Fleiri fréttir

Ólga og óeirðir í Ferguson

Mikil ólga hefur verið í bænum Ferguson í Missouri allt frá því lögreglumaður skaut átján ára pilt um síðustu helgi.

Ebólufaraldurinn mun alvarlegri en talið hefur verið

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að ebólufaraldurinn sem geisað hefur í vestur Afríku síðustu mánuði sé mun alvarlegri en haldið hafi verið. Eittþúsund og sjötíu manns hafa nú látist frá þaí smitið blossaði upp og segja talsmenn stofnunarinnar að grípa verði til umfangsmikilla aðgerða þegar í stað til þess að stemma stigu við útbreiðslunni.

Annar sérfræðingur fellur í Síerra Leone

Mikill skortur er nú á læknum í landinu en andlát Dr. Modupeh Cole, ber að einungis tveimur vikum eftir fráfall dr. Sheiks Omarrs Khan sem stjórnaði aðgerðum gegn veirunni í austurhluta landins.

Maliki víkur úr embætti

Ákvörðun hans er talin skref í átt að aukinni einingu Íraks. Haider al-Abadi verður næsti forsætisráðherra landsins.

Leystu upp nýliðunarnet Íslamista

Glæpahringurinn er grunaður um að hafa safnað saman herskáum Íslamistum í Marokkó til að berjast fyrir Íslamska ríkið í átökunum sem nú eiga sér stað fyrir botni Miðjarðarhafs.

Rússneska bílalestin nálgast landamærin

Rúmlega hundrað rússneskir flutningabílar nálgast nú landamæri Úkraínu en þeir eru sagðir flytja hjálpargögn til stríðshrjáðra í austurhluta landsins. Að sögn fréttaritara BBC á staðnum virðist sem bílalestin stefni nú að rússnesku landamæraborginni Rostov sem er nálægt þeim svæðum í Úkraínu sem uppreisnarmenn hafa enn á sínu valdi.

Frans páfi heimsækir Suður-Kóreu

Frans páfi er nú staddur í Suður Kóreu þar sem hann heimsækir kaþólikka þar í landi en kaþólskan á upp á pallborðið þar í landi og hvergi í heiminum fjölgar þeim sem halda þann sið örar.

Eini ísbjörninn í Afríku er dauður

Eini hvítabjörninn í Afríku er dauður. Björninn Wang hafðist við í dýragarðinum í Jóhannesarborg í Suður-Afríku og var hann orðinn þrjátíu ára gamall. Í gær var hinsvegar ákveðið að fella dýrið enda þjáðist Wang af hjartasjúkdómi auk þess sem lifrin var hætt að virka sem skyldi.

Bandarískir hermenn komnir til Íraks

Sérsveitarmennirnir eru lentir í Sindjar-fjöllum þar sem þeim er ætlað að aðstoða Jasaída. Einungis þrjú ár eru síðan bandarískar hersveitir yfirgáfu landið.

Flugskeytum skotið frá Gasa

Yfirstandandi vopnahlé var rofið á áttunda tímanum í kvöld þegar flugskeytum var skotið á suðurhluta Ísraels.

Íslendingur á Gasa: Erfiðast að horfa upp á börnin

Sátta­semj­ar­ar í Egyptalandi kepp­ast nú við að miðla mál­um milli Ísra­els- og Palestínu­manna, en þriggja sól­ar­hringa vopna­hlé renn­ur út á miðnætti í kvöld. Íslenskur skurðhjúkrunarfræðingur sem hefur starfað á Gasa segir mikla spennu á svæðinu.

Deilt um bílalest Rússa til Úkraínu

Yfirvöld í Kænugarði vilja ekki hleypa bílalestinni inn í Úkraínu og telja þeir að stjórnvöld í Rússlandi muni reyna að nota bílalestina sem átyllu fyrir innrás.

Alvarlegt lestarslys í Sviss

Allir komust lífs af þegar lest fór út af teinunum eftir að aurskriða féll nærri skíðabænum St Moritz í austurhluta Sviss.

Frakkar senda Kúrdum vopn

Frakklandsforseti tilkynnti um ákvörðunina í hádeginu og hafa stjórnvöld í Írak þegar veitt samþykki sitt.

Vopnahléinu á Gasa lýkur á miðnætti

Samninganefnd Palestínumanna metur nú tillögur Egypta í deilunni við Ísraela en vopnahléið á Gasaströndinni rennur út á miðnætti í kvöld.

Sjá næstu 50 fréttir