Fleiri fréttir

HM-uppbótartíminn: Loksins tapaði Klinsmann

Riðlakeppni Heimsmeistaramótsins lauk í gær. Vísir mun gera upp umferðina á léttum nótum í dag og hefur tekið saman ýmsa tölfræðimola að lokum riðlakeppninnar.

Kennir lasergeislanum um tapið

Fabio Capello, þjálfari Rússlands, kennir grænum lasergeisla sem beint var að Igor Akinfeev um markið sem sendi Rússana heim í gærkvöld.

HM-uppbótartíminn: Shaqiri minnti á sig

Riðlakeppni Heimsmeistaramótsins lauk í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Vísir mun gera upp umferðina á léttum nótum í dag.

Chiellini: Suarez fékk of harða refsingu

Giorgio Chiellini, ítalski varnarmaðurinn og fórnarlamb bitsins hjá Luis Suarez, er á því að refsing Luis Suarez sé of hörð en þetta kemur fram í yfirlýsingu inn á heimasíðunni Ítalans.

Wilmots varar við vanmati

Marc Wilmots, landsliðsþjálfari Belgíu, vill ekki sjá leikmenn liðsins vanmeta bandaríska liðið fyrir leik liðanna í 16-liða úrslitum Heimsmeistaramótsins.

Ekki hægt að verja aðgerðir Suárez

Jamie Carragher telur að ekki sé hægt að breyta persónuleika Luis Suárez og að hann muni halda áfram að komast á forsíður blaðanna af kolröngum ástæðum.

FH stefnir KSÍ og krefst 700 þúsund króna

Knattspyrnudeild FH hefur stefnt Knattspyrnusambandi Íslands (KSÍ) og krefst þess að fá 700 þúsund krónur greiddar frá sambandinu. Málið snýst um meinta misnotkun á aðgangspössum KSÍ.

Aron á bekknum

Aron Jóhannsson byrjar á bekknum í leik Bandaríkjanna og Þýskalands.

Cristiano Ronaldo bjargaði Bandaríkjamönnum

Portúgalar og Ganverjar eru á leiðinni heim á HM í Brasilíu eftir að Portúgal vann 2-1 sigur á Gana í leik liðanna í lokaumferð G-riðils. Portúgala vantaði þrjú mörk í viðbót til að komast upp fyrir Bandaríkin og tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum.

Aguero úr leik

Sergio Aguero meiddist aftan í kálfa í 3-2 sigri Argentínu á Nígeríu og verður hann að draga sig úr landsliðshóp Argentínu vegna meiðslanna.

Suarez dæmdur í fjögurra mánaða bann

Luis Suarez var dæmdur í fjögurra mánaða bann frá öllum keppnum fyrir að hafa bitið Giorgio Chiellini í leik Ítalíu og Úrúgvæ á mánudaginn. Bannið nær til félags- og landsliðs Suárez.

Aron heldur í vonina

Aron Jóhannsson verður vonandi í eldlínunni með bandaríska landsliðinu í dag.

Manchester City staðfestir kaupin á Fernando

Englandsmeistarar Manchester City hafa gengið frá kaupum á brasilíska miðjumanninum Fernando en kaupverðið er í kringum tólf milljón punda eða um 2,3 milljarðar íslenskra króna. Þetta kemur fram á BBC.

Sjá næstu 50 fréttir