Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlýnun Atlantshafsins veldur votviðri í Norður Evrópu Hið mikla votvirði og úrhellisrigningar sem hrjáð hafa íbúa í norðurhluta Evrópu í sumar, að Íslandi undanskildu, stafa af hlýnun Atlantshafsins á undanförnum árum. 8.10.2012 07:24
Sykursjúkir látast oftar úr krabbameini en aðrir Nýjar rannsóknir sýna að þeir sem þjást af sykursýki eru í mun meiri hættu en aðrir að látast úr krabbameini. 8.10.2012 07:06
Hugo Chavez endurkjörinn forseti Venesúela Hugo Chavez var endurkjörinn forseti Venesúela um helgina en hann hlaut samtals 54% atkvæða. Þetta verður fjórða kjörtímabil Chavez í embætti forseta landsins. 8.10.2012 06:49
Eldgos í Indónesíu Kvika og aska fellur nú til jarðar í nágranni við eldfjallið Mount Lokon í norðaustur-hluta Indónesíu sem byrjaði að gjósa í nótt. Yfirvöld hafa varað íbúa, sem búa í grennd við fjallið, við að fara út úr húsum sínum enda er mikið mistur á svæðinu. Samkvæmt fréttum ríkissjónvarpsins í landinu heyrast miklar drunur í um sex kílómetra radíus við fjallið. Eldfjallið er mjög virkt og hefur mikil virkni verið í því síðustu ár. 8.10.2012 13:26
Þreytulegur og með grátstafinn í kverkunum Breti á fimmtugsaldri, sem grunaður er um morðið á hinni fimm ára gömlu April Jones, var leiddur fyrir dómara í morgun. Leitin að stúlkunni hefur enn ekki borið árangur. 8.10.2012 12:06
Nóbelsvikan hefst í dag Nóbelsvikan hefst í Stokkhólmi í dag með því að veitt verða Nóbelsverðlaunin í læknisfræði. 8.10.2012 07:18
Forsætisráðherra Líbýu vikið úr starfi Mustafa Abu Shagur forsætisráðherra Líbýu hefur verið vikið úr starfi. Þetta gerðist í framhaldi af því að Shagur mistókst í annað sinn að fá meirihlutastuðing á þingi landsins fyrir ríkisstjórn sína. 8.10.2012 06:57
Ormur skírður í höfuðið á Yoda úr Star Wars myndunum Áður óþekkt tegund af djúpsjávarormum sem fannst við Norður Atlantshafshrygginn suður af Íslandi hefur verið skírð í höfuðið á Jedi riddaranum Yoda í Star Wars myndunum. 8.10.2012 06:46
Lætur sig falla úr 36 kílómetra hæð Fallhlífarstökkvarinn Felix Baumgartner hefur árum saman unnið að undirbúningi þess að slá öll met í þeirri grein. Á morgun verður svo komið að stóra stökkinu. Hann ætlar að fara með loftbelg upp í að minnsta kosti 36 kílómetra hæð og láta sig falla niður til jarðar. Hann reiknar með að fallið taki rúmlega fimm og hálfa mínútu áður en fallhlíf opnast þegar hann verður kominn niður í eins og hálfs kílómetra hæð. 8.10.2012 00:00
Nýtt hervæðingarkapphlaup Yfir sjötíu þjóðir hafa nú komið sér upp mannlausum herflugvélum. Enn er þó aðeins lítill hluti þeirra búinn vopnum. Þessi þróun mun án efa breyta stríðsrekstri til muna og hætta er á að með henni hefjist nýtt hervæðingarkapphlaup. 8.10.2012 00:00
Sjúklingar deyja úr hungri og þorsta á breskum sjúkrahúsum Fjörutíu og þrír sjúklingar á breskum sjúkrahúsum dóu úr hungri í fyrra og hundrað og ellefu dóu úr þorsta. Að auki kemur fram í læknaskýrslum að 588 sjúklingar hafi þjáðst af alvarlegum vökvaskorti og 287 hafi verið alvarlega vannærðir þegar þeir dóu. Breska blaðið The Telegraph greindi frá þessu á laugardag og hefur eftir Katherine Murphy, framkvæmdastjóra samtaka sjúklinga í Bretlandi, að þessar tölur séu nöturlegur og skammarlegur vitnisburður um ástandið í Bretlandi á 21. öldinni. 8.10.2012 00:00
Árekstrarhætta úti í geimnum Alþjóðlega geimstöðin var í gær flutt yfir á aðra braut umhverfis jörðu vegna hættu á árekstri við geimrusl. Sex geimfarar eru nú um borð í geimstöðinni. Talið er að meira en 21 þúsund brot úr ýmiss konar geimrusli, hvert þeirra stærra en 10 sentímetrar í þvermál, séu á braut umhverfis jörðu úti í geimnum. Öryggisreglur geimstöðvarinnar segja til um að þegar hætta á árekstri verður meiri en einn á móti tíu þúsund þurfi að breyta um braut hennar. - gb 8.10.2012 00:00
Lýðræðinu ógnað á margan hátt Þó enn sé óvíst hvort frammistaða Baracks Obama og Mitts Romney í kappræðunum í vikunni komi til með að skipta sköpum þegar upp er staðið markaði rimman upphafið að endasprettinum í kosningaferli sem markar tímamót að mörgu leyti. 8.10.2012 00:00
Ísraelar skutu niður ómannað njósnavél Lítil ómönnuð njósnavél var skotin niður í suðurhluta Ísrael í gær. Vélin hrapaði í Negev eyðimörkinni og leyfa hennar nú leitað. Ekki er vitað hvaðan flugvélin kom. Þá er enn óljóst að hvort að vélin hafi verið notuð til njósna eða hvort að hana hafi verið átt að nota til loftárása. 7.10.2012 11:00
David Blaine í auga stormsins Töframaðurinn David Blaine heillaði íbúa New York í dag með nýjasta glæfrabragði sínu. Sjónhverfingamaðurinn hefur reynt ýmislegt í gegnum tíðina en fátt jafn tilkomumikið og það nýjasta. 6.10.2012 22:30
Ákærður fyrir morðið á April Jones Mark Bridger, fjörutíu og sex ára Breti, var í dag ákærður fyrir morðið á hinni fimm ára gömlu April Jones, sem saknað hefur verið síðan í byrjun vikunnar. 6.10.2012 16:57
Hárgreiðslusýning hunda í Þýskalandi Hárgreiðslusýning hunda fer nú fram í Stadroda í Þýskalandi. Um er að ræða alþjóðlega sýningu en þátttakendur koma frá Finnlandi, Póllandi og Danmörku. Á meðfyljgandi mynd sést Ilse Vermeiren frá Belgíu snyrta hundinn sinn fyrir sýninguna. 6.10.2012 13:24
Bryti páfa í 18 mánaða fangelsi Fyrrverandi bryti Benedikts páfa sextánda var í dag dæmdur í átján mánaða fangelsi. Hann var sakaður um að stolið trúnaðarskjölum frá skrifstofu páfa og lekið þeim til ítalskra fjölmiðla. 6.10.2012 11:53
Tungumálunum fækkaði um eitt Bobby Hogg, verkfræðingur frá Skotlandi er látinn 92 ára að aldri. Það sem gerir andlát hans fréttnæmt er að hann var sá síðasti sem talaði sérstaka skoska mállýsku sem kennd er við Cromarty fiskimenn. 6.10.2012 10:43
Leiðtogi námumanna myrtur Leiðtogi bandalags námuverkamanna í Suður-Afríku var myrtur við hvítagullsnámur fyrirtækisins Lonmin í gær. Ekki er vitað hver ber ábyrgð á morðinu en grunur leikur á að öryggissveitir Lonmin hafi verið þar að verki. 6.10.2012 10:39
Abu Hamza mætir fyrir dómara Íslamski eldklerkurinn Abu Hamza var fluttur til Bandaríkjanna í nótt ásamt fjórum öðrum. Hann verður dregin fyrir dómara í New York seinna í dag þar sem hann verður ákærður fyrir að hafa skipulagt hryðjuverk. 6.10.2012 09:17
Beitir sér af alefli gegn Capriles Henrique Capriles, forsetaframbjóðandi í Venesúela, sakar Hugo Chavez forseta um að hafa gefið ríkisstarfsmönnum bæði rauðan bol og frí í vinnunni einn dag til að taka þátt í kosningasamkomu á fimmtudaginn. Þeim hafi verið gert skylt að mæta á fundinn. 6.10.2012 09:00
Viðurkennir að hafa sagt dellu „Í þetta skiptið sagði ég eitthvað sem er bara algerlega rangt,“ sagði Mitt Romney, forsetaefni Repúblikanaflokksins, um sín eigin ummæli á fjáröflunarfundi í maí. Á fundinum hélt hann því fram að 47 prósent Bandaríkjamanna greiddu ekki tekjuskatt, og að hann gæti aldrei gert sér vonir um atkvæði þessa fólks. Það myndi kjósa Barack Obama vegna þess að það vildi vera á ríkisframfæri. Núna segist hann kominn á þá skoðun að „þessi kosningabarátta snúist öll um hundrað prósentin“.- gb 6.10.2012 00:00
Abu Hamza framseldur Breskur dómstóll kvað upp úr með það í gær að íslamistaklerkurinn Abu Hamza al-Masri og fjórir aðrir grunaðir hryðjuverkamenn skyldu framseldir til Bandaríkjanna. Málið hefur velkst um í dómskerfinu í átta ár. 6.10.2012 09:00
Grunaður um að hafa myrt April Jones Breti á fimmtugsaldri hefur verið handtekinn grunaður um morðið á hinni fimm ára gömlu April Jones sem leitað hefur verið að í Wales frá því á mánudag. 5.10.2012 11:57
Bandarískur ferðamaður hóf skothríð á ísraelsku hóteli Bandarískur ferðamaður skaut einn til bana á hóteli í bænum Eliat í Ísrael í morgun. Samkvæmt fréttastofunni Reuters náði maðurinn byssu af öryggisverði á hótelinu og skaut samstarfsmann hans til bana. Því næst lokaði árásarmaðurinn sig inni í eldhúsi hótelsins. Óstaðfestar fregnir herma að árásarmaðurinn hafi verið skotinn til bana af lögreglu. 5.10.2012 09:39
Vefsíða Justin Bieber safnaði upplýsingum um notendur Aðstandendur opinberrar vefsíðu söngvarans Justin Bieber virðast hafa safnað upplýsingum um notendur síðunnar, yngri en tólf ára, um nokkurt skeið. 5.10.2012 08:11
Abba-safn opnað í Svíþjóð Það líður ekki á löngu þar til aðdáendur Abba geta komist í návígi við búninga sem fjórmenningarnir í hljómsveitinni klæddust, sungið Abbalögin í karókí og skoðað myndir af gömlu stjörnunum úr hljómsveitinni í fullri stærð. Abba-safn verður opnað í Svíþjóð á næsta ári. 5.10.2012 08:04
Kitchen Aid grínaðist með látna ömmu Obama Forsvarsmenn bandaríska heimilistækjaframleiðandans, Kitchen Aid, báðust í gærkvöldi afsökunar á skilaboðum sem send voru út á Twitter-síðu fyrirtækisins eftir kappræður forsetaframbjóðandanna á miðvikudagskvöld. 5.10.2012 07:14
Um 70 milljónir horfðu á kappræðurnar Rétt rúmlega 67 milljónir Bandaríkjamanna horfðu á kappræður milli Baracks Obama og Mitts Romney forsetaframbjóðenda sem fram fór í fyrrinótt. Ellefu sjónvarpsstöðvar sýndu frá kappræðunum, eftir því sem fram kom á fréttavef Reuters. 5.10.2012 07:07
50 ár frá fyrstu smáskífu Bítlanna Í dag eru fimmtíu ár frá því að Bítlarnir gáfu út fyrstu smáskífu sína, Love me do. Í tilefni af því ætla aðdáendur sveitarinnar að hittast í Liverpool og syngja lagið, sem var titillag smáskífunnar. 5.10.2012 07:01
Fimm ára stúlkunnar enn saknað Karlmaður á fimmtugsaldri er enn í haldi lögreglunnar í Wales í tengslum við hvarf fimm ára telpu frá heimili sínu á mánudag. 5.10.2012 06:21
Sýrlendingar báðust afsökunar Tyrkneska þingið samþykkti í gær heimild til hernaðaraðgerða gegn Sýrlandi, daginn eftir að sprengjuárás frá Sýrlandi varð fimm manns að bana í Tyrklandi. 5.10.2012 01:00
Segir rannsóknina ómarktæka Nýleg frönsk rannsókn, sem bendir til þess að ákveðinn erfðabreyttur maís og illgresiseyðirinn Roundup valdi æxlismyndun, er ekki byggð á nægilega sterkum vísindalegum grunni til þess að ástæða sé til endurskoðunar á Evrópulöggjöf. Þetta kemur fram í frumniðurstöðum Matvælastofnunar Evrópu (EFSA), sem tók málið fyrir að ósk framkvæmdastjórnar ESB, eftir útkomu rannsóknarinnar. 5.10.2012 01:00
Þriggja mínútna sorgarþögn í Hong Kong Íbúar Hong Kong minntust í morgun fórnarlamba sjóslyss sem kostaði 38 manns lífið á mánudaginn með þriggja mínútna þögn. 4.10.2012 10:45
Handhafar Nóbels kynntir í næstu viku Nóbelsverðlaunahafar þessa árs verða kynntir í næstu viku. Sem fyrr ríkir mikil spenna fyrir friðarverðlaunum Nóbels sem og Nóbelsverðlaunum í bókmenntum. 4.10.2012 10:30
April Jones enn leitað Leit stendur enn yfir að April Jones, fimm ára gamalli stúlku sem hvarf skammt frá heimili sínu í Wales á mánudag. Hátt í fjörutíu rannsóknarlögreglumenn koma að leitinni en talið er að telpan sé enn í nágrenni við heimabæ sinn. 4.10.2012 09:30
Kafa eftir leyndardómum Forngrikkja Fornleifafræðingar munu á næstunni rannsaka rómverskt skipsflak á hafsbotni við Grikkland. Þeim var heldur brugðið, veiðimönnunum sem uppgötvuðu flakið árið nítjánhundruð. Þeir tilkynntu yfirvöldum að hrúgu af dauðum og allsnöktum konum væri að finna á hafsbotni við eyjuna Antikythera. 4.10.2012 09:00
Kannabisplantan hentug til krabbameinslækninga Rannsókn lækna við háskólasjúkrahúsið í San Francisco hefur leitt í ljós að efnasamband, sem finna má í kannabisplöntunni, gæti komið í veg fyrir meinvörp og bylt krabbameinslækningum. 4.10.2012 08:30
Fyrstu kappræðurnar: Romney ótvíræður sigurvegari Forsetaefni Repúblikana fór með sigur úr býtum í fyrstu kappræðum fyrir kosningar. Það var hart tekist á í Denver í nótt þar sem Barack Obama, Bandaríkjaforseti, og Mitt Romney, forsetaefni Repúblikanaflokksins og fyrrum ríkisstjóri Massachusettsfylkis, mættust á sviði í fyrsta sinn. 4.10.2012 07:46
Átján börn grófust undir Átján börn grófust undir í skriðufalli í suðvestur Kína í nótt. Börnin voru í skólahúsi bæjarins þegar skriðan féll. Tvö önnur hús grófust einnig undir skriðunni. 4.10.2012 07:21
Hefur áhrif á viðhorf til skólans Háskóli Íslands er kominn í 276. sæti á lista Times Higher Education yfir bestu háskóla heims, sem birtur var í gærkvöld. 4.10.2012 06:00
Strauss-Kahn andar léttar Saksóknari í Frakklandi hefur hætt rannsókn á máli Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi yfirmanns Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem var grunaður um að hafa tekið þátt í hópnauðgun í New York. 4.10.2012 05:00
Mikil spenna fyrir kvöldið Það er óhætt að segja að spenna ríki fyrir fyrstu kappræðum forsetaframbjóðandanna í bandarísku forsetakosningunum, en kappræðurnar hefjast klukkan eitt að íslenskum tíma í nótt. 3.10.2012 22:02
Ráðningasamningur við Anders Fogh framlengdur Fulltrúar Atlantshafsbandalagsríkjanna 28 ákváðu á fundi í dag að framlengja ráðningasamning við Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóra bandalagsins um eitt ár. Ráðningasamningurinn átti að renna út þann 1. ágúst á næsta ári, en Anders Fogh mun gegna embættinu til 1. ágúst 2014 hið minnsta. 3.10.2012 12:17