Fleiri fréttir

Með byssu í garðinum heima hjá sér

Sebastien Bassong, leikmaður Norwich, er í fréttunum í dag eftir að hann birti myndir af sér með byssu en myndirnar fóru fyrir brjóstið á mörgum og þóttu óviðeigandi.

Stjarnan og Breiðablik í sérflokki

Tvö mörk seint í leiknum tryggðu Stjörnunni 2-0 útisigur á Valskonum í stórleik 5. umferðar Pepsi-deildar kvenna í kvöld. Breiðablik vann öruggan útisigur á Aftureldingu.

Strákarnir nældu í brons

Íslenska karlalandsliðið í fimleikum nældi sér í bronsverðlaun í liðakeppni á Smáþjóðaleikunum í dag.

Hansen fór í aðgerð í gær

Einn besti handboltamaður heims, Daninn Mikkel Hansen, fór í hnéaðgerð í gær en hnéð hefur verið að plaga hann lengi.

Spila við Ísland og labba Fimmvörðuháls

Það verður tvíhöfði í Laugardalshöllinni þann 16. júní er þjóðin fær að kveðja Ólaf Stefánsson því íslenska kvennalandsliðið mun þá mæta hinu geysisterka liði Noregs.

Gæti ekki sagt nei við NFL

Eins og Vísir greindi frá í morgun þá virðist Jim Irsay, eigandi NFL-liðsins Indianapolis Colts, hafa áhuga á því að skoða sterkasta mann Íslands, Hafþór Júlíus Björnsson.

Þarf á þessu að halda

Guðmundur Árni Ólafsson skrifaði í gær undir eins árs samning við danska úrvalsdeildarfélagið Mors-Thy. Hann kemur til félagsins frá stórliðinu Bjerringbro-Silkeborg.

Benitez staðfestur sem þjálfari Napoli

Það er loksins búið að staðfest að Rafa Benitez verður nýr þjálfari Napoli. Hann tekur við starfinu af Walter Mazzarri sem er farinn til Inter.

Neymar búinn að semja við Barcelona

Brasilíumaðurinn Neymar er búinn að skrifa undir samning við Barcelona og þar með er endanlega orðið ljóst að hann leikur með félaginu næsta vetur.

Spurs með sópinn á lofti

San Antonio Spurs komst í nótt í úrslit NBA-deildarinnar. Spurs gerði sér lítið fyrir og sópaði Memphis Grizzlies í sumarfrí í úrslitum Vesturdeildarinnar. Spurs vann leikinn í nótt 93-86 og rimmuna 4-0. Spurs mun mæta Miami Heat eða Indiana Pacers í úrslitunum.

Ríkir rússar í boltanum

Innreið moldríkra Rússa í knattspyrnuheiminn hefur ekki farið framhjá neinum. Roman Abramovich reið á vaðið er hann keypti Chelsea og byrjaði að ausa peningum í félagið.

Áburðarkóngurinn í Mónakó

Margir knattspyrnuáhugamenn hafa furðað sig á því að franska félagið AS Monaco sé farið að láta hraustlega til sín taka á leikmannamarkaðnum. Peningar virðast ekki skipta neinu máli miðað við síðustu kaup félagsins. Það er moldríkur Rússi sem stendur á bak við liðið en hann efnaðist á því að framleiða áburð.

Gæti farið í mál við Torsten Jansen

Króatíski hornamaðurinn Ivan Nincevic, sem var skallaður í leik á dögunum, hefur leikið sinn síðasta leik fyrir lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin.

Besta sýning á jörðinni

Það er ekki við Indiana að sakast en Miami er nú mætt í úrslitakeppnina árið 2013. Miami vélin þurfti smá ræsingarúða eins og gamall Nalli, en naumur sigur í fyrsta leik og tap í öðrum gegn Pacers á heimavelli var það eina sem þurfti.

Frábært að fá að leiða hópinn út á völl

Körfuknattleikskonan Helena Sverrisdóttir varð þess heiðurs aðnjótandi að gegna hlutverki fánabera þegar Smáþjóðaleikarnir voru settir í 15. skipti á Josy Barthel-leikvanginum í Lúxemborg í kvöld.

Bæting og sæti á meistaramótinu tryggt

Kringlukastarinn Blake Jakobsson úr FH kastaði 57,30 metra á meistaramóti Vesturdeildar í frjálsum íþróttum sem fram fór í Austin í Bandaríkjunum um helgina.

Flottur sjóbirtingur úr Hörgá

Fallegir fiskar eru alltaf skemmtilegir. Hér er einn sem glæsilegur sjóbirtingur sem veiddist á dögunum í Hörgá í Eyjafirði.

Auðveldara fyrir mig að yfirgefa Palace

"Ég er gjörsamlega búinn á því og veit ekkert hvað ég á að segja. Þetta var draumur minn og auðveldara fyrir mig að yfirgefa félagið vitandi að Palace sé komið í úrvalsdeildina," sagði Wilfried Zaha besti maður vallarins á Wembley í dag.

Rodwell ætlar að slá í gegn hjá City

Þegar Jack Rodwell ákvað að semja við Man. City sögðu margir að hann væri að drepa ferilinn sinn. Það reyndist að mörgu leyti rétt því hann var aðeins sex sinnum í byrjunarliði City í vetur.

Þórsurum líður vel í Lautinni

Hvítklæddir Þórsarar gerðu góða ferð suður til Reykjavíkur þegar liðið lagði Fylki 4-1 í 5. umferð Pepsi-deildar karla í gærkvöldi.

Monaco vill fá Ivanovic

Franska félagið Monaco eyðir peningum þessa dagana eins og þeir séu að detta úr tísku. Það er nóg til hjá Rússanum Dmitry Rybolovlev og hann ætlar að sjá til þess að Monaco komist aftur í fremstu röð.

Lewandowski vildi ekki ræða um Bayern

Þó svo umboðsmaður pólska framherjans, Roberts Lewandowski, sé búinn að lýsa því yfir að skjólstæðingur hans sé á leið til Bayern München frá Dortmund þá vill leikmaðurinn ekki staðfesta það.

Skatturinn á eftir íþróttafélögum landsins

Ríkisskattstjóri hefur boðað aðgerðir í skattamálum gagnvart íþróttafélögum landsins. Þetta kemur fram í bréfi sem sent var Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands á dögunum.

Zidane á að fá Bale til Real Madrid

Real Madrid hefur haft það á stefnu sinni í áraraðir að kaupa bestu leikmenn heims. Ekki á að hverfa frá þeirri stefnu og efstur á blaði félagsins í dag er Walesverjinn Gareth Bale sem spilar fyrir Tottenham.

Grænlendingar vilja halda alþjóðlegt handboltamót

Grænlendingar eru ekki þekktir fyrir afrek sín á handboltavellinum en Grænlendingum hefur þó tekist að komast á stórmót. Það er enn metnaður fyrir handbolta í landinu og Grænlendingar vilja nú halda forkeppni Pan American-leikanna. Þrjú efstu liðin á þeim leikum komast á næsta HM.

Sögulegur sigur hjá Manassero

Ítalinn Matteo Manassero varð um helgina yngsti kylfingurinn sem vinnur PGA-meistaramótið í golfi. Hann vann þá sigur á Simon Khan og Marc Warren í umspili.

Hollenska blakkonan fannst látin

Spænska lögreglan fann í dag tvö lík. Samkvæmt þarlendum fjölmiðlum eru líkin af hollensku blakkonunni Ingrid Visser og unnusta hennar en þeirra hefur verið saknað í um tvær vikur.

Rándýr úrslitaleikur á Wembley

Verðmætasti leikurinn í fótboltaheiminum fer fram klukkan 14.00 í dag en þá mætast Crystal Palace og Watford í hreinum úrslitaleik um sæti í ensku úrvalsdeildinni. Leikurinn fer fram á Wembley-leikvanginum í Lundúnum.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Breiðablik 1-1

KR og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í fimmtu umferð Pepsi-deild karla í kvöld en leikurinn fór fram í Vesturbænum. Elfar Árni Aðalsteinsson gerði eina mark Blika í leiknum og það var Atli Sigurjónsson sem skoraði mark KR.

Phillips skaut Crystal Palace í ensku úrvalsdeildina

Gamla brýnið Kevin Phillips tryggði Crystal Palace sæti í ensku úrvalsdeidlinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Watford 1-0 í framlengdum leik á Wembley. Eina markið kom úr vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks framlengingar.

Sjá næstu 50 fréttir