Fleiri fréttir

Spánverjar kunna sína hagfræði

Stjórnvöld í Madrid hyggjast láta færa minnisvarðann um Kristófer Kólumbus 100 metra og setja hann aftur þar sem hann stóð í næstum heila öld, þar til 1973, á hringtorg í miðbænum.

Jarðskjálfti á Taiwan

Jarðskjálfti að styrkleika 5,8 stig á Richter skók suðurhluta Taiwan á ellefta tímanum í gærkvöldi. Ekki hafa borist upplýsingar um slysfarir eða skemmdir á mannvirkjum, en upptök skjálftans voru á 78 kílómetra dýpi á vesturströnd landsins.

Segja það versta brátt að baki í Bandaríkjunum

Nú styttist í að það versta verði yfirstaðið af kreppunni í Bandaríkjunum. Þetta segir spá 45 hagfræðinga, sem samtök viðskipta- og hagfræðinga þar í landi leituðu til, en mikill meirihluti þeirra telur að hagkerfið taki sveiflu upp á við á ný á þriðja fjórðungi þessa árs.

N-Kórea: Fleiri eldflaugum skotið á loft

Norður Kóreumenn halda áfram að gera tilraunir með skammdrægar eldflaugar. Í kvöld var enn einni eldflaug skotið í loft en fyrr í dag var tveimur flaugum skotið á loft.

Obama krefst þess að Aung San verði leyst úr haldi

Barack Obama, Bandaríkjaforseti, krefst þess að nóbelsverðlaunahafanum og stjórnandstöðuleiðtoganum Aung San Suu Kyi verði án tafar og skilyrðislaust leyst úr haldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetanum.

Íbúar Kristjaníu áfrýja til Hæstaréttar

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, hafa ákveðið að áfrýja dómi dómsstóls frá því dag til Hæstaréttar landsins. Þetta var á ákveðið á fundi íbúanna í kvöld.

Simpson áfrýjar og krefst frelsis

Ruðningskappinn og leikarinn O.J. Simpson bað Hæstarétt Nevadafylkis í Bandaríkjunum í dag að snúa við sakfellingu yfir honum fyrir vopnað rán og tilraun til mannráns. Hann krefst þess að honum verði veitt frelsi.

Meira en 100 þúsund kólerutilfelli í Zimbabve

Spá Rauða krossins gerir ráð fyrir að að kólerutilfelli í Zimbabve fari yfir 100.000 á næstu dögum. Þó hefur dregið úr nýjum tilfellum að undanförnu en rúmlega 4300 íbúar hafa dáið vegna kóleru í Zimbabwe síðan í ágúst í fyrra.

Íbúum Kristjaníu gert að borga leigu

Íbúar í Kristjaníu, fríríkinu svonefnda sem danskir hippar stofnuðu í Kaupmannahöfn fyrir nærri fjórum áratugum, verður héðan í frá gert að greiða leigu til ríkisins.

Óbreyttur borgari og þrír hermenn myrtir í Afganistan

Almennur borgari og þrír NATO-hermenn féllu þegar bílsprengja sprakk í austurhluta Afganistans í dag. Til viðbótar særðist einn hermaður. Sprengjan sprakk þegar hryðjuverkamaður keyrði Toyota Corolla bifreið á bílalest hermannanna.

Obama útnefnir Soniu Sotomayor í Hæstarétt

Barack Obama Bandaríkjaforseti hefur útnefnt Soníu Sotomayor sem nýjan dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna. Staðfesti öldungadeild Bandaríkjaþings skipan hennar í embættið verður Sotomayor fyrsti rómansk ættaði Bandaríkjamaðurinn til að taka við sem dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna og þriðja konan.

Farsímasmygl með leikfangaþyrlu

Fjórir eru í haldi lögreglu í Sao Paulo í Brasilíu eftir að þeir voru gripnir við að reyna að smygla farsímum til félaga sinna innan múra öryggisfangelsis með fjarstýrðri leikfangaþyrlu.

Norður-Kóreumenn segjast undirbúa stríð

Norður-Kóreumenn skutu í morgun á loft tveimur eldflaugum í viðbót, báðum skammdrægum. Flugþol eldflauganna er um 130 kílómetrar og segir suðurkóreska Yonhap-fréttastofan að önnur eldflaugin sé til notkunar gegn skotmörkum á flugi en hinn gegn skotmörkum á sjó.

Hefðu getað náð Watergate-málinu

Hugsanlegt er að blaðamennirnir Bernstein og Woodward hjá Washington Post hefðu aldrei komist á spjöld sögunnar hefðu tveir keppinautar þeirra fylgt ábendingum sem þeir fengu.

Kveikt í myndbandaleigu í Nyborg

Fimm íbúar við Dronningsvej í Nyborg í Danmörku áttu fótum fjör að launa í nótt þegar kveikt var í myndbandaleigu í húsinu og þeir forðuðu sér út þegar íbúðin tók að fyllast af reyk.

Dregið úr miðstýringu fiskveiða ESB

Sjávarútvegsráðherrar Evrópusambandsins ákváðu á fundi sínum í gærkvöldi að draga stórlega úr miðstýringu á fiskveiðum bandalagsþjóðanna.

Tengsl við táning í brennidepli

Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur lofað að útskýra frekar fyrir þjóðinni hvernig sambandi hans er háttað við táningsstúlku sem er í brennidepli pólitísks og persónulegs hneykslismáls.

Fangaverðir stóðu aðgerðalausir hjá

Upptökur úr öryggismyndavélum sýna að vopnaðir fangaverðir í meintu öryggisfangelsi í Mexíkó horfðu aðgerðalausir á þegar 53 fangar gengu út og settust óáreittir inn í flóttabíla sem biðu þeirra. Á leiðinni út afgreiddu fangarnir sig meira að segja sjálfir um vopn úr vopnabúri fangavarðanna.

Tilraunakjarnorkusprenging fordæmd

Ráðamenn ríkja heims brugðust ókvæða við í gær þegar stjórnvöld í Norður-Kóreu tilkynntu að þau hefðu látið sprengja öfluga kjarnorkusprengju neðanjarðar. Jafnvel Kínverjar, hefðbundnir bandamenn N-Kóreu, fordæma tilraunina.

Vísindakirkjan fyrir rétt

Vísindakirkjan kann að verða dæmd til að vera leyst upp í Frakklandi í réttarhaldi sem hófst í París í gær. Sjö af æðstu forsvarsmönnum safnaðarins í Frakklandi eru ákærðir fyrir skipulögð svik og ólöglega lyfjastarfsemi.

Tugir féllu í árásum uppreisnarmanna

Eftir hörð átök í Darfur-héraði í Súdan liggja 20 hermann í valnum og 43 uppreisnarmenn. Uppreisnarmenn réðust á eina af höfuðstöðvum súdanska hersins í héraðinu með þeim afleiðingum að hörð átök brutust út.

SÞ fordæma kjarorkutilraunir N-Kóreumanna

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsri megnri andúð yfir kjarnorkutilraunum Norður-Kóregumanna og fordæmir þær. Ráðið kom saman til fundar í kvöld vegna kjarnorkutilrauna Norður-Kóreumanna og samþykkti ályktun einróma um málið. Öryggisráðið segir kjarnorkutilraunirnar brjóta á skýran hátt gegn fyrri ályktun ráðsins frá árinu 2006.

Alþjóðasamfélagið verður að bregðast við

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, fordæmdi í dag kjarnorkutilraun Norður-Kóreumanna og sagði ljóst að alþjóðasamfélagið verði að bregðast við. „Kjarnorku- og eldflaugaáætlanir Norður-Kóreu eru alvarleg ógn við öryggi og frið í heiminum og ég fordæmi þessar æfingar harðlega,“ sagði Obama á blaðamannafundi í Washington í dag.

N-Kórea: Þremur eldflaugum skotið á loft

Auk þess að sprengja kjarnorkusprengju neðanjarðar í nótt hafa Norður-Kóreumenn það sem af er morgni skotið á loft þremur skammdrægum eldflaugum. Ekki er ljóst á þessari stundu hvert flaugunum var miðað eða hvar þær lentu.

Gullpálminn til Austurríkis

Gullpálminn á kvikmyndahátíðinni í Cannes féll austurríska leikstjóranum Michael Haneke í skaut í gærkvöldi.

Nauðgað á hommabar í Kaupmannahöfn

Fjörutíu og þriggja ára karlmaður, sem nauðgaði 25 ára karlmanni í eldhúsi á hommabar í Kaupmannahöfn um helgina, var handtekinn skömmu síðar og dvelur nú á réttargæslugeðdeild.

Eigandi H&M kaupir breskt þorp

Sænski milljarðamæringurinn Stefan Persson, eigandi tískuverslunarkeðjunnar H og M, hefur ákveðið að kaupa heilt þorp nálægt Hampshire á Englandi.

Upplýst umræða um ESB-aðild lykilatriði

Að fram fari upplýst opinber umræða um það sem felst í fullri aðild að Evrópusambandinu er einhver mikilvægasta forsendan fyrir inngöngu nýrrar aðildarþjóðar í sambandið. Þetta segir Graham Avery, sem starfaði um áratugaskeið í framkvæmdastjórn ESB og kom sem háttsettur fulltrúi hennar að aðildarsamningum margra ríkja, en hann er nú heiðursfélagi St.Antony‘s College við Oxfordháskóla og ráðgjafi rannsókna- og ráðgjafarstofnunarinnar European Policy Centre í Brussel.

Tamílar viðurkenna fall leiðtoga síns

Uppreisnarmenn Tamíl tígra á Sri Lanka hafa í fyrsta skipti viðurkenn fall leiðtoga þeirra, Velupillai Prabhakaran. Í yfirlýsingu frá tígrunum segir að hinn „óviðjafnanlegi leiðtogi“ þeirra hafi látist og þeir hafi verið í sorg undanfarna viku. Talsmaður hópsins sagði BBC einnig að nú myndu þeir hætta öllu ofbeldi í baráttunni gegn réttindum tígranna.

Þingmenn á Bretlandi segja af sér

Fjórir þingmenn hafa nú sagt af sér í Bretlandi vegna misnotkunar á hlunnindum. Tveir til viðbótar hafa verið reknir og sex sagt að þeir muni ekki gefa kost á sér í næstu þingkosningum.

Rosalega flott

Þessi frétt er eiginlega skrifuð bara vegna þess hvað það er rosalega flott mynd sem fylgir henni.

Hoppaðu þá helvítið þitt

Reiður vegfarandi hrinti í vikunni manni fram af brú í Gunagzhou í Kína. Maðurinn sagðist ætla að fremja sjálfsmorð vegna skulda en hafði staðið á brúarhandriðinu í fimm klukkustundir.

Dorrit með Rolls Royce í Rússlandi

Associated Press fréttastofan hefur birt meðfylgjandi mynd af Dorrit Moussaieff forsetafrú ásamt stjórnarformanni Rolls Royce, þar sem þau eru í Sankti Pétursborg í Rússlandi.

Sjá næstu 50 fréttir