeins fimm dagar þar til þau ganga í heilagt hjónaband og það í beinni útsendingu. Kim, sem ætlar að gifta sig í Veru Wang kjól, æfir líkamsrækt oftar en einu sinni á dag á milli þess sem hún pósar á rauða dreglinum eins og sjá má í myndasafni. 15.8.2011 12:48
Smellur Larsens í íslenskri mynd "Lagið smellpassar inn í myndina,“ segir Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, leikstjóri kvikmyndarinnar Á annan veg, sem verður frumsýnd 2. september. 15.8.2011 12:30
Eignaðist aðra stúlku Jessica Alba og eiginmaður hennar Cash Warren eignuðust stúlku á laugardaginn. Jessica skrifaði á Facebook síðuna sína eftirfarandi: Stóra systir, Honor, gæti ekki verið spenntari yfir nýja fjölskyldumeðlimnum. Takk fyrir allan stuðninginn á meðgöngunni. Hann er gríðarlega milvægur fyrir mig. Jessica og Cash kynntust við tökur á kvikmyndinni Fantastic Four árið 2004. 15.8.2011 11:32