Allir í bænum klappa manni á bakið og hrósa stráknum 20. janúar 2011 04:00 Jón Ólafur Óskarsson fyrir framan treyjuna góðu sem hangir fyrir ofan sjónvarpið. Jón Ólafur er pabbi Þóris Ólafssonar, sem hefur farið á kostum með íslenska landsliðinu. Með honum er Jason Dagur, sonur Þóris. mynd/gks „
Það hafa verið mikil veisluhöld hérna, við vorum fimmtán saman í gær [í fyrradag] að horfa á leikinn gegn Austurríki. Ættingjarnir eru alveg að fara yfir um,“ segir Jón Ólafur Óskarsson, faðir hornamannsins knáa Þóris Ólafssonar. Þórir hefur farið mikinn á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð með „strákunum okkar“, fór á kostum gegn því austurríska í seinni hálfleik og lék við hvurn sinn fingur gegn Japönum. En þrátt fyrir að hann hafi verið viðloðandi landsliðið í tíu ár er þetta einungis annað stórmótið hjá leikmanninum Og það er varla hægt að óska sér betri byrjunar, Þórir er búinn að skora átján mörk, hefur nýtt öll skot sín nema tvö og er því með 90 prósenta skotnýtingu. „Það er nánast alveg sama hvert maður fer, það er gríðarlega mikill áhugi og það skiptir engu hvort maður fer út í búð eða sund, allir klappa manni á bakið og hrósa stráknum,“ segir Jón Ólafur. Fjölskylda Þóris lá á bæn síðustu dagana fyrir HM því meiðslasaga hans fyrir stórmót íslenska landsliðsins hefur verið með hreinum ólíkindum. Hann var nánast öruggur um sæti í ólympíuliðinu fræga en viðbeinsbrotnaði skömmu fyrir mótið og neyddist til að draga sig út úr hópnum. Þegar kom að Evrópumótinu í Austurríki, þar sem Íslendingar unnu brons, var Þórir enn og aftur kallaður til starfa. En þá dundu ósköpin yfir. „Við förum alltaf saman í sund þegar hann er hérna heima og vorum eitthvað að kljást og þá rifnaði eitthvað í vöðvanum. Hann æfði reyndar eitthvað aðeins eftir það en varð að draga sig út úr liðinu,“ segir Jón Ólafur, sem var svo illa haldinn af samviskubiti að hann horfði ekki á leiki landsliðsins það skiptið, fór heldur í fjallgöngu þegar þeir voru sýndir. „Ég hafði hreinlega ekki þolinmæði fyrir því.“ En nú hangir landsliðstreyja Þóris fyrir ofan sjónvarpið á heimilinu og hinar treyjurnar eru einnig til sýnis uppi á vegg. Og Jón Ólafur er farinn að gæla við ferð til Svíþjóðar. Hann ætlar að láta það ráðast af úrslitum leiksins við Norðmenn. „Ég er sko búinn að vera að skoða miða og þegar ég sé að þeir eru að fara eitthvað langt þá skelli ég mér, tek eitthvað af börnunum og kannski tengdasoninn með.“ freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann Sjá meira