Yfir tvö þúsund á Rokland 19. janúar 2011 05:00 Ágæt aðsókn Rokland fékk ágætis aðsókn um helgina en alls sáu 2.182 hana. Hér eru Ólafur Darri Ólafsson og Elma Lísa Gunnarsdóttir í hlutverkum sínum.
Klovn er enn vinsælasta mynd landsins. Ágætis aðsókn hefur einnig verið á íslenskar myndir. Rokland, kvikmynd Marteins Þórssonar eftir bók Hallgríms Helgasonar, fékk ágætis aðsókn um helgina. Alls sáu hana 2.182 sem verður að teljast fínt. Myndin hefur fengið mjög blendnar viðtökur, fékk tvær stjörnur í Fréttablaðinu, þrjár stjörnur í Fréttatímanum en fjórar í Morgunblaðinu; gagnrýnendur virðast því skiptast í nokkuð ólík horn. Myndin segir frá Bödda, sem tekur að sér framhaldsskólakennarastöðu á Sauðárkróki þar sem móðir hans býr. Böddi hefur sterkar skoðanir á öllu og nær á stuttum tíma að fá alla íbúana upp á móti sér. Ólafur Darri leikur aðalhlutverkið í myndinni en hann er dyggilega studdur af þeim Láru Jóhönnu Jónsdóttur, Elmu Lísu Gunnarsdóttur og Stefáni Halli Stefánssyni. Kvikmyndin Gauragangur var frumsýnd á annan í jólum en hún er einnig byggð á skáldsögu, samnefndri bók Ólafs Gauks um Orm Óðinsson og glímuna við lífið sjálft. Hana hafa séð 9.427, sem telst ágætis aðsókn þótt aðstandendur hafi eflaust gert sér vonir um að myndin myndi ná til fleiri. Þetta er engu að síður svipaður fjöldi og sá unglingamyndina Óróa á sínum tíma. Annars virðist fátt geta skákað Klovn: The Movie því alls hafa nú þrjátíu þúsund séð þá Frank Hvam og Casper Christensen í alls konar vandræðum. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira