Baltasar fær nýjan frumsýningardag 19. ágúst 2011 14:00 Frumsýning kvikmyndarinnar Contraband hefur verið færð fram til 13. janúar. Baltasar Kormákur leikstýrir myndinni en með aðalhlutverkin fara þau Mark Wahlberg og Kate Beckinsale.
Kvikmyndaverið Universal hefur ákveðið að færa frumsýningardag Contraband sem Baltasar Kormákur leikstýrir fram til 13. janúar en til stóð að myndin yrði frumsýnd um miðjan mars. Leikstjórinn leggur lokahönd á myndina um þessar mundir. „Reglan er yfirleitt sú að ef menn eru hrifnir þá er frumsýningin færð fram. Ef ekki eru myndirnar stundum færðar aftar í dagatalið," segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið. Hann var staddur í London þegar Fréttablaðið náði tali af honum en hann var að litgreina filmuna ásamt kvikmyndatökumanninum Barry Ackroyd. Að sögn leikstjórans er búið að klippa myndina og virðist „klippið" hafa farið það vel ofan í forsvarsmenn Universal að Contraband hefur verið úthlutað þriggja daga helgi. Hún verður frumsýnd föstudaginn 13. janúar en helgin sem þá gengur í garð er kennd við blökkumannaleiðtogann séra Martin Luther King. Contraband er endurgerð á íslensku kvikmyndinni Reykjavik-Rotterdam sem Óskar Jónasson leikstýrði og var frumsýnd fyrir þremur árum. Baltasar lék sjálfur aðalhlutverkið í myndinni en Mark Wahlberg tekur við keflinu af honum. Meðal annarra leikara má nefna Kate Beckinsale, Ben Foster, Giovanni Ribisi og J.K Simmons auk Lukas Haas og Diego Luna.
Mest lesið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Fleiri fréttir Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Sjá meira