Fleiri fréttir

Geimurinn er í rusli

Það eru ekki til neinar hárnákvæmar tölur en talið er að yfir 600 þúsund manngerðir hlutir séu á braut um jörðu.

Geimferjan Atlantis í hættu

Einhverskonar brak virðist hafa rekist í hitaskjöldinn á geimferjunni Atlantis þegar henni var skotið á loft í gær. Um fimmtíu og fimm sentimetra löng rispa er á skildinum.

Hressa upp á Stonehenge

Bresk yfirvöld hafa ákveðið að reisa nýja gestamiðstöð við steinhringinn mikla Stonhenge og loka jafnframt vegi sem liggur þar framhjá.

Vont fyrir Steingrím J. að búa í Danmörku

Í nýafstöðnum þingkosningum kveinkuðu Vinstri grænir sér undan því að einhverjir sjálfstæðismenn hrekktu Steingrím J. Sigfússon með því að birta mynd af honum í auglýsingum.

Litlar heimtur hryðjuverkamanna í Bretlandi

Yfir 1400 manns hafa verið handteknir í Bretlandi á grundvelli hryðjuverkalaga síðan ellefta september árið 2001. Aðeins þriðjungur þeirra hefur hinsvegar sætt ákæru og enn færri sakfelldir.

Andlátsfregnir óheppilegt auglýsingaefni

Bresku fyrirtæki hefur verið bannað að nota mynd af leikkonunni Natösju Richardson til að auglýsa skíðahjálma en auglýsing fyrirtækisins var send viðskiptavinum þess í tölvupósti daginn eftir að Natasha lést í skíðaslysi í Kanada í marsmánuði.

Stungu af úr dómsalnum

Lögreglan í Borgrundarhólmi í Danmörku leitar nú fanga sem gerði sér lítið fyrir og flúði við annan mann úr dómsal þar í bænum í gær.

Kínverskar pöndur með eftirskjálfta

Stofn panda-bjarna í Sichuan-héraðinu í Kína hefur átt erfitt uppdráttar eftir jarðskjálftann mikla sem reið yfir héraðið 12. maí í fyrra.

Sýknaður eftir 22 ár á dauðadeild

Fangi, sem dvalið hefur á dauðadeild fangelsis í Tennessee í 22 ár, hefur verið sýknaður af morðákæru sem hann var dæmdur fyrir árið 1986. Maðurinn heitir Paul House og var honum borið á brýn að hafa nauðgað konu í bænum Luttrell og myrt hana árið 1985.

Atlantis skaddaðist í flugtakinu

Geimskutlan Atlantis varð fyrir smávægilegu tjóni þegar henni var skotið á loft í fyrrakvöld. Svo virðist sem einangrun hafi losnað af eldsneytistanki og skollið á væng skutlunnar.

Mexíkóar segjast ekki hafa leynt svínaflensunni

Heilbrigðisráðherra Mexíkó neitar ásökunum Fídel Castro um að yfirvöld þar í landi hafi vísvitandi sleppt því að segja frá tilvist svínaflensunnar í síðasta mánuði. Jose Angel Cordova heilbrigðisráðherra segir að yfirvöld þar í landi hafi verið óvenjulega opinská og haft frumvkvæði að því að tilkynna um faraldurinn.

Leyfilegt að drepa óbreytta borgara

Mannréttindaráðherra Sri Lanka segir að þeim sé leyfilegt að drepa óbreytta borgara meðan það sé í réttu hlutfalli við þá hermenn sem þeir drepi.

Trúarbragðaólga vegna svínaslátrunar

Þrátt fyrir aðvaranir Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðasamtaka ákváðu stjórnvöld í Egyptalandi að öll svín í landinu skyldu drepin vegna H1N1 flensunnar.

Hershöfðingjaskipti í Afganistan

David McKiernan hershöfðingi, yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Afganistan, var leystur frá störfum í gær en Robert Gates varnarmálaráðherra hefur ákveðið að skipa annan hershöfðingja til að gegna embættinu eftir 11 mánaða starf McKiernans sem einfaldlega stóð sig ekki í stykkinu að mati yfirmanna sinna.

Flensan til Finnlands

Staðfest hefur verið að tvö tilfelli svínaflensunnar hafi greinst í Finnlandi og eru það þá sjötta og sjöunda tilfelli flensunnar í Skandinavíu. Ef marka má tölur Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar hafa nú um 4.700 manns í 30 þjóðlöndum greinst með flensuna.

Fátækrahverfi með eigin banka og gjaldmiðil

Í borginni Fortaleza í Norðaustur-Brasilíu er fátækrahverfi sem heitir Palmeiras. Þar er heimili 32.000 manns. Palmeiras er þó ef til vill ekki hefðbundið fátækrahverfi. Það heldur úti sínum eigin gjaldmiðli sem kallast palma og hefur sinn eigin banka þótt húsnæðið sem hann er í sé svo sem ekki í neinum Wall Street-stíl. Það er að hruni komið.

Vélmenni í japanskar kennslustofur

Saya er enginn venjulegur kennari. Hún lýtur engum kjarasamningum og missir aldrei stjórn á skapi sínu. Henni þarf hins vegar að stinga í samband.

Vopn og verjur í ránum verða æ framúrstefnulegri

Ekki voru það allt hefðbundin áhöld sem komu við sögu í ráni í kynlífstækjaverslun í Álaborg í Danmörku í gærkvöldi. Ung kona ruddist inn í búðina með kúbein og krafði afgreiðslumanninn um 3.000 krónur ella fengi hann að finna til tevatnsins.

Demjanjuk framseldur Þjóðverjum

Bandaríkjamenn framseldu Þjóðverjum í gær hinn meinta stríðsglæpamann John Demjanjuk eftir að tollverðir og starfsmenn útlendingaeftirlits sóttu hann á heimili hans í Cleveland í Ohio.

Ár frá Sichuan-skjálftanum

Kínverjar minnast þess í dag að eitt ár er liðið frá jarðskjálftanum í Sichuan-héraði sem varð tæplega 70.000 manns að bana og olli gríðarlegri eyðileggingu á 100.000 ferkílómetra svæði í héraðinu.

Apple bannar Jesú-skjámynd

Hugbúnaðarfyrirtækið Apple hefur bannað eina af þeim skjámyndum sem voru í boði fyrir iPhone-símann. Myndin sýndi Jesú Krist en var búin þeim eiginleikum að notendur gátu skipt út andliti frelsarans fyrir sitt eigið.

Hugað að Hubble

Geimskutlan Atlantis lagði af stað í síðasta viðhaldsleiðangur sinn að Hubble-stjörnusjónaukanum klukkan 18 í gærkvöldi. Í þessum 11 daga langa leiðangri er ætlunin að skipta um ýmsa hluti í sjónaukanum, þar á meðal rafhlöður og hitaeinangrun.

Drap fyrrverandi og dóttur hennar

61 árs gamall íbúi í Nesøya skammt frá Osló í Noregi skaut fyrrum eiginkonu sína (59 ára) og dóttur hennar til bana rétt áður en hann tók sitt eigið líf. Skotárásin átti sér stað rétt fyrir klukkan 18:00 í dag. Það er Aftenposten sem heldur þessu fram í kvöld.

Netmorðinginn fékk lífstíðardóm

Þjóðverji fékk í dag lífstíðar fangelsisdóm fyrir að stinga ungan mann frá Nottingham 86 sinnum eftir að hann varð yfir sig hrifinn af kærustu hans. David Heiss frá Limburg í Þýskalandi varð yfir sig hrifinn af kærustu Matthew Pyke, Joanna Witton, eftir að þau kynntust á internetinu. Heiss hefur ávallt neitað sök í málinu en hann fékk lífstíðardóm í dag.

Bandarískur hermaður skaut fimm félaga sína til bana

Pentagon greinir frá því í kvöld að bandarískur hermaður hafi skotið fimm félaga sína til bana á herstöð í Bagdad í Írak. Tveir til viðbótar særðust í skotárásinni en byssumaðurinn hefur verið settur í varðhald. Í yfirlýsingu frá hernum segir að árásin hafi átt sér stað á Camp Liberty herstöðinni nálægt flugvellinum í Bagdad um tvö leytið í dag.

Þrennt skotið til bana í Noregi

Þrennt var í dag skotið til bana í smáeynni Nesöya rétt utan við Osló. . Brú er frá fastalandinu yfir í Nesö og henni hefur nú verið lokað meðan sérsveit

Vegfarendur skotnir í Noregi

Mikill viðbúnaður er nú á Nesö skammt frá Osló þar sem óþekktur maður skaut á fólk úr haglabyssu. Fregnir af þessu eru mjög óljósar ennþá.

Hermaður í Írak myrti fjóra félaga sína

Fjórir bandarískir hermenn voru skotnir til bana í Írak í dag. Árásin átti sér stað á einni stærstu herstöð Bandaríkjamanna í höfuðborginni Bagdad í dag en það var hermaður í Bandaríkjaher sem sturlaðist og hóf skothríð á félaga sína. Eftir að hafa myrt fjóra skaut hann sjálfan sig til bana.

Kate og Caprio bjarga síðasta farþega Titanic

Milvina Dean var aðeins níu vikna gömul árið 1912 þegar hún var borin um borð í Titanic í fyrstu og síðustu ferð skipsins. Henni var bjargað ásamt móður og bróðir, en faðir hennar fórst.

Morðóði prófessorinn fannst látinn

George Zinkham var fimmtíu og sjö ára gamall. Hann var virtur og vinsæll og hafði átt skínandi feril sem prófessor í markaðsfræðum við ríkisháskólann í Georgíu.

Rússneskt flutningaskip í vanda

Rússneskt flutningaskip með tólf manna áhöfn sendi í morgun út neyðarkall eftir að skipið strandaði á eyju, skammt frá Svalbarða. Ekkert er enn vitað um afdrif áhafnarinnar en norskar bjrögunarþyrlur eru á leið á vettvang.

Óbreyttir borgarar strádrepnir á Sri Lanka

Tæplega 380 óbreyttir borgarar létu lífið í árásum stjórnarhersins á Sri Lanka um helgina. Læknir á svæðinu segir marga hinna látnu vera börn og lík liggi eins og hráviði um allar jarðir. Hann metur það svo, að yfir 1.100 manns hafi særst í árásum stjórnarhersins en talsmaður hersins segir það hins vegar útilokað.

Stal fermingarpeningum og var handtekin

Lögregla á Fjóni handtók um helgina 35 ára gamla konu sem gert hafði sér lítið fyrir og stolið 9.000 dönskum krónum, jafnvirði um 200.000 íslenskra, í fermingarveislu sem hún var gestur í.

Fjórir látnir eftir aftakaveður í Bandaríkjunum

Fjórir létu lífið og fjölmargir hlutu meiðsli auk þess sem mikið tjón varð á mannvirkjum þegar aftakaveður gekk yfir Missouri, Kentucky og Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum um helgina.

Bresk stjórnvöld banna fíkniefnakstur

Bresk stjórnvöld vinna nú að því að breyta umferðarlöggjöf þannig, að akstur vélknúinna ökutækja verði bannaður undir áhrifum fíkniefna.

Sjö ný svínaflensutilfelli í Bretlandi

Sjö ný tilfelli af svínaflensu greindust í Bretlandi í gær og voru fjögur skólabörn á meðal þeirra sem greindust með flensuna. Þar með eru staðfest svínaflensutilfelli í landinu orðin 55.

Aung San Suu Kyi sögð veik

Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma, er sögð alvarlega veik og fá næringu í æð á heimili sínu í Rangún, þar sem hún hefur verið í stofufangelsi árum saman.

Sjá næstu 50 fréttir