Sveppi og Auddi teknir á teppið 20. janúar 2011 14:15 Sveppi og Auddi voru nokkuð ánægðir með fundinn sem þeir áttu með Umboðsmanni barna. Þeir ætla að taka tillit til ábendinga hans í framtíðinni. „
Þetta var bara mjög notalegur fundur og það fór mjög vel á með okkur,“ segir Sverrir Þór Sverrisson sjónvarpsmaður. Sverrir og Auðunn Blöndal funduðu í gærmorgun með Umboðsmanni barna, Margréti Maríu Sigurðardóttur. Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku skrifaði Umboðsmaður barna bréf á vef sínum í lok desember þar sem hann greindi frá töluverðum fjölda kvartana vegna þáttar þeirra félaga þann 5. nóvember. Þar var leikskóli heimsóttur og sýnt þegar Auðunn Blöndal kúgaðist yfir barnableyjum og kynfærum og hægðum barns brá fyrir. Þá var sjónvarpsþátturinn Ameríski draumurinn einnig gagnrýndur en þar ferðuðust þeir félagar um Ameríku með Vilhelm Antoni Jónssoni og Agli Einarssyni. Einnig höfðu borist kvartanir yfir því að Sverrir Þór stjórnaði barnaþætti fyrir yngstu kynslóðina um helgar en væri þess á milli að gera hluti sem teljast ekkert sérstaklega barnvænir. Sverrir segir að aðdáendur föstudagsþáttanna þeirra megi ekki búast við neinum gríðarlegum áherslubreytingum í kjölfar fundarins; það sé hins vegar gott fyrir þá að hafa þetta á bak við eyrað. „Það var fínt fyrir okkur að vera dregnir aðeins út úr þessari blöðru okkar, við höldum að við megum allt og að allt sé fyndið. Við erum auðvitað bara með sjónvarpsþátt og stundum er kvartað og stundum hlegið og stundum bæði,“ segir Sverrir. Hann sagðist hins vegar skilja áhyggjur sumra að hann væri að byggja með Villa í morgunsjónvarpinu en hlypi um á tillanum á föstudagskvöldum. „Ég skil þetta sjónarmið mjög vel. En hvað getur maður gert?“- fgg
Mest lesið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira