Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sprautaði sósu á kærustuna fyrir að lesa "mömmuklám“ Það er óhætt að segja að skáldsagan Fifty Shades of Grey eftir rithöfundinn El James fari sigurför um allan heim. Bókin, sem hefur verið kölluð mömmuklám af gárungunum, hefur meðal annars orðið til þess að sérfræðingar í Bandaríkjunum búast við meiriháttar aukningu á barneignum þar í landi. Þannig er gert ráð fyrir ástleitnum afleiðingum skáldskaparins sem fjallar í örstuttu máli um konu sem á í ástarsambandi við hinn dularfulla Grey. 10.7.2012 22:00
Tetra Pak erfingi handtekinn vegna andláts eiginkonu sinnar Sonur mannsins sem fann upp útbreiddustu matvælaumbúðir veraldar hefur verið handtekinn eftir að eiginkona hans fannst látin á heimili þeirra hjóna í Lundúnum. Breski fréttavefurinn The Daily Mail greinir frá því að Hans Kristian Rausing, sonur Svíans Hans Rausing, hafi verið handtekinn í dag eftir að lögreglan fann eiginkonu hans látna á heimili þeirra. Svo virðist sem hún hafi látist af of stórum skammti lyfja eða fíkniefna. 10.7.2012 20:30
Tökur á Oblivion hafnar að nýju Tökur á myndinni Oblivion eru hafnar að nýju. Tökur stóðu yfir hér á Íslandi seinni hluta júnímánaðar, en Íslandstökunum lauk á mánudag í síðustu viku. 10.7.2012 16:41
Sérstakur dagur vegna offjölgunar mannkyns Dagur mannfjölda jarðarinnar (world population day) var haldinn í dag í því skyni að vekja athygli fólks á offjölgun mannkyns. Hugmyndin að deginum kviknaði þann 11. júlí árið 1987, sem er nokkurn veginn sá dagur sem íbúafjöldi jarðarinnar náði fimm milljörðum. Nú eru íbúar jarðarinnar um það bil 7.025.071.966. 10.7.2012 15:50
Stríðsherra dæmdur fyrir að nota börn í hernað Thomas Lubanga er stríðsherra frá Kongó sem notaði börn sem hermenn. Hann var í dag dæmdur til 14 ára fangelsisvistar fyrir Alþjóðlega sakamáladómstólnum. Þetta er fyrsti dómurinn sem fellur hjá dómstólnum. 10.7.2012 15:37
Gíslar í haldi í barnaskóla Vopnaður maður tók gísla í barnaskóla í rétt sunnan við París í morgun. Upphaflega voru börn meðal gíslanna en nú virðist sem aðeins einn fullorðinn einstaklingur sé í haldi. 10.7.2012 09:25
Heitasta árið í Bandaríkjunum frá 1895 Bandaríkjamenn upplifa nú heitasta árið í sögu sinni frá því að nútímaskráning á veðurfari hófst þarlendis árið 1895. 10.7.2012 06:44
Töluverð aukning á amfetamínsmygli til Danmerkur Lögreglan í Danmörku lagði hald á samtals 240 kíló af amfetamíni í fyrra. Þetta er mesta magn af þessu fíkniefni sem náðst hefur á einu ári undanfarin 12 ár. 10.7.2012 06:35
Orsökin líklega gin- og klaufaveiki Læknar telja líklegt að gin- og klaufaveiki sé valdur að miklum barnadauða í Kambódíu. Uppruni veikindanna liggur þó ekki endanlega fyrir. Veikindin eru sögð hafa dregið 57 börn til dauða á síðustu fjórum mánuðum. Flest hafa börnin verið á aldrinum tveggja til þriggja ára og aðeins eitt lifað sjúkdóminn af. 10.7.2012 02:00
Forsetinn og herinn takast á um völdin Hæstiréttur Egyptalands gerði að engu í gær tilskipun forsetans, Mohammeds Morsi, um að þingið kæmi aftur saman. Hæstiréttur hafði úrskurðað þingið ólöglegt, þar sem ágallar hefðu verið á kosningunum. Forsetinn tilkynnti hins vegar á sunnudag að þingið kæmi saman á ný. 10.7.2012 01:00
Assad ánægður með friðaráætlun Kofi Annan, sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna, og Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, sögðu að loknum fundi sínum í Damaskus í gær að viðræður þeirra hefðu verið uppbyggjandi, að því er greint var á vef sænska ríkisútvarpsins. 10.7.2012 00:00
Tom og Katie semja um skilnað - Cruise fær að umgangast Suri Tom Cruise og Katie Holmes hafa komist að samkomulagi vegna skilnaðar síns sem Katie sótti um fyrir um tveimur vikum síðan. Eins og kunnugt er var leikarinn staddur hér á landi við tökur á kvikmyndinni Oblivion þegar Katie sótti um skilnað í New York. Fregnirnar virtust hafa komið stórleikaranum í opna skjöldu, enda sást síðast til þeirra hér á landi um miðjan júní þar sem allt virtist vera í himnalagi. 9.7.2012 23:30
Leðurblökumaðurinn þarf stærri skikkju að mati eðlisfræðinema Nokkrir nemar í eðlisfræði í háskólanum í Leicester í Bretlandi hafa reiknað út að ofurhetjan Batman gæti hugsanlega svifið, en fallið myndi verða honum að bana. Þannig tóku nemarnir út atriði úr kvikmyndinni Batman Begins, en þar má sjá ofurhetjuna svífa töluverða vegalengd og lenda svo óskaddaða eins og ofurhetjum er tamt. 9.7.2012 20:30
Námsumsóknum fækkar eftir hækkun skólagjalda Umsóknir um háskólanám í Bretlandi eru 7,7% færri í ár en í fyrra eftir að skólagjöld hækkuðu í landinu. 9.7.2012 14:52
Þingið kemur ekki aftur saman í Egyptalandi Hæstiréttur í Egyptalandi sneri í dag við ákvörðun hins nýkjörna forseta landsins, Mohammed Mursi, um að þingið í landinu kæmi aftur saman og fengi að sitja þar til nýjar kosningar fara fram. 9.7.2012 14:24
Réttarhöld yfir Mladic halda áfram Réttarhöldin yfir slátraranum frá Bosníu, Ratko Mladic, hófust aftur í dag með vitnaleiðslum í Haag fyrir Alþjóðadómstólnum um stríðsglæpi í fyrrum Júgóslavíu. 9.7.2012 14:05
Eurovision í Malmö á næsta ári Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í Malmö á næsta ári. Sænska ríkissjónvarpið greindi frá þessu í gær. Á vef söngvakeppninnar kemur fram að mikill áhugi hafi verið á því að halda keppnina en bæði yfirvöld í Malmö og Stokkhólmi höfðu áhuga á því að halda keppnina. "Þetta var ekki auðveld ákvörðun,“ segir Martin Österdahl, framleiðslustjóri keppninnar. 9.7.2012 10:33
Oxfam samtökin græddu 20 milljónir á sigri Federer Bresku góðgerðarsamtökin Oxfam nutu óvænt góðs af því að Roger Federer vann einliðaleik karla á Wimbledon tennismótinu í gærdag. 9.7.2012 06:35
Fundu prótein sem ver krabbamein gegn geislameðferð Vísindamenn hjá Krabbameinsmiðstöð Danmerkur hafa fundið prótein sem gerir það að verkum að krabbameinsfrumur geta lifað af geislameðferð þá sem notuð hefur verið til að drepa frumurnar. 9.7.2012 06:49
Þjóðarsorg í Rússlandi í dag Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Rússlandi í dag vegna flóðanna í Krasnodar í suðurhluta landsins fyrir helgina. 9.7.2012 06:43
Obama með forskot á Romney í lykilríkjum Ný skoðanakönnun í Bandaríkjunum sýnir að Barack Obama Bandaríkjaforseti er með 2 prósentustiga forskot á keppninaut sinn Mitt Romney í tólf lykilríkjum fyrir forsetakosningarnar í haust. 9.7.2012 06:38
Hollywoodleikarinn Ernst Borgnine er látinn Hollywoodleikarinn og Óskarsverðlaunahafinn Ernst Borgnine er látinn 95 ára að aldri. Dánarmein hans var nýrnabilun. 9.7.2012 06:31
Felldu vantrausttilögu gegn grísku stjórninni Ríkisstjórn Grikklands stóð af sér vantrausttilögu á gríska þinginu um helgina og eyddi þar með margra mánaða óvissu í grískum stjórnmálum. 9.7.2012 06:22
Assad segir Bandaríkjamenn stuðla að áframhaldandi óöld Bashar al-Assad, Sýrlandsforseti, sakar nú yfirvöld í Bandaríkjunum um að styðja við bakið á glæpahópum í landinu. Hann segir þetta vera liður í áætlun Bandaríkjunum um að viðhalda óstöðuleika í Sýrlandi. 8.7.2012 20:07
Mursi býður herforingjaráðinu birginn Það stefnir í hart milli Mohammed Mursi, nýkjörins forseta Egyptalands, og herforingjaráðs landsins. Mursi hefur nú kallað þingið saman á ný, rúmum mánuði eftir að hershöfðingjarnir leystu það frá störfum. 8.7.2012 17:57
Þúsundir tapa internetaðgangi á morgun Að minnsta 350 þúsund tölvur munu glata aðgangi sínum að veraldarvefnum á morgun. Þetta tilkynnti Alríkislögreglan í Bandaríkjunum fyrr í vikunni. 8.7.2012 14:30
Þetta er útsýnið á Mars Rannsóknarvélmennið Opportunity hefur nú ferðast um sléttur Mars í 3 þúsund daga. Sendiförin átti upphaflega að taka 90 daga en litla vélmennið heldur þó ótrautt áfram. 8.7.2012 11:12
Niðurstöðu beðið í Líbíu Kjörsókn í kosningunum í Líbíu í gær var 60%. Þetta voru fyrstu frjálsu kosningarnar í landinu í rúma hálfa öld en kosið var um bráðabirgðaþing sem á að velja forsætisráðherra og ríkisstjórn. 8.7.2012 10:45
Afganistan fær milljarða í aðstoð Nokkur af helstu iðnríkjum heims hafa heitið því að veita Afganistan rúmlega 16 milljarða dollara í þróunaraðstoð á næstu árum, eða það sem nemur 2.000 milljörðum íslenskra króna. 8.7.2012 10:30
Þjóðverjar treysta Merkel Angela Merkel, Þýskalandskanslari, nýtur vaxandi trausts og vinsælda heimafyrir þótt mikið hafi mætt á henni í björgunaraðgerðum á evrusvæðinu að undanförnu og eftir að hafa legið undir harðri gagnrýni fyrir að hafa slakað að nokkru leyti á ströngum kröfum sem hún hafði sett fyrir fjárhagslegri aðstoð handa ríkjum í skuldavanda. 8.7.2012 10:05
Flóð í Rússlandi - 134 látnir Að minnsta kosti 134 eru látnir eftir skyndiflóð í Krasnodar-héraðinu í suðurhluta Rússlands. Þetta ein skelfilegustu flóð í manna minnum á þessu svæði. 7.7.2012 23:30
Tanishq - Níu ára gamall stjarneðlisfræðingur Tanishq Abraham er enginn venjulegur piltur. Þessi níu ára gamli drengur mun nefnilega ljúka við háskólanám sitt á næstu mánuðum. 7.7.2012 23:00
Tala látinna í Rússlandi hækkar Tala látinna í skyndiflóðunum í Krasnodar-héraðinu í suðurhluta Rússlands heldur áfram að hækka. Nú áætla yfirvöld á svæðinu að 87 manns hafi látist í flóðunum. 7.7.2012 14:31
Skiptar skoðanir um Glerbrotið Hæsti skýjakljúfur Evrópu, The Shard, var opinberaður í Lundúnum í vikunni. Byggingin er 309.6 metrar á hæð og gnæfir yfir borginni. Ekki eru þó allir sáttir með þetta ótrúlega mannvirki. 7.7.2012 11:09
Kosið í Líbíu Fyrstu frjálsu kosningarnar í meira en hálfa öld fara fram í Líbíu í dag. Kjósa á bráðabirgðaþing sem fær það verkefni að velja ríkisstjórn og forsætisráðherra. 7.7.2012 10:30
Afganistan og Bandaríkin bandalagsþjóðir Bandaríkin hafa útnefnt Afganistan sem nána bandalagsþjóð sína utan Atlantshafsbandalagsins. 7.7.2012 09:43
Clinton vill þrýsting á Rússa Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi rússnesk og kínversk stjórnvöld harðlega fyrir að standa í vegi fyrir því að alþjóðasamfélagið geti beitt Sýrlandsstjórn meiri þrýstingi. 7.7.2012 03:00
Flestir flokkarnir boða íslamskt ríki Líbíumenn hafa margir beðið óþreyjufullir eftir því að fá nýja stjórn í staðinn fyrir bráðabirgðaráðið sem stjórnað hefur landinu frá því Múammar Gaddafí var steypt af stóli síðasta sumar. 7.7.2012 02:00
Flóðaviðvaranir í Bretlandi vegna rigningar Flóðaviðvaranir hafa verið gefnar út í Bretlandi vegna úrhellisrigningar sem búist er við í landinu næsta sólarhringinn. Veðurfræðingar segja útlit fyrir verstu veðurskilyrði ársins í nótt og á morgun og segja líkur á að meira rigni næsta sólarhringinn en venjulega rignir í heilum mánuði. 6.7.2012 23:52
Pena Nieto forseti Mexíkó eftir endurtalningu Nú er staðfest að Enrique Pena Nieto er forseti Mexíkó eftir að um helmingur atkvæðanna úr forsetakosningunum síðustu helgi hefur verið tvítalinn. Lopez Obrador sem lenti í öðru sæti taldið að kosningalög hefðu verið brotin og fór fram á endurtalningu. 6.7.2012 21:04
Tóku rangar ákvarðanir Sambland bilunar í búnaði og mannlegra mistaka varð til þess að frönsk farþegaþota hrapaði í Atlantshaf 2009. Kröfur um að bæta þjálfun flugmanna. 6.7.2012 08:00
Yfir 180 börnum bjargað úr klóm glæpamanna í Kína Lögreglan í Kína hefur upprætt tvo stóra glæpahringi í landinu sem sérhæfðu sig í mansali á börnum. Jafnframt var yfir 180 börnum bjargað úr klóm þessara glæpamanna. 6.7.2012 06:56
Los Angelsbúar kjósa um smokka í klámmyndum Íbúar í Los Angeles munu kjósa um hvort lögleiða eigi smokka í klámmyndum samhliða forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember n.k. 6.7.2012 06:51
Fundu listaverkafjársjóð í höll í Mílanó Ítalskir listfræðingar hafa fundið um 100 teikningar og málverk eftir hinn þekkta endurreisnarmálara Caravaggio. Verkin fundust í höll í borginni Mílanó. 6.7.2012 06:47
Mikið þrumuveður og úrhelli hrjáir Dani í dag Mikið þrumuveður og úrhelli mun hrjá íbúa Danmerkur víðast hvar í landinu í dag. Talið er að úrkoman á sumum stöðum muni nema allt að 30 millimetrum á klukkutímann. 6.7.2012 06:43