Fleiri fréttir

Norðmenn með svínaflensusmit á batavegi

Tvö svínaflensusmit hafa greinst í Noregi. Norsk heilbrigðisyfirvöld staðfestu þetta í gærkvöldi. Karl og kona á þrítugsaldri búsett í Ósló greindust með flensuna. Þau voru bæði nýkomin heim frá Mexíkó þar sem flensan greindist fyrst og fjölmargir hafa sýkst og látist af völdum hennar. Bæði konan og maðurinn munu á batavegi og þurfti ekki að leggja þau inn á sjúkrahús en þau hafi bæði hafa sýnt væg einkenni flensunnar.

Segja 257 hafa fallið á Srí Lanka

Fulltrúar uppreisnarmanna Tamíltígranna á Srí Lanka saka stjórnarher landsins um að hafa stráfellt almenna borgara í loftárásum á átakasvæði í norðurhluta landsins í nótt. Á vefsíðu tígranna í morgun segir að 257 almennir borgarar hafi fallið í árásunum og 814 særst.

Gassprenging í Moskvu

Öflug sprenging varð í gasleiðslu í suðvesturhluta Moskvu í nótt. Eldur kviknaði í nærliggjandi byggingu og voru fimm fluttir á sjúkrahús með brunasár.

Viðbúnaðarstig lækkað vegna skógarelda

Slökkviliðsmenn í Kaliforníu í Bandaríkjunum er nú við það að ná tökum á kjarr- og skógareldum sem geisað hafa í og við Santa Barbara síðustu daga. Í nótt og í morgun hefur um helmingur af 30 þúsund brottfluttum íbúum fengið að snúa aftur heim en viðbúnaðarstig hefur verið lækkað.

Friðargæsluliði drepinn í Darfur

Alþjóðlegur friðargæsluliði var drepinn í Darfur-héraði í Súdan í gær þegar hann steig út úr bifreið fyrir utan heimili sitt. Fjöldi byssumanna réðst að honum.

Fimm féllu í sprengjuárás í Tyrklandi

Þrír óbreyttir borgarar og tveir héraðslögreglumenn féllu þegar sprengja sprakk við vegarkant í suðausturhluta Tyrklands seinnipartinn í dag. Uppreisnarsveitir Kúrda eru taldar bera ábyrgð á ódæðinu en talsmenn Kúrda neita því að vera viðriðnir sprengjutilræðið og segja að tyrkneskir þjóðernissinnar beri ábyrgð á því.

Nærri 200 fallið

Nærri 200 herskáir Talíbanar og al-Kaída liðar hafa fallið í stórsókn pakistanska hersins gegn þeim sem hófst í norðvestur Pakistan á fimmtudagskvöldið.

Tvö staðfest inflúensutilfelli í Noregi

Tveir Norðmenn hafa greinst með inflúensu A (H1N1) eða svínaflensu. Þeir eru á batavegi. Frá þessu var greint í norska ríkisútvarpinu í dag. Um er að ræða námsmenn, karl og konu , á þrítugsaldri sem nýkomin eru frá Mexíkó.

Einn með 20 milljarða

Heppnin var með lottóspilara á Spáni sem fékk ríflega 20 milljarða króna í vinning þegar stóri potturinn í Evrópulottóinu kom á einn miða í gærkvöldi.

Varaði Georgíumenn við

Rússlandsforseti ræður nágrannaríkjum frá því að leggja upp í hernaðarævintýri gegn Rússlandi. Ummælin lét hann falla á viðamikilli hersýningu á Rauða torginu vegna þess að 64 ár eru í dag frá uppgjöf nasista fyrir bandamönnum í Seinni heimsstyrjöldinni.

Bráðabirgðastjórn tekur við í Tékklandi

Bráðabirgðastjórn tók við völdum í Tékklandi í dag. Henni verður falið að stjórna landinu fram að snemmbúnum þingkosningum í október. Fyrri stjórn hrökklaðist frá völdum í mars eftir að þing samþykkti vantraust á hana. Stjórnin hafði þá mátt sæta mikilli gagnrýni vegna aðgerða í baráttunni við áhrif alheimskreppunnar í Tékklandi.

Heppinn lottóspilari vann 26 milljarða

Heppnin var með lottóspilari sem vann 126 milljónir evra, jafnvirði ríflega 26 milljarða króna, í Evrópu lottóinu í gærkvöldi. Vinningurinn kom á miða sem keyptur var í sjoppu í Madríd á Spáni. Vinningshafinn gaf sig fram í dag en nafn hans hefur ekki verið gefið upp.

Chavez heldur áfram að þjóðnýta

Hugo Chavez, forseti Vensúela, hefur fyrirskipað hernum að taka yfir fyrirtæki sem þjónusta olíufyrirtæki í landinu, en fyrirtækin eru mörg hver í erlendri eigu. Rúm tvö ár síðan að forsetinn þjóðnýtti gas- og olíuframleiðslufyrirtæki Venezúela.

Barist við skógarelda í Kaliforníu

Slökkviliðsmenn í Kaliforníu gera sér vonir um að hagstæð vindátt auðveldi þeim að ráða niðurlögum kjarr- og skógarelda sem ógna 3500 hundruð heimilum í Santa Barbara og nágrenni. Erfiðlega hefur gengið að slökkva eldana þar sem heitt hefur verið í veðri og vindasamt á svæðinu þar sem þeir brenna.

Mótmæltu byggingu bænahúss múslima

Rúmlega 1600 manns komu saman í Köln í Þýskalandi fyrr í dag til að mótmæla íslamsvæðingu þýsks samfélags. Hópurinn sem stóð á bak við mótmælin er andsnúinn byggingu nýrrar mosku í borginni og fjölgun múslima í Þýskalandi. Fjölmörgum leiðtogum þjóðernissinnaðra samtaka í Evrópu var boðið að vera viðstaddir fundinn.

Mál blaðakonunnar Saberi tekið fyrir

Íranskur dómstóll tekur á morgun fyrir áfrýjun á dómi yfir írönsku-bandarísku blaðakonunni Roxana Saberi. Hún var í síðasta mánuði dæmd í átta ára fangelsi fyrir njósnir. Saberi hafði þá um nokkurt skeið starfað í Íran sem fréttaritari fyrir vestræna fjölmiðla.

Zuma sór eið

Jakob Zuma, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, er ný forseti Suður-Afríku. Hann sór embættiseið í Pretoríu, höfuðborg landsins, í morgun fyrir framan fimm þúsund boðsgesti og skara af stuðningsmönnum.

Vændi í fangelsi sem Finnar greiddu fyrir

Finnska utanríkisráðuneytið rannsakar nú hvort vændi viðgangist í kvennafangelsi í Afganistan sem var reist fyrir finnska peninga. Finnska ríkisútvarpið YLE greindi frá því í vikunni að vændi viðgengist milli kvenfanganna og afganskra starfsmanna sem starfa hjá finnska utanríkisráðuneytinu.

Kengúrudrápin vekja mótmæli

Ástralíuher hyggst drepa sex þúsund kengúrur á æfingasvæði hersins skammt frá Canberra, höfuðborg Ástralíu.

Hundruð þúsunda flýja flóð

Verstu flóðin sem orðið hafa í norðanverðri Brasilíu svo áratugum skipti, hafa hrakið nærri 270 þúsund manns að heiman. Nærri fjörutíu manns höfðu látist í gær.

Fjórtán milljónir án vinnu

Atvinnuleysi mældist 8,9 prósent í Bandaríkjunum í nýliðnum mánuði, samkvæmt upplýsingum bandarísku vinnumálastofnunarinnar í gær.

Fjöldi manns innikróaður

Talið er að milljón manns muni flosna upp frá heimilum sínum vegna aðgerða stjórnarhersins í Pakistan gegn talibönum í Swat-dalnum og nærliggjandi héruðum norðvestan til í landinu.

Segir af sér vegna lágflugs yfir Manhattan

Louis Caldera, maðurinn sem er ábyrgur fyrir lágflugi bandarísku forsetavélarinnar, Air Force One, í síðasta mánuði, hefur sagt upp störfum hjá hvíta húsinu.

Heimsmet í lottóvinning hugsanlega slegið í kvöld

Vinningshafinn í Euromilljóna lottóinu fjölþjóðlegea gæti slegið heimsmet ef hann situr eingöngu einn að vinningnum. Um er að ræða Lotto leik sem sex stórþjóðir taka þátt í. Það er að segja, Írland, Bretland, Frakkland, Spánn, Portúgal, Austurríki, Sviss, Belgíu og svo Luxemburg.

20 milljarðar í Evrópulottóinu

Íbúar í níu Evrópulöndum flykktust í söluturna í dag vegna útdráttar í Evrópulottóinu í kvöld. Potturinn er jafnvirði lítilla 20 milljarða króna.

Toyota tapar milljörðum

Japanski bílarisinn Toyota, stærsti bílaframleiðan heim, tapaði jafnvirði 500 milljarða króna á síðasta fjárhagsári sem er mesta tap á einu ári í sögu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur aðeins einu sinni áður tapað fé en það var árið 1963.

20 þúsund manns flúið heimili sín

Um 20 þúsund íbúar í og við Santa Barbara í Kaliforníu hafa yfirgefið heimili sín vegna skógarelda sem brennt hafa um 14 ferkílómetra svæði. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Kaliforníu.

Páfi í Mið-Austurlöndum

Benedikt páfi XVI. telur að kaþólska kirkjan geti gengt mikilvægu hlutverki í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs. Heimsókn Páfa til Mið-Austurlanda hófst í Jórdaníu í dag.

Vel á annað hundrað herskáir fallið

Vel á annað hundrað herskáir Talíbanar og al-Kaída liðar hafi fallið í loftárásum pakistanska stjórnarhersins á norðvestur Pakistan síðasta sólahringinn. Mörg hundruð þúsund íbúar hafa flúið í skelfingu vegna stórsóknar hersins.

Heillum snauðir

Sumir fóru fyrir jól. fluttust burt úr landi, heillum snauðir heims um ból hús þeir byggja' á sandi.

Gömul vinkona slekkur elda

Miklir kjarreldar geisa í Arizona fylki í Bandaríkjunum og meðal annars notaðar flugvélar til þess að berjast við þá.

Skelfileg meðferð á hundum

Dýraverndarsamtök kanna nú hvort einhver leið sé að bjarga fjölda hunda á lítilli eyju undan ströndum Malasíu.

Talibanar stráfelldir í Pakistan

Pakistanski herinn hefur fellt yfir eitthundrað og fjörutíu talibana í hörðum bardögum í Swat héraði síðasta sólarhringinn, að sögn talsmanns hersins.

Neyðarástand í Kaliforníu

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri, hefur lýst yfir neyðarástandi í Kaliforníu vegna skógarelda sem loga þar.

Sakaðir um bruðl

Brown forsætisráðherra Bretlands varð fyrir enn einu áfallinu í morgun þegar breska blaðið Telegraph birti upplýsingar um endurgreiðslur af opinberu fé til 13 ráðherra í ríkisstjórn Verkamannaflokksins vegna útgjalda sem hægt er að endurgreidd. Brown og fleiri ráðherrar eru sakaðir um að bruðla með almannafé.

Stórsókn gegn Talíbönum

Mörg hundruð þúsund íbúar hafa lagt á flótta frá átakasvæðum í norðvestur Pakistan. Þarlend stjórnvöld hófu í gær stórsókn gegn Talíbönum nærri landamærunum að Afganistan. Allt stefnir í einn mesta flóttamannastraum heims um leið og miklir og jafnvel langvinnir bardagar eru að hefjast í Pakistan.

Pjattaðir morðingjar

Yfir tíuþúsund manns hafa fallið í eiturlyfjastríðinu í Mexíkó síðan í desember árið 2006.

Þau eru ekki sofandi

Tugþúsundir óbreyttra borgara eru ennþá innilokaðir á vígvellinum á Sri Lanka þar sem stjórnarherinn sækir að síðasta vígi Tamíl tígranna.

Sjá næstu 50 fréttir