Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verk Martins Luther King endurútgefin Samningar hafa nú náðst milli bókaútgefandans Beacon Press og fjölskyldu blökkumannaleiðtogans Martins Luther King um að endurútgefa bækur og ýmis skrif leiðtogans sem ófáanleg hafa verið árum saman. 23.6.2009 07:25
Fellibyljavertíðin gengur í garð Hitabeltisstormurinn Andrés geisaði við Kyrrahafsströnd Mexíkó í gær með allt að 100 kílómetra vindhraða á klukkustund. 23.6.2009 07:22
Merki heyrast frá flugritum Air France Björgunaraðilar á vettvangi Air France-slyssins í Atlantshafi hafa nú numið merki frá flugritum vélarinnar, hinum svonefndu svörtu kössum. 23.6.2009 07:20
Mannskæðasta lestarslys í sögu Washington Að minnsta kosti níu eru látnir og tugir slasaðir eftir að tvær neðanjarðarlestir skullu saman skammt norður af miðborg Washington á háannatíma í gær. 23.6.2009 07:17
Búast við öldu ofbeldisverka í Írak Hinn þrítugasta þessa mánaðar munu langflestir bandarísku hermannanna sem eftir eru í Írak yfirgefa borgir og bæi og flytja inn í stórar herstöðvar utan við Bagdad og aðrar stórborgir. 22.6.2009 18:30
Sólstöðum fagnað við Stonehenge Stonehenge var reist í þrem áföngum á árunum þrjúþúsund til sextánhundruð fyrir Krist. 22.6.2009 17:49
Bretar kalla fjölskyldur heim frá Íran Breska utanríkisráðuneytið hefur kallað fjölskyldur starfsmanna sendiráðsins í Íran heim vegna óróleika í landinu í kjölfar forsetakosninganna. Starfsmenn sendiráðsins munu dvelja áfram í Íran og sinna störfum sínum. 22.6.2009 15:21
Íranir endurskoða tengslin við Breta Utanríkismálanefnd íranska þingsins, lagði í dag að utanríkisráðuneytinu, að endurskoða tengslin við Bretland vegna óviðurkvæmilegra afskipta af hinum umdeildu forsetakosningum. 22.6.2009 12:17
Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir fjöldamorð í Rúanda Fyrrverandi innanríkisráðherra Afríkuríkisins Rúanda hefur verið dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að leiða þúsundir manna í gildru þar sem þeir voru myrtir. 22.6.2009 12:14
Búið að bera kennsl á 11 farþega úr Air France-slysinu Búið er að bera kennsl á ellefu af þeim 50 líkum sem fundist hafa eftir að farþegaþota Air France fórst í Atlantshafi 1. júní síðastliðinn. 22.6.2009 08:41
Á hlut í banka og er rammskyggn Ríkasta kona Ísraels, Shari Arison, sem meðal annars á ráðandi hlut í næststærsta banka landsins, sagðist í sjónvarpsviðtali við ísraelska sjónvarpsstöð á laugardaginn fá skilaboð frá almættinu og auk þess sjá óorðna atburði fyrir. 22.6.2009 08:28
Mousavi hvetur mótmælendur í Íran Mir Hossein Mousavi, forsetaframbjóðandi og leiðtogi írönsku stjórnarandstöðunnar, hvetur fylgismenn sína til að halda áfram mótmælum gegn endurkjöri Mahmoud Ahmadinejad forseta. 22.6.2009 08:15
Fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins hefst í dag Alþjóðahvalveiðiráðið fundar í Portúgal í dag og fram á föstudag. Samkvæmt breska ríkisútvarpinu BBC mega Íslendingar búast við harðri gagnrýni vegna hvalveiða sinna en einnig kemur þar fram að Japanar muni sækjast eftir leyfi til að veiða allt að 150 hrefnur á vissum svæðum þar sem hvalveiðar eigi sér áralanga hefð. 22.6.2009 08:12
Rússar njósna um þýsk orkufyrirtæki Rússneskir njósnarar beina nú augum sínum að þýskum orkufyrirtækjum í leit að aðferðum til að auka afkastagetu sinna eigin fyrirtækja. 22.6.2009 07:35
Bandaríkjaher í viðbragðsstöðu vegna Norður-Kóreu Bandaríkjaher er í viðbragðsstöðu og reiðubúinn til aðgerða skjóti Norður-Kóreumenn eldflaug í átt að Hawaii. 22.6.2009 07:33
Slapp naumlega undan skotárás Rúmlega tvítugur maður í danska bænum Brøndby slapp naumlega í gær þegar hópur manna skaut fjórum eða fimm skotum að honum úr skammbyssu. 22.6.2009 07:32
Tölvuglæpir kosta rúma 100 milljarða dollara Hvers kyns tölvuglæpir kosta fyrirtæki og tölvunotendur rúmlega 100 milljarða dollara á ársgrundvelli. Þetta er mat fyrirtækisins Panda Security sem sérhæfir sig í vírusvörnum og tölvuöryggismálum. 22.6.2009 07:29
Skemmdarverk á olíuleiðslum í Nígeríu Þrjár tilraunir voru gerðar til að vinna skemmdarverk á olíuleiðslum Royal Dutch Shell í austurhluta Nígeríu í gær. Ráðist var á leiðslurnar fjarri næstu mannabústöðum sem torveldaði rannsókn málsins nokkuð og er enn ekki vitað hve mikið tjón var unnið. 22.6.2009 07:26
Hættulegur mafíósi handtekinn Ítalski mafíósinn Salvatore Miceli var handtekinn í Venesúela eftir að hafa verið á flótta frá réttvísinni síðan 2001. Miceli var á lista ítölsku lögreglunnar yfir þrjátíu hættulegustu menn landsins. 21.6.2009 20:26
Rólegra í Teheran Ró færðist yfir götur Teheran í Íran í dag eftir að ríkissjónvarpsstöðin þar í landi greindi frá því að tíu til viðbótar hafi látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær. Sjónvarpsstöðin greindi líka frá því lögregla hafi handtekið dóttur og fjóra aðra ættinga fyrrverandi forseta landsins, Hashemi Rafsanjani, í gær. Rafsanjani er einn valdamesti maður landsins. 21.6.2009 18:42
Líkin frá Írak voru breskir gíslar Bresk yfirvöld hafa nú staðfest að líkin tvö sem þau fengu afhent í gær frá Írak séu af breskum ríkisborgurum sem teknir voru í gíslingu árið 2007. 21.6.2009 15:56
Kalla alnæmisskimun „ástarprufur“ Alþjóðlegu góðgerðasamtökin PSI reyna nú nýjar leiðir til að vinna gegn HIV í Svasílandi í Afríku. Þau segjast vilja færa sig burt frá hræðsluáróðri, sem samtökin segja að virki ekki, og einbeita sér frekar að ástinni. 21.6.2009 14:34
Ungir drengir handteknir vegna hatursglæpa Tveir unglingspiltar hafa verið handteknir í tengslum við óhuggulegar árásir á heimili sígauna í borginni Belfast á Norður Írlandi í síðustu viku. Drengirnir verða kærðir fyrir óspektir og ógnandi hegðun. 21.6.2009 12:07
Mótmælendur deyja í Íran Ríkissjónvarpsstöðin í Íran greindi frá því í gær að þrettán hefðu látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær í miðborg Teheran í Íran. Fréttastofur á borð við CNN segja þó að tala látinna sé mun hærri. 21.6.2009 10:10
Grænlendingar fá aukna sjálfsstjórn Grænlendingar fá aukna sjálfsstjórn í dag þegar Margrét Þórhildur Danadrottning afhendir þeim lög sem kveða formlega á um fullveldi landsins. Þetta þýðir að Grænlendingar fá auknar tekjur af auðlindum sínum og yfirráð yfir dóms- og lögreglumálum. Grænlenska, eða Kalaallisut, verður einnig opinbert tungumál. 21.6.2009 10:02
63 létust í bílasprengju Að minnsta kosti 63 létust og tvöhundruð særðust þegar bílasprengja sprakk utan við mosku Sjíta múslima í norðanverðu Írak í gær. Sprengjan er sú mannskæðasta í tæpa tvo mánuði. 21.6.2009 09:00
Þjónustustúlka myrt í vopnuðu ráni Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í bandarísku borginni Albuquerque er einn starfsmaður Denny‘s veitingahúsakeðjunnar látinn eftir vopnað rán í gærmorgun. 21.6.2009 08:00
Akrópólis-safnið opnað í Grikklandi Hið nýja Akrópólis-safn í Aþenu hefur nú loks verið opnað eftir langa bið innfæddra. Byggingin er öll hin nýtískulegasta og stendur við rætur Akrópólishæðarinnar. Byggingin kostaði 130 milljónir evra, eða rúma 23 milljarða króna. 21.6.2009 07:00
Hluti atkvæða endurtalinn í Íran Byltingarráðið í Íran hefur ákveðið að endurtelja tíu prósent atkvæða í þeim tilgangi að róa mótmælendur sem halda því fram að niðurstöður kosninganna 12. júní síðastliðinn séu rangar. Tugir þúsunda mótmæltu í dag í miðborg Teheran í Íran. 20.6.2009 18:49
Eyddu milljón í eitt sælgætisbréf Breska unglisstúlkan Larissa Wilkinson slapp með skrekkinn þegar dómari bjargaði henni frá að greiða 75 punda sekt, andvirði tæplega 16.000 króna, fyrir að henda rusli út um bílglugga. Raunar gerði dómarinn gott betur en það – hann hellti sér yfir saksóknarann í málinu fyrir sóun á fé skattgreiðenda. 20.6.2009 18:16
Sameinuðu þjóðirnar rannsaka morðið á Bhutto Óháð rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna kemur til með að rannsaka morðið á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans. Bhutto var vegin í desember árið 2007 í aðdraganda þingkosninga landsins. 20.6.2009 13:00
Steve Jobs fékk nýja lifur Steve Jobs, yfirmaður Apple, þurfti á lifrarígræðslu að halda fyrir tveimur mánuðum ef marka má heimildir Wall Street Journal. Samkvæmt blaðinu mun Jobs snúa aftur til vinnu síðar í mánuðinum, en mun hugsanlega fara rólega af stað. 20.6.2009 11:45
Bardagar í höfuðborg Sómalíu Annan daginn í röð geysa miklir bardagar í Mogadishu, höfuðborg Afríkuríkisins Sómalíu. Íslamistar í landinu hafa gert uppreisn gegn ríkisstjórn lansdins og hertóku meðal annars lögreglustöð og aðrar opinberar byggingar í borginni. 20.6.2009 10:46
Elsti maður í heimi látinn Elsti maður í heimi, Japaninn Tomoji Tanabe, lést í svefni í gær. Hann var 113 ára gamall. 20.6.2009 04:00
Aðstandendur fórnarlamba fá bætur frá Air France Aðstandendur þeirra sem létust í flugslysi Air France yfir Atlantshafinu þann fyrsta júní síðastliðinn koma til með að fá bætur greiddar frá félaginu. Þessu sagði yfirmaður Air France frá í dag. 19.6.2009 23:32
Nýjasta tækni til að sigrast á flugþreytu Ef draumar vísindamanna við nokkra bandaríska háskóla rætast mun það taka ferðalanga helmingi minni tíma að jafna sig eftir ferðalög á milli tímabelta. Þeir vinna nú að því að finna lausn á flugþreytu með aðstoð nýjustu tækni. 19.6.2009 22:01
Lögreglumaður lést í sprengjutilræði Varðstjóri í spænsku lögreglunni lést í dag eftir að bílasprengja sprakk í borginni Bilbao í Baskalandi. Yfirvöld í sjálfsstjórnarhéraðinu kenna ETA, aðskilnaðarsamtökum Baska, um tilræðið. 19.6.2009 20:19
Milljarður þjáist af matarskorti Milljarður manna um allan heim þjáist af matarskorti. Sú tala hefur hækkað um hundrað milljónir vegna alþjóðlegs hruns á fjármálamörkuðum samkvæmt Sameinuðu þjóðunum. 19.6.2009 20:01
Betra eftirlit hefði hugsanlega bjargað Bretum Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, styður að sett verði á laggirnar stofnun innan Evrópusambandsins sem fylgist með mögulegri kerfisáhættu í fjármálakerfinu. Segist forsætisráðherrann hafa bent á nauðsyn þess að hafa slíkt eftirlitskerfi innan sambandsins um þónokkurn tíma. 19.6.2009 15:57
Rússnesk orrustuflugvél fórst Rússnesk orrustuflugvél að gerðinni SU-24 fórst í suðurhluta Rússlands í dag. Tveir hermenn voru um borð í vélinni og komust þeir báðir lífs af. Þetta er í annað sinn á þremur dögum sem að orrustuflugvél af sömu gerð ferst í Rússland en yfirvöld hafa bannað allt flug slíkra flugvéla á meðan að rannsókn fer fram á tildrögum slysanna. 19.6.2009 15:04
Merkel gagnrýnir æðsta klerk Írans Angela Merkel, kanslari Þýskalands, gagnrýnir Ali Khamenei, æðsta klerk Írans, og segir ræðu sem hann flutti í morgun hafa verið mikil vonbrigði. 19.6.2009 13:57
Hvetur Írani til að hætta mótmælum vegna kosninganna Khamenei, æðstiklerkur í Íran, hvetur landa sína til að hætta mótmælum vegna forsetakosninganna í síðustu viku. Haldi mótmæli áfram verði blóðbað vegna þeirra á ábyrgð frambjóðenda sem játi sig enn ekki sigraða. 19.6.2009 13:15
Yfirmaður spænsku lögreglunnar féll í sprengjuárás Yfirmaður í hryðjuverkasveit spænsku lögreglunnar féll í sprengjuárás hryðjuverkamanna á Norður-Spáni í morgun. Aðskilnaðarhreyfingu ETA í Baskalandi er kennt um. Reynist það rétt er árásin sú fyrsta mannskæða sem samtökin hafa framið í hálft ár. 19.6.2009 12:44
Tony Blair flæktur í hneykslið Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er flæktur í kostnaðarhneysklið sem skekið hefur bresk stjórnmál og þjóðlíf Bretlands síðasta rúma mánuðinn. Blair mun hafa fengið endurgreiddan kostnað af þakviðgerðum á heimili sínu skömmu áður en hann lét af embætti. 19.6.2009 12:39
Maður segist vera barn sem hvarf árið 1955 Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur sýnt fram á það með ítarlegum rannsóknum á erfðaefni manns nokkurs að hann er ekki ungbarn sem hvarf fyrir utan verslun á Long Island í New York árið 1955. 19.6.2009 08:36