Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Messi á forsíðu Time | Ég gef allt fyrir landsliðið Lionel Messi segir að honum sárni ásakanir um að honum finnist ekki jafn mikilvægt að spila með landsliði Argentínu og félagsliði sínu, Barcelona. 27.1.2012 11:30
Ferguson: Ég er undraverk Sir Alex Feruguson, stjóri Manchester United, er í ítarlegu viðtali við bandaríska dagblaðið New York Times í dag þar sem hann segir frá árunum sínum 25 hjá Manchester United. 27.1.2012 09:36
Leikaraskapur af verstu gerð Það átti sér stað hreint ótrúlegt atvik í leik Senegal og Miðbaugsgíneu í Afríkukeppninni nú á dögunum. Leikmaður að nafni Narcisse Ekanga Amia gerði sig þá sekan um leikaraskap af verstu gerð. 26.1.2012 23:45
Vinnie Jones: Bikarsigurinn á Liverpool besta fótboltaminningin Vinnie Jones átti skrautlegan feril sem knattspyrnumaður en hann er í dag ekki síður þekktur fyrir afrek sín á hvíta tjaldinu. Sem leikmaður var hann þekktur fyrir að vera mikill nagli en hann lék lengst af með Wimbledon á sínum ferli. 26.1.2012 22:45
AC Milan komið í undanúrslit ítalska bikarsins AC Milan tryggði sér sæti í undanúrslitum ítalska bikarsins með því að vinna 3-1 sigur á Lazio í átta liða úrslitunum í kvöld. AC Milan mætir Juventus í undanúrslitunum en í hinum leiknum mætast Napoli og Siena. 26.1.2012 21:53
Fílabeinsströndin tryggði sig inn í 8 liða úrslit Afríkukeppninnar Fílabeinsströndin vann 2-0 sigur á Búrkína Fasó í kvöld í öðrum leik sínum í riðlakeppni Afríkukeppninnar í fótbolta en Didier Drogba og félagar hafa þar með unnið tvo fyrstu leiki sína og hafa þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum keppninnar. 26.1.2012 21:39
Fórnaði brúðkaupsferðinni fyrir tækifæri með Bolton Bandaríkjamaðurinn Tim Ream gekk í dag til liðs við Grétar Rafn Steinsson og félaga í Bolton frá bandaríska MLS-liðinu New York Red Bulls. Ream er 24 ára varnamaður sem æfði með Bolton í desember og heillaði stjórann Owen Coyle. 26.1.2012 20:29
Sex leikmenn fjarverandi hjá Barcelona | Iniesta meiddur Andrés Iniesta verður frá næstu þrjár vikurnar eftir að hann meiddist í bikarleik Barcelona og Real Madrid fyrr í vikunni. Alexis Sanchez meiddist einnig í leiknum og verða því sex leikmenn fjarverandi þegar að liði mætir Villarreal í spænsku úrvalsdeildinni á laugardaginn. 26.1.2012 20:15
Gaui Þórðar búinn að ná í Ameobi og landsliðsmann frá Gambíu Grindvíkingar hafa samið við tvo erlenda leikmenn fyrir átökin í Pepsi-deild karla í sumar en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Knattspyrnudeild Grindavíkur. Þetta eru sóknarmaðurinn Tomi Ameobi og varnarmaðurinn Matarr Jobe. 26.1.2012 18:49
Frakkar undirbúa sig fyrir EM í fótbolta með því að mæta Íslendingum Knattspyrnusambönd Íslands og Frakklands hafa komið að samkomulagi um að karlalandslið þeirra leiki vináttulandsleik 27. maí næstkomandi en leikurinn fer fram í Valenciennes og er hluti af lokaundirbúning Frakka fyrir Evrópumótið í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. 26.1.2012 18:15
Redknapp mun stýra Tottenham á morgun Kevin Bond, aðstoðarstjóri Tottenham, segir að Harry Redknapp muni stýra liðinu gegn Watford í ensku bikarkeppninni annað kvöld þrátt fyrir réttarhöldin sem nú eru í gangi. 26.1.2012 16:00
Ragnar óttast ekki samkeppnina Ragnar Sigurðsson, leikmaður danska meistaraliðsins FC Kaupmannahöfn, segist ekki óttast að fá samkeppni um stöðu sína í byrjunarliðinu. 26.1.2012 15:30
Balotelli: Ég er ekki skúrkur Mario Balotelli segir að það hafi ekki verið sanngjarnt að dæma hann í fjögurra leikja bann fyrir að traðka á Scott Parker í leik Manchester City og Tottenham um helgina. 26.1.2012 14:45
Evra spilar líklega gegn Liverpool Patrice Evra mun líklega spila með Manchester United gegn Liverpool um helgina og verður þá væntanlega áfram fyrirliði liðsins í fjarveru Nemanja Vidic. 26.1.2012 14:15
Meiðsli Bendtner verri en í fyrstu var talið | Verður lengi frá Nicklas Bendtner verður frá í næstu vikur og jafnvel mánuði eftir að í ljós kom að meiðsli hans í andliti eru verri en í fyrstu var talið. 26.1.2012 13:45
Þjálfari Aberdeen reiknar ekki með Kára Craig Brown, þjálfari Aberdeen, reiknar ekki með því að Kári Árnason muni spila áfram með liðinu eftir núverandi tímabil þar sem Kári hefur hafnað samningstilboði félagsins. 26.1.2012 11:30
Barcelona sló út Real Madrid | 2-2 jafntefli í frábærum leik Barcelona er komið áfram í undanúrslit spænska Konungsbikarsins eftir að liðið sló erkifjendurna úr Real Mardid út úr keppninni í kvöld. Liðin gerðu 2-2 jafntefli í frábærum leik á Nou Camp í kvöld en Barca fór áfram á 2-1 sigri á Santiago Bernabéu í síðustu viku. 25.1.2012 22:57
Leikmenn Gana sungu og dönsuðu kvöldið fyrir leik Ganverjar fóru vel af stað á Afríkumótinu í knattspyrnu en þeir unnu lið Botswana í fyrstu umferð D-riðils. 25.1.2012 23:30
Gerrard: Bellamy gerði gæfumuninn í kvöld Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, skoraði í báðum leikjunum á móti Manchester City í undanúrslitum enska deildarbikarsins en Liverpool komst á Wembley eftir 2-2 jafntefli í síðari leik liðanna á Anfield í kvöld. Gerrard skoraði úr vítaspyrnu í báðum leikjum þar á meðal sigurmarkið í fyrri leiknum. 25.1.2012 22:12
Bellamy: Gæti ekki verið betri úrslitaleikur fyrir mig Craig Bellamy var hetja Liverpool í kvöld en jöfnunarmark hans á móti hans gömlu félögum í Manchester City sá til þess að Liverpool tryggði sér sæti í úrslitaleik enska deildarbikarsins sem fram fer í Wembley 26. febrúar næstkomandi. 25.1.2012 22:02
Jöfnunarmark Bellamy kom Liverpool á Wembley Liverpool tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik enska deildabikarsins á Wembley eftir að liðið gerði 2-2 jafntefli á móti Manchester City í seinni leik liðanna í undanúrslitum keppninnar. Liverpool vann fyrri leikinn 1-0 og því 3-2 samanlagt. Liverpool mætir Aroni Einari Gunnarssyni og félögum í Cardiff City í úrslitaleiknum sem fer fram á Wembley 26. febrúar næstkomandi. 25.1.2012 21:40
Hoffenheim búið að selja besta framherjann sinn Hoffenheim, lið Gylfa Þórs Sigurðssonar í þýsku úrvalsdeildinni, hefur ákveðið að selja sinn helsta framherja til Stuttgart. 25.1.2012 15:00
Guðlaugur semur við New York Red Bull á morgun Guðlaugur Victor Pálsson mun á morgun halda til Bandaríkjanna þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun hjá New York Red Bull og skrifa svo undir tveggja ára samning við félagið. 25.1.2012 14:49
Minning um Sigurstein Gíslason Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu og fyrrum samherji Sigursteins Gíslasonar hjá ÍA og KR, hefur sett saman myndband í minningu Sigursteins. 25.1.2012 14:45
Kevin De Bruyne sterklega orðaður við Chelsea Belgíski kantmaðurinn Kevin De Bruyne hjá Genk er sterklega orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea. Forráðamenn belgíska félagsins hafa staðfest að félögin eigi í viðræðum. Talið er að kaupverðið sé um 8 milljónir punda eða sem nemur um einum og hálfum milljarði íslenskra króna. 25.1.2012 13:30
Sunnudagsmessan: Nær Wenger að skila Arsenal í Meistaradeildina? Arsene Wenger hefur oft verið sáttari við gengi Arsenal en franski knattspyrnustjórinn hefur ekki náð liðinu á flug á þessu tímabili. Rætt var um gengi Arsenal og starfsöryggi Wenger í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport um s.l. helgi og þar sagði Bjarni Guðjónsson m.a. að Wenger væri góður fyrir stjórn félagsins. 25.1.2012 12:30
Sunnudagsmessan: Átti Balotelli að fá rautt spjald? Mario Balotelli var eitt helsta fréttaefnið í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Ítalski framherjinn tryggði Manchester City 3-2 sigur gegn Tottenham á sunnudaginn. Í Sunnudagsmessunni á Stöð 2 sport fóru þeir Guðmundur Benediktsson, Hjörvar Hafliðason og Bjarni Guðjónsson leikmaður KR yfir ýmis atvik úr leik Man City og Tottenham. 25.1.2012 11:30
Tevez sektaður um sex vikna laun - verður ekki seldur á útsöluverði Carlos Tevez, framherji Manchester City, var sektaður um sex vikna laun í desember fyrir að fljúga til heimalands síns, Argentínu, án leyfis. Talsmaður félagsins staðfesti þetta við Reuters-fréttastofuna. 25.1.2012 09:30
Aron Einar og félagar komnir á Wembley Aron Einar Gunnarsson og félagar í Cardiff City komust í kvöld í úrslitaleikinn í enska deildabikarnum eftir sigur á Crystal Palace eftir vítakeppni. Tom Heaton var hetja velska liðsins því hann varði tvö víti í vítakeppninni. 24.1.2012 22:35
Gerrard: Bannað að tala um Wembley Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, segir að leikmenn liðsins verði að halda einbeitingunni í lagi fyrir leik liðsins gegn Manchester City á morgun. 24.1.2012 23:45
Mourinho: Pepe spilar ef hann er heill Jose Mourinho, stjóri Real Madrid, segir að varnarmaðurinn Pepe muni spila seinni bikarleikinn gegn Barcelona í á morgun ef hann verður heill. 24.1.2012 22:45
Juventus komið í undanúrslitin í ítalska bikarnum | Del Piero skoraði Alessandro Del Piero skoraði eitt marka Juventus í 3-0 sigur á Roma í átta liða úrslitum ítalska bikarsins í kvöld. Juventus mætir annaðhvort AC Milan eða Lazio í undanúrslitunum. 24.1.2012 22:20
Tévez fastur í Manchester - PSG hætti viðræðum við City Carlos Tévez hefur ekki spilað fótbolta síðan í september og það er ekkert sem bendir til þess að það breytist eitthvað á næstunni. Manchester City er að reyna að selja argentínska framherjann en áhugasöm félag hafa ávallt dregið sig út úr viðræðunum. 24.1.2012 20:15
Haraldur Björnsson búinn að semja við Sarpsborg | Kaupa hann frá Val Haraldur Björnsson spilar ekki með Valsmönnum í Pepsi-deild karla í sumar því það var tilkynnt á heimasíðu norska félagsins Sarpsborg 08 í dag að íslenski markvörðurinn sé búinn að skrifa undir þriggja ára samning við norska b-deildarfélagið. 24.1.2012 19:16
Götze frá í tvo mánuði Mario Götze, miðjumaðurinn stórefnilegi hjá Borussia Dortmund, er meiddur í nára og verður vegna þessa frá næstu tvo mánuðina. 24.1.2012 15:30
PSG vill Alex sem hafnaði QPR Leonardo, framkvæmdarstjóri Paris Saint-Germain, hefur staðfest að félagið hafi áhuga á varnarmanninnum Alex sem er á leið frá Chelsea. 24.1.2012 15:00
Henrique ekki til QPR - fékk ekki atvinnuleyfi Ekkert verður úr komu Brasilíumannsins tvítuga Henrique til QPR. Ekki tókst að fá atvinnuleyfi fyrir sóknarmanninn unga. 24.1.2012 12:00
Pepe sleppur við bann fyrir að traðka á Messi Pepe, portúgalski varnarmaður Real Madrid, fær enga refsingu fyrir að traðka á Lionel Messi leikmanni Barcelona í viðureign félaganna í Konungsbikarnum í síðustu viku. Spænska knattspyrnusambandið komst að þessari niðurstöðu á fundi sínum á mánudag. Reuters-fréttastofan greinir frá þessu. 24.1.2012 10:30
Réttað yfir Harry Redknapp - sakaður um skattsvik Réttarhöld yfir Harry Redknapp, knattspyrnustjóra Tottenham Hotspur, hófust í Southwark á Englandi í gær. Redknapp er sakaður um að hafa lagt greiðslur, sem hann fékk sem yfirmaður knattspyrnumála og knattspyrnustjóri Portsmouth, inn á reikning í Mónakó án þess að greiða af þeim skatt. 24.1.2012 09:30
Blatter: Höness að kenna að München fékk ekki Vetrarólympíuleikana 2018 Sepp Blatter, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandsins, segir að gagnrýni Þjóðverjans Uli Höness á heimsmeistaramótið í knattspyrnu árið 2010 hafi orðið til þess að möguleikar München um að halda Vetrarólympíuleikana árið 2018 urðu að engu. 23.1.2012 22:45
Sveinbjörn Jónasson gengur til liðs við Fram Markakóngur 1. deildar í knattspyrnu síðastliðið sumar, Sveinbjörn Jónasson, hefur gengið til liðs við Fram frá Þrótti Reykjavík. Sveinbjörn, sem verður 26 ára á árinu, skrifaði undir eins árs saming við Safamýrarliðið í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu Fram. 23.1.2012 22:09
3 milljarða kr. kauptilboði Chelsea í Brasilíumann var hafnað Forráðamenn Shakhtar Donestsk frá Úkraínu hafa staðfest að enska úrvalsdeildarfélagið Chelsea hafi lagt inn formlegt kauptilboð í miðjumanninn Willian Borges da Silva. Brasilíumaðurinn er sókndjarfur miðjumaður og er hann aðeins 23 ára gamall. Chelsea hefur boðið 3,2 milljarða kr. eða sem nemur rétt um 17 milljónir punda í leikmanninn en því tilboði var hafnað. 23.1.2012 22:00
Balotelli fer fyrir aganefndina eftir traðkið á Parker Mario Balotelli, framherji Manchester City, er líklega á leiðinni í leikbann á næstunni eftir að aganefnd enska knattspyrnusambandsins ákvað að kæra hann fyrir atvik í 3-2 sigri City á Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær. 23.1.2012 19:45
Lucas kominn aftur til Liverpool eftir 6 vikur í Brasilíu - myndir Lucas Leiva, miðjumaðurinn öflugi í Liverpool sem sleit krossband í nóvember, er kominn aftur til Englands eftir sex vikna dvöl í Brasilíu þar sem hann gekkst undir aðgerð á hné. 23.1.2012 18:00
Stjóri Swansea: Gylfi smellpassar í liðið Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Swansea, er hæstánægður með frammistöðu Hafnfirðingsins Gylfa Þórs Sigurðssonar. Gylfi Þór var í fyrsta sinn í byrjunarliði Swansea þegar liðið tapaði 2-0 gegn Sunderland og stóð að margra mati upp úr í liði sínu. 23.1.2012 15:30