Sport

Strákarnir nældu í brons

Á meðfylgjandi mynd má sjá piltana með bronsverðlaun sín, frá vinstri Ólafur Garðar Gunnarsson, Pálmi Steindórsson, Valgarð Reinhardsson, Jón Sigurður Gunnarsson og Róbert Kristmannsson.
Á meðfylgjandi mynd má sjá piltana með bronsverðlaun sín, frá vinstri Ólafur Garðar Gunnarsson, Pálmi Steindórsson, Valgarð Reinhardsson, Jón Sigurður Gunnarsson og Róbert Kristmannsson. mynd/fimleikasambandið

Íslenska karlalandsliðið í fimleikum nældi sér í bronsverðlaun í liðakeppni á Smáþjóðaleikunum í dag.

Á sama tíma fór fram keppni í fjölþraut þar sem Ólafur Garðar Gunnarsson lenti í 4. sæti og Róbert Kristmannsson í 5.sæti.  

Þeir munu keppa í úrslitum á einstökum áhöldum þegar þau fara fram á fimmtudaginn.

Ólafur á öllum áhöldum nema stökki og Róbert á öllum áhöldum nema hringjum.  

Auk þeirra þá keppir Jón Sigurður Gunnarsson í úrslitum á hringjum og Valgarð Reinhardsson í stökki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×