Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mannskæð sprengjuárás í Pakistan Að minnsta kosti 12 féllu og 35 særðust í sjálfsmorðsprengjuárás á markaði í bæ skammt frá borginni Peshawar í Pakistan í morgun. Talið er að tilræðinu hafi verið beint bæjarstjóranum sem var staddur á markaðnum þegar sprengjan sprakk en hann var meðal hinna látnu. Fram kemur á vef BBS að bæjarstjórinn hafi verið mikill andstæðingur Talibana. 8.11.2009 13:10
Obama: Söguleg niðurstaða Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í nótt umdeilt frumvarp Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um breytingar á heilbrigðiskerfinu þar í landi. Sjálfur segir Obama að niðurstaðan sé söguleg. Hann er sannfærður um að öldungadeildin samþykki frumvarpið á næstu vikum og vonast til þess að það verði orðið að lögum fyrir áramót. 8.11.2009 12:38
Umbótafrumvarp Obama samþykkt Fulltrúadeild bandaríska þingsins samþykkti í nótt umdeilt frumvarp Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, um breytingar á heilbrigðiskerfinu þar í landi. Það þykir mikill sigur fyrir Obama að frumvarpið hafi verið samþykkt. 8.11.2009 10:02
Heilbrigðisráðherrann bólusettur í beinni Bólusetning gegn svínaflensu hófst í Saudi-Arabíu í gær þegar heilbrigðisráðherra landsins var bólusettur fyrstur landsmanna. Atburðinum var sjónvarpað um land allt en með sjónvarpsútsendingunni vildu yfirvöld draga úr ótta almennings við bólusetningu gegn flensunni. Auk þess er það vilji ráðamenn að reyna að koma í veg fyrir að fjöldi pílagríma sem eru á leið til lSaudi-Arabíu smitist af svínaflensu eða dreifi henni séu þeir sýktir. Pílagrílmarnir verða að öllum líkindum sprautaðir þegar þeir koma til landsins. 8.11.2009 06:45
Pelosi: Fulltrúadeildin mun samþykkja umbótafrumvarpið Demókratinn Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, fullyrðir að fulltrúadeildin muni samþykkja umdeilt frumvarp Bandaríkjaforseta um umbætur í heilbrigðiskerfinu. Að auki lýsti repúblíkaninn Mike Pence því yfir í gær að barátta repúblíkana væri töpuð og að frumvarpið yrði að lögum. Um leið og hann gaf út þessa yfirlýsingu fordæmdi hann frumvarpið og vinnubrögð demókrata. 8.11.2009 04:30
Brown vill nýjan skatt til auka ábyrgð bankanna Forsætisráðherra Bretlands vill skoða hvort skattleggja eigi sérstaklega millifærslur fjármálafyrirtækja til að koma í veg fyrir aðra krísu í fjármálaheiminum. 7.11.2009 16:33
Ísraelar áhyggjufullir vegna yfirlýsinga Abbas Háttsettir embættismenn í Ísrael eru áhyggjufullir vegna nýlegra yfirlýsinga Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, um að bjóða sig ekki fram til endurkjörs í forsetakosningunum sem haldnar verða í janúar næstkomandi. Þeir telja að hugsanlegt brotthvarf Abbas muni koma til með að torvelda allar friðarviðræður á svæðinu. 7.11.2009 14:45
Seld strax eftir fæðingu Eins árs gömul stúlka sem talið er að læknar hafi selt strax eftir fæðingu er nú komin aftur til móður sinnar í Mexíkóborg. Læknarnir sögðu móðurinni að stúlkan hefði látist skömmu eftir fæðingu. 7.11.2009 12:46
Obama segir þjóðina syrgja Barack Obama, Bandaríkjaforseti, vottaði í vikulegu ávarpi sínu í dag aðstandendum fórnarlambanna í skotárásinni í herstöðinni í Fort Hood samúð sína. Hann sagði bandarísku þjóðina alla syrgja og þá bar hann lof á viðbrögð hermenn og óbreytta borgara eftir skotárásina sem komu særðum til hjálpar. 7.11.2009 10:03
Óvissa um framhaldið hætti Abbas Bernard Kouchner, utanríkisráðherra Frakklands, segir það ógna friðnum geri Mahmoud Abbas alvöru úr yfirlýsingum sínum um að bjóða sig ekki fram til næsta kjörtímabils. 7.11.2009 04:00
Byssumaður á sjúkrahúsi Nidal Malik Hasan, majór í bandaríska hernum, var fluttur á sjúkrahús strax á fimmtudagskvöld eftir að hann hafði drepið þrettán manns og sært tugi annarra í herstöðinni Fort Wood í Texas. 7.11.2009 04:00
Óhjákvæmilegt að Ísraelar ráðist á Íran Hvorki Vesturlönd né Ísrael trúa því að kjarnorkuáætlun Íraks sé friðsamleg. Síðast í dag var uppýst að Íranar væru að gera tilraunir með nýja tegund kjarnaodda til þess að setja í eldflaugar. 6.11.2009 15:49
Stálu þúsund ferðatöskum Hjón í Arizona hafa verið handtekin fyrir að stela um eittþúsund ferðatöskum af færiböndum á flugvellinum í Phoenix. 6.11.2009 11:34
Talibanar sprengja enn einn stúlknaskólann Talibanar sprengdu í gær upp stúlknaskóla í Khyber í Pakistan. Það er annar stúlknaskólinn sem þeir hafa sprengt í þessari viku en alls hafa þeir sprengt yfir 200 skóla. 6.11.2009 10:11
Saudi-Arabía gerir loftárásir í Yemen Flugher Saudi-Arabíu hefur gert stórfelldar loftárásir á búðir skæruliða í nágrannaríkinu Yemen. 6.11.2009 10:07
Öryggisvörður hvarf með 10 milljónir evra Lögregla í Frakklandi leitar nú dyrum og dyngjum að öryggisverði sem gerði sér lítið fyrir og ók á brott í peningaflutningabíl með 10 milljónir evra. 6.11.2009 08:40
Ákærðir fyrir að vera tengiliðir hryðjuverkamanna Gefnar hafa verið út ákærur á hendur tveimur mönnum í Massachusetts fyrir að vera tengiliðir við hryðjuverkamenn og vera þeim til aðstoðar. 6.11.2009 07:18
Danskir stöðumælaverðir á hryðjuverkavakt Stöðumælaverðir Kaupmannahafnar munu á næstunni hljóta sérstaka þjálfun í að bera kennsl á grunsamlega aðila og koma í veg fyrir hryðjuverk og árásir. 6.11.2009 07:12
Vilja útskýringar á tilraunum Írana Alþjóðakjarnorkumálastofnunin hefur farið fram á að írönsk yfirvöld útskýri hvernig á því stendur að vísindamenn í Íran hafi verið að gera tilraunir með nýja tegund kjarnaodda en allt bendir til þess að svo hafi verið. 6.11.2009 07:09
Sarkozy biður forsetafrúna að hafa sig hæga Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hefur beðið eiginkonu sína, Cörlu Bruni-Sarkozy, um að taka vinsamlegast ekki þátt í stjórnmálaumræðu í fjölmiðlum. 6.11.2009 07:08
Tólf manns liggja í valnum í Fort Hood - morðinginn á lífi Tólf manns liggja í valnum og yfir 30 eru særðir eftir að hermaður gekk berserksgang í Fort Hood-herstöðinni í Texas í gær. Maðurinn, Nidal Malik Hasan, er majór að tign og starfar sem geðlæknir í herstöðinni. 6.11.2009 07:03
Kastar rússneskum borgararétti Utanríkisráðherra Georgíu hefur afsalað sér rússneskum ríkisborgararétti og skorið á fyrri tengsl við Moskvu. 6.11.2009 05:45
Grunað um tvö morð í janúar Rússneska lögreglan hefur handtekið mann og konu sem grunuð eru um aðild að skotárás í Moskvu í janúar, þegar mannréttindalögmaðurinn Stanislav Merkelov og blaðakonan Anastasia Baburova voru myrt. 6.11.2009 05:00
Tölurnar sagðar niðurdrepandi „Danska hagstofan hefur komið af stað mjög niðurdrepandi umræðu vegna talna um fjölda gjaldþrota og nauðungaruppboða,“ segir í frétt danska viðskiptablaðsins Børsen í gær. 6.11.2009 04:00
Árás vekur óhug Breta „Hvers konar stríð er þetta?“ spurði breska dagblaðið Daily Mail í fyrirsögn á forsíðu í gær, daginn eftir að fimm breskir hermenn voru skotnir til bana í Afganistan. Árásarmennirnir voru afganskir lögreglumenn, sem tóku upp vopn sín þegar Bretarnir voru að hita sér te. 6.11.2009 02:00
Enn dælt fé í efnahagslífið Evrópski seðlabankinn og Englandsbanki, seðlabanki Bretlands, ákváðu báðir að halda stýrivöxtum óbreyttum í gær. Á sama tíma héldu þeir áfram að dæla fjármagni inn í hagkerfið með ýmsu móti, svo sem til að liðka fyrir útlánavexti. Stýrivextir á evrusvæðinu standa í einu prósenti. Vextir Englandsbanka eru hálft prósent. 6.11.2009 01:15
12 látnir - 31 særðir eftir skotárás í Bandaríkjunum 12 einstaklingar eru látnir og 31 er slasaður eftir skotárásirnar sem átti sér stað í Fort Hood klukkan 13:30 að staðartíma. Einn árásarmannanna hefur verið skotinn til bana og búið er að handtaka tvo aðra menn. 5.11.2009 21:23
Kengúrur kvelja Ástrala Það hefur ekki rignt í vesturhluta Queensland í marga mánuði og gróður er allur skrælnaður. Banhungruð kengúrugreyin flykkjast því inn í bæi á nóttunni þar sem þær nærast í görðum og á umferðareyjum og hvar sem er stingandi strá að finna. 5.11.2009 16:44
Abbas vill hætta -mikið áfall Mahmoud Abbas forseti palestínumanna mun ekki gefa kost á sér til endurkjörs í forsetakosningum sem haldnar verða í janúar næstkomandi, að sögn aðstoðarmanna. 5.11.2009 15:46
Vilja svarta kassa í bíla Evrópusambandið íhugar að setja reglur um að svokallaðir svartir kassar skuli settir í bíla. Þeir myndu gegna svipuðu hlutverki og flugritar í flugvélum en þaðan er nafnið svarti kassinn komið. 5.11.2009 15:30
Fjöldamorðingi fær ekki lausn gegn tryggingu Bandaríski fjöldamorðinginn Anthony Sowell fær ekki að ganga laus gegn tryggingu þartil réttarhöldin yfir honum hefjast. 5.11.2009 14:45
Vill búa í Boeing breiðþotu Norskur flugstjóri hefur sótt um lóð fyrir fjögurra hreyfla Boeing 747 breiðþotu í smábænum Farsund á suðurströnd Noregs. 5.11.2009 14:04
Al Gore að verða kolefnis-milljarðamæringur Al Gore fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna gæti orðið fyrsti græni milljarðamæringur heimsins. Hann hefur fjárfest vel í fyrirtækjum sem teljast græn og það er að skila sér margfallt aftur. 5.11.2009 11:00
Talibanar í afgönsku lögreglunni Breskir hermenn sem hafa gegnt herþjónustu í Afganistan segja ófagrar sögur af afgönskum lögreglumönnum. 5.11.2009 10:27
Milljónir skoða myndband af Madeleine Fjórar milljónir manna skoða dag hvern einnar mínútu myndband af bresku telpunni Madeleine McCann, sem sett var á netið fyrr í vikunni. 5.11.2009 09:36
Jesú-kynskiptingur vekur bræði í Glasgow Leikrit sem nú er sýnt í Glasgow og sýnir Jesú sem kynskipting hefur vakið reiðiöldu. 5.11.2009 08:43
Magn geimrusls stefnir í óefni Vísindamenn hafa töluverðar áhyggjur af auknu magni alls konar rusls í geimnum og áhrifum þess á geimferðir framtíðarinnar. 5.11.2009 07:18
Hitabeltisstormurinn Ída geisar í Nicaragua Mikil rigning er nú í Nicaragua í Mið-Ameríku vegna hitabeltisstormsins Ídu sem þar geisar. Viðvörun hefur verið gefin út vegna hættu á aurskriðum og talin er nokkur hætta á að Ída þróist yfir í fellibyl á næstu 36 klukkustundum. 5.11.2009 07:16
SÞ flytja 600 manns tímabundið frá Afganistan Sameinuðu þjóðirnar hyggjast flytja hluta af starfsmönnum sínum í Afganistan, 600 í allt, frá landinu á meðan gerðar eru ráðstafanir til að auka öryggi á dvalarstöðum þeirra. 5.11.2009 07:13
Sviðsetti mannrán í kúgunarskyni Auðug húsmóðir í Flórída hefur verið ákærð fyrir að sviðsetja mannrán með það fyrir augum að kúga fé út úr vellauðugum eiginmanni sínum. 5.11.2009 07:11
Kom of seint í eigin jarðarför Ættingjum Brasilíumannsins Ademirs Jorge Goncalves brá í brún þegar hann mætti í sína eigin jarðarför - og það sprelllifandi. 5.11.2009 07:05
Langþráður sigur repúblikana Demókratar töpuðu ríkisstjórakosningum í Virginíu og New Jersey, sem haldnar voru í gær. Robert Gibbs, fréttafulltrúi Bandaríkjaforseta, sagði þetta tap samt ekki segja neitt um stöðu Baracks Obama, því kosningarnar hefðu snúist að mestu um innanríkismálefni. 5.11.2009 06:00
Vilja bæta samskipti þjóðanna Kurt Campell, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, hitti Aung San Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Myanmar í gær og ræddi við hana í tvær klukkustundir á hóteli þar í landi í gær. 5.11.2009 04:45
Frakkar kjósa í mars á næsta ári Sveitarstjórnarkosningar fara fram í Frakklandi 14. og 21 mars næstkomandi. Kosningarnar eru sagðar fyrsti prófsteinninn á stöðu UMP, flokks Nicolas Sarkozy, frá kjöri hans til forseta árið 2007. Vinstriflokkar höfðu yfirburðasigur árið 2004, með meirihluta í 20 af 22 kjördæmum. 5.11.2009 03:45
Loftslagsviðræður á síðasta snúningi Fulltrúar Afríkuríkja vilja að auðug ríki útskýri hvernig þau hugsi sér að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, náist um það bindandi samkomulag á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn í næsta mánuði. Óttast er að ekkert verði úr slíku samkomulagi. Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði í gær engar líkur á því að fyrir áramót næðist neitt samkomulag sem fæli í sér lagalega skuldbindingu, eins og Evrópuríki hafa barist fyrir. 5.11.2009 01:45