Bachelor-stúlka fækkar fötum á sviði 31. janúar 2007 03:30 Bachelorstúlkan eins og hún birtist í þáttunum.
Feministar eru æfir yfir Supergirl, keppni sem fram fór á skemmtistaðnum Pravda á laugardaginn. Þar fækkuðu ungar konur fötum til að reyna að vinna utanlandsferð. Bachelorstúlkan Silja Ívarsdóttir fór úr öllum fötunum. „Ætli ég hafi ekki farið aðeins yfir strikið,“ segir Silja Ívarsdóttir, ein þeirra stúlkna sem tók þátt í keppninni Supergirl sem haldin var á skemmtistaðnum Pravda á vegum vefsíðunnar superman.is á laugardaginn. Á heimsíðunni má sjá stúlkurnar reyna að heilla áhorfendur upp úr skónum, fáklæddar mjög og í eggjandi stellingum. Silja er þar á meðal en hún tínir af sér hverja spjörina af fætur annarri þar til hún stendur á sviðinu án allra fata. Af þessu eru teknar myndir sem síðan rata á veraldarvefinn. „Ég fékk taugaáfall þegar ég sá þetta þarna inni en mér skilst að það eigi að taka þær út,“ segir hún.Silja ætti að vera sjónvarpsáhorfendum að góðu kunn en hún var meðal þeirra fljóða sem börðust um hylli Steingríms Randvers Eyjólfssonar í hinum íslenska Bachelor. „Ég myndi vilja taka þetta tilbaka, þetta var alls ekki minn stíll,“ segir Silja um frammistöðu sína í keppninni. „En mér fannst ég þurfa að toppa hinar,“ segir Silja en hafði ekki erindi sem erfiði. Stúlkan sem sigraði heitir Helena.Auður Supergirl keppnin var skandall enda hluti af því kynjahverfi sem viðheldur soramenninguFélag Feminista var ekki par sátt við þessa keppni. „Þetta er skandall,“ segir Auður Alfífa Ketilsdóttir hjá félaginu þegar hún er innt eftir viðbrögðum sínum við þessu uppátæki. „En þarf ekki að koma mikið á óvart. Þrátt fyrir hundrað ára afmæli kvennréttindabaráttunnar á laugardaginn sýnir svona lostamenning að mikið starf er enn óunnið,“ bætir hún við. Auður vill samt ekki gagnrýna stúlkurnar sem tóku þátt heldur segir þær einfaldlega vera aldar upp við sama kynjahverfi og strákarnir sem fíla þetta. „Þær eiga ekki skilið þessa gagnrýni heldur kerfið sem viðheldur þessari soramenningu.“Eigandi heimasíðunnar superman.is, Sveinbjörn Gísli Þorsteinsson, segir að hann hafi vissulega orðið var við neikvæða umræðu um keppnina. „Þetta er fyrst og fremst leikur og það var engin að hvetja fólk til þess að fara úr fötunum,“ segir hann en á heimasíðunni má sjá að keppendum er full frjáls að gera hvað sem er til að vinna hylli áhorfenda, þar á meðal að fækka fötum. Aðspurður um utanlandsferðina sem í boði var fyrir sigurvegarann segir Sveinbjörn: „Hún er ekki ennþá algjörlega komin á hreint.“
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira