Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Styttist í Tvíæringinn í Feneyjum Það styttist í Tvíæringinn í Feneyjum: Steingrímur Eyfjörð Kristmundsson myndlistarmaður var valinn af fagnefnd sem menntamálaráðherra skipaði til að vera fulltrúi Íslands á þessari stærstu og virtustu myndlistarmessu Evrópu. Í vikunni var tilkynnt að Landsvirkjun kæmi honum til stuðnings. 25.1.2007 05:30
Upptökustjóri látinn Einn af upptökustjórum rapparans 50 Cent, Dave Shayman, fannst látinn á heimili sínu í New York. Talið er að hinn 26 ára Shayman hafi framið sjálfsvíg, enda átti hann við þunglyndi að stríða. 25.1.2007 05:15
Fimmtudags forleikurinn Hljómsveitirnar Vicky Pollard, Út-Exit, Gordon Riots og Foreign Monkeys leika á vegum Fimmtudagsforleiks Hins hússins í kvöld. Foreign Monkeys eru sigurvegarar Músíktilrauna árið 2006. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er allir 16 ára og eldri velkomnir. Að venju er frítt inn. 25.1.2007 04:00
Veðbankar spá Scorsese sigri Mynd Martins Scorseses, “The Departed” er uppáhald veðbanka til Óskarsverðlauna í flokkunum besta mynd og besti leikstjóri í ár. Veðmangarar segja 10/11 líkur á því að myndin verði valin besta myndin, og 1/3 að Scorsese fá leikstjóraverðlaunin. Í bestu mynd kemur Babel næst með 9/4, Little Miss Sunshine 4/1, The Queen 8/1 og Letters from Iwo Jima rekur lestina með 12/1. 24.1.2007 11:48
Umdeild barnanauðgun á Sundance Sundance kvikmyndahátíðin í Park city í Utah er nú hálfnuð, en í gær var kvikmyndin "Hounddog" frumsýnd þrátt fyrir fjölda mótmæla. Myndin fjallar um tólf ára stúlku sem er fórnarlamb nauðgunar. Deborah Kampmeier, sem er handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar, hefur borist fjöldinn allur af mótmælum frá hópum sem ekki höfðu séð myndina, vegna atriðis sem sýnir táningsdreng nauðga stúlkunni. 24.1.2007 10:54
Ekkert samkomulag við Mills Lögfræðingar Heather Mills McCartney segja ekkert hæft í þeim fréttum að tilboð um samkomulag hafi borist frá Paul McCartney. Tímaritið News of the World greindi frá því að samkomulag hefði náðst um að Paul greiddi Mills rúmlega fjóra milljarða. Paul McCartney og Heather Mills hófu skilnaðarferlið í júlí, en hjónin höfðu verið gift í fjögur ár og eiga saman dótturina Beatrice, sem er þriggja ára. 24.1.2007 10:16
Þættirnir breyttu mér ekki Storm Large kom óvænt fram á Hlustendaverðlaunum FM 957 sem fram fóru í gærkvöldi. Fréttablaðið náði tali af söngkonunnni sem fór huldu höfði í gær. 24.1.2007 10:15
Stefnt að sáttum Auðuns og Adolfs Auðunn Blöndal var ekki par sáttur við yfirlýsingar Adolfs Inga Erlingssonar sem íþróttafréttamaðurinn lét hafa eftir sér í Fréttablaðinu í gær. Þar sagði Adolf að Auðunn og Hugi Halldórsson hefðu viðhaft hneykslanlega framkomu á HM í Þýskalandi.„Við höfum oft orðið okkur til skammar á ferlinum með truflunum og öðru slíku en það var ekkert slíkt uppá teninginum þarna úti,“ sagði Auðunn 24.1.2007 06:45
Vildi ekki fjölskyldu Ástæðan fyrir skilnaði Cameron Diaz og popparans Justins Timberlake er talin vera sú að Timberlake var ekki tilbúinn til að stofna fjölskyldu með Diaz. 24.1.2007 06:30
Denni tekur við Íslandi í dag „Ég get að svo stöddu ekki gefið upp hvernig hópurinn verður saman settur. Verið er að binda endahnút á það. Ég býst við að það verði klárt á morgun og í kjölfarið verður það gefið upp,” segir Steingrímur Sævarr Ólafsson aðspurður hvernig hópurinn sá sem muni starfa við sjónvarpsþáttinn Ísland í dag verði samansettur. 24.1.2007 06:00
Neitar að grenna sig Sienna Miller hefur lýst því yfir að hún sé ekki tilbúin að breyta um mataræði til að hjálpa sér að komast áfram í Hollywood. Leikkonan, sem er fyrrum kærasta Jude Law, segir það nauðsynlegt fyrir sig að borða vel til að hafa næga orku til að vinna. 24.1.2007 05:00
HM-hjónin sáu fram á dapran endi Sigur íslenska landsliðsins yfir Evrópumeisturum Frakka á mánudagskvöldinu hefur haft mikil áhrif á íslensku þjóðarsálina sem vart ræðir um annað. Fjölmargir er á leiðinni út til Þýskalands. „Það er mikil eftirspurn eftir miðum. 24.1.2007 04:00
Í New York á afmælinu Elton John, sem hélt óvænta en örstutta tónleika hér á landi fyrir skömmu, ætlar að halda upp á sextugsafmæli sitt þann 25. mars með tónleikum í Madison Square Garden í New York. 24.1.2007 04:00
Jackson höfðar mál Popparinn Michael Jackson hefur höfðað mál gegn flugfélaginu Xtra Jet fyrir hleranir. Að sögn Jackson tóku starfsmenn fyrirtækisins upp samtöl á milli hans og lögfræðings hans er þeir voru á leið til Santa Barbara í Kaliforníu árið 2003. Á þessum tíma stóð Jackson í réttarhöldum vegna ásakana um að hann hefði misnotað ungan dreng. Á endanum var hann sýknaður og er nú að undirbúa endurkomu sína í poppbransann. 24.1.2007 02:00
Styð Hillary til sigurs Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist munu styðja Hillary konu sína til sigurs, í forsetakosningunum. Þetta er það fyrsta sem hann tjáir sig um yfirvofandi baráttu, síðan Hillary tilkynnti um framboð sitt. 23.1.2007 17:35
Audda og Huga úthýst úr þýskri handboltahöll „Þetta er ekki héraðsmót heldur heimsmeistarakeppnin í handbolta í Þýskalandi,“ segir Adolf Ingi Erlingsson, íþróttafréttamaður Ríkissjónvarpsins, þegar hann lýsir framgöngu Huga og Audda sem hneykslanlegri. 23.1.2007 10:00
Ástþór fram til forseta enn og aftur „Ég er nú staddur úti í Danmörku. Að safna kröftum. Tók mér frí frá þessu en þegar nær dregur þá kemur það,“ segir Ástþór Magnússon athafnamaður aðspurður um það hvenær menn gætu farið að eiga á því von að rödd hans sem forsetaframbjóðanda fari að heyrast. 23.1.2007 09:45
Hætt með kærastanum Britney Spears er búin að sparka kærastanum sínum, fyrirsætunni Isaac Cohen. Þau höfðu verið á föstu í tvær vikur en bandarískir fjölmiðlar segja Britney hafa fengið nóg á fimmtudaginn í síðustu viku. „Við erum ekki lengur saman,“ var það eina sem fékkst upp úr hinni 25 ára einstæðu móður. Þrátt fyrir þetta sást til Britney á föstudagskvöldið í samræðum við umræddan Cohen. 23.1.2007 09:00
Höfðar mál Leikkonan Kiera Knightley hefur höfðað mál gegn breska dagblaðinu The Daily Mail vegna fréttar þar sem er gefið í skyn að hún hafi sagt ósatt þegar hún vildi ekki viðurkenna að hún þjáðist af átröskun. Blaðið birti grein um stúlku sem lést af völdum átröskunar og með greininni fylgdi mynd af hinni 21 árs Knightley á strönd þar sem rætt var um þyngd hennar. 23.1.2007 08:45
Íhugaði að hætta Leonardo DiCaprio íhugaði að hætta að leika eftir að hann lék í hinni vinsælu Titanic árið 1997. 23.1.2007 08:30
Vinir saman á sviði Hnefaleikakappinn fyrrverandi Muhammad Ali steig upp á svið með vini sínum, gamanleikaranum Billy Crystal, á 65 ára afmælisdegi sínum á miðvikudag. 23.1.2007 06:30
Bó berst fyrir bættu öryggi á netinu „Nei, ég hef nú ekki lent í því að fólk hafi efast um hver ég væri en sumir hafa ekki alltaf kveikt á perunni,“ segir stórsöngvarinn Björgvin Halldórsson en eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær leikur hann í auglýsingu fyrir Auðkennislykil sem á að tryggja öryggi bankaviðskipta á netinu. Í auglýsingunni er gert út á að þótt menn séu þekktir á þessari eyju skipti það litlu máli á netinu. „Mér finnst þetta gott málefni enda nota ég netið mikið sjálfur. Og það er aldrei nógu mikið gert til að tryggja öryggið þar,“ segir söngvarinn. 23.1.2007 04:15
Knightley í mál við Daily Mail Keira Knightley hefur farið í mál við breskt dagblað vegna greinar sem gaf í skyn að hún hefði logið til um að vera ekki með átröskun. The Daily Mail birti mynd af hinn 21 árs gömlu leikkonu á strönd, og í texta með myndinni var bent á holdafar hennar. Myndin birtist í grein um stúlku sem dó af völdum anorexíu. Fréttavefur BBC segir að í tilkynningu frá lögmönnum leikkonunnar segi að blaðið hafi auk þess gefið í skyn að Knightley hafi gefið slæmt fordæmi og átt þannig þátt í dauða stúlkunnar. 22.1.2007 15:30
Britney ófrísk? Vangaveltur þess efnis hvort Britney Spears sé barnshafandi hafa gengið fjöllunum hærra síðustu daga. Nýjustu fregnir herma þó að Britney sé EKKI ófrísk. Umboðsmaður poppstjörnunnar, Larry Rudolph, hefur slegið á orðróminn með því að útskýra hvernig sagan komst á kreik. Mynd náðist af nýja kærastanum, Isaac Cohen, þar sem hann sat við hlið Britneyjar með hnetusmjör á fingrunum. 22.1.2007 15:00
Lindsay aftur í meðferð Leikkonan Lindsey Lohan hefur skráð sig í meðferð hjá lúxus meðferðarheimili í Kaliforníu samkvæmt bandaríska tímaritinu US Weekly. Lindsey viðurkenndi í síðasta mánuði að hún sækti AA fundi, en tilgreindi ekki ástæðu þess. Talsmaður leikkonunnar segir að Lindsey hafi tekið ákvörðun um að hugsa betur um líðan sína og heilbrigði og að hún óskaði eftir að fjölmiðlar virtu einkalíf hennar á meðan. 22.1.2007 14:30
Beckham hjónin í Playboy partý Victoria og David Beckham eru komin á boðslista Hugh Hefners fyrir næsta Playboy partý. Vinir hjónanna í Hollywood telja meðal annars TomKat og J.Lo, en nú hefur Hugh Hefner sagt að "stelpurnar hans" vilji fá hjónin í partýið. Þá spáir Hefner því að Hollywood eigi eftir að elska Victoriu og David. 22.1.2007 14:00
Hundurinn bjargaði Salmu Hayek Nokkrum klukkustundum fyrir Golden Globe verðlaunaafhendinguna í síðustu viku ákvað Salma Hayek að leggja sig. Hún hafði ekki hugmynd um að á heimili hennar í Kaliforníu var gasleki. Salma sem var með höfuðverk, vaknaði upp við það að hundurinn hennar, Diva, lét öllum illum látum. Hann beit í ermi hennar og reyndi að draga hana út. 22.1.2007 13:24
Monica leitar að vinnu í Lundúnum Hvíta húss lærlingurinn fyrrverandi, Monica Lewinsky, er nú að leita sér að vinnu í Lundúnum, eftir að hafa lokið meistaranámi við London School of Economics. Talsmaður hennar vill ekki upplýsa í hvaða geira hún sé að leita sér að vinnu, né hversu lengi hún verði í Lundúnum. 22.1.2007 11:54
Lítill álfur á leiðinni Bandaríska leikkonan Jenna Elfman, sem gerði garðinn frægan í þáttunum um Dhörmu & Greg, á von á sínu fyrsta barni. Hún og eiginmaður hennar Bodhi Elfman hafa verið gift í sextán ár, og eru sögð í skýjunum yfir þessari fjölgun í fjölskyldunni. Jenna er 35 ára gömul og umboðsmaður hennar segir að meðgangan sé henni bæði auðveld og ánægjuleg. 22.1.2007 11:41
Niðurbrotin sjónvarpsstjarna Breska sjónvarpsstjarnan Jade Goody er niðurbrotin manneskja eftir harkalega gagnrýni sem hún hefur fengið fyrir árásir sínar á Indversku kvikmyndaleikkonuna Shilpu Shetty, í raunveruleikaþættinum Big Brother á Channel 4. Breska lögreglan hefur sett vörð um heimili Goody, og yfirmenn Channel 4 koma saman til neyðarfundar í dag, til þess að ræða hvort leggja eigi þáttinn niður. Jade Goody er sökuð um stæka kynþáttafordóma. 22.1.2007 10:55
Yfirhirðmey Sonju drottningar rekin Yfirhirðmey Sonju drottningar Noregs hefur misst vinnuna og hirðin tjáir sig ekki um hvers vegna. Sidsel Wiborg, sem er 57 ára gömul hefur verið skráð veik í tíu mánuði, og staðfesti í samtali við norska blaðið VG, að henni hafi verið tilkynnt að ekki sé óskað eftir að hún komi aftur til vinnu. 22.1.2007 10:17
Mills fær 3,6 milljarða króna Heather Mills og Paul McCartney hafa, að sögn breska blaðsins News of The World, náð samkomulagi um greiðslur til Mills við skilnað þeirra. Hún mun fá um þrjá komma sjö milljarða króna fyrir fjögurra ára hjónabandið. Það mun vera bæði í reiðufé og fasteignum. 22.1.2007 10:05
Oprah er ríkust Drottning spjallþáttanna, Oprah Winfrey, trónir á toppi lista yfir ríkustu konur skemmtanaiðnaðarins. Forbes tímaritið gefur listann út og metur eignir hennar á tæpa 105 miljarða króna. 19.1.2007 11:39
Rannsóknarblaðamaður í Kastljósið Friðrik Þór Guðmundsson hefur verið ráðinn í sérverkefni fyrir Kastljós í sjónvarpinu. Hann mun sinna rannsóknarvinnu bak við tjöldin. 19.1.2007 11:00
Söfnuðu fyrir skólagöngu fátækrar stelpu í heilt ár Æskulýðsfélagið í Digraneskirkju heitir Meme group og er fyrir krakka í 8-10. bekk. Krakkarnir í félaginu ákváðu að styrkja fátæka stelpu á Indlandi til náms. Litla stelpan heitir Lakshmi en nánari upplýsingar um hana er að finna á www.jarma.net. 19.1.2007 10:51
Hringur fékk sparibauk Pétur Þorsteinn Óskarsson frá Glitni, Hringur, Anna Marta Ásgeirsdóttir, Ásgeir Haraldsson prófessor í Barnalækningum og sviðsstjóri Barnalækninga á Barnaspítala Hringsins, og Vilhjálmur Halldórsson frá Glitni. 19.1.2007 10:20
Kate djammar og djammar og djammar Kate Moss hélt upp á 33 ára afmælið sitt á þriðjudaginn með því að eyða um 700.000 krónum á 24 tíma djammi. Hún byrjaði fjörið heima hjá sér og drakk kampavín með vinum sínum. 18.1.2007 15:54
Diaz ósátt við Timberlake Cameron Diaz og Justin Timberlake rifust í Golden Globe eftirpartýi. Að sögn viðstaddra voru endurfundir þeirra ekkert sérstaklega glaðlegir. Þau eru nýlega hætt saman. 18.1.2007 11:40
Pink fór í geitarhús Poppstjarnan Pink hefur beðið Ástrali afsökunar á því að hafa stutt dýraverndarsamtök sem berjast gegn ástralskri ullarverslun. Ástæðan er sú að það er siður rúningarmanna í Ástralíu að klippa laust skinn aftan af kindum til þess að verja þær fyrir ágangi flugna. 18.1.2007 10:12
James Brown ennþá ofan jarðar Mánuði eftir dauða sinn og þrem vikum eftir útförina hefur sálarsöngvarinn James Brown enn ekki verið lagður til hinstu hvíldar, meðan hugsanlegir erfingjar rífast um jarðneskar eigur hans. 18.1.2007 09:54
Íslensk Passat auglýsing gerir það gott Ímyndarauglýsing fyrir Volkswagen Passat sem Hvíta húsið og Saga film gerðu fyrir bifreiðaumboðið HEKLU er nú sýnd við góðan orðstír á sjónvarpsstöðvum í Suður-Kóreu og Ungverjalandi. 17.1.2007 17:16
Búinn í meðferð Keith Urban hefur verið útskrifaður úr meðferð og er nú á leið í tónleikaferðalag. Hann ætlar að kynna plötu sína Love, Pain and The Whole Crazy Thing. 17.1.2007 16:59
Pitt og Jolie flytja til New Orleans Brad Pitt og Angelina Jolie hafa flutt fjölskyldu sína til New Orleans. Þau festu kaup á hefðarsetri fyrir um 247 miljónir króna í franska hluta borgarinnar. 17.1.2007 11:54
Allt á fullu hjá Victoriu Það stendur meira til í ferð Victoriu Beckham til Bandaríkjanna en að skoða hús og skóla. Hún var á Golden Globe verðlaunahátíðinni með Tom Cruise og konu hans Katie Holmes. Í dag ætlar Victoria að hitta Jennifer Lopez. 16.1.2007 16:30
Victoria skoðar hús og skóla í L.A. Victoria Beckham er í Los Angeles að skoða glæsivillur og skóla fyrir drengina sína þrjá þá Brooklyn, Romeo og Cruz. 16.1.2007 15:03