Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Karate Kid ósáttur við endurgerð Ralph Macchio, sem lék aðalhlutverkið í Karate Kid á níunda áratugnum, vill ekki að myndin verði endurgerð. Hann er ánægður með að aðdáendur fyrstu myndanna hafi mótmælt endurgerðinni. „Það er gott ef fólki finnst að menn eigi ekki að snerta við ákveðnum hlutum. Stundum gera menn það en hefðu kannski betur sleppt því,“ sagði hinn 47 ára Macchio. „Að mínu mati verður erfiðast að fylla skarð Hr. Miyagi og ná fram þeim töfrum sem sú persóna hafði yfir að ráða.“ Jackie Chan mun líklega leika Hr. Miyagi og sonur Wills Smith leikur karatestrákinn. 22.1.2009 06:00
Jón Gnarr í leikritalestur Jóni Gnarr er margt til lista lagt: á sunnudaginn leggst hann í leikritalestur og ræðir um Dúfnaveislu Halldórs Laxness, smásöguna úr Sjöstafakverinu og leikritið sem af henni er sprottið. 22.1.2009 06:00
Leitar að arftökum Quarashi Athafnamaðurinn Steinar Jónsson leitar þessa dagana að arftökum rappsveitarinnar vinsælu Quarashi. Hann hefur stofnað hljóðverið Stúdíó Róm ásamt félögum sínum og vonast til lokka þangað hæfileikaríka tónlistarmenn, þar á meðal sjóðheita rappara. 22.1.2009 06:00
Leika ástfangið par Jim Carrey og Ewan McGregor leika ástfangið par í svörtu kómedíunni I Love You Phillip Morris sem var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni fyrir skömmu. 22.1.2009 05:15
Landslið tengt hommamynd Ísland er stundum ekki alveg jafn stórt og íbúar þess vilja láta. Það sannast kannski best í spænsku myndbandablaði. 22.1.2009 05:00
Neistaflugið enn til staðar Titanic-parið Kate Winslet og Leonardo DiCaprio leiða aftur saman hesta sína í hinni dramatísku Revolutionary Road sem verður frumsýnd á morgun. Mörgum er eflaust enn í fersku minni ástarsamband Winslet og DiCaprio í hinni ógnarvinsælu Titanic árið 1997. Neistaflugið á milli þeirra var umtalað og átti tvímælalaust stóran þátt í vinsældum myndarinnar. 22.1.2009 04:45
Stjörnurnar heiðra Nick Drake Eddie Vedder, söngvari Pearl Jam, Dave Grohl úr Foo Fighters og Norah Jones eru á meðal þeirra sem syngja á nýrri plötu til heiðurs enska tónlistarmanninum Nick Drake. 22.1.2009 04:45
Gúrúinn með sjö tilnefningar Hin misheppnaða gamanmynd Mike Myers, The Love Guru, hefur fengið sjö tilnefningar til Razzies-verðlaunanna. Um skammarverðlaun er að ræða þar sem verstu kvikmyndir og leikarar ársins fá viðurkenningar. 22.1.2009 04:30
Mínus sver eið Að sögn Krumma er nú „geðveikur æsingur“ í hljómsveitinni Mínus að setja allt í gang á ný eftir pásu. „Við höfum svarið þess eið að koma með nýja plötu á þessu ári,“ segir söngvarinn. „Það er mikill metnaður í okkur og við erum byrjaðir að hittast og ræða málin. Næst á dagskrá er bara að hendast í hús, semja, æfa og koma sér í gírinn.“ 22.1.2009 04:30
Coldplay og Duffy líkleg til sigurs Duffy og Coldplay fengu flestar tilnefningar til Brit-verðlaunanna sem verða afhent 18. febrúar í London. Fengu þær hvor um sig fjórar tilnefningar, þar á meðal fyrir bestu bresku plötuna árið 2008. 22.1.2009 04:15
Winslet með tilbúna ræðu á Bafta Leikkonan Kate Winslet ætlar að semja þakkarræðu fyrir Bafta-verðlaunin sem verða afhent í næsta mánuði. Ástæðan er tilfinningarík og algjörlega óundirbúin ræða sem hún hélt á Golden Globe-hátíðinni á dögunum. „Ég ætti að hafa ræðu tilbúna vegna þess að á Golden Globe hélt ég að ég myndi ekki vinna,“ sagði Winslet. Winslet er tilnefnd til Bafta-verðlaunanna fyrir hlutverk sín í Revolutionary Road og The Reader. 22.1.2009 04:00
Trumbur og gjöll slegin Trommuleikarar og áhugamenn um áslátt verða í kvöld aðnjótandi happafengs. Þá flytja tveir ásláttarmenn af heimsklassa nýtt verk eftir Áskel Másson í liði með Sinfóníunni. Það verða þeir Colin Currie frá Englandi og Pedro Carneiro frá Portúgal sem takast á við Crossings og er það í fyrsta sinn sem þeir koma fram hér á landi í frumflutningnum. 22.1.2009 04:00
U2 setja í gang Tólfta hljóðversplata U2 kemur út í byrjun mars en fyrsta lagið af henni „Get on your boots“ er byrjað að heyrast. Lagið er hressandi rokkpopp drifið áfram af gítarriffi og venst ágætlega. Þá hefur umslag nýju plötunnar verið opinberað. það er eftir japanska listamanninn Hiroshi Sugimoto, heldur grámygluleg mynd af sjóndeildarhring en rímar vel við titil plötunnar, No line on the horizon. Umslagið er nánast eins og á minimalískri plötu Richards Chartier og Taylors Deupree, Specification. Fifteen, sem kom út fyrir nokkrum árum. Félagarnir ætla þó ekki að kæra. 22.1.2009 03:45
Kira Kira í tónleikaferð um Evrópu Kira Kira, eða Kristín Björk Kristjánsdóttir, hóf í síðustu viku tónleikaferð um Evrópu. Ferðin stendur yfir til 7. febrúar og alls spilar Kira Kira á tuttugu tónleikum, þar á meðal í Þýskalandi, Ítalíu, Frakklandi, Hollandi og Danmörku. Einnig er í bígerð tónleikaferð um Bretland í apríl og um Austur-Evrópu í sumar. 22.1.2009 03:45
Lost hefst að nýju Sýningar á Lost hófust að nýju í gærkvöldi á ABC sjónvarpsstöðinni í Bandaríkjunum með tveimur fyrstu þáttum fimmtu seríunnar. Tveimur söguþráðum verður fylgt í sautján þáttum þessarar seríu. 22.1.2009 03:30
Þriggja stjörnu diskórokk Þriðja breiðskífa Franz Ferdinand, Tonight, kemur út á mánudaginn. Margir bíða hennar með mikilli eftirvæntingu enda sló sveitin rækilega í gegn fyrir fimm árum með sinni fyrstu plötu. 22.1.2009 03:30
Tilfinningaþrungin stund Obama - myndband Forseti Bandaríkjanna Barack Obama og eiginkona hans Michelle Obama dönsuðu fram á rauða nótt í gær. Eins og meðfylgjandi myndband sýnir dönsuðu forsetahjónin og létu vel að hvort öðru við lagið At last í flutningi Beyonce Knowles. Forsetafrúin klæddist síðkjól eftir fatahönnuðinn Jason Wu sem er aðeins 26 ára gamall. Sjá dansinn hér. 21.1.2009 11:34
Eiginmaður aðþrengdrar eiginkonu með krabbamein Eiginmaður Marciu Cross, sem fer með eitt aðalhlutverkið í sjónvarpsþáttunum Aðþrendar eiginkonur hefur verið greindur með krabbamein. Talsmaður hjónananna sendi yfirlýsingu svo hljóðandi: „Hann (Tom) gengst um þessar mundir undir meðferð og hún gengur vel." Tom, 51 ára, og Marcia, 46 ára, giftu sig árið 2006 og eignuðust tæpu ári síðar tvíburana Eden og Savannah. Meðfylgjandi má sjá myndir af fjölskyldunni. 21.1.2009 09:18
Sjónvarpsþættir Jóns Ólafs á sviðið „Ég hef gengið með þessa hugmynd í maganum í nokkur ár,“ segir Jón Ólafsson tónlistarmaður. Hann gengst fyrir tónleikaröð í Salnum í Kópavogi sem hann kallar „Af fingrum fram“ og byggir á vinsælum samnefndum sjónvarpsþáttum hans. Fyrstu tónleikarnir verða 19. febrúar og er þá gestur Jóns sjálfur Magnús Eiríksson en sérstakur gestur verður söngkonan Ellen Kristjánsdóttir. „Mér datt í hug að færa þetta konsept úr sjónvarpinu og upp á svið. Ég ræði við Magnús og þá með meiri áherslu á tónlistina en ferilinn eins og var í sjónvarpinu. Hvort til dæmis hann hafi ekki fljótlega fengið ógeð á „Ég er á leiðinni“ eftir gegndarlausa útvarpsspilun þess lags. En mest verður þetta tónlist en ekki kjaftavaðall.“ 21.1.2009 05:45
Miðasalan fer hægt af stað Danska rokkveislan í Hróarskeldu hefur haft mikið aðdráttarafl hjá íslenskum rokkhundum á ári hverju. Kreppan hefur nú stimplað sig þar inn. 21.1.2009 04:30
Stjörnur í afmæli Stjána Stuð Kristján Þórðarson, betur þekktur sem útvarpsmaðurinn Stjáni Stuð, heldur upp á fertugsafmæli sitt í lok maí. Það er ekki vottur af kreppubrag á veislunni og Elton John og Ólafur Ólafsson falla algjörlega í skuggann á poppstjörnunum sem Stjáni býður upp á í sínu afmæli. „Þetta er svona allt að smella núna. Sjonni Brink byrjar þetta, en svo koma meðal annars fram Skítamórall, Á móti sól og Land og synir. Hljómsveitin Hitakútur endar tónleikana. Svo á ég eftir að tala við Ný dönsk, en Ingó og Veðurguðirnir og Greifarnir gefa endanlegt svar í mars. Þetta eru allt vinir og kunningjar,“ segir Stjáni. 21.1.2009 04:15
Lúnar tær sjónvarpsstjarna nuddaðar upp úr ilmolíum „Við komum í Þórsmörk að kveldi bóndadags og fáum við karlarnir táslunudd sem er ómissandi þáttur í þessum ferðum. Konurnar nudda þá tær á okkur upp úr ilmolíum,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður. 21.1.2009 02:00
Bjarni Ben er latur við heimilisstörfin Í nærmynd af Bjarna Benediktssyni verðandi ráðherra í sjónvarpsþættinum Ísland í dag, sem hefst í kvöld strax að loknum fréttum, segir eiginkona hans, Þóra Margrét Baldvinsdóttir, Bjarna meðal annars vera latan við heimilisstörfin en hún þrátt fyrir það styður hún maninn sinn í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur í framtíðinni. 20.1.2009 16:16
Frægir mótmæla Á meðal fjöldans sem mótmælir á þessari stundu á Austurvelli má sjá fræga Íslendinga. Þar mótmælir Gunnar Þórðarson tónlistarmaður, Jón Páll Eyjólfsson leikari, Kolbrún Halldórsdóttir alþingismaður, Jónsi tónlistarmaður og meðlimur Sigurrósar, Stefán Jónsson leikari, Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar svo einhverjir séu nefndir. 20.1.2009 15:51
Fólk með piparúða í augum kemur hlaupandi „Það er rosalega mikið að gera alltaf þegar mótmæli eiga sér stað, " svarar Orri Páll Vilhjálmsson vaktstjóri á kaffihúsinu Café París þegar Vísir spyr hvernig mótmælin hafa áhrif á hann. „Þá fyllist húsið sem er jákvætt. Nei kaffigestir eru ekki með neinn æsing heldur eru allir á öllum borðum að tala um ástandið." „Fólkið kemur hérna inn eftir mótmælin og sumir hverjir sem eru búnir að fá piparúða í augun," segir Orri. 20.1.2009 15:09
Myndir sem Madonna neitaði að birta Fimmtuga Madonna bannaði birtingu á meðfylgjandi myndum sem teknar voru af henni fyrir plötuna Hard Candy plötuna. Stílistar hafa gagnrýnt umrædda myndasyrpu harðlega sökum þess hve söngkonan lítur illa út. 20.1.2009 09:57
Klara Kristín Arndal er nýr ritstjóri Birtu Nýr ritstjóri hefur tekið við tímaritinu Birtu. Klara Kristín Arndal tók við af Kristjáni Þorvaldssyni rétt eftir áramót og kom fyrsta blaðið undir hennar ritstjórn út síðastliðinn föstudag. 20.1.2009 08:27
Súlukóngur altarisdrengur hjá Gunnari í Krossinum „Ég hugsa allt öðruvísi. Þetta afeitrar þig algjörlega, hugurinn opnast og á nýju ári er maður alveg opinn fyrir öllu og mjög jákvæður,“ segir Ásgeir Þór Davíðsson sem flestir þekkja sem Geira á Goldfinger. 20.1.2009 07:30
Gillz slátrað á Rúbín Agli „Störe“ Einarssyni tókst ekki að sýna sitt rétta andlit á pókermóti veðmálafyrirtækisins Betsson sem fram fór á Rúbín um helgina. Fjöldi þekktra einstaklinga tók þátt í mótinu. 20.1.2009 06:00
Logi býður langveikum börnum í bíó „Þetta er bara eitt af áramótaheitunum mínum, að láta gott af mér leiða á árinu 2009,“ segir handknattleikskappinn Logi Geirsson en hann hyggst bjóða öllum langveikum börnum í bíó á næstunni. 20.1.2009 05:00
Stóra planið til Rotterdam „Þetta er stór hátíð og ég hlakka mikið til,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur Jóhannesson en kvikmynd hans, Stóra planið, verður meðal mynda á kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. Sem þykir mikill heiður. Myndin verður sýnd í svokölluðum spectrum-hluta en Ólafi til halds og trausts verða meðal annars leikarar úr myndinni og framleiðendurnir Stefan Schaefer og Michael Imperioli en sá síðarnefndi lék einmitt glæpaforingjann Alexander í Stóra planinu. 20.1.2009 04:30
Laddi sextugur í tvö ár Sýningin Laddi 6-tugur fagnar óvæntum tímamótum í kvöld en Laddi sjálfur verður þá 62. Hópurinn kemur saman í síðasta sinn á laugardaginn. 20.1.2009 04:00
Nýtt U2 lag frumflutt í dag Hljómsveitin U2 frumflutti fyrsta lagið á væntanlegum geisladiski sínum í dag. Lagið, sem heitir „Get On Your Boots“ var flutt í Írska ríkisútvarpinu RTE í þætti hjá Dave Fanning. 19.1.2009 23:40
Villurnar pirra eingöngu lögmenn „Það er ekki hægt að segja að ég hafi beinlínis aðstoðað handritshöfundana. Þeir komu til mín einu sinni á stuttan fund í upphafi þegar þeir voru að móta sínar hugmyndir. Þá svona til að þreifa á starfi lögmanna. Ég kom ekkert að handritsgerð og las það ekki yfir," svarar Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður þegar Vísir spyr hann út í hans aðstoð við handritsgerð sjónvarsþáttanna Réttur sem hóf sýningar á Stöð 2 í gærkvöldi. 19.1.2009 16:51
Hefur ekki fundið þá einu réttu Ingólfur Þórarinsson, 22 ára, betur þekktur sem Ingó úr Veðurguðunum, komst áfram í undankeppni Júróvisjón um helgina með lagið Undir regnboganum eftir Hallgrím Óskarsson. Vísir hafði samband við Ingólf til að forvitnast meðal annars um stelpurnar sem syngja með honum lagið, skófatnaðinn og ástarmálin. 19.1.2009 15:39
Mexíkóar stela íslenskri auglýsingu „Maður hefur séð hugmyndir sem íslenskar auglýsingastofur hafa notað erlendis frá en ég hef ekki séð þetta fara í þessa áttina,“ segir Ársæll Baldursson, framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Ó-ið. Auglýsing sem stofan gerði fyrir Dominos á Íslandi hefur nú verið „endurgerð“ fyrir Dominos í Mexíkó. Reyndar án leyfis. 19.1.2009 08:00
Logi umvafinn kvenfólki Auðunn Blöndal bauð til veglegrar veislu á fimmtudagskvöldið til að fagna fyrsta þætti Atvinnumannanna okkar. Logi Geirsson, stjarna fyrsta þáttarins, var að sjálfsögðu á svæðinu.„Hann er bara stofnun eða eins og strákarnir í landsliðinu segja, Logi er bara spaði,“ segir Guðjón Guðmundsson, íþróttafréttamaður Stöðvar 2 og fyrrum aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins. 19.1.2009 05:00
Carell keypti litla verslun Gamanleikarinn Steve Carell keypti nýlega litla verslun í 155 ára gömlu húsi í bænum Marshfield Hills í Massachusetts þar sem hann býr hluta úr árinu. Réð hann í framhaldinu mágkonu sína sem verslunarstjóra. 19.1.2009 05:00
Ástvinanudd hjá Ingva Hrafni „Pældu bara í því! Nú getur þú tekið konuna þína, sett hana fyrir framan sjónvarpið og sagt við hana: Fylgstu nú með. Og lærðu hvernig þú getur verið almennileg við mig,“ segir Ingvi Hrafn Jónsson sjónvarpsstjóri á ÍNN. 19.1.2009 04:00
Bjargvættirnir frá Danmörku „Ég veit ekki hvort fjáröflunin sem slík verður eitthvað sem öllu máli skiptir. Aðallega er þetta nú að sýna samstöðu, vekja athygli á málstaðnum og létta fólki lífið með rokktónleikum,“ segir Jacob Binzer aka Cobber, gítarleikari D-A-D, í samtali við Fréttablaðið. 19.1.2009 04:00
Auður ráðin í leikhús í eitt ár Auður Jónsdóttir rithöfundur hefur verið valin leikskáld Borgarleikhússins 2009. 19.1.2009 03:00
Atli samdi fyrir Nixon/Frost Íslenska tónskáldið Atli Örvarsson kom að gerð tónlistarinnar við kvikmyndina Nixon/Frost. Lærimeistari Atla, Hans Zimmer, er opinberlega skráður fyrir tónlistinni en Atli var í hópnum sem samdi hana. Nixon/Frost hefur fengið lofsamlega dóma, var meðal annars tilnefnd til Golden Globe sem besta mynd ársins. Tapaði þar fyrir Slumdog Millionaire í leikstjórn Danny Boyle. Hún er engu að síður sögð líkleg til að hljóta Óskarstilnefningu þegar þær verða tilkynntar 22. janúar. 19.1.2009 03:00
Gerir mynd um Phoenix Leikarinn Casey Affleck ætlar að leikstýra heimildarmynd um nýhafinn tónlistarferil kollega síns og mágs, Joaquin Phoenix. Síðasta haust tilkynnti Phoenix öllum að óvörum að hann ætlaði að gefa leiklistina upp á bátinn og einbeita sér að tónlistinni. Ætlar hann að reyna fyrir sér í rappinu og mun Sean Combs taka upp fyrstu plötu hans. 19.1.2009 03:00
Ungt fólk notar innkaupatöskur Innkaupatöskur á hjólum njóta nú vinsælda hjá ungum sem öldnum samkvæmt því sem afgreiðsludömur í þremur verslunum segja. „Einu sinni voru þessar töskur kallaðar gömlukonutöskur en það er löngu hætt,“ segir María G. Maríusdóttir hjá Drangey í Smáralind. 19.1.2009 02:30
Auður Jónsdóttir valin leikskáld Borgarleikhússins Auður Jónsdóttir, rithöfundur, var í dag valin leikskáld Borgarleikhússins árið 2009 úr stórum hópi umsækjenda. 18.1.2009 16:19