Fleiri fréttir

Hleb segir ummælin vera uppspuna

Alexander Hleb hefur neitað því að hafa talað illa um Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal, og liðsfélaga sinn, Cesc Fabregas. Hleb hefur sterklega verið orðaður við Barcelona.

Lampard ánægður hjá Chelsea

Luiz Felipe Scolari segir að Frank Lampard sé ánægður hjá Chelsea og að hann vilji vera í herbúðum félagsins næstu árin.

„Mjög erfið ákvörðun“

„Þetta var virkilega erfið ákvörðun þar sem Gunnar hefur unnið frábært starf fyrir félagið," sagði Pétur Bergþór Arason, formaður meistaraflokksráðs HK, við Vísi.

Ajax ekkert heyrt í Arsenal

Hollenska félagið Ajax segist ekkert hafa heyrt frá Arsenal varðandi mögulegt kauptilboð í sóknarmanninn Klaas-Jan Huntelaar.

Gunnar rekinn frá HK

Gunnari Guðmundssyni hefur verið sagt upp sem þjálfara HK en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins. Gunnar hefur stýrt liðinu í tæp fimm ár eða frá 1. október 2003.

Scolari vill halda Drogba

Luiz Felipe Scolari, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að sóknarmaðurinn Didier Drogba sé í áætlunum sínum. Drogba hefur verið orðaður við Barcelona, AC Milan og Inter.

Daníel á leið frá Val?

Daníel Hjaltason gæti verið á leið frá Íslandsmeisturum Vals. Víkingur Reykjavík og Leiknir Breiðholti hafa sett sig í samband við Val og vilja fá Daníel í sínar raðir.

„Sjáum hvað gerist á næstu dögum“

Fylkismenn hafa tapað fimm leikjum í röð í Landsbankadeild karla og sitja í þriðja neðsta sætinu. Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, sagði í viðtali við Stöð 2 Sport í gær að hann myndi ekki leggja árar í bát og hefði ekki í hyggju að segja upp.

Chelsea neitaði beiðni Inter

Chelsea hefur staðfest að hafa fengið beiðni frá Ítalíumeisturum Inter sem vilja ræða um hugsanleg kaup á Frank Lampard. Chelsea hefur svarað þessari beiðni neitandi, Lampard muni verða áfram hjá liðinu.

Illa komið fram við Barry

Martin Laursen segir að Gareth Barry sé sár yfir því hvernig Aston Villa kemur fram við hann eftir ellefu ára veru hjá félaginu. Barry vill fara til Liverpool og Villa hefur sagt honum að halda sig frá félagssvæðinu meðan gengið er frá sölunni.

Johnson eftirsóttur

Wigan og Sunderland hafa bæði áhuga á að kaupa Andrew Johnson, sóknarmann Everton. David Moyes, stjóri Everton, hefur gefið það út að þessi 27 ára leikmaður sé ekki til sölu.

Ekki í spilunum að láta Gunnar fara

Pétur Bergþór Arason, formaður meistaraflokksráðs HK, segir að ekki sé í spilunum að láta þjálfara liðsins, Gunnar Guðmundsson, taka pokann sinn. HK-ingar sitja á botni Landsbankadeildarinnar og steinlágu 1-6 fyrir Fjölni í gær.

Hleb ósáttur við Wenger

Alexander Hleb er líklega á leið frá Arsenal og til Barcelona. Hann segir að slæm samskipti sín og knattspyrnustjórans Arsene Wenger sé ein helsta ástæða þess að hann vilji yfirgefa enska liðið.

Fimmti ósigur Fylkis í röð

Fylkir tapaði sínum fimmta leik í röð þegar liðið beið lægri hlut fyrir Breiðabliki á heimavelli sínum í kvöld 0-2. Sigur þeirra grænu var aldrei í hættu en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik.

Fjölnir rúllaði yfir HK

Fjölnir vann 6-1 útisigur á HK á Kópavogsvelli í kvöld. Fjölnismenn voru betri frá fyrstu mínútu og gerðu út um leikinn með fjórum mörkum í fyrri hálfleiknum.

Hrakfarir Skagamanna halda áfram

ÍA tapaði á heimavelli sínum í kvöld fyrir Grindavík 1-2. Ekkert gengur hjá Skagamönnum um þessar mundir og allt stefnir í að þeirra hlutskipti verði að berjast fyrir lífi sínu í deildinni allt til loka.

Garðar skoraði í tapleik

Garðar Gunnlaugsson skoraði eitt marka Norrköping sem tapaði 4-3 fyrir Hammarby í sænska boltanum í kvöld. Garðar lék allan leikinn fyrir Norrköping en Gunnar Þór Gunnarsson var ónotaður varamaður.

Garðar skoraði í jafnteflisleik

Garðar Jóhannsson heldur áfram að raða inn mörkum í norska boltanum. Hann skoraði mark Fredrikstad sem gerði 1-1 jafntefli við Viking í norsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Boltavaktin á leikjum kvöldsins

Þrír leikir eru í Landsbankadeild karla í kvöld en fylgst er grannt með gangi mála á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins. Þrjú neðstu liðin eru í baráttunni og eiga öll heimaleiki.

Newcastle neitar sögum um Bin Laden

Newcastle neitar fréttaflutningi þess efnis að fyrirtæki í eigu Osama Bin Laden hafi áhuga á að kaupa félagið. Saudi Binladen Group (SBG) var sagt vera að íhuga að kaupa félagið á 300 milljónir punda.

Tilboði í Arshavin hafnað

Zenit frá Pétursborg hafnaði 12 milljón punda tilboði frá Barcelona í Andrei Arshavin sem sló í gegn á Evrópumótinu í sumar.

Mun Romario spila í Meistaradeildinni?

S.S. Murata, meistaralið San Marínó, vonast til að fá goðsögnina Romario til að taka fram skóna og leika með liðinu í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Botnbaráttan í brennidepli

Þrír leikir verða í Landsbankadeild karla í kvöld en með þeim lýkur 10. umferð deildarinnar. Fylgst verður með öllum leikjunum á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins en óhætt er að segja að botnbaráttan sé í aðalhlutverki í kvöld.

Ronaldo undir hnífinn

Cristiano Ronaldo fór í aðgerð á ökkla í dag. Aðgerðin var framkvæmd í Amsterdam í Hollandi en þessi ökklameiðsli hafa verið að hrjá hann um nokkurt skeið.

Viðræður milli Chelsea og Inter um Lampard hafnar

Samkvæmt heimildum BBC eru viðræður milli Ítalíumeistara Inter og enska stórliðsins Chelsea um hugsanleg kaup á Frank Lampard hafnar. Ítalska liðið vill fá Lampard í leikmannahóp sinn.

Liverpool búið að taka tilboði í Crouch

Portsmouth hefur fengið leyfi frá Liverpool til að hefja viðræður við sóknarmanninn Peter Crouch. Liverpool hafnaði tilboði upp á níu milljónir punda í lok síðasta mánaðar en hefur tekið nýju tilboði Portsmouth.

Leit AC Milan að sóknarmanni í fullum gangi

AC Milan ætlar sér að krækja í sóknarmann í sumar en þar eru Didier Drogba hjá Chelsea og Emmanuel Adebayor hjá Arsenal ofarlega á blaði. Leonardo, stjórnarmaður hjá ítalska liðinu, staðfestir þetta.

Fáum spjöld fyrir minni sakir

„Mér finnst eins og við þurfum að brjóta mun minna af okkur en aðrir til þess að fá spjöldin framan í okkur," segir Guðjón Heiðar Sveinsson, leikmaður ÍA, í stuttu viðtali á heimasíðu félagsins.

Kewell sendi opið bréf til stuðningsmanna Leeds

Harry Kewell hefur sent frá sér opið bréf til stuðningsmanna Leeds United þar sem margir þeirra eru honum reiðir fyrir þá ákvörðun að ganga til liðs við Galatasaray í Tyrklandi.

Björgólfur markahæstur

Björgólfur Takefusa virðist óstöðvandi í sóknarlínu KR um þessar mundir. Hann skoraði í gær í áttunda leik sínum í röð og þar af í sínum sjötta leik í Landsbankadeildinni í röð.

Laporta hélt naumlega velli

Meðlimir Barcelona kusu í gær hvort lýsa ætti vantrausti á forseta félagsins, Joan Laporta. Alls voru það 60% þeirra sem kusu sem lýstu yfir vantrausti en 66% hefði þurft til að Laporta neyddist til að stíga af stóli.

Queiroz að taka við Portúgal?

Carlos Queiroz, aðstoðarknattspyrnustjóri Manchester United, gæti verið á leið frá Englands- og Evrópumeisturunum. Knattspyrnusamband Portúgals vill fá hann sem næsta landsliðsþjálfara.

Crouch færist nær Portsmouth

Portsmouth vill fá Peter Crouch, sóknarmann Liverpool, í sínar raðir. Viðræður milli þessara félaga fóru fram um helgina og þokast þær í rétta átt.

Magnús tryggði Keflavík sigur á elleftu stundu

Keflvíkingar unnu í kvöld dramatískan 1-0 sigur á FH í toppleik Landsbankadeildar karla í knattspyrnu og fyrir vikið eru liðin jöfn að stigum á toppnum. Það var varamaðurinn Magnús Þorsteinsson sem skoraði sigurmark heimamanna í uppbótartíma.

Pálmi Rafn tryggði Val sigur á Fram

Tveimur leikjum af þremur er nú lokið í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Íslandsmeistarar Vals lögðu Fram 2-0 með mörkum frá Pálma Rafni Pálmasyni og mark Björgólfs Takefusa tryggði KR nauman 1-0 útisigur á Þrótti.

Wenger: Arsenal verður að selja leikmenn

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir að félagið gæti þurft að selja sína bestu leikmenn í burtu frá félaginu um ókomin ár til að gæta að rekstrinum. Hann er ósáttur við stöðuna á leikmannamarkaðnum í nútímaknattspyrnu.

Boltavaktin á leikjum kvöldsins

10. umferðin í Landsbankadeild karla í knattspyrnu hefst klukkan 19:15 í kvöld með þremur leikjum. Boltavaktin verður á sínum stað og greinir frá stöðu mála.

Huntelaar: United hefur áhuga á mér

Hollenski framherjinn Klaas Jan Huntelaar hjá Ajax segir að Manchester United hafi sýnt sér áhuga að undanförnu og að félagið sé ekki það eina á Englandi sem verið hafi með fyrirspurnir.

Calderon að gefast upp á Ronaldo

Ramon Calderon, forseti Real Madrid, segist reikna með því að Cristiano Ronaldo verði áfram í herbúðum Manchester United á næsta tímabili.

Elfsborg skellti Hibernian

Áhugaverð úrslit urðu í Intertoto keppninni í knattspyrnu í dag þegar sænska liðið Elfsborg lagði Hibernian frá Skotlandi 2-0 á útivelli í fyrri leik liðanna. Helgi Valur Daníelsson var í byrjunarliði sænska liðsins í dag.

Óttast að Joey Barton stytti sér aldur

Sam Allardyce, fyrrum knattspyrnustjóri Newcastle, segist óttast að Joey Barton stytti sér aldur ef hann verði látinn fara frá félaginu í vegna vandamála hans utan vallar.

Rooney blankur eftir brúðkaupið

Breska helgarblaðið News of the World segir að fjárhagur knattspyrnumannsins Wayne Rooney sé ekki upp á marga fiska eftir annasamt sumar. Rooney gekk að eiga unnustu sína Coleen McLoughlin fyrir skömmu og það kostaði sitt.

Megum ekki við því að missa Keane

Gus Poyet, aðstoðarstjóri Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, segir að félagið megi alls ekki við því að missa írska markahrókinn Robbie Keane úr sínum herbúðum í sumar. Keane hefur verið orðaður mikið við Liverpool að undanförnu.

Chelsea hefur boðið í Kaka

Varaforseti AC Milan segir að Chelsea hafi gert félaginu kauptilboð í brasilíska miðjumanninn Kaka, en hann sé ekki til sölu. Þá hafi mörg félög gert fyrirspurnir í Andrea Pirlo.

Sjá næstu 50 fréttir