Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Góðar viðtökur við Tvinna.is „Viðtökurnar hafa verið framar vonum,“ segir Ragnar Freyr Pálsson, einn af stofnendum síðunnar Tvinna.is. Hún sérhæfir sig í atvinnuauglýsingum fyrir skapandi greinar. 17.1.2011 10:00
Lag til heiðurs McCartney Sigurður Eyberg úr rokksveitinni Deep Jimi and the Zep Creams hefur gefið út sína fyrstu sólóplötu. Eitt lag er tileinkað Paul McCartney. 17.1.2011 09:00
Skilja sem vinir Faðir leikkonunnar Keiru Knightley hefur staðfest að dóttir hans og unnusti hennar, breski leikarinn Rupert Friend, hafa slitið sambandi sínu. Parið kynntist árið 2005 við tökur á kvikmyndinni Pride and Prejudice. 17.1.2011 06:00
Safnari fær loksins áritun á Lífsjátningu Guðmundu „Þetta er stórmerk kona. Hún náði langt og söng fyrir Bandaríkjaforseta á lóð Hvíta hússins í den,“ segir hljómplötusafnarinn Ólafur Sigurðsson. 17.1.2011 04:00
Frægur leikstjóri á leið til Grundarfjarðar Franski leikstjórinn Romain Gavras verður gestur og dómari á Northern Wave-kvikmyndahátíðinni sem haldin verður í Grundarfirði fyrstu helgina í mars. Gavras hefur unnið með ýmsum þekktum tónlistarmönnum og leikstýrði meðal annars hinu umdeilda myndbandi söngkonunnar M.I.A. við lagið Born Free. Auk þess hefur hann unnið með bresku hljómsveitinni The Last Shadow Puppets og hinni vinsælu danssveit Justice. 16.1.2011 09:30
Ferskar tískufyrirmyndir Smekkkonur á borð við Alexu Chung, Daisy Lowe, Chloé Sevigny og Carrey Mulligan þóttu bera af í klæðaburði árið 2010 og voru allar með puttann á púlsinum þegar kom að nýjustu tískustraumum. Nokkur ný andlit hafa nú stigið fram á sjónarsviðið sem vert er að taka eftir. Þar fer fremst í flokki nýr ritstjóri franska Vogue, Emanuelle Alt, sem verður án efa meira í sviðsljósinu núna. 16.1.2011 07:30
Engin virðing sýnd Stórleikarinn Michael Douglas greindist með krabbamein í hálsi um mitt síðasta ár og gekk í kjölfarið í gegnum stranga lyfjameðferð. Hann hefur nú náð fullum bata og einbeitir sér að því að ná aftur heilsu og fyrri styrk. 15.1.2011 19:00
Frönsk hátíð í ellefta sinn Frönsk kvikmyndahátíð verður haldin í ellefta sinn 21. janúar til 3. febrúar í Háskólabíói. Dagana 12. til 16. febrúar verður hún í Borgarbíói á Akureyri. 15.1.2011 22:00
Gerir grín að Charlie Sheen Grínistinn Ricky Gervais ætlar að beina athyglinni að þeim sem eru veikburða og geta ekki varið sig þegar hann kynnir Golden Globe-verðlaunin í annað sinn í næstu viku. Leikararnir Charlie Sheen og Mel Gibson, sem báðir hafa lent í vandræðum í einkalífinu, fá einnig sinn skerf af bröndurum. 15.1.2011 16:00
Firth nánast öruggur um sigur Golden Globe verðlaunin verða afhent á sunnudagskvöld en það eru samtök erlendra blaðamanna í Hollywood sem standa að þeim. Verðlaunin þykja gefa góða vísbendingu til hverra Óskar frændi fer í heimsókn í ár. Búist er við nokkurri harðri baráttu þótt nokkrir flokkar þyki vera fyrir fram afgreiddir. Colin Firth og Natalie Portman eru þannig sögð örugg um sigur í sínum flokkum. Firth fer á kostum í kvikmyndinni The King‘s Speech sem Georg VI. 15.1.2011 13:00
Spennandi glíma við menningararfinn Fjalla Eyvindur eftir Jóhann Sigurjónsson gengur í endurnýjun lífdaga í Norðurpólnum í dag. Marta Nordal leikstjóri segir það áskorun að setja upp klassískt verk í hráu rými. 15.1.2011 10:30
Bieber á sjúkrahús Popparinn Justin Bieber þurfti að fara á sjúkrahús á dögunum vegna öndunarerfiðleika. Um ofnæmisviðbrögð var að ræða sem komu upp þegar hann var í gestahlutverki í sjónvarpsþáttunum CSI. Ungstirnið var útskrifað af sjúkrahúsinu fimmtíu mínútum síðar. 15.1.2011 09:30
Mikið rétt það var fallega fólkið sem mætti Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningu gamanleikritsins AFINN í Borgarleikhúsinu í kvöld. Einn ástsælasti leikari þjóðarinnar Sigurður Sigurjónsson leikur aðalhlutverkið í þessu glænýja íslenska leikriti eftir Bjarna Hauk Þórsson. Eins og myndirnar sýna voru frumsýningargestir áberandi fríðir. 14.1.2011 20:48
Rachel Zoe hannar eigin fatalínu Ofurstílistinn Rachel Zoe hefur hannað sína fyrstu fatalínu og ber hún heitið The Rachel Zoe Collection. Zoe er einn eftirsóttasti stílistinn í Hollywood og hefur unnið með stórstjörnum á borð við Nicole Richie, Keiru Knightley, Cameron Diaz, Jennifer Garner, Kate Hudson, Kate Beckinsale, Demi Moore og Liv Tyler. 14.1.2011 11:00
Nýja Lisbeth Salander frumsýnd Fyrsta opinbera ljósmyndin af Rooney Mara í gervi Lisbeth Salander hefur verið birt í tímaritinu W. Kvikmyndin The Girl With The Dragon Tattoo, sem er Hollywood-endurgerð Karlmanna sem hata konur, verður frumsýnd 21. desember og þar leikur Mara hina óútreiknanlegu Salander. 14.1.2011 10:00
Júlli Kemp gerir breska spennumynd Júlíus Kemp hefur verið ráðinn leikstjóri breska sálfræðitryllisins Bait. Hann hefur lesið handritið og líst ágætlega á, segir myndina vera í svipuðum anda og Sleepy Hollow eftir Tim Burton, bara aðeins nútímalegri. 14.1.2011 09:00
Kjartan nýtur sín við kornrækt og ferðaþjónustu Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og formaður bankaráðs Landsbankans, hefur sinnt kornrækt og kaffihúsarekstri fyrir vestan undanfarin ár. Hann rær nú á ný mið í ferðaþjónustu. 14.1.2011 08:00
Erfitt fyrir eldri karla að fá hlutverk Leikarinn Harrison Ford segir að eldri karlar í Hollywood eigi alveg jafn erfitt með að fá góð hlutverk og eldri konur. „Ég skil mjög vel þessar kvartanir um að það séu engin góð hlutverk fyrir eldri konur , en ég vil að það sé ljóst að það eru engin góð hlutverk heldur fyrir eldri karla,“ sagði hann. 14.1.2011 06:15
Tveir risar saman á túr Útlit er fyrir að tvær af stærstu sveitunum í indie-tónlistargeiranum fari saman í tónleikaferðalag í sumar. Um er að ræða Arcade Fire og Portishead. Fréttir af þessu hafa farið sem eldur í sinu um tónlistarheima síðustu daga en engar dagsetningar hafa verið staðfestar. 13.1.2011 23:15
Sömu áhrif og OK Computer Serge Pizzorno, gítarleikari Kasabian, vill að næsta plata sveitarinnar hafi sömu áhrif á hlustendur og OK Computer með Radiohead. „Ég stefni að einhverju álíka frábæru. Það er þessi tilfinning að láta gjörsamlega hrista upp í sér,“ sagði hann við NME. 13.1.2011 22:15
Leikur hina illgjörnu Ma-Ma Hin breska Lena Headey hefur verið ráðin í eitt aðalhlutverkanna í hasarmyndinni Dredd. Headey fer með hlutverk hinnar illgjörnu Madeline Madrigal, eða Ma-Ma, sem er leiðtogi gengis sem hefur tekið yfir Peach Tree City-hverfið þar sem meirihluti myndarinnar gerist. 13.1.2011 21:15
Jens Lekman í spreng Sænski furðupopparinn Jens Lekman hefur haft hægt um sig síðustu misserin en ætlar nú að gera bragarbót þar á. Hann stefnir að því að gefa bæði út breiðskífu og EP-plötu á þessu ári. Lekman er mikið niðri fyrir. Íslandsvinurinn Lekman skrifaði á vefsíðu sína í síðustu viku að aðdáendur hans ættu von á vænni sendingu. 13.1.2011 18:45
Frægir FOLAR elta bolta Meðfylgjandi myndir voru teknar í Fífunni í Kópavogi síðasta laugardag þegar úrlitaleikur í Vodafone Cup bumbuboltamótinu fór fram. Eftir harða rimmu og 2-1 sigur voru sigurvegarnir krýndir með miklum látum, í kampavíns- og konfettiregni með rauða bikarinn á lofti og farseðla til Abu Dhabi í hendinni. Sigurvegarnar kalla sig Uxana, en liðið var skipað Arnari Þór Úlfarsyni, Finni Kolbeinssyni, Hrafnkeli Helgasyni, Jóhannesi Kolbeinssyni, Jóni Björgvini Hermannssyni og Ólafi Má Sigurðssyni. Þeir unnu alla 10 leikina sína í mótinu og ljóst er að Ísland mun eiga verðuga fulltrúa í hinni alþjóðlegu úrslitakeppni Vodafone Cup í næsta mánuði. Alls tóku 72 lið þátt í mótinu og leiknir voru 211 leikir spilaðir. Í myndasafni má meðal annars sjá Ívar Guðmundsson, Auðunn Blöndal og Hjörvar Hafliðason í ham. 13.1.2011 14:00
Komin með nýjan Leikkonan Jenny McCarthy hefur verið dugleg að fara á óvissustefnumót frá því hún sagði skilið við kærasta sinn, leikarann Jim Carrey. Hún var gestur í spjallþætti Ellen Degeneres og sagði þá frá nokkrum mislukkuðum stefnumótum sem hún hafði farið á. 13.1.2011 20:00
Hreinleiki í stað vímuefna Breska poppsöngkonan Jessie J er líklegust til að slá í gegn árið 2011 samkvæmt nýjum lista BBC. Hún fékk hjartaáfall 18 ára og má ekki nota vímuefni. 13.1.2011 17:00
Hlakkar til að fá sér kebab í Köben „Ég er eiginlega kominn með í magann af spenningi. Ég get ekki beðið eftir því að fara út, hitta mömmu og systur mínar, drekka Faxe Kondi og borða kebab,“ segir Arnór Dan Arnarsson, söngvari rokksveitarinnar Agent Fresco. 13.1.2011 11:00
Hudson ólétt Tímaritið US Weekly heldur því fram að leikkonan Kate Hudson sé ólétt eftir kærastann sinn Matthew Bellamy, forsprakka hljómsveitarinnar Muse. Samkvæmt heimildarmanni blaðsins er Hudson komin fjórtán vikur á leið og er parið afskaplega ánægt með fréttirnar. 13.1.2011 10:00
Roklandi fagnað með heljarinnar teiti Aðstandendur Roklands skemmtu sér konunglega á Austri á þriðjudagskvöldið enda langur tími að baki. Aðalleikarinn Ólafur Darri Ólafsson lék við hvurn sinn fingur en hann er á leiðinni til Hollywood í næsta mánuði að leika í Contraband eftir Baltasar Kormák. Árið 2011 verður svo sannarlega ár Ólafs því auk þess leikur hann aðalhlutverkið í Djúpinu, annari kvikmynd eftir Baltasar. 13.1.2011 09:00
Syngja fyrir nímenninga Páll Óskar, KK og Ellen, múm og Diskóeyjan eru meðal þeirra sem ætla að syngja á tónleikum í kvöld til stuðnings nímenningunum hafa verið ákærðir fyrir brot á 100. grein hegningarlaga vegna mótmæla sinna við Alþingishúsið. Tónleikarnir verða á Nasa og opnar húsið klukkan 20.30. Miðaverð er 500 krónur. Aðrir sem stíga á svið verða Sin Fang Bous, Reykjavík!, rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson, Steini úr Hjálmum, Prins Póló, Parabólurnar og fleiri gestir. Nánari upplýsingar má finna á síðunni rvk9.org. 13.1.2011 08:30
Charlie Sheen drekkur eins og svín Síðasta helgi hjá Charlie Sheen virðist hafa verið með villtara móti eftir því sem bandarískir og breskir fjölmiðlar kafa dýpra ofan í sukksama veröld bandaríska leikarans. Hann var staddur í Las Vegas um helgina, sem er kannski ekki í frásögur færandi, nema ef vera kynni fyrir þá staðreynd að Charlie var viðstaddur stærstu klámmyndahátíð heims, AVN-Adult Entertainment Expo. Charlie kaus líka að hella sér af alvöru í sukk og stóðlífi, hellti í sig hverri vodkaflöskunni af fætur annarri á milli þess sem hann bauð klámmyndastjörnum í partí. 13.1.2011 08:00
Enginn sáttmáli hjá Seth Kanadíski gamanleikarinn Seth Rogen sagði í viðtali við Howard Stern að hann ætlaði ekki að gera hjónabandssáttmála áður en hann gengi í það heilaga með unnustu sinni, þjóninum Lauren Miller. 13.1.2011 06:30
Johnny Depp ekki hrifinn af tækninni Leikarinn Johnny Depp er ekki hrifinn af þeim tækninýjungum sem hafa orðið á undanförnum árum og breytingum á sjónvarpsefni. „Stundum langar mig að hlaupa öskrandi frá okkar heimi þar sem allt snýst um tækni, ágenga fjölmiðla og hið brjálæðislega raunveruleikasjónvarp,“ sagði Depp. „Við höfum misst öll tengsl við hið einfalda í lífinu. Við erum að tapa okkar sjálfstæðu persónuleikum.“ 13.1.2011 05:00
Bond snýr aftur á næsta ári Daniel Craig mun endurtaka hlutverk sitt sem njósnari hennar hátignar, James Bond, í 23. myndinni sem er væntanleg í kvikmyndahús í nóvember á næsta ári. 13.1.2011 04:30
Fyrsta myndin af syni Travolta John Travolta, 56 ára, og eiginkona hans Kelly Preston, 48 ára, og tæplega 2 mánaða gamall sonur þeirra, Benjamin, prýða forsíðu tímaritsins Hello þessa vikuna. John og Kelly segja Benjamin litla vera lifandi kraftaverk. „Benjamin hefur endurnýjað andann á heimilinu og tilgang fjölskyldunnar. Hann hefur fært okkur nýtt upphaf," segir John í umræddu blaði. Saman eiga þau 11 ára dóttur, Ellu Bleu, en sonur þeirra, Jett var 16 ára gamall þegar hann féll frá árið 2009 á Bahama-eyjum eftir banvænt flogakast. Hann var með hinn sjaldgæfa Kawasaki-sjúkdóm sem leggst á börn og veldur bólgum. 12.1.2011 17:09
FANTA flott lið á frumsýningu ROKLANDS Meðfylgjandi myndir voru teknar á frumsýningu kvikmyndarinnar Rokland í Sambíó Egilshöll í gærkvöldi. Rokland er hárbeitt svört kómedía eftir samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar um bloggarann og hugsjónamanninn Böðvar Steingrímsson sem leikarinn Ólafur Darri Ólafsson leikur. Eins og myndirnar sýna ríkti mikil gleði á meðal gesta og aðstandenda sýningarinnar. Rokland á Facebook. 12.1.2011 07:29
Jack Black tekur við Næturvaktinni í Hollywood „Þetta hljómar vel. Ég hafði reyndar ekki heyrt af þessu. Maður hætti að fylgjast með þessu eftir síðasta pilot-tímabil,“ segir Ragnar Bragason leikstjóri. 12.1.2011 09:00
Heitustu rísandi stjörnurnar tilnefndar Fimm ungir og efnilegir kvikmyndaleikarar hafa verið tilnefndir til bresku Bafta-verðlaunanna í flokknum Rísandi stjarna. Um er að ræða þau Tom Hardy, sem sló í gegn í Inception, Andrew Garfield sem leikur hinn nýja Spider-Man, Bond-stúlkuna Gemmu Arterton, bandarísku leikkonuna Emmu Stone og Aaron Johnson sem lék aðalhlutverkið í hasarmyndinni Kick-Ass. Sigurvegarinn verður tilkynntur á Bafta-hátíðinni 13. febrúar. 12.1.2011 09:00
Nýtt andlit í fréttunum á Stöð 2 „Þetta leggst mjög vel í mig.“ segir hin 26 ára gamla Hugrún Halldórsdóttir, sem hefur störf á fréttastofu Stöðvar 2 á næstunni. 12.1.2011 06:00
Lady Gaga hannar Polaroid-myndavélagleraugu Söngkonan Lady Gaga frumsýndi sólgleraugu með innbyggðri myndavél og fleiri flottar nýjungar á CES-tæknisýningunni. Hún var gerð að listrænum stjórnanda myndavélaframleiðandans Polaroid í fyrra og hefur síðan unnið hörðum höndum að því að hanna nýjar vörur fyrir fyrirtækið. 12.1.2011 06:00
Framtíð Bíós Paradísar rædd Bíó Paradís fékk nýverið tíu milljónir króna úr ríkissjóði á fjárlögum 2011. Þessa dagana standa yfir viðræður um skyldur kvikmyndahússins gagnvart framlagi ríkisins og munu þær standa yfir næstu eina til tvær vikur. 12.1.2011 06:00
Glee-stjarna grætti unga leikkonu Hin unga leikkona Hailee Steinfeld, sem sló í gegn í hlutverki sínu í kvikmyndinni True Grit, varð fyrir miklum vonbrigðum þegar hún mætti átrúnaðargoði sínu, Glee-stjörnunni Lea Michele, á tökustað. 12.1.2011 05:00
Verður pabbi í fyrsta sinn Gamanleikarinn Owen Wilson á von á sínu fyrsta barni innan skamms með kærustu sinni, Jade Duell. Fréttirnar koma nokkuð á óvart því fáir vissu af því að Wilson væri í sambúð. 12.1.2011 00:00
Sala á vínylplötum ferðast tuttugu ár aftur í tímann „Ég finn að þetta á eftir að aukast meira, það er komin alveg ný kynslóð sem kaupir vínyl. Það er fyrst og fremst það sem er að auka söluna,“ segir Kristján Kristjánsson, verslunarstjóri Smekkleysu á Laugavegi. 11.1.2011 09:15
Íslandsklukkan á leiðinni í sjónvarp „Ég og Ólafur Egilsson ætlum að ganga alla leið með þetta,“ segir leikarinn og leikstjórinn Benedikt Erlingsson. 11.1.2011 08:30
Alt verður nýr ritstjóri Vogue Emanuelle Alt hefur verið ráðin ritstjóri franska Vogue og tekur við starfinu af Carine Roitfeld í lok þessa mánaðar. Alt hefur starfað sem stílisti í mörg ár og var ráðin til Vogue árið 2009. 11.1.2011 07:00