Fleiri fréttir

Gillingham stóð í Aston Villa

D-deildarlið Gillingham var óheppið að tapa 2-1 fyrir úrvalsdeildarliði Aston Villa í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í dag.

Defoe vill aftur til Tottenham

Jermain Defoe hefur viðurkennt að hann vilji fara aftur til Tottenham og spila undir stjórn Harry Redknapp sem keypti hann til Portsmouth frá Tottenham fyrir ári síðan.

Riera og Torres tryggðu Liverpool sigur

Liverpool vann í dag 2-0 sigur á Preston í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar með mörkum frá Albert Riera og Fernando Torres sem kom inn á sem varamaður.

Guðjón ánægður með sína menn

Guðjón Þórðarson var ánægður með að sínir menn í Crewe náðu jafntefli gegn Milwall í ensku bikarkeppninni í dag eftir að hafa lent 2-1 undir.

Jafntefli hjá Guðjóni

Guðjón Þórðarson náði jafntefli gegn Milwall á útivelli í sínum fyrsta leik sem knattspyrnustjóri Crewe.

Elano spenntur fyrir Lazio

Brasilíumaðurinn Elano segir að það komi vel til greina að fara til Lazio á Ítalíu en hann hefur lítið fengið að spila með Manchester City á leiktíðinni.

Bridge kominn til City

Wayne Bridge er formlega genginn í raðir Manchester City en hann skrifaði undir fjögurra ára samning við félagið í dag.

Hartlepool sló út Stoke

C-deildarlið Hartlepool sló út úrvalsdeildarlið Stoke í fyrsta leik dagsins í ensku bikarkeppninni með 2-0 sigri.

Redknapp óviss um Defoe

Harry Redknapp, stjóri Tottenham, segir að félagið hafi átt í viðræðum við Portsmouth um kaup á Jermain Defoe en án árangurs.

Chelsea samþykkti tilboð City

Chelsea og Manchester City hafa komist að samkomulagi um kaupverð á bakverðinum Wayne Bridge sem hefur verið hjá Chelsea síðan 2003.

O'Neil vill fara frá Boro

Gary O'Neil hefur óskað eftir því að verða seldur frá Middlesbrough eftir því sem heimildir Sky Sports herma.

Tottenham áfram eftir sigur á Wigan

Einn leikur var í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar í kvöld. Tottenham komst áfram með því að leggja Wigan á heimavelli sínum 3-1.

Fabian Delph arftaki Scholes?

Í enskum fjölmiðlum er sagt að Manchester United hafi gert tilboð í Fabian Delph, 19 ára miðjumann Leeds. Fulham hefur einnig áhuga á Delph en á litla möguleika á að krækja í leikmanninn ef United er komið í spilið.

Routledge til QPR

Það var nóg að gera hjá Queens Park Rangers í dag. Nú síðdegis gekk félagið frá kaupum á vængmanninum Wayne Routledge frá Aston Villa. Fyrr í dag komu Heiðar Helgason og Garry Borrowdale einnig til QPR.

Dyer að snúa aftur

Kieron Dyer, miðjumaður West Ham, gæti snúið aftur á morgun þegar Hamrarnir mæta Barnsley í FA bikarnum. Dyer hefur getað æft af krafti síðustu daga en hann fótbrotnaði í ágúst 2007.

Fylgist með þessum 2009

Ian Wright, fyrrum markahrókur og núverandi pistlahöfundar The Sun, hefur tekið saman nöfn níu ungra enskra leikmanna sem eru líklegir til að springa út á því ári sem nú er hafið.

Zoran Tosic mættur á Old Trafford

Manchester United er búið að ganga frá öllu varðandi kaup á serbnesku leikmönnunum Zoran Tosic og Adem Ljajic. Sá fyrrnefndi er þegar orðinn leikmaður United en Ljajic mun klára tímabilið í heimalandinu.

Hermann orðaður við Rangers

Hermann Hreiðarsson er í dag orðaður við skoska stórliðið Glasgow Rangers. Því er haldið fram, meðal annars í The Sun, að félagið sé nálægt því að ná samningum við Hermann og fái hann frítt frá Portsmouth.

Given fer hvergi

Joe Kinnear, stjóri Newcastle, segir að það sé ljóst að Shay Given sé ekki á leið frá félaginu.

Gerrard og Torres í hópnum á morgun

Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur staðfest að Steven Gerrard og Fernando Torres verða báðir í leikmannahópi liðsins á morgun er það mætir Preston í ensku bikarkeppninni.

Allardyce ætlar að fá leikmenn fljótt

Sam Allardyce ætlar sér að styrkja leikmannahóp Blackburn sem allra fyrst til að takast á við baráttuna í ensku úrvalsdeildinni sem er framundan.

Saha lengur frá

Louis Saha verður frá næstu fimm vikurnar að minnsta kosti vegna meiðsla en hann hefur þegar verið frá síðan í lok nóvember.

Bridge á leið í viðræður við Man City

Wayne Bridge hefur fengið grænt ljós á að hefja viðræður um kaup og kjör við Manchester City. Chelsea segir að það muni ekki selja Bridge nema fyrir mjög hátt verð.

Heiðar samdi við QPR

Heiðar Helguson hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við enska B-deildarliðið QPR en greint var frá því á heimasíðu félagsins.

Given íhugar framtíð sína

Shay Given, markvörður Newcastle, mun vera að íhuga framtíð sína eftir því sem fram kemur í yfirlýsingu frá lögfræðingi hans.

Hvað gera ensku liðin í janúar?

Félagaskiptaglugginn opnaði í dag og verður opinn út mánuðinn. BBC tók saman við hverju megi búast hjá ensku liðunum í janúar.

Fuller og Griffin sáttir

Tony Pulis, knattspyrnustjóri Stoke, segir að þeir Ricardo Fuller og Andy Griffin hafi sæst. Fuller var rekinn af velli síðasta sunnudag fyrir að slá Griffin í miðjum leik gegn West Ham.

Pennant á óskalista Hull

Hull City hefur blandað sér í baráttuna um Jermaine Pennant, kantmann Liverpool. Pennant var orðaður við Real Madrid í desember.

Defoe vill fara frá Portsmouth

Stjórnarmaður hjá Portsmouth hefur staðfest að sóknarmaðurinn Jermain Defoe hefur lýst því yfir að hann sé tilbúinn að yfirgefa Fratton Park. Defoe hefur verið orðaður við Tottenham.

Ronaldo vill ekki fara

Cristiano Ronaldo neitar þeim sögusögnum að hann sé á leið til Real Madrid. Slúðurblöð héldu því fram að þegar væri búið að nást samkomulag milli spænska stórliðsins og Manchester United.

West Ham hlustar á tilboð í alla

West Ham hefur tilkynnt að félagið sé tilbúið að hlusta á tilboð í hvaða leikmann hópsins sem er. Margir leikmenn West Ham hafa verið orðaðir við önnur lið.

Toure vildi fara á sölulista

Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, neitaði beiðni varnarmannsins Kolo Toure um að vera settur á sölulista. Toure hefur ekki átt fast sæti í liði Arsenal á tímabilinu og Manchester City er sagt vera að íhuga tilboð.

Carew frá fram í mars?

Meiðslasaga norska sóknarmannsins John Carew hjá Aston Villa heldur áfram. Carew lék virkilega vel í byrjun tímabilsins en hefur ekki leikið í rúman mánuð vegna meiðsla.

Búið að opna gluggann

Félagaskiptaglugginn hefur verið opnaður og verður opinn þar til klukkan 17:00 mánudaginn 2. febrúar. 1. febrúar verður á laugardegi og því var lokun gluggans breytt.

Billy Davies tekur við Forest

Nottingham Forest hefur tilkynnt að Billy Davies sé nýr knattspyrnustjóri félagsins. Davies yfirgaf Derby í nóvember 2007 en hefur nú skrifað undir þriggja og hálfs árs samning við Forest.

Manchester City með 10 milljóna punda boð í Wayne Bridge

Nú er hinn svokallaði janúargluggi loksins að opna og margir bíða spenntir eftir því að sjá hvaða leikmenn komi til með að skipta um lið. Strax í morgun var farið að segja frá tilboðum Manchester City sem nú er komið í hendurnar á auðjöfrum. Breskir miðlar segja frá því að félagið sé nú þegar búið að bjóða 10 milljónir punda í Wayne Bridge leikmann Chelsea.

Sjá næstu 50 fréttir