Jordan í erfiðum málum 21. janúar 2011 14:00 Glamúr Það er ekki mikill glamúr yfir skilnaði Katie Price og Alex Reid, eins þekktasta fjölmiðlapars Bretlands. Price hefur nú leitað til þekkts skilnaðarlögfræðings. NordicPhotos/Getty
Ein frægasta glamúrfyrirsæta Breta, Katie Price, gæti verið á leiðinni með skilnað sinn og bardagakappans Alex Reid fyrir dómstóla. Skilnaðurinn er forsíðufóður fyrir bresku blöðin. Eftir aðeins eitt ár í hjónabandi tilkynnti fyrirsætan Katie Price að hún hygðist skilja við bardagakappann Alex Reid. Reid þessi er fremur vafasamur klæðskiptingur sem hefur haft atvinnu af blandaðri bardagalist og var handtekinn, ef marka má breska blaðið The Sun, sumarið 2006 vegna gruns um innflutning á kókaíni. Þá fjallaði breska pressan ítarlega um grófa fullorðinsmynd þar sem Alex Reid sást leika í nauðgunaratriði. Allt varð brjálað í breskum blöðum þegar kvisaðist út að þau væru skilin og ekki versnaði ástandið hjá blöðunum þegar Reid neitaði að yfirgefa heimili þeirra nema Katie greiddi honum eina milljón punda. Sannkallaður fjölmiðlasirkus myndaðist sem virðist engan endi ætla að taka. Price hefur nú leitað til skilnaðarlögfræðingsins Fionu Shackleton, sem sá einnig um skilnað hennar og André. Price hefur augljóslega áhyggjur af auði sínum og sagði í yfirlýsingu sinni, sem að sjálfsögðu var send fjölmiðlum, að Alex Reid hefði eingöngu verið á höttunum eftir peningum og frægð. Söguþráðurinn minnir óneitanlega á raunveruleikaþáttaseríu eða lélega sápu því breskir fjölmiðlar halda því fram að Price hafi fyrir löngu verið búin að fá nóg af Reid og viljað skilnað. Og undir lokin hafi hún hræðst þráhyggju hans gagnvart sér og ekki séð neinn annan kost en að senda frá sér yfirlýsingu um skilnaðinn, án samráðs við Reid. The Sun hefur síðan eftir vinum bardagakappans að hann sé í sárum yfir skilnaðinum og að hann trúi því að Price hafi aldrei elskað sig. „Hún vildi bara hefna sín á Peter André, fyrrverandi eiginmanni sínum, og gera hann afbrýðisaman,“ hefur The Sun eftir nánum vini bardagakappans. André sá sig knúinn til að tjá sig um málið og sagðist hafa mestar áhyggjur af börnunum sínum tveim sem hann á með Katie Price. Breskir fjölmiðlar eru sannfærðir um að enn eigi eftir að hitna í kolunum í þessu máli. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Sjá meira