Fleiri fréttir

LeBron með sonunum á forsíðu SI: Ætlar að spila með þeim báðum
Tuttugu árum eftir að hann prýddi forsíðu Sports Illustrated í fyrsta sinn er LeBron James á forsíðu íþróttatímaritsins fræga í nýjasta hefti þess. Með honum á forsíðunni eru synir hans, Bronny og Bryce.

Snýr aftur eftir fjögurra ára bann fyrir ólöglega lyfjanotkun
Körfuknattleiksmaðurinn Oddur Rúnar Kristjánsson hefur nú afplánað langt bann vegna ólöglegrar lyfjanotkunar og mun taka slaginn með Njarðvíkingum í vetur.

Íhugaði sjálfsvíg eftir meiðslin og móðurmissinn
John Wall, leikmaður Los Angeles Clippers í NBA-deildinni vestanhafs, segir síðustu þrjú ár hafa verið sér afar erfið. Hann glímdi við þrálát hásinarslit og missti fjölskyldumeðlimi í kórónuveirufaraldrinum.

Almar Orri yfirgefur KR
Almar Orri Atlason, leikmaður KR, hefur yfirgefið Vesturbæinn og mun halda til Bandaríkjanna til að leika með Sunrise Christian Academy skólanum næsta leiktímabil.

Nýr samningur við þjálfara meistaranna loks í höfn
Eftir að hafa stýrt Val til langþráðs Íslandsmeistaratitils í körfubolta karla í vor hefur þjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson nú skrifað undir nýjan samning til þriggja ára við félagið.

Myndasyrpa frá mögnuðum sigri Íslands gegn Úkraínu
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tók á móti því úkraínska í undankeppni HM í gær þar sem Ísland hafði betur eftir framlengdan háspennuleik, 91-87.

HM draumurinn lifir | Staðan í undanriðlinum
Ísland vann mikilvægan sigur á Úkraínu í undankeppni HM fyrr í kvöld en sigur Íslands ásamt smá aðstoð frá Ítölum gerir að verkum að Ísland er komið í bílstjórasætið fyrir sæti á HM 2023.

Kristófer: „Þegar við náum að spila sem lið þá erum við drullugóðir“
Kristófer Acox var stórkostlegur á köflum í kvöld og átti lykilþátt í því að ná að sigla sigrinum heim í kvöld. Hann stal boltanum þegar sex sekúndur voru eftir og það varð til þess m.a. að Ísland vann Úkraínu 91-88 í Ólafssal í kvöld.

Elvar Már: „Þetta var liðssigur þar sem við lögðum allt í þetta“
Elvar Már Friðriksson var enn og aftur lykilmaður í því að ná í sigur íslenska körfuboltalandsliðsins en nú lágu Úkraínu menn í grasinu eftir framlengdan leik í Ólafssal fyrr í kvöld. Leikurinn endaði 91-88 en að mati Elvars var það eljan og íslenska geðveikin sem skilaði sigrinum.

Umfjöllun og viðtöl: Ísland - Úkraína 91-88 | Frábær sigur Íslendinga eftir framlengingu
Ísland vann Úkraínu 91-88 eftir framlengdan háspennuleik í Ólafssal fyrr í kvöld. Ísland vann sig inn í leikinn og með góðum varnarleik var sigri siglt heim. Þær voru margar hetjurnar í kvöld. Þetta er gott fyrir stöðuna í riðlinum okkar. Umfjöllun og viðtöl eru væntanleg

Isabella hefur leikið sinn síðasta leik í Ástralíu
Isabella Ósk Sigurðardóttir, leikmaður South Adelaide Panthers, hefur leikið sinn síðasta leik í Ástralíu, a.m.k. í bili. Isabella og liðsfélagar hennar töpuðu í morgun gegn Sturt í undanúrslitum NBL1 deildarinnar, 74-70.

Kjóstu Kristalsleikmanninn eftir leikinn á móti Úkraínu í kvöld
Ísland mætir Úkraínu í annarri umferð World Cup 2023 Qualifiers keppni FIBA, í Ólafssal á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20 og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV2. Áhorfendur geta kosið mann leiksins, eða Kristalsleikmanninn, hér á Vísi.

Brynjar Þór: Maður segir aldrei alveg skilið við körfuboltann
Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR, tilkynnti í gær að hann ætlaði að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril í körfubolta. Brynjar segist þó ekki alveg horfinn af sjónarsviðinu en ætlar að taka sér smá pásu frá boltanum.

Elvar Már: Ekki við KKÍ að sakast
Elvar Már Friðriksson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta, segir orð sín í viðtali eftir leik Íslands og Spánar hafa verið mistúlkið.

KR semur við fyrrum leikmann Hattar
KR-ingar staðfestu í dag komu bandaríska bakvarðarins Michael Mallory til félagsins.

Brynjar Þór hættur í körfubolta | „Hungrið ekki til staðar“
Brynjar Þór Björnsson, leikmaður KR í körfubolta, hefur ákveðið að segja þetta gott og ætlar að leggja skóna á hilluna.

Lakers sækir fjandmann Westbrook
Los Angeles Lakers hefur ákveðið að skipta Talen Hurton-Tucker út fyrir kjaftaskinn Patrick Beverley. Sá hefur lengi átt í deilum við Russell Westbrook, leikstjórnanda Lakers, ásamt því að urða reglulega yfir Lakers er hann lék með nágrönnunum í Clippers.

Formaður KKÍ segir orð leikmanna hafa misskilist
Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, segir orð leikmanna íslenska karlalandsliðsins um undirbúning Íslands fyrir stórtap gegn Spáni í undankeppni HM í gærkvöld hafa misskilist. Spánverjum hafi þá gefist lengri tími til undirbúnings vegna reglna frá Alþjóðlega körfuknattleikssambandinu, FIBA, sökum þess að þeir eru á leið á EM í næstu viku.

Ekkja Bryant fær 16 milljónir dala í miskabætur
Vanessa Bryant, ekkja körfuboltastjörnunnar Kobe Bryant fær 16 milljónir dollara í miskabætur vegna mynda sem viðbragðsaðilar tóku af slysstaðnum í kjölfar þyrluslyss sem Kobe og dóttir hjóna lentu í árið 2020.

Tindastóll semur við nýjan Kana
Tindastóll hefur tryggt sér þjónustu hins bandaríska Keyshawn Woods fyrir komandi átök í Subway-deild karla í körfubolta.

Elvar Már: Fengum þrjá daga í undirbúnig á meðan þeir fengu mánuð
Elvar Már Friðriksson var stigahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í körfubolta með fjórtán stig þegar liðið beið ósigur gegn Spáni í undankeppni HM 2023 í Pamplona í kvöld.

Craig Pedersen: Réðum illa við hæðina hjá þeim
Aggresívur varnarleikur spænska liðsins og tapaðir boltar urðu íslenska liðinu að falli að mati Craig Pedersen, þjálfara íslenska liðsins, þegar Ísland tapaði fyrir Spáni í undankeppni HM 2023 á útivelli í kvöld.

Umfjöllun: Spánn - Ísland 87-57 | Íslenska liðið lenti á vegg í hæsta garðinum
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta laut í lægra haldi þegar liðið sótti ríkjandi heimsmeistara, Spán heim, í fyrstu umferð í seinna stigi undankeppni HM.

Fá króatískan ÍR-ing og Búlgara
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur tilkynnti í dag um liðsstyrk fyrir bæði karla- og kvennalið félagsins sem leika í Subway-deildunum í vetur.

Án Jóns Axels gegn heimsmeisturunum í kvöld
Íslenska landsliðið í körfubolta verður án tveggja fastamanna þegar liðið mætir ríkjandi heimsmeisturum Spánar á útivelli í undankeppni HM.

Litháískur reynslubolti til liðs við Grindavík á nýjan leik
Grindavík hefur samið við litháíska reynsluboltann Valdas Vasylius um að leika með liðinu á komandi leiktíð í Subway-deild karla í körfubolta.

Aldrei búið á Spáni og fyrirliðinn vildi hann ekki en gæti mætt Íslandi á morgun
NBA-leikmaðurinn fyrrverandi Lorenzo Brown talar ekki spænsku og hefur aldrei búið á Spáni en hann er samt í spænska landsliðshópnum sem undirbýr sig fyrir leikinn mikilvæga við Ísland á morgun í undankeppni HM.

LeBron James með djásn í tönnum
Körfuboltastjarnan LeBron James var langt frá því að fá að handleika meistaraverðlaun á síðustu leiktíð í NBA-deildinni en hann hefur nú fengið sér annars konar skartgrip.

Pavel yfirgefur Íslandsmeistarana
Pavel Ermolinskij, leikmaður Vals, hefur staðfest að hann muni ekki leika með liðinu á næsta tímabili í Subway-deild karla.

Kyrie fer ekki fet
Brooklyn Nets hafa látið önnur félög NBA-deildarinnar vita að Kyrie Irving, leikstjórnandi liðsins, fari ekki fet í sumar. Samningur hans við Nets rennur út sumarið 2023.

Drengirnir lentu í 5. sæti á Evrópumótinu
Landslið drengja í körfubolta, skipað leikmönnum 16 ára og yngri, fagnaði sigri gegn Bosníu í leik um fimmta sæti á B-deildar Evrópumóti sem fram fór í Búlgaríu.

„Myndi aldrei gera þetta nema með fullum stuðningi frá eiginkonu og börnum“
Logi Gunnarsson, fyrirliði körfuboltaliðs Njarðvíkur, skrifaði í vikunni undir nýjan tveggja ára samning við félagið. Logi hóf meistaraflokksferil sinn hjá Njarðvík fyrir 25 árum síðan og hefur leikið samfellt með félaginu síðan hann kom heim úr atvinnumennsku árið 2013.

Einn nýliði í hópnum gegn Spáni og Úkraínu
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, hefur valið 12 leikmenn og einn varamann fyrir komandi leiki við Spán og Úkraínu í undankeppni HM.

LeBron skrifar undir sögulegan samning hjá Lakers
Körfuboltamaðurinn LeBron James hefur skrifað undir nýjan samning við Los Angeles Lakers. Samningurinn gildir til 2024 en getur verið framlengdur um auka ár eftir það, þá verður LeBron kominn á fimmtugsaldur. Samningurinn gerir það líka að verkum að LeBron verður launahæsti leikmaður í sögu NBA.

Logi Gunnarsson verður áfram í Njarðvík næstu tvö árin
Fyrirliði Njarðvíkur, Logi Gunnarsson, hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2024 en þetta kemur fram í tilkynningu sem Njarðvíkingar sendu frá sér í gærkvöldi.

Isabella: Spila á Íslandi næsta tímabil
Isabella Ósk Sigurðardóttir, leikmaður South Adelaide Panthers í Ástralíu, segist vera á heimleið í haust til að leika í Subway-deildinni, þegar leiktímabilið í Ástralíu klárast.

Þórir Guðmundur færir sig yfir til Spánar
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur samið við Oviedo um að leika með liðinu í spænsku B-deildinni á komandi leiktíð.

208 sentimetra grískur miðherji til Grindavíkur
Grindvíkingar hafa styrkt sig undir körfunni fyrir komandi tímabil í Subway-deild karla í körfubolta en liðið hefur samið við gríska miðherjann Gaios „Guy“ Skordilis.

Ólympíufari og stoðsendingakóngur til Njarðvíkur
Íranski bakvörðurinn Philip Jalalpoor mun spila með Njarðvíkingum í Subway-deild karla í körfubolta í vetur.

Lið hinnar fangelsuðu Brittney Griner komst í úrslitakeppnina án hennar
Phoenix Mercury tryggði sér sæti í úrslitakeppni WNBA-deildarinnar í körfubolta um helgina en þetta er tíunda árið í röð sem liðið spilar um titilinn.

Treyja Jordan til sölu á 700 milljónir
Chicago Bulls keppnistreyja sem Michael Jordan klæddist í úrslitum NBA árið 1998 er á leið á uppboð en markaðsvirði hennar gæti náð allt að 5 milljónum Bandaríkjadala eða tæpum 700 milljónum íslenskra króna.

NBA-stjörnur fóru illa með mömmu sína og son í körfuboltasalnum
NBA-stjörnurnar Jayson Tatum og Royce O'Neale sýna engan miskunn á körfuboltavellinum og skiptir þar engu þótt þeir séu að leika sér með móður sinni eða syni.

Sexan hengd upp í rjáfur til heiðurs Bill Russell | Hvað gerir LeBron James?
NBA deildin í körfubolta hefur ákveðið að hengja treyju númer 6 upp í rjáfur til heiðurs goðsögninni Bill Russell. Það þýðir að aldrei aftur mun neinn spila í treyju númer 6 í NBA deildinni. LeBron James, ein skærasta stjarna deildarinnar lék í treyju númer 6 á síðustu leiktíð og því spurning hvaða númer hann mun bera á bakinu er deildin hefst á nýjan leik í haust.

Elvar Már semur við litáísku meistarana
Landsliðsmaðurinn Elvar Már Friðriksson hefur gengið frá samningi við litáísku meistarana Rytas Vilnius um að spila með liðinu á komandi leiktíð. Elvar var kjörinn leikmaður ársins í Litáen á þarsíðustu leiktíð.

Durant orðinn örvæntingarfullur og setur Brooklyn afarkosti: Þjálfarinn eða ég
Kevin Durant vill ólmur komast frá Brooklyn Nets og hefur gripið til ansi örvæntingafullrar leiðar til að sú ósk hans rætist.