Fleiri fréttir Kronika ekki sama og Kronikan Nemendur og kennarar eru ekki sáttir við að nýtt vikurit hafi fengið sama nafn og skólablaðið þeirra. 4.2.2007 12:30 Greiddi 150 þúsund krónur fyrir kaffistofuútvarp „Það er mikið óréttlæti í þessari gjaldtöku og ég mun grípa til aðgerða. Hvað það verður skal hins vegar ósagt látið,“ segir Einar Hallgrímsson, verslunareigandi í Vestmannaeyjum. Dómur féll nýverið í héraðsdómi Suðurlands þar sem Einari var gert að greiða hundrað og fimmtíu þúsund krónur í málskostnað vegna máls sem STEF höfðaði á hendur honum vegna ógreiddra krafa. 4.2.2007 12:00 Finnur fyrir kaldri hönd dauðans „Ég hef vitað af þessu í dágóðan tíma, þannig þetta kemur ekkert aftan að mér, segir Þorsteinn Guðmundsson leikari, spaugari og rithöfundur sem fagnar fertugasafmæli í dag. 4.2.2007 11:30 Fékk hjálp frá pabba Garðar Thór Cortes söng á heljarinnar kynningarfundi á Il Bottaccio í London á fimmtudagskvöld. Til stóð að kynningin yrði haldin um miðjan janúar en var frestað sökum veikinda stórtenórsins. 4.2.2007 11:00 Eignaðist tvíbura Leikarinn Patrick Dempsey og eiginkona hans Jillian Dempsey hafa eignast tvíbura. Fæddust þeir síðastliðinn fimmtudag í Los Angeles og hafa fengið nöfnin Darby Galen og Sullivan Patrick. 4.2.2007 10:30 CoBrA-málari gefur Danski málarinn Carl-Henning Pedersen, sem var einn þeirra sem tóku virkan þátt í CoBrA-hreyfingunni, gaf í vikunni fjörutíu verk til Listasafns danska ríkisins. Verkin er frá löngu tímabili, síðari hluta sjötta áratugarins til þess níunda. Carl-Henning er fjörgamall, fæddur 1913. 4.2.2007 10:00 Löng nótt framundan hjá mörgum „Við ætlum að hittast nokkrir á Players og horfa á leikinn,“ segir Brynjar Freyr Halldórsson, einn fárra Íslendinga sem hefur tekið ástfóstri við bandaríska fótboltann en í nótt verður hinn árlegi Super Bowl eða Ofur Skál. Um er að ræða stærsta íþróttaviðburðinn þar vestra en að þessu sinni eigast við Chicago Bears og Indianapolis Colts í Miami. Billy Joel syngur þjóðsönginn og sjálfur Prince spilar í hálfleik. 4.2.2007 09:00 Sienna svaf hjá Hayden Sögusagnir um að Sienna Miller og Hayden Christensen hafi notið ásta fyrir framan myndavélarnar í myndinni „Factory Girl“ virðast vera sannar. Dagblaðið New York Daily News sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag. 2.2.2007 17:43 París er best í bólinu Joe Francis heitir maður sem hefur auðgast ótæplega á klámiðnaðinum vestur í Ameríku. Hann er nokkuð frægur í þeim bransa, og kannski frægastur fyrir að hafa verið í nánu sambandi við París Hilton á myndbandi sem hálfur heimurinn hefur líklega séð. Eftir því sem Joe segir sjálfur er París ekki eina frægðargellan sem hann hefur tekið til lagnaðar. Hún er þó sú langbesta. 2.2.2007 12:38 Sjónarsviptir að Bítinu Morgunþátturinn Ísland í bítið rann skeið sitt á enda í morgun með síðustu sjónvarpsútsendingu morgunhananna Sirrýar og Heimis. Þátturinn heldur áfram í útvarpi sem Í bítið á Bylgjunni, en tæplega 1400 þættir fóru í loftið á rúmum sjö árum á Stöð 2. Heimir Karlsson hefur verið annar stjórnanda Íslands í bítið í rúm þrjú ár, lengst allra þáttarstjórnanda. 2.2.2007 10:10 Stefnir í alvöru fangelsi Bandaríki leikarinn Lane Garrison á yfir höfði sér alvarlegar ákærur, eftir að lögreglan upplýsti að hann hefði bæði verið undir áhrifum eiturlyfja og áfengism, þegar hann ók Landrover jeppa sínum á tré í byrjun desember. Sautján ára piltur lét lífið í slysinu, en auk þess voru í jeppanum tvær fimmtán ára stúlkur, sem slösuðust mikið. 1.2.2007 11:00 Tyra fékk bónorð í beinni Fyrirsætan Tyra Banks er ýmsu vön, en það kom henni þó á óvart að fá bónorð í beinni sjónvarpsútsendingu. Og það frá ættarhöfðingja í Nígeríu. Tyra var í spjallþætti Larrys King og þau voru að tala um holdarfar stjörnunnar, sem hefur verið eitthvað til umræðu í fjölmiðlum vestra undanfarið. 1.2.2007 10:45 Er Britney orðin Gyðingur ? 1.2.2007 10:12 Martröð golfarans Tævanskur golfari missti minnið eftir að hitta holu í höggi á golfvelli í Taiwan. Wang sem er fimmtugur var í golfi með vinum sínum í borginni Xinzu þegar þetta gerðist. Vinur Wangs sem var með honum sagði að boltinn hefði flogið og fallið beint ofan í holuna, sem er venjuleg þriggja para hola. Wang var fyrst yfir sig glaður, en þegar vinir hans náðu í boltann og komu til að óska honum til hamingju, fundu þeir hann muldrandi upp á hól: "Af hverju er ég hérna?" 1.2.2007 07:38 Ekki slæmt að vera vinsælust "Það er ekki slæmt að vera vinsælust. Takk kærlega fyrir að kjósa mig það. Takk," sagði tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, við afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. 1.2.2007 00:01 Aron Pálmi segir frá misnotkun Í viðtali við tímaritið Ísafold segir Aron Pálmi Ágústsson frá því hvernig hann misnotaði sjö ára gamlan dreng, þá 12 ára gamall. Aron var dæmdur í tíu ára fangelsi tveimur árum síðar fyrir kynferðisbrotið gegn drengnum, sem varð fyrir sálrænu áfalli við atvikið og átti eftir það erfitt með svefn. Í tímaritinu kemur fram að Aron var að herma eftir misnotkun sem hann varð sjálfur fyrir af hálfu nágranna síns stuttu áður. 31.1.2007 17:00 J-Lo ver vísindatrú Söng- og leikkonan Jennifer Lopez, öðru nafni J-Lo, hefur upplýst að pabbi hennar sé vísindatrúar og hafi verið það í 20 ár. Hún hafi þó sjálf verið alin upp í kaþólskri trú. 31.1.2007 16:30 Kate og Pete í meðferð saman Vegfarendur sáu til ofurfyrirsætunnar Kate Moss og kærasta hennar Pete Doherty, söngvara Babyshambles, fara saman á Capio Nightingale spítalann í London á mánudag. Þar skráðu þau sig í meðferð undir fölskum nöfnum. 31.1.2007 15:45 Uma að hætta leik? Kvikmyndaleikkonan Uma Thurman íhugar nú að gefa leikferil sinn upp á bátinn og helga sig uppeldishlutverkinu. Uma hefur leikið í stórum myndum nýverið eins og Kill Bill og My Super Ex-Girlfriend. En nú hefur hún gefið upp að hún íhugi breytingu. Uma sagði breska dagblaðinu Daily Mirror að hún elskaði starf sitt; “En ég er að hugsa um að verða heimavinnandi móðir.” 31.1.2007 13:12 Engar horrenglur -nema mig 31.1.2007 12:37 Aumingja Borat Blessaður kallinn hann Borat á enn ein málaferlin yfir höfði sér. Í þetta skipti er það ísraelskur spéfugl sem segir að Borat hafi stolið frá sér "orðatiltækinu" Wa wa wee wa. Dovale Glickman bjó til þessa vitleysu fyrir sextán árum fyrir persónu sem hann lék í sjónvarpsþætti. Wa wa wee wa var einnig notað í sjónvarpsauglýsingum fyrir gulu síðurnar, í Ísrael. 31.1.2007 10:28 París höfðar mál París Hilton hefur höfðað mál til þess að að fá lokað vefsíðu þar sem ýmsir persónulegir munir hennar eru boðnir til sölu. Á síðunni er því haldið fram að hlutirnir hafi verið seldir þegar hún stóð ekki í skilum með geymslugjald í vöruhúsi. Það kostar fjörutíu dollara, bara að fá að skoða það sem í boði er af munum stúlkunnar. 31.1.2007 10:09 Metsöluhöfundurinn Sidney Sheldon er látinn Metsöluhöfundurinn Sidney Sheldon lést í gær, 89 ára að aldri. Hann dó úr lungnabólgu á sjúkrahúsi nálægt Palm Springs í Kaliforníu að sögn útgefanda hans Warren Cowan. Á ferli sínum skrifaði Sheldon mörg verðlaunaleikrit sem sýnd voru á Broadway, auk Hollywood kvikmyndahandrita, áður en hann sneri sér alfarið að bókaskrifum þegar hann var fimmtugur. 31.1.2007 09:23 Björk á Hróarskeldu Eitt af stóru nöfnunum á Hróarskeldu næsta sumar verður íslenskt. Skipuleggjendur hátíðarinnar upplýstu í morgun að Björk verður ein af stjörnunum á næsta ári. Hún spilaði síðast á Hróarskeldu árið 2003 þegar hún var lokaatriðið á appelsínugula sviðinu. Þetta verða einu tónleikarnir hennar á Norðurlöndum á árinu, að sögn Politiken. 31.1.2007 09:22 Bachelor-stúlka fækkar fötum á sviði Feministar eru æfir yfir Supergirl, keppni sem fram fór á skemmtistaðnum Pravda á laugardaginn. Þar fækkuðu ungar konur fötum til að reyna að vinna utanlandsferð. Bachelorstúlkan Silja Ívarsdóttir fór úr öllum fötunum. 31.1.2007 03:30 Sienna Miller og P. Diddy að slá sér upp? Talið er að leikkonan Sienna Miller og rapparinn P. Diddy, öðru nafni Sean Combs, séu að slá sér upp. Þessar sögusagnir fengu aukinn hljómgrunn eftir að til þeirra sást á hóteli í New York eftir að hafa skemmt sér saman um kvöldið. 30.1.2007 15:57 Læknir í vanda 30.1.2007 12:02 Beckham góður í þögulli kvikmynd 30.1.2007 11:05 Laddi 6-TUGUR Í kjölfar tilkynningar um að setja ætti upp grínsýninguna LADDI 6- TUGUR í Borgarleikhúsinu rigndi inn fyrirspurnum frá fólki um allt land varðandi það hvernig maður tryggi sér miða. 30.1.2007 10:45 Michael Jackson múslimi ? 30.1.2007 10:28 Bloggað um fréttir á Vísir.is og Gras.is Notendum BlogCentral.is gefst nú kostur á að blogga um fréttir á Vísir.is og Gras.is. Nú geta Bloggarar hjá stærsta bloggsvæði landsins bloggað á bæði Vísir.is og Gras.is, ekkert annað bloggsvæði hér á landi bíður uppá þennan möguleika þ.e.a.s að menn geti bloggað um fréttir á fleiri en einum vef. 29.1.2007 16:40 Jolie missir móður sína Marcheline Bertrand leikkona og móðir Angelinu Jolie lést í Los Angeles á laugardaginn. Banameinið var krabbamein. Í fréttatilkynningu frá Angelinu sagði að móðir hennar hefði látist á Cedars-Sinai læknamiðstöðinni. Aldur Marcheline var ekki gefinn upp, en samkvæmt Internet Movie Database vefsíðunni fæddist hún árið 1950. Angelina var við dánarbeð móður sinnar ásamt bróður sínum, James Haven, og kærastanum, Brad Pitt. 29.1.2007 16:10 Milljónir fyrir Shilpu í Bretlandi Bollywood stjarnan Shilpa Shetty varð sigurvegari Celebrity Big Brother í Bretlandi í gær þegar hún hlaut 63 prósent atkvæða í símaatkvæðagreiðslu. Shilpa, 31 árs, varð heimsfræg þegar hún varð fyrir kynþáttaníði bresku sjónvarpsstjörnunnar Jade Goody, en hún var rekin úr þáttunum í næstu atkvæðagreiðslu á eftir. Framleiðanda þáttanna, sjónvarpsstöðinni Channel 4, bárust 40 þúsund kvartanir vegna kynþáttaníðsins. 29.1.2007 12:14 Síðasta mynd Irwins sýnd í Ástralíu Síðsta heimildarmynd Steve Irwins verður sýnd í dag í heimalandi hans Ástralíu. Myndin fylgir Irwin síðustu dagana fyrir dauða hans í September, þegar hann var stunginn til bana af stingskötu. Heimildarmyndin sem verður sýnd á sjónvarpsstöðinni Channel 9 heitir "Sjávarins hættulegustu" og er kynnt af ekkju Irwins, Terri. 29.1.2007 10:54 Íslenskur brettagaur á sænskum topp 10 lista Aftonbladet í samvinnu við jaðarsports ljósmyndara birti nýlega lista yfir topp tíu jaðarsports einstaklingana að þeirra mati. Í 6. sæti á listanum er snjóbretta-snillingurinn frá Akureyri, Eiríkur Helgason, eða bara Eiki. Eiki hefur verið búsettur í Svíþjóð síðustu þrjú árin og hefur stundað nám við íþróttalýðskóla þar sem snjóbretti eru aðalgrein hans. 29.1.2007 10:51 Borat kemst á valdalista GQ Borat er númer 19 á lista karlatímaritsins GQ yfir valdamestu menn í Bretlandi. Eitt hundrað nöfn eru á listanum og kemur Borat næstur á eftir Vilhjálmi Bretaprins og tveimur sætum á eftir David Cameron leiðtoga íhaldsflokksins. Tímaritið sagði um höfund Borats að eftir daga Johns Lennons hafi breskur skemmtikraftur ekki haft jafn mikil áhrif á heiminn og Baron Cohen. 29.1.2007 10:03 Kynþáttaníð í Stóra Bróður bjargaði þættinum Yfirmaður Stöðvar 4 í Bretlandi segir að nýjasta þáttaröð Big Brother hafi stefnt í að verða sú leiðinlegasta í sögu stöðvarinnar. Kevin Lygo einn yfirmanna Channel 4 sagði breska tímaritinu Broadcast Magazine að fordómafull ummæli bresku sjónvarpsstjörnunnar Jade Goody gegn Indversku Bollywood-stjörnunni Shilpa Shetty hafi bjargað þættinum frá leiðindum. Hann viðurkennir að hafa leitt hugann að því hvað hefði verið hægt að gera, áður en málið kom upp. 25.1.2007 14:33 Þú ert það sem þú hugsar Þriðjudaginn 30.janúar heldur Guðjón Bergmann ókeypis kynningarfyrirlestur um námskeið sitt Þú ert það sem þú hugsar á Grand hótel Reykjavík. 25.1.2007 11:27 Hugi og Dolli fallast í faðma „Þetta var rosalega góður sáttafundur,“ segir sjónvarpsmaðurinn Hugi Halldórsson sem hefur verið við tökur efnis fyrir stuðningsmannaklúbb íslenska handboltalandsliðsins úti í Þýskalandi. 25.1.2007 10:15 Stallone í kynlífsbann Sylvester Stallone hefur upplýst leyndarmálið á bakvið dúndur hnefahögg og góða frammistöðu í nýjustu myndinni um Rocky Balboa, sem er sjötta og síðasta Rocky myndin. Stallone fór í kynlífsbindindi á meðan tökum myndarinnar stóð. Hann sagði: “Þegar þú ert sextugur hefurðu ekki eins mikla orku og þú hafðir þegar þú varst þrítugur.” 25.1.2007 10:12 Brotnaði á snjóbretti Jonny Quinn, trommari Snow Patrol, missir af væntanlegri tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu og Ástralíu vegna handleggsbrots. 25.1.2007 09:45 Enn eitt hneykslið fyrir Paris Samkvæmisljónið Paris Hilton hefur verið afhjúpuð enn á ný, en afar persónulegir munir hótelerfingjans eru nú til sýnis á internetinu. Á þriðjudag opnaði vefsíðan ParisExposed.com, en þar er að finna dagbækur, myndir, heimavídeó, ástarbréf og hljóðrituð símtöl Parísar auk símanúmera ýmissa þekktra einstaklinga. Hlutirnir voru í geymsluhúsnæði í Los Angeles en voru settir á uppboð þegar sá sem skráður var fyrir geymslunni greiddi ekki reikninginn upp á tæpar 15 þúsund íslenskar krónur. 25.1.2007 09:39 Capone í útvarpsrekstur „Það er ekkert komið á hreint, ekki ennþá,“ segir Búi Bendtsen, annar stjórnandi morgunþáttarins sáluga Capone. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru hann og Andri Freyr Viðarsson að skoða þann möguleika að stofna nýja útvarpsstöð. 25.1.2007 09:30 Eldað fyrir önnum kafna Birta Ósk Gunnarsdóttir er önnum kafin kona. Hún hefur þó afskaplega gaman af að halda matarboð þegar tími vinnst til. 25.1.2007 09:15 Hættir í sjónvarpi og leggur drög að ævisögu sinni „Ég er nokkuð viss um að einhverjir svitna þegar þeir frétta að ég sé að leggja drög að ævisögu minni," segir sjálfur Hemmi Gunn - einhver skærasta sjónvarpsstjarna sem þjóðin hefur alið. 25.1.2007 08:00 Sjá næstu 50 fréttir
Kronika ekki sama og Kronikan Nemendur og kennarar eru ekki sáttir við að nýtt vikurit hafi fengið sama nafn og skólablaðið þeirra. 4.2.2007 12:30
Greiddi 150 þúsund krónur fyrir kaffistofuútvarp „Það er mikið óréttlæti í þessari gjaldtöku og ég mun grípa til aðgerða. Hvað það verður skal hins vegar ósagt látið,“ segir Einar Hallgrímsson, verslunareigandi í Vestmannaeyjum. Dómur féll nýverið í héraðsdómi Suðurlands þar sem Einari var gert að greiða hundrað og fimmtíu þúsund krónur í málskostnað vegna máls sem STEF höfðaði á hendur honum vegna ógreiddra krafa. 4.2.2007 12:00
Finnur fyrir kaldri hönd dauðans „Ég hef vitað af þessu í dágóðan tíma, þannig þetta kemur ekkert aftan að mér, segir Þorsteinn Guðmundsson leikari, spaugari og rithöfundur sem fagnar fertugasafmæli í dag. 4.2.2007 11:30
Fékk hjálp frá pabba Garðar Thór Cortes söng á heljarinnar kynningarfundi á Il Bottaccio í London á fimmtudagskvöld. Til stóð að kynningin yrði haldin um miðjan janúar en var frestað sökum veikinda stórtenórsins. 4.2.2007 11:00
Eignaðist tvíbura Leikarinn Patrick Dempsey og eiginkona hans Jillian Dempsey hafa eignast tvíbura. Fæddust þeir síðastliðinn fimmtudag í Los Angeles og hafa fengið nöfnin Darby Galen og Sullivan Patrick. 4.2.2007 10:30
CoBrA-málari gefur Danski málarinn Carl-Henning Pedersen, sem var einn þeirra sem tóku virkan þátt í CoBrA-hreyfingunni, gaf í vikunni fjörutíu verk til Listasafns danska ríkisins. Verkin er frá löngu tímabili, síðari hluta sjötta áratugarins til þess níunda. Carl-Henning er fjörgamall, fæddur 1913. 4.2.2007 10:00
Löng nótt framundan hjá mörgum „Við ætlum að hittast nokkrir á Players og horfa á leikinn,“ segir Brynjar Freyr Halldórsson, einn fárra Íslendinga sem hefur tekið ástfóstri við bandaríska fótboltann en í nótt verður hinn árlegi Super Bowl eða Ofur Skál. Um er að ræða stærsta íþróttaviðburðinn þar vestra en að þessu sinni eigast við Chicago Bears og Indianapolis Colts í Miami. Billy Joel syngur þjóðsönginn og sjálfur Prince spilar í hálfleik. 4.2.2007 09:00
Sienna svaf hjá Hayden Sögusagnir um að Sienna Miller og Hayden Christensen hafi notið ásta fyrir framan myndavélarnar í myndinni „Factory Girl“ virðast vera sannar. Dagblaðið New York Daily News sagði frá þessu á vefsíðu sinni í dag. 2.2.2007 17:43
París er best í bólinu Joe Francis heitir maður sem hefur auðgast ótæplega á klámiðnaðinum vestur í Ameríku. Hann er nokkuð frægur í þeim bransa, og kannski frægastur fyrir að hafa verið í nánu sambandi við París Hilton á myndbandi sem hálfur heimurinn hefur líklega séð. Eftir því sem Joe segir sjálfur er París ekki eina frægðargellan sem hann hefur tekið til lagnaðar. Hún er þó sú langbesta. 2.2.2007 12:38
Sjónarsviptir að Bítinu Morgunþátturinn Ísland í bítið rann skeið sitt á enda í morgun með síðustu sjónvarpsútsendingu morgunhananna Sirrýar og Heimis. Þátturinn heldur áfram í útvarpi sem Í bítið á Bylgjunni, en tæplega 1400 þættir fóru í loftið á rúmum sjö árum á Stöð 2. Heimir Karlsson hefur verið annar stjórnanda Íslands í bítið í rúm þrjú ár, lengst allra þáttarstjórnanda. 2.2.2007 10:10
Stefnir í alvöru fangelsi Bandaríki leikarinn Lane Garrison á yfir höfði sér alvarlegar ákærur, eftir að lögreglan upplýsti að hann hefði bæði verið undir áhrifum eiturlyfja og áfengism, þegar hann ók Landrover jeppa sínum á tré í byrjun desember. Sautján ára piltur lét lífið í slysinu, en auk þess voru í jeppanum tvær fimmtán ára stúlkur, sem slösuðust mikið. 1.2.2007 11:00
Tyra fékk bónorð í beinni Fyrirsætan Tyra Banks er ýmsu vön, en það kom henni þó á óvart að fá bónorð í beinni sjónvarpsútsendingu. Og það frá ættarhöfðingja í Nígeríu. Tyra var í spjallþætti Larrys King og þau voru að tala um holdarfar stjörnunnar, sem hefur verið eitthvað til umræðu í fjölmiðlum vestra undanfarið. 1.2.2007 10:45
Martröð golfarans Tævanskur golfari missti minnið eftir að hitta holu í höggi á golfvelli í Taiwan. Wang sem er fimmtugur var í golfi með vinum sínum í borginni Xinzu þegar þetta gerðist. Vinur Wangs sem var með honum sagði að boltinn hefði flogið og fallið beint ofan í holuna, sem er venjuleg þriggja para hola. Wang var fyrst yfir sig glaður, en þegar vinir hans náðu í boltann og komu til að óska honum til hamingju, fundu þeir hann muldrandi upp á hól: "Af hverju er ég hérna?" 1.2.2007 07:38
Ekki slæmt að vera vinsælust "Það er ekki slæmt að vera vinsælust. Takk kærlega fyrir að kjósa mig það. Takk," sagði tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, við afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna í Borgarleikhúsinu í gærkvöld. 1.2.2007 00:01
Aron Pálmi segir frá misnotkun Í viðtali við tímaritið Ísafold segir Aron Pálmi Ágústsson frá því hvernig hann misnotaði sjö ára gamlan dreng, þá 12 ára gamall. Aron var dæmdur í tíu ára fangelsi tveimur árum síðar fyrir kynferðisbrotið gegn drengnum, sem varð fyrir sálrænu áfalli við atvikið og átti eftir það erfitt með svefn. Í tímaritinu kemur fram að Aron var að herma eftir misnotkun sem hann varð sjálfur fyrir af hálfu nágranna síns stuttu áður. 31.1.2007 17:00
J-Lo ver vísindatrú Söng- og leikkonan Jennifer Lopez, öðru nafni J-Lo, hefur upplýst að pabbi hennar sé vísindatrúar og hafi verið það í 20 ár. Hún hafi þó sjálf verið alin upp í kaþólskri trú. 31.1.2007 16:30
Kate og Pete í meðferð saman Vegfarendur sáu til ofurfyrirsætunnar Kate Moss og kærasta hennar Pete Doherty, söngvara Babyshambles, fara saman á Capio Nightingale spítalann í London á mánudag. Þar skráðu þau sig í meðferð undir fölskum nöfnum. 31.1.2007 15:45
Uma að hætta leik? Kvikmyndaleikkonan Uma Thurman íhugar nú að gefa leikferil sinn upp á bátinn og helga sig uppeldishlutverkinu. Uma hefur leikið í stórum myndum nýverið eins og Kill Bill og My Super Ex-Girlfriend. En nú hefur hún gefið upp að hún íhugi breytingu. Uma sagði breska dagblaðinu Daily Mirror að hún elskaði starf sitt; “En ég er að hugsa um að verða heimavinnandi móðir.” 31.1.2007 13:12
Aumingja Borat Blessaður kallinn hann Borat á enn ein málaferlin yfir höfði sér. Í þetta skipti er það ísraelskur spéfugl sem segir að Borat hafi stolið frá sér "orðatiltækinu" Wa wa wee wa. Dovale Glickman bjó til þessa vitleysu fyrir sextán árum fyrir persónu sem hann lék í sjónvarpsþætti. Wa wa wee wa var einnig notað í sjónvarpsauglýsingum fyrir gulu síðurnar, í Ísrael. 31.1.2007 10:28
París höfðar mál París Hilton hefur höfðað mál til þess að að fá lokað vefsíðu þar sem ýmsir persónulegir munir hennar eru boðnir til sölu. Á síðunni er því haldið fram að hlutirnir hafi verið seldir þegar hún stóð ekki í skilum með geymslugjald í vöruhúsi. Það kostar fjörutíu dollara, bara að fá að skoða það sem í boði er af munum stúlkunnar. 31.1.2007 10:09
Metsöluhöfundurinn Sidney Sheldon er látinn Metsöluhöfundurinn Sidney Sheldon lést í gær, 89 ára að aldri. Hann dó úr lungnabólgu á sjúkrahúsi nálægt Palm Springs í Kaliforníu að sögn útgefanda hans Warren Cowan. Á ferli sínum skrifaði Sheldon mörg verðlaunaleikrit sem sýnd voru á Broadway, auk Hollywood kvikmyndahandrita, áður en hann sneri sér alfarið að bókaskrifum þegar hann var fimmtugur. 31.1.2007 09:23
Björk á Hróarskeldu Eitt af stóru nöfnunum á Hróarskeldu næsta sumar verður íslenskt. Skipuleggjendur hátíðarinnar upplýstu í morgun að Björk verður ein af stjörnunum á næsta ári. Hún spilaði síðast á Hróarskeldu árið 2003 þegar hún var lokaatriðið á appelsínugula sviðinu. Þetta verða einu tónleikarnir hennar á Norðurlöndum á árinu, að sögn Politiken. 31.1.2007 09:22
Bachelor-stúlka fækkar fötum á sviði Feministar eru æfir yfir Supergirl, keppni sem fram fór á skemmtistaðnum Pravda á laugardaginn. Þar fækkuðu ungar konur fötum til að reyna að vinna utanlandsferð. Bachelorstúlkan Silja Ívarsdóttir fór úr öllum fötunum. 31.1.2007 03:30
Sienna Miller og P. Diddy að slá sér upp? Talið er að leikkonan Sienna Miller og rapparinn P. Diddy, öðru nafni Sean Combs, séu að slá sér upp. Þessar sögusagnir fengu aukinn hljómgrunn eftir að til þeirra sást á hóteli í New York eftir að hafa skemmt sér saman um kvöldið. 30.1.2007 15:57
Laddi 6-TUGUR Í kjölfar tilkynningar um að setja ætti upp grínsýninguna LADDI 6- TUGUR í Borgarleikhúsinu rigndi inn fyrirspurnum frá fólki um allt land varðandi það hvernig maður tryggi sér miða. 30.1.2007 10:45
Bloggað um fréttir á Vísir.is og Gras.is Notendum BlogCentral.is gefst nú kostur á að blogga um fréttir á Vísir.is og Gras.is. Nú geta Bloggarar hjá stærsta bloggsvæði landsins bloggað á bæði Vísir.is og Gras.is, ekkert annað bloggsvæði hér á landi bíður uppá þennan möguleika þ.e.a.s að menn geti bloggað um fréttir á fleiri en einum vef. 29.1.2007 16:40
Jolie missir móður sína Marcheline Bertrand leikkona og móðir Angelinu Jolie lést í Los Angeles á laugardaginn. Banameinið var krabbamein. Í fréttatilkynningu frá Angelinu sagði að móðir hennar hefði látist á Cedars-Sinai læknamiðstöðinni. Aldur Marcheline var ekki gefinn upp, en samkvæmt Internet Movie Database vefsíðunni fæddist hún árið 1950. Angelina var við dánarbeð móður sinnar ásamt bróður sínum, James Haven, og kærastanum, Brad Pitt. 29.1.2007 16:10
Milljónir fyrir Shilpu í Bretlandi Bollywood stjarnan Shilpa Shetty varð sigurvegari Celebrity Big Brother í Bretlandi í gær þegar hún hlaut 63 prósent atkvæða í símaatkvæðagreiðslu. Shilpa, 31 árs, varð heimsfræg þegar hún varð fyrir kynþáttaníði bresku sjónvarpsstjörnunnar Jade Goody, en hún var rekin úr þáttunum í næstu atkvæðagreiðslu á eftir. Framleiðanda þáttanna, sjónvarpsstöðinni Channel 4, bárust 40 þúsund kvartanir vegna kynþáttaníðsins. 29.1.2007 12:14
Síðasta mynd Irwins sýnd í Ástralíu Síðsta heimildarmynd Steve Irwins verður sýnd í dag í heimalandi hans Ástralíu. Myndin fylgir Irwin síðustu dagana fyrir dauða hans í September, þegar hann var stunginn til bana af stingskötu. Heimildarmyndin sem verður sýnd á sjónvarpsstöðinni Channel 9 heitir "Sjávarins hættulegustu" og er kynnt af ekkju Irwins, Terri. 29.1.2007 10:54
Íslenskur brettagaur á sænskum topp 10 lista Aftonbladet í samvinnu við jaðarsports ljósmyndara birti nýlega lista yfir topp tíu jaðarsports einstaklingana að þeirra mati. Í 6. sæti á listanum er snjóbretta-snillingurinn frá Akureyri, Eiríkur Helgason, eða bara Eiki. Eiki hefur verið búsettur í Svíþjóð síðustu þrjú árin og hefur stundað nám við íþróttalýðskóla þar sem snjóbretti eru aðalgrein hans. 29.1.2007 10:51
Borat kemst á valdalista GQ Borat er númer 19 á lista karlatímaritsins GQ yfir valdamestu menn í Bretlandi. Eitt hundrað nöfn eru á listanum og kemur Borat næstur á eftir Vilhjálmi Bretaprins og tveimur sætum á eftir David Cameron leiðtoga íhaldsflokksins. Tímaritið sagði um höfund Borats að eftir daga Johns Lennons hafi breskur skemmtikraftur ekki haft jafn mikil áhrif á heiminn og Baron Cohen. 29.1.2007 10:03
Kynþáttaníð í Stóra Bróður bjargaði þættinum Yfirmaður Stöðvar 4 í Bretlandi segir að nýjasta þáttaröð Big Brother hafi stefnt í að verða sú leiðinlegasta í sögu stöðvarinnar. Kevin Lygo einn yfirmanna Channel 4 sagði breska tímaritinu Broadcast Magazine að fordómafull ummæli bresku sjónvarpsstjörnunnar Jade Goody gegn Indversku Bollywood-stjörnunni Shilpa Shetty hafi bjargað þættinum frá leiðindum. Hann viðurkennir að hafa leitt hugann að því hvað hefði verið hægt að gera, áður en málið kom upp. 25.1.2007 14:33
Þú ert það sem þú hugsar Þriðjudaginn 30.janúar heldur Guðjón Bergmann ókeypis kynningarfyrirlestur um námskeið sitt Þú ert það sem þú hugsar á Grand hótel Reykjavík. 25.1.2007 11:27
Hugi og Dolli fallast í faðma „Þetta var rosalega góður sáttafundur,“ segir sjónvarpsmaðurinn Hugi Halldórsson sem hefur verið við tökur efnis fyrir stuðningsmannaklúbb íslenska handboltalandsliðsins úti í Þýskalandi. 25.1.2007 10:15
Stallone í kynlífsbann Sylvester Stallone hefur upplýst leyndarmálið á bakvið dúndur hnefahögg og góða frammistöðu í nýjustu myndinni um Rocky Balboa, sem er sjötta og síðasta Rocky myndin. Stallone fór í kynlífsbindindi á meðan tökum myndarinnar stóð. Hann sagði: “Þegar þú ert sextugur hefurðu ekki eins mikla orku og þú hafðir þegar þú varst þrítugur.” 25.1.2007 10:12
Brotnaði á snjóbretti Jonny Quinn, trommari Snow Patrol, missir af væntanlegri tónleikaferð sveitarinnar um Evrópu og Ástralíu vegna handleggsbrots. 25.1.2007 09:45
Enn eitt hneykslið fyrir Paris Samkvæmisljónið Paris Hilton hefur verið afhjúpuð enn á ný, en afar persónulegir munir hótelerfingjans eru nú til sýnis á internetinu. Á þriðjudag opnaði vefsíðan ParisExposed.com, en þar er að finna dagbækur, myndir, heimavídeó, ástarbréf og hljóðrituð símtöl Parísar auk símanúmera ýmissa þekktra einstaklinga. Hlutirnir voru í geymsluhúsnæði í Los Angeles en voru settir á uppboð þegar sá sem skráður var fyrir geymslunni greiddi ekki reikninginn upp á tæpar 15 þúsund íslenskar krónur. 25.1.2007 09:39
Capone í útvarpsrekstur „Það er ekkert komið á hreint, ekki ennþá,“ segir Búi Bendtsen, annar stjórnandi morgunþáttarins sáluga Capone. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru hann og Andri Freyr Viðarsson að skoða þann möguleika að stofna nýja útvarpsstöð. 25.1.2007 09:30
Eldað fyrir önnum kafna Birta Ósk Gunnarsdóttir er önnum kafin kona. Hún hefur þó afskaplega gaman af að halda matarboð þegar tími vinnst til. 25.1.2007 09:15
Hættir í sjónvarpi og leggur drög að ævisögu sinni „Ég er nokkuð viss um að einhverjir svitna þegar þeir frétta að ég sé að leggja drög að ævisögu minni," segir sjálfur Hemmi Gunn - einhver skærasta sjónvarpsstjarna sem þjóðin hefur alið. 25.1.2007 08:00