Greiddi 150 þúsund krónur fyrir kaffistofuútvarp 4. febrúar 2007 12:00 Margrét Íris og útvarpið góða Dómnum þótti sýnt að verslunin hefði leikið tónlist á opinberum vettvangi og fyrir það skyldi greiða. MYND/ Jóhann Ingi „
Það er mikið óréttlæti í þessari gjaldtöku og ég mun grípa til aðgerða. Hvað það verður skal hins vegar ósagt látið," segir Einar Hallgrímsson, verslunareigandi í Vestmannaeyjum. Dómur féll nýverið í héraðsdómi Suðurlands þar sem Einari var gert að greiða hundrað og fimmtíu þúsund krónur í málskostnað vegna máls sem STEF höfðaði á hendur honum vegna ógreiddra krafa. „Já, Það er dýrt að hafa útvarp inná kaffistofunni sem helst aldrei er kveikt á," bætir Einar við en samkvæmt dómnum þótti sýnt að tónlist frá útvarpinu hljómaði um verslunina. Og fyrir það skyldi greiða. Einar segir að njósnarar frá STEF hafi komið í búðina en telur að þeir hefðu varla getað gert greinarmun á því hvort tónlistin hafi hljómað frá íbúð fyrir ofan eða innan úr versluninni. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst var verslunin fyrst athuguð árið 2003 en þá hljómaði engin tónlist. Árið 2004 ómaði músík um búðina og sendi STEF þá reikning vegna flutnings á opinberum stað. Einar greiddi þann reikning ekki og stóð fastur við sitt. Skipti engu þótt verslunin væri athuguð næstu tvö ár og reikningar sendir frá STEF. Tónlistin væri frá útvarpi sem hugsað væri eingöngu fyrir starfsfólk. Og þar að auki væri það staðsett inná lokaðri kaffistofu. „Ég vildi ekki láta svína svona á mér," segir Einar en ekki er hægt að skjóta málinu til æðra dómstigs. „Þetta er svona svipað eins og að fara út á árabát, veiða tvo þorska en þurfa síðan að greiða fyrir tonn af þorskvóta," segir Einar. Einar Hallgrímsson. Segir STEF vera að svína á sér með óréttlátri gjaldtöku. Að sögn Gunnars Stefánssonar, innheimtu-og markaðsstjóra STEF, kemur skýrt fram í dómnum að tónlist hafi ómað um verslunina. Farið hafi verið í vettvangsferð og þar hafi dómari heyrt tónlist skýrt og greinilega þrátt fyrir að útvarpið hefði verið lágt stillt. Niðurstaðan væri því augljós. „Og kaffistofan er nú ekki merkilegri en svo að hún er afgirt með rimlahurð," segir Gunnar og gefur lítið fyrir þær skýringar að útvarpið hafi verið hugsað eingöngu fyrir starfsfólk. „Við gerum ekki uppá milli manna í þessum efnum. Verslunareigandi sem segist bara hlusta á tónlist fyrir sjálfan sig en hún hljómar um búðina þarf að borga alveg eins og verslunareigandi sem kýs að skreyta búðina sína með tónlist," segir Gunnar.„ Og Það skiptir engu máli hvort græjurnar séu góðar eða ekki. Ef tónlist hljómar á opinberum stöðum þá á að greiða fyrir hana samkvæmt lögum," segir Gunnar.
Mest lesið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tónlist Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Lífið Gull og gimsteinar leynast víða Lífið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Fleiri fréttir Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Sjá meira