Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
HK-ingar í undanúrslitin eftir öruggan sigur á Selfossi HK-ingar eru komnir áfram í undanúrslit Eimskipsbikars karla eftir sjö marka sigur á 1. deildarliði Selfoss á Selfossi í kvöld. HK verður því pottinum ásamt Haukum sem unnu FH í tvíframlengdum leik í dag en hinir tveir leikirnir fara fram á morgun. 6.12.2009 20:35
Tim Howard: Louis Saha gaf mér góð ráð fyrir vítið Tim Howard, bandaríski markvörðurinn í Everton, tryggði sínum mönnum eitt stig á móti Tottenham í dag þegar hann varði vítaspyrnu frá Jermain Defoe í uppbótartíma. 6.12.2009 20:30
Einar Andri: Gríðarleg vonbrigði en stoltur af strákunum „Þetta eru gríðarleg vonbrigði en ég er stoltur af strákunum. Þeir lögðu allt í þetta og það er mín skoðun að þeir hefðu átt skilið að vinna þennan leik." sagði Einar Andri Einarsson, þjálfari FH eftir tap gegn Haukum í Kaplakrika í dag. 6.12.2009 20:15
Aron: Reynsla, heppni og ótrúlegur vilji skóp sigurinn „Þetta var frábær sigur og við erum virkilega ánægðir með að vera komnir áfram í bikarnum. Töpuðum hérna í fyrra með einu marki í spennuleik eins og fór fram hér í dag þannig það var gott að hefna fyrir þetta núna." sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, eftir sigur gegn FH í ævintýranlegum Hafnarfjarðarslag. 6.12.2009 20:00
Harry Redknapp: Leikurinn átti að vera búinn í stöðunni 2-0 Harry Redknapp, stjóri Tottenham, var skiljanlega mjög ósáttur með að lið hans tapaði niður tveggja marka forskoti í 2-2 jafntefli á móti Everton á Goodison Park í ensku úrvalsdeildinni í dag. 6.12.2009 19:43
Gunnar Heiðar: 90 prósent líkur á að ég semji við Reading í vikunni Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Íþróttadeild Stöðvar 2 í kvöld að það séu 90 prósent líkur á að hann verði leikmaður Reading á næstu dögum. Gunnar Heiðar yrði þá fjórði Íslendingurinn í liðinu en fyrir eru Ívar Ingimarsson, Brynjar Björn Gunnarsson og Gylfi Þór Sigurðsson. 6.12.2009 19:15
Viðræður Mascherano og Liverpool ganga vel Rafael Benitez, stjóri Liverpool, segir að viðræður félagsins við Argentínumanninn Javier Mascherano gangi vel en Mascherano hefur verið orðaður við Barcelona-liðið að undanförnu. 6.12.2009 19:00
Umfj.: Haukar unnu tvíframlengdan Hafnarfjarðarslag Í dag fór fram Hafnarfjarðarslagur í Eimskips-bikar karla í handknattleik er FH tók á móti Haukum í Kaplakrika. Þessi leikur var miklu meira en bara handboltaleikur því liðin voru einnig að spila um stolt bæjarins. Það voru Haukar sem báru sigur úr býtum, 38-37, í tvíframlengdum, bráðskemmtilegum og dramatískum leik. 6.12.2009 18:03
Tottenham missti niður tveggja marka forskot á móti Everton Tottenham mistókst að endurheimta þriðja sætið í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir 2-2 jafntefli við Everton á Goodison Park. Tottenham komst í 2-0 í upphafi seinni hálfleiks en Everton jafnaði með tveimur mörkum á síðustu tólf mínútum leiksins. Jermain Defoe gat tryggt Tottenham sigurinn í uppbótartíma en lét Tim Howard verja frá sér vítaspyrnu. 6.12.2009 17:59
Ancelotti: Frank Lampard mun taka næstu vítaspyrnu okkar Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, ætlar ekki að skipta um vítaskyttu hjá Chelsea þrátt fyrir að Frank Lampard hafi látið Shay Given, markvörð Manchester City, verja frá sér í leik liðanna í gærkvöldi. Klúðrið hans Lampard kostaði Chelsea stig í leiknum. 6.12.2009 17:30
Sigurmark Bobby Zamora kom Fulham upp í 8. sæti Fulham komst upp í 8. sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Sunderland í dag. Það var Bobby Zamora sem skoraði eina mark leiksins strax á 7. mínútu. 6.12.2009 16:35
Meiðslalisti Arsenal lengist enn - Rosicky meiddur á nára Tomas Rosicky meiddist á nára í sigri Arsenal á Stoke í ensku úrvalsdeildinni í gær og verður væntanlega frá í einhvern tíma. Hann er enn einn leikmaðurinn sem Arsene Wenger horfir á eftir á meiðslalistann hjá Lundúnafélaginu. 6.12.2009 16:30
Gullit: Robin Van Persie getur komið til baka og átt flotta HM Ruud Gullit, fyrrum fyrirliði Evrópumeistaraliðs Hollands, trúir því að Robin van Persie eigi eftir að koma sterkur til baka eftir meiðslin og eiga flotta HM í Suður-Afríku næsta sumar. Van Persie verður frá keppni næstu fimm mánuði eftir að hafa meiðst á liðböndum í ökkla í vináttulandsleik á móti Ítölum. 6.12.2009 16:00
HM í Kína: Stelpurnar hans Þóris og Florentina áfram á sigurbraut Norsku og rúmensku kvennalandsliðin unnu bæði leiki sína í annarri umferð á HM í kvennahandbolta í Kína í dag. Norska liðið vann ellefu marka sigur á Túnis, 36-25, en Rúmenska liðið vann 37-28 sigur á Japan. 6.12.2009 15:30
Figo: Englendingar eru ekki meðal þeirra sigurstranglegustu á HM Portúgalinn Luis Figo, fyrrum leikmaður Inter, Barcelona og Real Madrid, hefur ekki mikla trú á enska landsliðinu á HM í Suður-Afríku næsta sumar. Englendingar eru bjartsýnir fyrir keppnina eftir glæsilega undankeppni en Figo hefur mesta trú á Spáni og meiri trú á afrísku þjóðunum en Englendingum. 6.12.2009 15:00
Richard Dunne segir samúðarverðlaun FIFA vera algjört grín Richard Dunne, landsliðsmaður Íra, segir umræðu um sérstök samúðarverðlaun FIFA vera algjört grín og mógðun við írska landsliðið. FIFA er að plana það að veita Írum sérstök verðlaun vegna þess að þeir sátu efir í umspilinu á meðan Frakkar komust á HM á ólöglegu marki. 6.12.2009 14:30
Manchester United viðurkennir áhuga á Edin Dzeko Mike Phelan,aðstoðarþjálfari Manchester United hefur viðurkennt að félagið hafi áhuga á að kaupa Edin Dzeko, framherja þýska liðsins Wolfsburg, í janúar. Bosníumaðurinn hefur verið orðaður við mörg stórlið eftir frábæra frammistöðu í bundesligunni en hann er aðeins 23 ára gamall. 6.12.2009 14:00
Mourinho strunsaði í burtu eftir tap Inter á móti Juventus Jose Mourinho, þjálfari Inter, gaf ekki kost á neinum viðtölum eftir 1-2 tap Inter Milan á móti Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Samkvæmt heimildum SkySport þá strunsaði Mourinho burtu skömmu eftir leik, fór framhjá blaðamönnunum og beint upp í liðsrútuna. 6.12.2009 13:15
Stuttgart búið að reka Markus Babbel Markus Babbel var í dag rekinn frá þýska úrvalsdeildarliðinu Stuttgart en liðið hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum sínum. Babbel sem er fyrrum leikmaður Bayern Munchen og Liverpool, hefur verið þjálfari Stuttgart síðan í nóvember 2008. 6.12.2009 12:29
Oden meiddist illa á hné - tímabilið er búið hjá honum Greg Oden, miðherji Portland Trail Blazers í NBA-deildinni, meiddist illa á hné í sigri liðsins á Houston Rockets í nótt. Oden lenti í samstuði við Aaron Brooks hjá Houston og meiddist illa á vinstri hnéskel. Leikurinn var stopp í sjö mínútur á meðan var hlúð að Oden. Oden fór strax í myndatöku og þarf að fara í aðgerð. 6.12.2009 11:45
Carmelo Anthony með 34 stig í sigri Denver á San Antonio Carmelo Anthony skoraði 22 af 34 stigum sínum í seinni hálfleik í 106-99 sigri Denver Nuggets á San Anotnio Spurs í NBA-deildinni í nótt. Þetta var þriðji sigur Denver-liðsins í röð en Spurs var með forustuna nær allan tímann fram að lokaleikhlutanum. Chauncey Billups bætti við 18 stigum fyrir Denver en Tony Parker skoraði 27 stig og Tim Duncan var með 26 stig hjá Spurs. 6.12.2009 11:00
Martin O'Neill: James Milner á að fara á HM Martin O'Neill, stjóri Aston Villa, var ánægður með frammistöðu James Milner í 3-0 sigri liðsins á Hull í ensku úrvalsdeildinni í gær. Sigurinn kom Aston Villa upp fyrir Liverpool og í 5.sætið með jafnmörk stig og Tottenham en með lakari markatölu. 6.12.2009 10:00
Cristiano Ronaldo bað félaga sína afsökunar eftir leikinn Cristiano Ronaldo var fullur iðrunar eftir 4-2 sigurleik Real Madrid á Almeria í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Ronaldo var lykilmaður í að Real kom til baka eftir að hafa lent 1-2 undir en hann lét síðan reka sig útaf í lok leiksins. Ronaldo lét líka verja frá sér víti sem hann fékk sjálfur. 6.12.2009 08:00
Arsene Wenger: Arshavin átti að skora þrennu Arsene Wenger, stjóri Arsenal, sá lærisveina sína enda þriggja leikja taphrinu með því að vinna 2-0 sigur á Stoke í ensku úrvalsdeildinni í gær. Rússinn Andrey Arshavin átti flottan leik, skoraði eitt, lagði upp annað og fiskaði víti sem Cesc Fabregas lét Thomas Sorensen verja frá sér. 6.12.2009 08:00
Barcelona og Real Madrid ætla bæði að bjóða í Fabregas í janúar Barcelona og Real Madrid keppa ekki bara um spænska meistaratitilinn í vetur því þau ætla í annarskonar keppni þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar nefnilega kapphlaupið um að ná að kaupa Cesc Fabregas frá Arsenal. Spænska blaðið Marca segir að fyrirliði Arsenal sé þegar búinn að ákveða það að fara frá Lundúnaliðinu eftir tímabilið. 6.12.2009 07:00
Dansarnir hans LeBrons fóru í taugarnar á leikmanni Chicago LeBron James dansaði ekki bara framhjá leikmönnum Chiacgo Bulls í 101-87 sigri Cleveland í beinni á Stöð 2 Sport í fyrrinótt heldur fagnaði hann ítrekað góðum sóknum liðsins í seinni hálfleik með því að setja á svið smá danssýningu að hætti hip-hop dansara. 6.12.2009 06:00
Lionel Messi skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Barcelona Tvö mörk frá Lionel Messi og eitt frá Zlatan Ibrahimovic tryggðu Barcelona dýrmætan útisigur á Deportivo La Coruna í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Messi kom Barcelona tvisvar yfir í leiknum og Zlatan innsiglaði síðan sigurinn í blálokin. 5.12.2009 22:50
Kiel með tólfa sigurinn sinn í þrettán leikjum THW Kiel hélt sigurgöngu sinni áfram í þýsku úrvalsdeildinni eftir fjögurra marka útisigur á Íslendingaliðinu TuS N-Lübbecke. Kiel er eftir leikinn með þriggja stiga forskot á HSV Hamburg sem á reyndar leik inni. 5.12.2009 22:30
AC Milan skoraði þrjú mörk á fyrstu 23 mínútunum AC Milan vann sinn fimmta leik í röð í ítölsku deildinni í dag þegar liðið van 3-0 heimasigur á Sampdoria. Marco Borriello, Clarence Seedorf og Alexandre Pato skoruðu mörkin á fyrstu 23 mínútum leiksins. 5.12.2009 22:00
Mark Hughes: Bjóst ekki við að Frank myndi klikka á vítinu Mark Hughes, stjóri Manchester City, hjálpaði gamla læriföður sínum Alex Ferguson í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar með því að stýra City-liðinu til 2-1 sigurs á toppliði Chelsea í kvöld. 5.12.2009 21:45
Carlo Ancelotti: Manchester City spilaði mjög vel Carlo Ancelotti, stjóri Chelsea, var ekkert að æsa sig eftir að Chelsea endaði fimm leikja sigurhrinu sína í ensku úrvalsdeildinni með því að tapa fyrir Manchester City í kvöld. Nú munar aðeins tveimur stigum á Chelsea og Manchester United. 5.12.2009 21:30
Cristiano Ronaldo skoraði, klikkaði á víti og fékk rautt spjald Cristiano Ronaldo fékk tvö gul spjöld með fjögurra mínútna millibili í lok 4-2 sigurleiks Real Madrid á Almería í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Real Madrid lenti 1-2 undir en skoraði þrjú mörk á ellefu mínútna kafla og tryggði sér mikilvægan sigur í toppbaráttunni við Barcelona. 5.12.2009 21:00
SønderjyskE hélt upp á komu Ólafs með góðum 2-0 sigri SønderjyskE, hélt upp á komu Íslendingsins Ólafs Inga Skúlasonar, með því að vinna 2-0 heimasigur á Aalborg BK í dönsku úrvalsdeildinni í dag en sigurinn kom SønderjyskE upp um tvö sæti og í 8. sæti deildarinnar þremur stigum á eftir Aalborg sem erí 7. sætinu. 5.12.2009 20:30
Eiður Smári spilaði seinni hálfleikinn í 1-3 tapi Mónakó Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður í hálfleik í 1-3 tapi Mónakó á útivelli fyrir Valenciennes í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Mónakó jafnaði leikinn fimm mínútum eftir að Eiður kom inn á völlinn en Valenciennes skoraði síðan tvö mörk á síðustu fimm mínútunum. 5.12.2009 20:00
Manchester City vann Chelsea og jafnaði toppbaráttuna Nýju framherjarnir Emmanuel Adebayor og Carlos Tevez tryggðu Manchester City 2-1 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en það var markvörðurinn Shay Given sem sá til þess að City gerði ekki áttunda jafnteflið í röð þegar hann varði víti frá Frank Lampard sjö mínútum fyrir leikslok. 5.12.2009 19:19
Valskonur komnar með þriggja stiga forskot á toppnum Valur náði í dag þriggja stiga forskoti í N1 deild kvenna eftir 39 marka stórsigur á nýliðum Víkings, 13-52, í Víkinni. Valskonur sem hafa ekki tapað leik á tímabilinu eru með 18 stig en næstar þeim eru Íslandsmeistarar Stjörnunnar með 15 stig. 5.12.2009 19:00
Sir Alex Ferguson: Varð að nota minnsta miðvörð í heimi Sir Alex Ferguson var í góðu skapi eftir 4-0 sigur Manchester United á West Ham á Upton Park í dag. Hann grínaðist með það að hafa þurft að nota minnsta miðvörð í heimi þegar meiðslavandræði varnarmanna liðsins tóku á sig nýja mynd í dag. 5.12.2009 18:56
Benitez vonsvikinn: Við verðum að vinna svona leiki Rafael Benitez, stjóri Liverpool, leyndi ekki vonbrigðum sínum eftir marklaust jafntefli á móti Blackburn í ensku úrvalsdeildinni í dag. Liverpool missti fyrir vikið Aston Villa upp fyrir sig og er því komið niður í 6. sætið. 5.12.2009 18:09
Ármann Smári skoraði aftur fyrir Hartlepool Ármann Smári Björnsson skoraði þriðja mark enska C-deildarliðsins Hartlepool United í 3-0 sigri á Millwall í ensku 2. deildinni í dag. Ármann Smári hefur þar með skorað í tveimur leikjum í röð en hann skoraði einnig í 2-3 tapi á móti Carlisle í vikunni. 5.12.2009 18:00
Ólafur Ingi gengin til liðs við SønderjyskE Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmiðjumaður og fyrrum leikmaður sænska liðsins Helsingborg, hefur gert þriggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið SønderjyskE en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í kvöld. 5.12.2009 17:30
Fjögur lið yfir hundrað stigin í Subwaybikarnum Iceland Express deildarliðin Grindavík, Breiðablik, Njarðvík og Keflavík unnu öll góða sigra í sextán liða úrslitum Subwaybikars karla í dag. Grindavík vann Ármann 132-76, Breiðablik vann 102-58 sigur á ÍBV, Njarðvíkingar unnu UMFH 107-55 á Flúðum og Keflavík vann 100-90 sigur á Val á Hlíðarenda. 5.12.2009 17:15
Meistararnir skoruðu fjögur á Upton Park - marklaust hjá Liverpool Meistarar Manchester United voru í stuði á Upton park í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar þeir unnu 4-0 sigur á heimamönnum í West Ham. Manchester United minnkaði forskot Chelsea þar með í tvö stig en Chelsea mætir nágrönnum þeirra í Manchester City á eftir. 5.12.2009 16:45
Hafnarfjarðarliðin unnu bæði góða útisigra Hafnarfjarðarliðin Haukar og FH unnu í dag góða útisigra í N1 deild kvenna í handbolta. Haukakonur unnu sinn fjórða sigur í röð þegar liðið sótti tvö stig í Digranes og unnu heimastúlkur í HK 34-25. FH vann 39-30 sigur á KA/Þór fyrir norðan. 5.12.2009 16:23
Hermann: Þetta var risasigur fyrir okkur „Þetta var risasigur fyrir okkur og vonandi upphafið að einhverju sérstöku," sagði Hermann Hreiðarsson í viðtali við Sky Sports eftir 2-0 sigur Portsmouth á Burnley á Fratton Park í dag. 5.12.2009 16:15
Haukakonur unnu Val örugglega í bikarnum Haukakonur eru komnar í átta liða úrslit Subwaybikars kvenna í körfubolta eftir 68-53 sigur á Val á Ásvöllum í dag. Valsliðið byrjaði vel og var 20-15 yfir eftir fyrst leikhluta en staðan var 32-30 fyrir Hauka í hálfleik. Haukar urðu þar með annað liðið á eftir Keflavík til að tryggja sér sæti í pottinum í næstu umferð. 5.12.2009 15:47