Fleiri fréttir

Leiðtogar Kína boða endurbætur

Stjórnvöld í Kína hafa opinberað áætlanir um endurbætur á stjórnsýslu- og markaðsumhverfi landsins. Hafa þau sagt að hinn frjálsi markaður muni spila stærra hlutverk í Kína.

Ljósmyndar skrítnustu störf Bandaríkjanna

Nancy Rica Schiff er atvinnuljósmyndari sem eltir uppi fólk sem starfar við óvanaleg störf í Bandaríkjunum. Hvort sem það sé hundafóðurssmakkarar, túrtapa eftirlitsmaður eða sprungufyllingarmaður.

Örvænting grípur um sig á Filipseyjum

Ástandið á þeim svæðum sem verstu urðu úti í fellibylnum Haiyan sem gekk yfir Filippseyjar á föstudag er grafalvarlegt og örvænting er að grípa um sig meðal þeirra sem komust af.

Þjófstarta Föstudeginum svarta

Margar stærstu verslunarkeðjur Bandaríkjanna ætla að þjófstarta útsölunum sem yfirleitt hefjast Föstudeginum svarta.

Óttast berklasmit í Færeyjum

Heilbrigðisyfirvöld í Færeyjum óttast að berklar kunni að vera að breiðast út á Eyjunum, að sögn færeyska útvarpsins. Tíu manneskjur eru þegar í meðferð vegna berklasmits og yfir 130 starfsmenn tveggja sjúkrahúsa hafa verið skoðaðir, af ótta við að þeir hafi smitast af þeim, sem nú eru í meðferð.

Byssuofbeldi í unglingamyndum þrefaldast

Byssuofbeldi í bandarískum kvikmyndum sem leyfðar eru unglingum hefur rúmlega þrefaldast frá árinu 1985 að því er ný rannsókn hefur leitt í ljós. Og það sem meira er, á síðasta ári var meira um byssuofbeldi í unglingamyndum, en í þeim myndum sem bannaðar eru innan sautján ára aldurs.

Herskip á leið til Filippseyja til aðstoðar

Bresk og Bandarísk herskip eru nú á leið til Filippseyja, hlaðin hjálpargögnum, til þess að taka þátt í björgunarstarfinu þar í landi eftir að fellibylurinn Hayian lagði þar stór landsvæði í rúst. Bandarískt flugmóðurskip er meðal annars á leið á svæðið auk bresks orrustuskips.

Eru hársbreidd frá samkomulagi við Írani

John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að hársbreidd hafi munað frá því að hægt yrði að gera samning um kjarnorkuáætlun Írans um helgina. Utanríkisráðherrar nokkurra öflugustu ríkja heims hittu þá utanríkisráðherra Írana á fundi í Genf í Sviss þar sem reynt var að útkljá þetta áralanga deilumál.

Ólíkur vöxtur Ólympíufara

Ljósmyndarinn Howard Schatz hefur myndað fjölda fólk sem hefur tekið þátt í keppni á Ólympíuleikunum og komist að raun um að líkamar ólympíufaranna eru mjög ólíkir.

Íran hættir við kjarnorkusamning

ohn Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir Íran hafa hætt við samning um kjarnorkuáætlun Írans á laugardag. Viðræður Írans við Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Rússland og Kína plús Þýskaland.

Líklegast að gervihnötturinn hafi brunnið upp til agna

Gervihnötturinn Goce frá Evrópsku geimferðastofnuninni féll til jarðar í nótt og brann upp til agna, að því er talið er. Þetta er í fyrsta sinn í 25 ár sem gerfihnöttur frá stofnuninni fellur stjórnlaus til jarðar en þessi var svo lágt á lofti að hann þurfti að beita rafknúnum hreyfli til þess að halda sér á sporbaugi.

Ringulreið á Filippseyjum

Ástandið á Fillipseyjum er skelfilegt eftir að fellibylurinn Hayian gekk yfir eyjarnar og erfiðlega gengur fyrir björgunarsveitir að komast á staðina sem verst urður úti. Talið er að allt að tíu þúsund manns hafi farist í borginni Tacloban einni saman og hundruð eða þúsundir annarsstaðar.

Vopnahléi komið á við Qudsaya í Sýrlandi

Í fyrsta sinn í margar vikur verður hægt að koma matvælum til fólks í bænum Qudsaya nærri höfuðborg Sýrlands í kjölfar tilslakana sem náðust í samningum stjórnarhersins og uppreisnarmanna. Bærinn er á valdi uppreisnarmanna og hefur verið í herkví vikum saman.

Gríðarlegar hamfarir á Filippseyjum

Fellibylurinni Haiyan skall á austurströnd Filippseyja á föstudaginn og olli gífurlegu manntjóni og eyðileggingu. Lík liggja á víð og dreif og hanga jafnvel úr trjám. Samband hefur enn ekki náðst við fjölda byggða og reiknað er með að fjöldi látinna muni hækka enn meira.

Langar vaktir í Líbanon

Í Dahieh, úthverfi Beirút í Líbanon sem er helsta vígi Hezbollah-samtakanna, er starfrækt ein af 45 sjúkrabílastöðvum í borginni. Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Fréttablaðsins, fór nýlega með sjálfboðaliðum Rauða krossins á tólf klukkustunda langa vakt og myndaði það sem fyrir augu bar.

Maður grafinn lifandi

Kona í kirkjugarði í Brasilíu varð vör við hreyfingu á gröf og komst að því að maður væri að reyna að grafa sig upp.

Óvíst um öryggi Íslendinga á Filippseyjum

Sambandslaust hefur verið í morgun við Biliran, þar sem Íslendingar sem starfa hjá Jarðborunum, eru staðsettir -- átta talsins. Veður er þó ekki verst þar og gengið hafði verið tryggilega frá öllu þannig að Rúnar Þór Jónsson, sem staddur er í Manila, telur þeim óhætt.

Ísraelar einir grunaðir

Palestínustjórn segist ekki hafa neinn annan grunaðan um morð á Jasser Arafat en Ísraela.

Fjórir látnir í fárviðrinu

Einn öflugasti fellibylur sögunnar reið yfir Filippseyjar í nótt og varð að minnsta kosti fjórum að bana.

Vonir um að samkomulag náist við Íran

John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú á leið til Genfar í Sviss til þess að taka þátt í viðræðum um kjarnorkuáætlun Írana. Kerry er nú á ferð um Miðausturlönd en breytti ferðaáætlununum sínum snarlega þegar yfirmaður utanríkismála hjá Evrópusambandinu, Catherine Ashton, bauð honum á fundinn.

Söguleg löggjöf samþykkt í Bandaríkjunum

Öldungardeild bandaríska þingsins samþykkt í dag löggjöf sem varðar réttindi samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks. Samkvæmt lögunum er bannað að ráða eða reka einstaklinga úr vinnu vegna kynhneigðar þeirra.

"Það stafar mikil ógn af þessum fellibyl“

Fellibylurinn Haiyan gengur yfir Filippseyjar í nótt, en óveðrið er það mesta sem mælst hefur á jörðinni á þessu ári. Búast má við að vindhviður geti farið upp í 370 kílómetra á klukkustund.

Sjá næstu 50 fréttir