Fleiri fréttir

Von um samkomulag á Madagaskar

Samkomulag er talið vera í uppsiglingu sem á að leysa stjórnmálakreppuna sem hefur verið á Madagaskar upp á síðkastið. Sérstakur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðana segir við BBC að núverandi stjórnmálaflokkar í landinu hafi komist að samkomulagi um tímabundna stjórn og drög að enandanlegu samkomulagi.

86 dauðsföll í fjórum löndum

Flensan sem greindist fyrst í litlu þorpi í Mexíkó fyrir einum mánuði hefur nú breiðst út til fjörutíu og þriggja landa.

Fleiri Danir eignast skotvopn

Dönsk yfirvöld óttast að skotvopnaeign ungra Dana sé að aukast og að ungir menn sem ekki eru hluti af glæpagengjum séu í auknu mæli að eignast skotvopn. Jyllands Posten segir að ungmenni víli ekki fyrir sér að fara með hættuleg skotvopn út á götu.

Ól sexbura á Norður Írlandi

Kona ól í morgun sexbura á sjúkrahúsi í Belfast á Norður Írlandi. Fæðingin stóð yfir í fimm mínútur.

Flensan komin til Rússlands

Inflúensa A, eða H1N1, hefur í fyrsta sinn greinst í Rússlandi. Þarlend heilbrigðisyfirvöld staðfestu þetta í dag en flensan greindist í manni sem var nýkominn frá Bandaríkjunum. Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A alls 10.215 á miðvikudaginn var í 42 ríkjum í heiminum og nú hefur Rússland bæst í hópinn. Langflest flensutilfelli eru í Bandaríkjunum eða 5.469 en í þeirri tölu eru einnig líkleg flensutilfelli þar í landi.

Evrópa reynir að bjarga Aung San

Herforingjastjórnin í Burma er að reyna að fá Aung San Suu Kyi dæmda í fimm ára fangelsi til viðbótar vegna þess að bandarískum manni tókst að henni forspurðri að komast inn á heimili hennar.

Framtíð Guantanamo-fanga umdeild

Barack Obama Bandaríkjaforseti segir það ekki útilokað að einhverjir af þeim föngum, sem nú eru í haldi í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu, verði fluttir í bandarísk fangelsi þegar Guantanamo verður lokað.

Barðist við Talibana í bleikum nærbuxum og inniskóm

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór lofsamlegum orðum um bandarískan hermann í Afganistan sem kom hlaupandi beint úr rúminu fyrr í mánuðinum og réðst til atlögu við Talibana sem gerðu árás á herstöðina.

Unglingar skutu mann í Hundige

Þrír unglingar eru í haldi lögreglu í Hundige, rétt utan við Kaupmannahöfn, grunaðir um að hafa skotið 22 ára gamlan mann í hnakka og handlegg þar sem hann ók bifreið sinni í nótt.

Kínverjar banna reykingar á sjúkrahúsum

Kínverjar hyggjast banna reykingar á öllum sjúkrahúsum og öðrum heilbrigðistengdum mannvirkjum árið 2011. Þetta kemur fram í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins þar í landi í dag.

Fékk nýra úr látnum aðdáanda

Söngkonan Natalie Cole, sem verið hefur á biðlista fyrir nýrnaígræðslu, fékk nýra úr látnum aðdáanda sínum sem grætt var í hana á þriðjudaginn.

Sá eldsneytið streyma úr flugvélinni

Farþegi um borð í flugi United Airlines frá Chicago til Tókýó kom hugsanlega í veg fyrir stórslys þegar hann tók eftir því að eldsneyti vélarinnar lak af henni í stórum stíl eftir flugtak.

Biden fékk góðar móttökur í Kosovo

Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, fékk höfðinglegar móttökur þegar hann heimsótti Kosovo í dag. Móttökurnar þar voru gerólíkar þeim sem hann fékk í Serbíu í gær þegar þúsundir lögregluþjóna gættu þess að mótmælendur gerðu honum ekki mein. Kosovo lýsti yfir sjálfstæði frá Serbíu í febrúar í fyrra og Joe Biden var einn af helstu talsmönnum fyrir sjálfstæði þeirra.

Fjórir handteknir grunaðir um að skipuleggja sprengjuárásir

Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum handtók í gærkvöldi fjóra menn sem grunaðir eru um að hafa skipulagt sprengjuárásir á tvö bænahús gyðinga í Bronx-hverfinu í New York borg. Þeir eru einnig grunaðir um að hafa ætlað að skjóta niður bandarískar herflugvélar með Stinger flugskeytum.

Íranir skutu háþróaðri eldflaug á loft

Íranar skutu í morgun á loft nýrri háþróaðri eldflaug sem dregur um 2000 kílómetra eða allt til Ísraels og bandarískra herstöðva við Persaflóa. Líklegt er að tilraunaskotið veki áhyggjur Vesturveldanna um hernaðarlegan metnað ráðamanna í Teheran.

Uppreisnarmenn í Darfur dæmdir til dauða

Súdanskur dómstóll dæmdi í morgun níu uppreisnarmenn í Darfúr-héraði til dauða fyrir þátttöku í árásum á Kartúm, höfuðborg Súdans, í fyrra. Þá hafa 91 uppreisnarmaður hlotið dauðadóm og samkvæmt lögum í Súdan verða mennirnir allir hengdir.

Ljóð eftir Bob Dylan 16 ára boðið upp

Handskrifað ljóð eftir Robert Zimmerman frá 1957 verður boðið upp hjá Christie‘s í New York í júní. Zimmerman þessi er vitaskuld betur þekktur undir nafninu Bob Dylan og samdi ljóðið, að því er talið er, 16 ára gamall meðan hann dvaldi í sumarbúðum gyðinga í Wisconsin.

Sjóræningjar láta grípa sig til að fá hæli

Sómalskir sjóræningjar láta í sumum tilfellum handtaka sig af ásettu ráði til að notfæra sér evrópskar reglur um hælisleitendur. Þetta segir Geert-Jan Knoops, sérfræðingur í alþjóðlegum refsirétti og prófessor við Háskólann í Utrecht í Hollandi.

Kraftaverk að maður lifði af skotárás

Lögreglan í Kaupmannahöfn segir það hreint kraftaverk að 26 ára gamall maður, sem var skotinn í höfuðið, magann, hand- og fótlegg við Rødovrevej laust fyrir miðnætti í gærkvöldi, sé á lífi og auk þess úr lífshættu.

Mátti keppa á brimbretti í veikindafríi

Það er í góðu lagi að taka þátt í brimbrettakeppni þegar maður er í veikindaleyfi frá vinnu. Þetta er niðurstaða ástralsks dómstóls í máli Shanes Bevan sem er keppnismaður í íþróttinni þar syðra.

Breskir kjarnorkukafbátar mígleka

Geislavirk efni hafa lekið úr breskum kjarnorkukafbátum níu sinnum síðastliðin tólf ár. Þetta viðurkenndi varnarmálaráðuneyti landsins eftir að því barst fyrirspurn um málið frá Julian Lewis, skuggaráðherra varnarmála.

Breski þingforsetinn hættir í júní

Tilkynnt hefur verið að Michael Martin, forseti neðri málstofu breska þingsins, láti af störfum 21. júní vegna útgjaldahneykslisins sem skekið hefur breskt þjóðlíf og breskan þingheim undanfarna daga. Daginn eftir tekur verður nýr forseti kjörinn.

Stóru flokkarnir í Bretlandi tapa fylgi vegna hneykslismáls

Í nýrri könnun Lundúnablaðsins Guardian mælist Verkamannaflokkurinn í Bretlandi nú með 28% fylgi en Íhaldsflokkurinn með 39%. Báðir flokkar hafa tapað fylgi eftir að upplýst var um umdeildar endurgreiðslur til þingamanna allra flokka.

Búist við afsögn forsetans í dag vegna útgjaldahneykslisins

Breskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Michael Martin, forseti neðri málstofu breska þingsins, hefði ákveðið að víkja og að hann myndi tilkynna um það síðar í dag. Það geri hann vegna útgjaldahneykslisins sem hefur skekið breskan þing heim og þjóðlíf allt í Bretlandi síðustu viku. Ekki mun þó vitað hvort hann hættir strax eða situr fram að næstu þingkosningum sem verða í síðasta lagi um mitt næsta ár.

Tamíltígrar segja leiðtoga sinn á lífi

Tamíltígrar á Sri Lanka segja það alrangt að leiðtogi þeirra hafi fallið í bardögum við stjórnarher landsins um liðna helgi. Þvert á móti sé hann í felum á öruggum stað. Stjórnvöld á Sri Lanka standa hins vegar fast við fyrri yfirlýsingar um fall hans og birtu í morgun myndir í sjónvarpi sem eru sagðar sýna lík leiðtogans.

Obama kynnir nýjar mengunarreglur

Barack Obama Bandaríkjaforseti mun í dag kynna hugmyndir sínar varðandi nýjar reglur um eldsneytisnotkun bíla sem stefna að því að draga mjög úr notkuninni og þar með útblæstri og tilheyrandi mengun.

Braut bæði hælbeinin á flótta undan lögreglu

Hjón sem búa skammt frá Árósum í Danmörku hringdu á lögreglu þegar þau urðu vör við þjóf á heimilinu. Sá forðaði sér upp á þak þegar lögregla mætti á staðinn.

Dýrasti bíll heims seldist á uppboði

Árgerð 1957 af Ferrari 250 Testa Rossa varð á sunnudaginn dýrasti bíll sem selst hefur á uppboði í heiminum þegar hann fór á rúmar níu milljónir evra á uppboði, eða um það bil einn og hálfan milljarð króna.

Ný gegnumlýsingartæki sýna farþega nakta

Bandarísk samtök, sem berjast fyrir persónuvernd, hyggjast kvarta til heimavarnaráðuneytisins yfir gegnumlýsingartækjum á sex bandarískum flugvöllum sem sýna flugfarþegana beinlínis nakta þegar þeir ganga gegnum tækin.

Viðgerð Hubble lokið

Viðgerð Hubble-stjörnusjónaukans er lokið og mun enginn maður nú koma nálægt honum aftur. Sjónaukinn er í fullkomnu lagi núna og er búist við að hann verði starfhæfur að minnsta kosti til ársins 2014 en hugsanlega fimm árum lengur gangi bjartsýnustu spár eftir.

Brown í óláni

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, nýtur ekki mikils stuðnings meðal samflokksmanna sinna í Verkamannaflokknum en mikill meirihluti þeirra vill hann ekki sem leiðtoga flokksins í næstu kosningum ef marka má nýja könnun.

Golfari varð fyrir eldingu

Roskinn danskur golfleikari beiða bana og annar brenndist á hendi, þegar þrumuveður gekk yfir golfvöllinn í Skörping á Norður-Jótlandi í Danmörku í gær og þeir urðu fyrir eldingum.

Golfari lést af völdum eldingar

Karlmaður á sjötugsaldri lést samstundis þegar að hann fékk eldingu í sig þar sem hann var staddur á golfvelli í Skørping á Norður-Jótlandi í dag. Annar maður varð einnig fyrir eldingunni en talið er að hann muni lifa af. Þetta hefur danska

Sjá næstu 50 fréttir