Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Á að verða flottasta sundlaugin á landinu Á kvenréttindadaginn 19. júní skrifuðu athafnakonurnar Steinunn Jónsdóttir og Lilja Pálmadóttir undir samning við fulltrúa sveitarfélagsins í Skagafirði um byggingu sundlaugar á Hofsósi en þær stöllur hafa komið sér vel fyrir á glæsilegum sveitabæjum þar í kring. Skrifað var undir samninginn á Bæ þar sem Steinunn hefur aðsetur en þar er einnig starfrækt listasetur sem nýlega var opnað og hefur strax fengið mikil og góð viðbrögð enda þykir náttúrufegurðin þar einstök. 30.6.2007 05:15
Ekki undirgefinn Isaiah Washington, sem var rekinn úr þáttunum Grey"s Anatomy fyrir ummæli sín um samkynhneigða, segir að kynþáttafordómar hafi átt þátt í brottrekstri hans. 30.6.2007 04:45
Ekta sveitabrúðkaup hjá Hreimi og æskuástinni Popparinn Hreimur Heimisson mun ganga í það heilaga í dag með unnustu sinni til margra ára, Þorbjörgu Sif Þorsteinsdóttur. Þetta verður sannkallað sveitabrúðkaup því athöfnin mun fara fram í Fljótshlíð og verður traktor notaður sem brúðarbíll. 30.6.2007 02:45
Nærbolur McClane á Smithsonian-safnið Skítugur nærbolur hetjunnar John McClane úr Die Hard-myndunum, sem Bruce Willis leikur, er á meðal þess sem bandaríska safnið Smithsonian hefur fengið að gjöf vegna nýrrar sýningar. Einnig fékk safnið kynningarplakat og upprunalegt handrit nýjustu Die Hard-myndarinnar. 30.6.2007 02:30
Gjörbreyttur Rex opnar í kvöld Starfsmenn Rex hafa undanfarna daga staðið í ströngu við að breyta og bæta en komin eru þrjú ár síðan staðurinn var síðast tekinn í gegn. „Það er búið að ganga rosalega vel síðastliðin þrjú ár og staðurinn orðinn svolítið sjúskaður. Við ákváðum að taka hann í gegn og bara gjörbreyta um stíl,“ segir Sverrir Rafnsson, framkvæmdastjóri staðarins. 30.6.2007 01:30
Pálmi fékk framsóknarvönd „Ég ligg nú bara að mestu fyrir, það er ekki glæsilegt upplitið á manni,“ segir Pálmi Gestsson leikari sem jafnar sig nú eftir slys sem hann varð fyrir í hestaferð í byrjun vikunnar. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá lenti Pálmi á óþekkri meri sem lék hann svo grátt að lífbeinið gliðnaði um 2-3 sentímetra. Hann fór í kjölfarið í aðgerð þar sem mjaðmagrindin var spennt saman. 30.6.2007 01:30
Var alltaf öðruvísi Debbie Harry ræddi um fatastíl sinn í nýlegu viðtali við Times og fannst hún alls ekki klæða sig einkennilega í gamla daga. „Ég er á þeirri skoðun að ég hafi ekki klætt mig það óeðlilega eins og af var látið. Það virtist bara vera þannig vegna þess að meginstraumur tískunnar var gjörsamlega andstæðan við minn stíl,“ segir Harry sem hefur fyrir löngu fengið á sig stimpil sem tískuíkon fyrir sérstaklega glæsilegan stíl. 30.6.2007 01:00
Beckham hefur störf föstudaginn þrettánda Föstudagurinn þrettándi júlí er dagurinn sem David Beckham gengur til liðs við bandaríska fótboltaliðið Los Angeles Galaxy. Dagurinn er alþekkt tákn fyrir yfirvofandi óheppni. 29.6.2007 10:47
Komin með alveg nóg af Paris Hilton Fréttaþulur í Bandaríkjunum var svo mótfallin því að lesa frétt um Paris Hilton í upphafi fréttatíma að hún krumpaði handritið sitt, reyndi að kveikja í því og setti það að lokum í tætara. 29.6.2007 10:16
Auðkýfingur kaupir hlut í galleríi í miðborginni „Þetta er nú engin stóreflisfjárfesting. Það er mikill listaáhugi í fjölskyldunni og þess vegna tókum við þátt í þessu,“ segir auðkýfingurinn Sindri Sindrason, hluthafi og stjórnarmaður í Actavis, sem ásamt fjölskyldu sinni hefur keypt stóran hlut í Gallerí Turpentine við Ingólfsstræti. Kaupverðið er ekki gefið upp en samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hleypur það á tugum milljóna króna. 29.6.2007 10:00
París las Biblíuna og hugleiddi Paris Hilton var læst í 10 fermetra stórum fangaklefa í 23 klukkustundir á dag í þær rúmu þrjár vikur sem hún mátti dúsa í fangelsi í Los Angeles. Stærstan hluta þess tíma eyddi hún í að lesa Biblíuna, stunda hugleiðslu og ákveða hvernig hún gæti notað reynsluna innan múranna til að koma lífi sínu á réttan kjöl. 29.6.2007 09:15
Sanngjörn viðskipti á Laugaveginum Fyrsta Fair Trade-búðin á Íslandi var opnuð í gær við Laugaveg 20 b. Það eru mæðgurnar Ásdís Ósk Einarsdóttir og Arndís Harpa Einarsdóttir sem reka búðina en Ásdís kynntist Fair Trade fyrst á Nýja Sjálandi. „Ég bjó á Nýja Sjálandi í þrjú ár og dag einn rakst ég á Fair Trade-búð og leist svona rosalega vel á. 29.6.2007 08:45
Kúrekar hertaka netið „Það er mjög gaman að þessu enda er verið að hlusta á þetta alls staðar í heiminum; Kína, Belgíu, Danmörku og svona mætti lengi telja,“ segir Hallbjörn Hjartarson en framtak hans og félaga hjá Útvarpi Kántrýbæ um að setja dagskrána á netið hefur mælst ótrúlega vel fyrir. 29.6.2007 08:30
Kom Ladda í opna skjöldu Björgvin Halldórsson afhenti vini sínum til margra ára, Ladda, tvær gullplötur á lokasýningu hans, Laddi 6-tugur, í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. 29.6.2007 08:30
Bardagamenn safna undirskriftum Meðlimir bardagaklúbbsins Mjölnis standa nú fyrir undirskriftasöfnun á netinu til að sýnt verði frá keppnum í blönduðu bardagaíþróttinni MMA, eða Mixed Martial Arts. Að sögn Ólafs Vals Ólafssonar, meðlims Mjölnis, er áskoruninni beint að sjónvarpsstöðinni Sýn en um 200 manns hafa skrifað undir á þeirri viku sem söfnunin hefur staðið yfir. 29.6.2007 06:45
Viktoría Beckham í gestahlutverki í Ugly Betty? Victoriu Beckham þarf ekki að leiðast þegar hún líkur tónleikaferðalaginu með Spice Girls. Sögusagnir ganga nú um að Snobb kryddið muni leika sjálfa sig í Ugly Betty sjónvarpsþættinum. 28.6.2007 16:50
Paris í mál við lögfræðinginn sinn? Paris Hilton er víst ekki allskostar sátt við lögfræðinginn sinn. Heimildamenn The Scoop segja að stjarnan sé æf af reiði út í Richard Hutton, lögfræðinginn sem varði hana í ölvunarakstursmálinu. Þá er hún sögð vera að hugleiða málsókn á hendur honum. 28.6.2007 16:32
Kate Moss og Pete Doherty óvinsælustu nágrannarnir Ofurfyrirsætan Kate Moss og rokkarinn og dópistinn Pete Doherty eru þær stjörnur sem fólk vildi síst eiga sem nágranna. Í könnun fasteignasölu nokkurar fengu djammararnir frægu heil 29 prósent atkvæða. Aðrir sem þóttu ekki æskilegir nágrannar voru meðal annars Osbourne fjölskyldan og fótboltakappinn Wayne Rooney. 28.6.2007 12:08
Kryddpíurnar saman á ný - tilkynna tónleikaferð Kryddpíurnar tilkynntu á blaðamannafundi í London fyrir skemmstu að þær hyggðust taka saman á ný og færu í tónleikaferðalag í desember. ,,Hæ allir!! Við erum komnar aftur!! Trúið þið þessu!!?" sögðu píurnar á heimasíðu sinni í kjölfar fundarins í dag. 28.6.2007 11:59
Víðförlar plastendur á leið til Englands Upphaflega var þeim ætlað að fljóta í baðkörum í heimahúsum, en á síðustu fimmtán árum hafa þær flotið alla leið frá Kyrrahafinu að Bretlandi. Gámi sem innihélt 29 þúsund plastleikföng skolaði fyrir borð á flutningaskipi í óveðri á miðju kyrrahafinu árið 1992. Gámurinn tærðist í sjónum og von bráðar flutu gular endur, bláar skjaldbökur og grænir froskar um heimsins höf. 28.6.2007 11:47
Svaf á skrifstofunni til að spara pening Blankur starfsmaður British Airways svaf í skáp á skrifstofunni í tæpa átta mánuði. Hinn þrítugi Stephen McNally faldi sig á milli ljósritunarvéla og tölva til að forðast öryggisverði í þjónustuverinu þar sem hann vann í Newcastle á Bretlandi. 28.6.2007 11:07
Heitt í Fótógrafí Laugardaginn 30. júní frá 12 til 18 verður opnuð sýning á Afríkumyndum Páls Stefánssonar ljósmyndara í ljósmyndagalleríinu Fótógrafí Skólavörðustíg 4a. Páll kýs að kalla sýninguna ,,Heitt". 28.6.2007 10:21
Minnisvarði um Lennon og George Minnisvarði um Bítlana fyrrverandi, John Lennon og George Harrison, var afhjúpaður í Las Vegas vegna framlags þeirra til söngleikjarins Love sem hefur notið mikilla vinsælda í flutningi Cirque du Soleil. 28.6.2007 09:30
Hara-systir stjórnar sjónvarpsþætti Rakel Magnúsdóttir úr Hara-flokknum hefur verið ráðin til starfa hjá sjónvarpsstöðvunum Sirkus og Popp TV. Þar mun söngkonan kynna tíu vinsælustu lög Skífunnar og jafnvel bregða á leik með áhorfendum. Rakel var að vonum spennt fyrir nýja starfinu enda segist hún lengi hafa gengið með þann draum í maganum að komast í sjónvarp. 28.6.2007 09:00
Spenntur fyrir Einari Áskeli „Ég hlakka til að hitta Gunillu og sjá hvað við getum gert saman, það er samt allt á samningastigi enn," segir brúðumeistarinn Bernd Ogrodnik sem mun mögulega gera brúður fyrir sjónvarpsþætti um Einar Áskel. 28.6.2007 07:45
Pálmi slasaður eftir hestaferð „Hann er bara að vakna eftir aðgerðina núna. Þetta fór sem betur fer ekki verr,“ segir Sigurlaug Halldórsdóttir, kona Pálma Gestssonar leikara. Pálmi slasaði sig í hestaferð í byrjun vikunnar og var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur á þriðjudag. Leikarinn góðkunni var í níu daga hestaferð með erlendum ferðamönnum á Norðausturlandi, var reiðmaður með 70 hrossa stóði. 28.6.2007 06:45
Misheppnuð typpastækkun veldur sjálfsmorði Yfirvöld í Kambódíu vöruðu í gær þarlenda karlmenn við því að reyna heimatilbúnar aðferðir til typpastækkana. Þetta var gert í kjölfar þess að maður framdi sjálfsmorð í kjölfar misheppnaðrar typpastækkunar. 27.6.2007 16:59
Heimsmeistari í kappáti með gigt í kjálka Heimsmeistari í kappáti gæti misst titilinn vegna gigtar - í kjálkanum. Hinn 29 ára Takeru Kobayashi stefndi á sjöunda sigur sinn í pulsuátkeppni sem fer fram 4. júlí ár hvert í Brooklyn. Hann líður hins vegar svo miklar kvalir vegna gigtarinnar að hann á í vandræðum með að opna munninn. 27.6.2007 15:02
Glímukappi myrðir eiginkonu sína og barn Glímukappinn Chris Benoit kyrkti konu sína, kæfði sjö ára son sinn og kom biblíu fyrir við hlið líka þeirra áður en hann hengdi sig í snúru í lyftingatæki á heimili sínu í Fayettville í Georgíu. Benoit var fertugur kanadískur ríkisborgari, og þekktur sem ,,The Canadian Crippler" í fjölbragðaglímuheiminum. 27.6.2007 13:31
Goldie heldur tónleika á NASA Þann 14. júlí næstkomandi mun tónlistarmaðurinn og plötusnúðurinn Goldie koma fram á Breakbeat.is klúbbakvöldi á NASA. Heimsókn Goldie er liður í kynningaferð fyrir nýjustu breiðskífu hans, Malice in Wonderland, sem kom út fyrir skömmu undir listamannsnafninu Rufige Kru. 27.6.2007 13:05
Angelina Jolie hló í fæðingunni Margar konur öskra, veina eða gráta á meðan þær fæða börn. Ekki Angelina Jolie. Á meðan dóttir hennar Shiloh Nouvel var tekin með keisaraskurði á sjúkrahúsi í Namibíu fékk hún hláturskast. Og Brad Pitt náði því öllu saman á myndband. 27.6.2007 12:30
Krá verður sendiráð og sleppur við reykingabann Uppfinningasamur bareigandi á Bretlandi hefur fundið leið framhjá reykingabanni sem tekur gildi þar á sunnudaginn. Bob Beech hefur gert krá sína, Wellington Arms, í Southampton að sendiráði fyrir Redonda, pínulítla óbyggða eyju í Karabíska hafinu, um 35 sjómílur frá Antigua. 27.6.2007 10:42
Aukatónleikar Sinfoníuhljómsveitarinnar og Dúndurfrétta Uppselt er á tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar og Dúndurfrétta í Laugardalshöll á föstudag, þar sem sveitirnar flytja eitt þekktasta verk rokksögunnar, The Wall eftir Pink Floyd. Vegna þessa hefur verið ákveðið að bæta við aukatónleikum fimmtudaginn 28. júní klukkan 19:30. 27.6.2007 10:00
Paris brosir breitt Hótelerfinginn Paris Hilton brosti sínu blíðasta er hún yfirgaf fangelsið sem hún hafði mátt dúsa í frá því í upphafi mánaðarins þar til henni var sleppt úr haldi rétt fyrir miðnætti í fyrradag. Hilton hafði þá afplánað 23 daga af 45 daga dómi en vegna góðrar hegðunar og plássleysis í fangelsinu var hún látin laus fyrr en áætlað var. 27.6.2007 03:30
Cruise í vanda Þýsk yfirvöld hafa meinað Tom Cruise að taka upp senur í nýjustu kvikmynd hans á grundvelli trúarskoðana Cruise. Samstarfskona Cruise segir trúarbrögð leikarans ekkert hafa með myndina að gera. 27.6.2007 02:00
Bullock í rómantík Thomas Haden Church er í viðræðum um að leika á móti Söndru Bullock í rómantísku gamanmyndinni All About Steve. Bullock leikur snjallan krossgátufræðing sem verður yfir sig ástfanginn að myndatökumanni sjónvarpsstöðvarinnar CNN eftir aðeins eitt stefnumót. 27.6.2007 02:00
Sizemore í steininn Leikarinn Tom Sizemore hefur verið dæmdur í sextán mánaða fangelsi eftir að fíkniefni fundust í bíl hans. Þar með braut hann skilorð sitt eftir að hafa áður verið handtekinn með fíkniefni í fórum sínum. 27.6.2007 02:00
Staðfestu rétt dæmds nauðgara til kláms Dæmdir kynferðisafbrotamenn í Svíþjóð mega skoða klámblöð að vild. Þetta segja þarlendir dómstólar, sem komust að þeirri niðurstöðu að sænsku fangelsismálastofnuninni væri ekki stætt á því að neita dæmdum nauðgara um klámblöðin hans. 26.6.2007 13:08
Moore er of feitur til að fjalla um heilbrigðismál Dýraverndunarsamtökin PETA eru ekki hrifin af Michael Moore og nýjustu mynd hans ,,Sicko", sem fjallar um heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. Þau segja hinn frjálslega vaxna leikstjóra ekki í neinni aðstöðu til að fjalla um heilbrigðismál, þegar hann sé sjálfur afar óheilbrigður. 26.6.2007 12:04
Brasilísk skutla týndi naflanum Sérlega duglegur grafískur hönnuður, harðákveðinn í að fjarlægja hverja einustu misfellu af líkama brasilískrar fyrirsætu, máði nafla hennar af mynd sem birtist í Playboy tímaritinu. 26.6.2007 11:43
Vildi fá kostnað vegna tilhugalífsins bættann Hryggbrotinn kærasti ætlaði ekki að láta vaða yfir sig á skítugum skónum, og fór í mál við unnustu sína fyrrverandi til að fá kostnað vegna rómantískra helgarferða, gjafa og ófrjósemisaðgerðar bættann. 26.6.2007 11:30
Hyggst hlæja í eigin aftöku Maður í Texas sem á að lífláta í dag vill deyja hlæjandi. Vinur Patrick Knight auglýsti eftir bröndurum á Myspace og bárust hundruðir tillagna. Knight hyggst svo lesa einn þeirra áður en hann verður líflátinn með eitursprautu. Talskona fangelsisyfirvalda, Michelle Lyons, sagði að hann vildi hafa létta stemningu við aftökuna. 26.6.2007 11:00
Barnsmóðir 50 Cent sættir sig ekki við klink Ein og hálf milljón á mánuði er ekki nóg til að ala upp barn og halda heimili. Að minnsta kosti vill barnsmóðir 50 Cent, Shaniqua Tompkins, meina það en rapparinn greiðir mánaðarlega 1.5 milljónir í meðlag með syni sínum. 26.6.2007 10:34
Bannað að mynda vegna trúarbragða Tom Cruise Þýskaland bannaði framleiðendum myndar um tilraun til að ráða Adolf Hitler af dögum að mynda á svæðum þýska hersins vegna þess að Tom Cruise, stjarna myndarinnar, er meðlimur vísindakirkjunnar. 26.6.2007 10:01
Erfið vika hjá Venna „Ég lenti í viku frá helvíti,“ segir sjónvarpsmaðurinn og fasteignasalinn Vernharð Þorleifsson sem er þessa dagana að jafna sig eftir þrjú áföll sem gerðust í lífi hans með skömmu millibili. 26.6.2007 07:00