Fleiri fréttir

Jesse James lofaður tattúkonu

Jesse James, fyrrum eiginmaður leikkonunnar Söndru Bullock, hefur trúlofast húðflúrlistakonunni Kat Von D. Parið hóf samband sitt síðasta sumar, skömmu eftir skilnað James við Bullock. Í viðtali við tímaritið People opinberar James ást sína á Von D og segist aldrei hafa kynnst jafn yndislegri manneskju. „Árið 2010 var besta ár lífs mín því ég varð ástfanginn af bestu vinkonu minni. Hún er frábær kona sem stóð með mér á tíma þegar allur heimurinn snéri við mér baki. Ég get ekki sett tilfinningar mínar í orð og ég er himinlifandi að hún hafi sagt „já“. Það á eftir að verða dásamlegt að eldast með henni,“ sagði James.

Halle Berry reið barnsföður sínum

Leikkonan Halle Berry mun vera afskaplega stjórnsöm ef marka má frétt sem birt var á vefsíðunni Radaronline.com. Berry vill til að mynda ekki að fyrrum sambýlismaður hennar, Gabriel Aubry, fari á stefnumót með frægum konum þrátt fyrir að hún sé sjálf í sambandi með franska leikaranum Oliver Martinez. „Ef Gabriel gerir ekki nákvæmlega það sem Halle segir honum að gera verður hún óð og öskrar á hann. Halle er mjög skapstór og stjórnsöm á bak við tjöldin," var haft eftir heimildarmanni. „Halle vill alls ekki að hann fari á opinber stefnumót og vill helst að hann hitti óþekktar konur, ekki aðrar stjörnur. Hún gaf honum úrslitakost, annað hvort hættir hann að hitta konur sem munu draga athygli að honum eða hann heldur friðinn á milli þeirra tveggja. Gabriel óttast að ef hann heldur Halle ekki góðri að þá fái hann ekki að hitta dóttur sína eins oft og hann langar til," sagði heimildarmaðurinn sem ber Berry ekki góða söguna.

Ragga stýrir umræðum í Universal Studios

„Ég var búin ad gleyma hvað það er hrikalega gaman ad krukka í áhugaverðu fólki,“ segir Ragnhildur Magnúsdóttir, kvikmyndagerðarmaður og fyrrverandi útvarpsmaður á Bylgjunni.

Portúgalir trylltust yfir Bloodgroup

Hljómsveitin Bloodgroup spilaði fyrir 2000 tryllta námsmenn í Porto í Portúgal í síðustu viku. „Ég hef aldrei heyrt meiri hávaða,“ segir Ragnar Láki hljómborðsleikari.

Atli Rafn talar fyrir Þór og Laddi Mjölni

Atli Rafn Sigurðarson og Þórhallur Sigurðsson, Laddi, hafa verið ráðnir í tvö stærstu hlutverkin í teiknimyndinni Þór sem framleiðslufyrirtækið Caoz er að gera. Atli Rafn mun tala fyrir Þór og Þórhallur verður Mjölnir.

Geir Ólafs flýgur út í febrúar

Söngvarinn Geir Ólafsson hefur verið bókaður á tvenna tónleika í Los Angeles í febrúar og stefnir á að syngja á einum til viðbótar.

Þessu liði leiddist greinilega ekki

Meðfylgjandi myndir tók Sveinbi ljósmyndari hjá Superman.is um helgina á skemmtistöðunum Risinu, Hressó, Bankanum og Hvítu perlunni. Eins og sjá má í myndasafni leiddist fólkinu ekki á djamminu.

Sumir höfðu vit á því að vera í LEÐURBUXUM

Skemmti- og spurningaþátturinn Ha? hóf göngu sína á Skjá einum í gærkvöldi. Umsjónarmaður er leikarinn Jóhann G. Jóhannsson og liðsstjórar eru þau Edda Björg Eyjólfsdóttir og Sólmundur Hólm. Leðurbuxur Eddu Bjargar stálu senunni því Jói og Sóli litu út eins og viskustykki, klæddir í skyrtur, á meðan Edda geislaði af kynþokka. Baggalútsmenn mættu til leiks eiturhressir að vanda eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Draumastarfið hjá All Saints

Nýtt útlit hljómsveitarinnar The Charlies vakti athygli lesenda Fréttablaðsins fyrir skemmstu. Manneskjan á bak við fötin sem stúlkurnar í The Charlies klæddust er Elísabet Kristófersdóttir.

Í hlutverki Saddams

Sacha Baron Cohen ætlar að leika Saddam Hussein, fyrrverandi Íraksforeta, í gamanmyndinni The Dictator. Myndin er byggð á bókinni Zabibah and The King sem Hussein skrifaði sjálfur.

Jóhanna Guðrún verður í stuttum kjól í kvöld

„Það leggst bara mjög vel í mig að keppa aftur. Smá meiri pressa en í seinustu forkeppni en það er bara gott," segir Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söngkona en hún snýr aftur í Eurovision með því að syngja lag Maríu Bjarkar Sverrisdóttur í Söngvakeppni Sjónvarpsins í kvöld. Jóhanna er öllum hnútum kunn í Söngvakeppninni, vann hana 2008 og fór með lagið Is It True? alla leið í annað sætið í Moskvu, sællar minningar. Hvernig hefur undurbúningurinn fyrir keppnina gengið? „Æfingarnar hafa gengið frábærlega vel enda er ég með frábært fòlk með mér," segir hún. „Ég ætla að vera í kjól og í fyrsta skipti í Eurovision er ég ekki í síðum kjól. Kjóllinn var keyptur fyrir mig en ég lét síðan breyta honum aðeins og er rosalega ánægð með útkomuna," segir Jóhanna Guðrún spurð í hverju hún ætlar að vera í kvöld.

Arnaldur ánægður með nýja útgáfu

„Þetta er náttúrulega frábært að fá þessa bók út á þýsku og það verður gaman að vita hvernig henni vegnar,“ segir metsöluhöfundurinn Arnaldur Indriðason.

Arnar Ingi er endurfæddur Johnny Cash

Arnar Ingi hefur verið aðdáandi Johnny Cash síðan hann var 13 ára. Hann tók lagið Folsom Prison Blues í útvarpsþættinum Harmageddon.

Frönsk ofurpía bjargar París

Allt er á öðrum endanum í París þegar flugeðluegg klekst út á hillu í náttúrugripasafninu. Hin unga og skelegga fréttakona Adèle er þó hvergi bangin og lendir í alls kyns óvæntum ævintýrum.

Menningarvitar á Facebook vilja menningarfréttir á RÚV

Hallgrímur hefur stofnað sérstaka grúppu á Facebook undir nafninu Menningarfréttir í útvarp og sjónvarp. Hann skorar á listamenn að fylla pósthólfið hjá Páli Magnússyni útvarpsstjóra og Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrárstjóra með áskorun um að koma á fót sérstökum menningarfréttum með svipuðu sniði og íþróttafréttir hafa verið.

Kattarkonan Hathaway

Anne Hathaway mun leika Selinu Kyle og hennar annað sjálf, Kattarkonuna, í þriðju Batman-myndinni, sem nefnist The Dark Knight Rises. Hathaway, sem er 28 ára, fylgir þar í fótspor Michelle Pfeiffer og Halle Berry sem hafa báðar spreytt sig á sama hlutverki. „Hathaway verður frábær viðbót við leikaraliðið okkar á sama tíma og sagan okkar er að verða að veruleika,“ sagði leikstjórinn Christopher Nolan. Tom Hardy, sem lék í mynd Nolans, Inception, leikur illmennið Bane í The Dark Knight Rises. Christian Bale verður sem fyrr í hlutverki skikkjuklæddu hetjunnar. Myndin er væntanleg í bíó 20. júlí á næsta ári.

Jordan í erfiðum málum

Ein frægasta glamúr­fyrirsæta Breta, Katie Price, gæti verið á leiðinni með skilnað sinn og bardagakappans Alex Reid fyrir dómstóla. Skilnaðurinn er forsíðufóður fyrir bresku blöðin. Eftir aðeins eitt ár í hjónabandi tilkynnti fyrirsætan Katie Price að hún hygðist skilja við bardagakappann Alex Reid. Reid þessi er fremur vafasamur klæðskiptingur sem hefur haft atvinnu af blandaðri bardagalist og var handtekinn, ef marka má breska blaðið The Sun, sumarið 2006 vegna gruns um innflutning á kókaíni. Þá fjallaði breska pressan ítarlega um grófa fullorðinsmynd þar sem Alex Reid sást leika í nauðgunaratriði.

Leita að ofur­fyrirsætu

Leitin að næstu Elite-stúlku landsins hefst á laugardag en þá munu aðstandendur Elite-skrifstofunnar taka á móti áhugasömum stúlkum á skrifstofu sinni við Klapparstíg 25-27 milli klukkan 14.00 og 17.00.

Í KLIKKAÐ FORM rétt eftir BARNSBURÐ

Freyja Sigurðardóttir, einkaþjálfari hjá Hreyfingu og margfaldur Fitnessmeistari er þriggja barna móðir. Yngsta barn Freyju er aðeins 15 mánaða gamalt. Í meðfylgjandi myndskeiði fræðir hún okkur um heilsu og hvernig hún kemur sér í gott líkamlegt form.

Óskabarn þjóðarinnar

Rapparinn Ramses fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar í kvöld. Hann blandar saman rappi og popptónlist á plötunni, sem hann segir nauðsynlegt ætli menn að fá eitthvað út úr harkinu.

Heimsendir helmingi stærri en Fangavaktin

„Þetta er svo stór sería. Það er alveg gríðarlegt magn af fólki sem birtist, við erum með heilan geðspítala,“ segir leikstjórinn Ragnar Bragason.

Heillaður af tónlist

Josh Homme, forsprakki Queens of the Stone Age, hefur staðfest að hljómsveitin sé byrjuð að undir­búa nýja plötu, tæpum fjórum árum eftir að sú síðasta, Era Vulgaris, kom út. „Ég er byrjaður að spila aftur bara til að spila aftur og er aftur orðinn heillaður af tónlistinni. Það er langt síðan ég gat síðast spilað án þess að vera undir einhvers konar þrýstingi,“ sagði Homme.

Hittu sömu aðdáendur og 1984

„Þetta var frábært. Við hittum mikið af fólki sem hafði séð okkur "84 þegar við fórum síðast og það var rosalega hamingjusamt að sjá okkur aftur,“ segir Jóhann Ásmundsson, bassaleikari Mezzo­forte.

Sveppi og Auddi teknir á teppið

„Þetta var bara mjög notalegur fundur og það fór mjög vel á með okkur,“ segir Sverrir Þór Sverrisson sjónvarpsmaður. Sverrir og Auðunn Blöndal funduðu í gærmorgun með Umboðsmanni barna, Margréti Maríu Sigurðardóttur.

Tvímælalaust á Stöð 2

Borgarstjórinn Jón Gnarr verður með Sigurjóni Kjartanssyni í umræðuþættinum Tvímælalaust sem hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Þátturinn verður í opinni dagskrá klukkan 19:20.

Heimilislegt að sofa með riffil við hliðina á rúminu

Strákarnir í Diktu hafa verið á ferðalagi um Þýskaland síðustu daga. Áhorfendur hafa látið þá vita hvernig staðan er í leikjum íslenska landsliðsins og staðalbúnaður hótelherbergja í Hollandi kom skemmtilega á óvart.

Carlos D er fífl og snillingur

Paul Banks, söngvari bandarísku hljómsveitarinnar Interpol, kallaði Carlos Dengler, fyrrverandi bassaleikara hljómsveitarinnar, fífl í viðtali við ástralska útvarpsstöð. Hann sagði einnig að Dengler væri snillingur.

Allir í bænum klappa manni á bakið og hrósa stráknum

„Það hafa verið mikil veisluhöld hérna, við vorum fimmtán saman í gær [í fyrradag] að horfa á leikinn gegn Austurríki. Ættingjarnir eru alveg að fara yfir um,“ segir Jón Ólafur Óskarsson, faðir hornamannsins knáa Þóris Ólafssonar.

Finnst þér þetta við hæfi orðin FERTUG?

Leikkonan Jennifer Aniston, 41 árs, prýðir forsíðu febrúar útgáfu Allure tímaritsins. Myndasyrpu af leikkonunni má finna í blaðinu þar sem hún stillir sér upp klædd í náttföt með bangsa eins og sjá má í myndasafni. Anniston segist ekki taka sjálfa sig alvarlega í umræddu blaði: Mér líður vel þegar ég læt eins og kjáni. Það skemmtilegasta sem ég geri er að láta eins og asni. Ég er aldrei of alvarleg og upptekin af því hvernig ég haga mér."

Ragnhildur Steinunn aldrei glæsilegri

„Það er alveg greinilegt að tölvupósturinn sem ég sendi á sínum tíma og þessi stormur í vatnsglasi hefur skilað sínu. Ragnhildur Steinunn hefur sennilega aldrei verið glæsilegri í sjónvarpi,“ segir Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands. Hún var ákaflega sátt við útlit Ragnhildar Steinunnar og Guðmundar Gunnarssonar í fyrstu undan­keppni Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn.

Baggalút mest skilað eftir jól

Plötunni Næstu jól með Baggalút var mest skilað eftir nýafstaðna jólatörn hjá Senu, stærsta útgáfufyrirtæki landsins. Platan varð sú næstsöluhæsta á síðasta ári og seldist í 8.100 eintökum fyrir jól, þrátt fyrir að hafa verið ófáanleg í nokkra daga vegna óveðursins í Bretlandi.

Frumsýningu frestað

Frumsýningu söngleiks um köngulóarmanninn á Broadway hefur verið frestað fram í miðjan mars. Að sögn framleiðandans, Michaels Cohl, þurfti að fínpússa ýmislegt, þar á meðal nýjan endi. Söngleikurinn hefur lent í miklum hremmingum síðan æfingar hófust. Fjórir leikarar hafa meiðst, auk þess sem aðalleikkonan, Natalie Mendoza, hætti við verkefnið á síðasta ári. Bono og The Edge úr U2 semja tónlistina við söngleikinn.

Þolir ekki frægðina

Twilight-leikkonan Kristen Stewart er forsíðustúlka febrúarheftis bandaríska Vogue. Í viðtali við tímaritið viðurkennir Stewart að hún kunni illa við frægðina.

Hálfblindur poppari

Popparinn apl.de.ap úr hljómsveitinni Black Eyed Peas er nánast blindur vegna sjaldgæfs augnsjúkdóms. Rapparinn og upptökustjórinn, sem heitir réttu nafni Allan Pienda Lindo, hefur frá barnæsku verið með sjúkdóminn nystagmus sem veldur því að augun tina og hann sér allt í þoku.

Sumir skemmtu sér betur en aðrir

Á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í miðbæ Reykjavíkur nýliðna helgi má meðal annars sjá stelpur kyssast, allsérstakt húðflúr og fólk skemmta sér. Ljósmyndarinn Sveinbi á Supmerna.is myndaði á skemmtistöðunum Hvíta perlan og Hressó.

Leitar huggunar hjá Timberlake

Leikkonan Scarlett Johansson mun hafa leitað huggunar hjá söngvaranum Justin Timberlake eftir að hún skildi við eiginmann sinn, leikarann Ryan Reynolds.

Krummi stefnir á tvær plötur í ár

„Maður var svona meira að sá á síðasta ári en árið í ár verður meiri uppskera,“ segir Krummi Björgvinsson, oftast kenndur við Mínus. Hann verður með tvær plötur í ár eftir að hafa látið lítið fyrir sér fara á því síðasta. Þar ber fyrst að nefna fyrstu hljómplötu rokksveitarinnar Mínus í þrjú ár.

Havarí víkur fyrir hóteli

Menningarafurðastöðin Havarí hættir starfsemi í Austurstræti 6 laugardaginn 29. janúar. „Leigusamningurinn rennur út um mánaðamótin. Þetta vofði alltaf yfir,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson í Havaríi, en til stendur að opna hótel þar sem Havarí stendur núna.

Elíza með EP-plötu

Elíza Geirsdóttir Newman hefur sent frá sér þriggja laga EP-plötu sem kemur út í stafrænu formi um allan heim. Platan inniheldur lögin Ukulele Song For You, Eyjafjallajökull, sem sló í gegn þegar Elíza flutti það á fréttastöðinni Al Jazeera, og áður óútgefið lag sem nefnist Out of Control.

Facebook-mynd með fernu

The Social Network og Glee voru sigurvegarar kvöldsins á Golden Globe-hátíðinni í Los Angeles.

Sjá næstu 50 fréttir