Fleiri fréttir

Ætlar Brendan Rodgers að gera vinstri bakvörð úr Downing?

Brendan Rodgers, nýr stjóri Liverpool, er tilbúinn að reyna nýja hluti til þess að ná eitthvað út úr enska landsliðsmanninum Stewart Downing sem fann sig engan veginn á sínu fyrsta tímabili á Anfield. Downing lék sem vinstri bakvörður í Evrópusigrinum á Hearts í síðustu viku og fékk hrós að launum frá Rodgers.

Berbatov floginn til Ítalíu

Dimitar Berbatov flaug til Ítalíu í morgun til þess að ganga frá samningi við ítalska félagið Fiorentina samkvæmt heimildum Reuters. Berbatov hefur samið um kaup og kjör og verður væntanlega tilkynntur sem nýr leikmaður Fiorentina seinna í dag.

Endurkomu Rio Ferdinand seinkar um tvær vikur

Rio Ferdinand er meiddur á nára og hefur því misst af fyrstu leikjum Manchester United á tímabilinu. Nú lítur út fyrir það að hann spili ekki fyrr en í fyrsta lagi um miðjan septembermánuð.

Fulham samþykkti tilboð Tottenham í Dembele

Miðvallarleikamðurinn Moussa Dembele er á leið til Tottenham. Martin Jol, stjóri Fulham, greindi frá því í kvöld að félagið hefði tekið tilboði Tottenham í belgíska landsliðsmanninn.

Swindon sló Stoke úr leik

Fjölmargir leikir fóru fram í 2. umferð ensku deildabikarkeppninnar í kvöld. Óvæntustu úrslitin eru 4-3 sigur enska C-deildarliðsins Swindon á Stoke í framlengdum leik.

Sahin: Ég ætla að hjálpa Liverpool að ná Meistaradeildarsæti

Nuri Sahin, nýr leikmaður Liverpool, svaraði spurningum blaðamanna í dag en hann kemur til Anfield á láni frá spænska liðinu Real Madrid. Nuri Sahin var allt í öllu þegar Dortmund vann þýsku deildina 2010-11 en spilaði lítið á sínu fyrsta tímabili með Real Madrid.

Rooney: Í lagi með löppina

Wayne Rooney, leikmaður Manchester United, segir að meiðslin sem hann varð fyrir í leik liðsins gegn Fulham um helgina séu ekki jafn slæm og þau litu út fyrir að vera.

Swansea hafnaði tilboði Manchester City í Sinclair

Swansea City vill fá meira en 6,2 milljónir punda fyrir Scott Sinclair og hefur því hafnað tilboði frá Englandsmeisturum Manchester City. Fyrstu fréttir voru að Swansea hefði tekið tilboðinu en það var ekki rétt.

Sky Sports: AC Milan að koma Bendtner til bjargar

Sky Sports hefur heimildir fyrir því að danski landsliðsframherjinn Nicklas Bendtner sé á leiðinni til ítalska liðsins AC Milan. AC Milan er að leita sér að framherja í staðinn fyrir Zlatan Ibrahimovic og Bendtner á enga framtíð hjá Arsenal.

Ný regla hjá Sir Alex: 23 ára og yngri mega ekki eignast sportbíla

Það standa ekki allir leikmenn Manchester United við sama borð þegar kemur að því að þiggja gjafir frá styrktaraðilum félagsins. Enska úrvalsdeildarliðið gerði nýverið samning við bílarisann Chevrolet en samningurinn mun taka gildi eftir tvö ár.

Barton búinn að afskrifa það að komast til Marseille

Joey Barton, miðjumaður Queens Park Rangers, er búinn að afskrifa það að komast til franska félagsins Marseille áður en félagsskiptaglugginn lokar á föstudaginn. Þetta kom fram í færslu á twittersíðu hans.

Mikið að gera hjá Brendan Rodgers fram á föstudag

Liverpool Echo segir frá því í morgun að Fulham-maðurinn Clint Dempsey sé enn efstur á óskalistanum hjá Brendan Rodgers, stjóra Liverpool en félagsskiptaglugginn lokar á miðnætti á föstudag og því er ekki langur tími til stefnu til að styrkja liðið. Það verður væntanlega mikið að gera hjá Rodgers á næstu dögum.

Liverpool óttast að Lucas verði frá í tvo mánuði

Lucas Leiva, brasilíski miðjumaðurinn í liði Liverpool, haltraði útaf eftir aðeins fimm mínútur í stórleiknum á móti Manchester City um síðustu helgi og svo gæti farið að kappinn spilaði ekkert aftur fyrr en í nóvember.

Franski landsliðsmarkvörðurinn orðinn leikmaður Tottenham

Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham, er búinn að kaupa franska landsliðsmarkvörðinn Hugo Lloris frá Lyon en portúgalski stjórinn hefur verið á eftir Frakkanum síðan að hann tók við Spurs-liðinu í sumar. Villas-Boas er líka að leita að manni í staðinn fyrir Luka Modric sem félagið seldi til Real Madrid í gær.

Manchester City að landa 19 ára serbneskum varnarmanni

Það hefur ekki gengið alltof vel hjá Englandsmeisturum Manchester City að styrkja varnarlínu sína í sumar þrátt fyrir að félagið hafi sýnt mörgum þekktum miðvörðum áhuga en nú lítur út fyrir að liðstyrkurinn komi frá Serbíu.

Kári eftirsóttur

Steve Evans, stjóri enska D-deildarliðsins Rotherham, segir að félaginu hafi borist fyrirspurnir vegna Kára Árnasonar áður en keppnistímabilið hófst.

Sunnudagsmessan: Umræða um Chelsea

Chelsea situr í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar að loknum fyrstu tveimur umferðunum. Liðið hefur raunar leikið þrjá leiki vegna leiksins gegn Atletico Madrid í Ofurbikarnum á föstudag og unnið sigur í þeim öllum.

Tottenham búið að bjóða í Yann M'Vila

Tottenham seldi í morgun Króatann Luka Modric til spænska liðsins Real Madrid og Spurs-menn voru ekki lengi að bjóða í annan miðjumann. Tottenham ætlar að reyna að kaupa Yann M'Vila frá Rennes samkvæmt frétt á BBC Sport.

Öll mörkin úr enska boltanum á Vísi

Heil umferð fór fram í enska boltanum um helgina. Alls voru skoruð 24 mörk í leikjunum og er hægt að skoða öll helstu tilþrifin úr leikununum á sjónvarpshluta Vísis. Þar er einnig að finna fallegustu mörk helgarinnar, bestu markvörslurnar, lið umferðarinnar ásamt fleiru.

Bruce Springsteen kennt um frestunina í Sunderland

Þrátt fyrir miklar rigningar á Englandi í gær varð aðeins að fresta einum leik í úrvalsdeildinni. Það var í Sunderland og nú vilja menn kenna Bruce Springsteen og Coldplay um málið.

Wenger: Við munum skora

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, viðurkenndi eftir markalausa jafnteflið gegn Stoke í dag að sóknarleikurinn væri vandamál hjá liðinu. Arsenal hefur ekki enn tekist að skora í fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni.

Markalaust hjá Stoke og Arsenal

Stoke og Arsenal gerðu markalaust jafntefli í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Arsenal setti harða pressu að marki Stoke er leið á leikinn en liðið náði ekki að angra Vito Mannone í marki Stoke að neinu ráði.

Owen er enn án félags

Hestaáhugamaðurinn og framherjinn Michael Owen er ekki af baki dottinn og hann stefnir ótrauður á að finna sér nýtt félag áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Liverpool gaf Man. City stig

Martin Skrtel var fyrst hetja og síðan skúrkur er Liverpool tók á móti Man. City. Liverpool komst tvisvar yfir í leiknum en gaf City tvö mörk í 2-2 jafnteflisleik. Seinna markið sem Skrtel gaf var sérstaklega pínlegt.

Luiz verður ekki seldur til Barcelona

Roberto do Matteo, stjóri Chelsea, segir að það komi ekki til greina að selja varnarmanninn David Luiz frá félaginu. Hann sé einfaldlega ekki til sölu.

Sahin orðinn leikmaður Liverpool

Framhaldssögunni um Tyrkjann Nuri Sahin er loksins lokið. Hann er orðinn leikmaður Liverpool og mun leika með félaginu sem lánsmaður út leiktíðina. Hann er í eigu Real Madrid. Arsenal sótti einnig stíft að fá leikmanninn en hann endaði í herbúðum Liverpool.

Rooney frá í mánuð vegna meiðsla

Wayne Rooney fékk ljótan skurð á lærið í leiknum gegn Fulham í dag. Leikmaður Fulham lenti ofan á honum með þessum skelfilegu afleiðingum.

Suarez byrjar með hreint borð

Luis Suarez, framherji Liverpool, segist vera hættur að hugsa um öll lætin sem urðu á síðustu leiktíð. Hann segist hafa lagt þau til hliðar og segist ætla að byrja með hreint borð í vetur.

Kenny hættir á Twitter og biðst afsökunar

Markvörður Leeds, Paddy Kenny, er hættur á Twitter og hefur beðið eiganda QPR, Tony Fernandes, afsökunar á sms-unum sem hann sendi í ölæði um síðustu helgi.

Hazard og Torres sáu um Newcastle

Það verður ekki annað sagt en að Chelsea líti vel út í upphafi leiktíðar. Liðið vann sannfærandi sigur, 2-0, á Newcastle á heimavelli í dag.

Swansea getur ekki hætt að skora

Swansea undir stjórn Michael Laudrup heldur áfram að fara á kostum og verður klárlega á toppi deildarinnar eftir helgina. Swansea valtaði yfir West Ham í dag, 3-0.

Liverpool-smokkabúningur í Bangkok

Það er ekki alltaf allt eðlilegt í Bangkok. Nýjasta uppátæki veitingastaðar þar í landi er að búa til Liverpool-búning úr smokkum.

Adam Johnson gerði fjögurra ára samning við Sunderland

Sunderland er búið að ganga frá kaupum á enska landsliðsmanninum Adam Johnson frá Englandsmeisturum Manchester City og er leikmaðurinn búinn að skrifa undir fjögurra ára samning. Kaupverðið var ekki gefið upp.

Sjá næstu 50 fréttir