Utandeildarlið sló út Blackpool Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. janúar 2009 17:49 Stuðningsmenn Torquay. Nordic Photos / AFP
Torquay, sem leikur í utandeildinni, gerði sér lítið fyrir í dag og sló út B-deildarlið Blackpool. Það var Matt Green sem skoraði eina mark leiksins á 32. mínútu. Blackpool er í sautjánda sæti B-deildarinnar og eru um 60 sæti á milli liðanna. Fjögur úrvalsdeildarlið eru fallin úr leik - Manchester City, Bolton, Stoke og Wigan. Fimm hafa þegar gert jafntefli og þurfa að mætast aftur. Það eru Hull, Newcastle, Chelsea, West Brom og Portsmouth. Liverpool er þessa stundina að spila við Preston og tvö úrvalsdeildarlið leika til viðbótar á morgun. Gillingham tekur á móti Aston Villa og Southampton mætir Manchester United á heimavelli. Á mánudaginn tekur svo utandeildarlið Blyth á móti Blackburn. Þrjú utandeildarlið verða í hattinum þegar dregið verður í fjórðu umferð keppninnar, þeirra á meðal er Torquay. Histon verður einnig í hattinum en leik liðsins gegn Swansea var frestað í dag. Það þriðja er Kettering Town sem vann 2-1 sigur á öðru utandeildarliði, Eastwood. Þá var tvísýnt að B-deildarlið Derby kæmist áfram en liðið vann nauman 4-3 sigur á utandeildarliðinu Forest Green á útivelli. Forest Green komst í 2-0 með tveimur mörkum á fyrstu 20 mínútunum en Derby jafnaði metin áður en fyrri hálfleik lauk. Forest Green komst aftur yfir á 72. mínútu en Derby jafnaði fjórum mínútum síðar. Heiamenn missti svo mann af velli á 86. mínútu og Steve Davies skoraði sigurmark Derby úr vítaspyrnu mínútu síðar. Allir þeir leikir sem verða endurteknir fara fram þriðjudaginn 13. janúar en leikir Newcastle og Hull annars vegar og Southend og Chelsea hins vegar degi síðar.
Enski boltinn Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Fleiri fréttir Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Sjá meira