Fleiri fréttir

Kvartað yfir Palin-brúðu í snöru

Brúða af varaforsetaefninu Söru Palin hangandi í snöru fyrir framan heimili í Hollywood þykir í besta falli ósmekkleg hrekkjavökuskreyting.

Karadzic hlýddi á breytta ákæru gegn sér í Haag

„Slátrarinn frá Bosníu“, Radovan Karadzic, kom fyrir stríðsglæpadómstólinn í Haag í morgun til að hlýða á breytingu sem gerð hefur verið á ákærunni gegn honum. Karadzic er ákærður fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð og er ákæran alls í 11 liðum.

Kim Jong Il hressist

Kim Jong Il, leiðtogi Norður-Kóreu, virðist vera að hressast og er nú talinn geta stjórnað landinu forfallalaust að mati leyniþjónustu Suður-Kóreu. Leiðtoginn er ekki alheill heilsu eftir heilablóðfallið sem hann fékk um miðjan ágúst en mat suðurkóresku leyniþjónustunnar er að hann sé fær um að halda um stjórnartaumana.

Banaslys á byssusýningu

Átta ára drengur skaut sjálfan sig óvart í höfuðið á byssusýningu í Bandaríkjunum í gær.

Tónleikum lyktaði með hópslagsmálum

Tónleikum með bresku poppsveitinni The Street sem haldnir voru í Kaupmannahöfn í gærkvöldi lauk með hópslagsmálum og fjöldahandtökum.

Fjöldauppsagnir á LA Times

Sjötíu og fimm manns verður sagt upp á dagblaðinu Los Angeles Times í niðurskurði sem hefst þar von bráðar.

Norður-Kóreumenn hafa uppi hótanir eftir liðhlaup

Norður-Kóreumenn hóta nágrönnum sínum í suðri því að skilja eftir sig sviðna jörð á landi þeirra, láti þeir ekki þegar af því sem norðanmenn kalla ógnandi tilburði sunnan megin við hlutlausa beltið sem aðskilur Norður- og Suður-Kóreu.

Brugguðu Obama launráð

Lögregla í Tennessee segist hafa hindrað áform tveggja nýnasista um að ráða forsetaframbjóðandann Barack Obama af dögum.

Erfið klósettviðgerð

Rannsóknarnefnd í Bangladesh hefur flett ofan af margvíslegri spillingu í opinberum stofnunum þar í landi. Í einu tilfellinu fengu 122 verkamenn greitt fyrir að laga eitt klósett.

Danir bjóða fátækum Íslendingum frítt á íshokkí

Frændur okkar Danir vorkenna Íslendingum verulega í fjárhagskrísunni sem nú gengur yfir. Og það þótt íslenskir útrásarvíkingar hafi undanfarin ár dundað sér við að kaupa upp mörg sögufrægustu fyrirtæki landsins.

Mandelson situr sem fastast

Peter Mandelson viðskiptaráðherra Bretlands segir ekki koma til greina að hann segi af sér embætti vegna samskipta sinna við rússneska auðkýfinginn Oleg Deripaska.

Slapp úr fangabúðum FARC eftir átta ár

Fyrrverandi kólumbískum þingmanni, Oscar Tulio Lizcano, tókst að flýja úr fangabúðum kólumbísku skæruliðasamtakanna FARC um helgina eftir að hafa verið haldið föngnum í átta ár djúpt í frumskógum Kólumbíu.

Harry vill verða þyrluflugmaður í hernum

Breski prinsinn Harry hyggur á frekara nám innan breska hersins og stefnir nú að að verða þyrluflugmaður. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni. Með þessu fylgir hann í fótspor bróður síns, Vilhjálms.

Sýrlendingar æfir yfir árás Bandaríkjamanna

Sýrlendingar eru æfir yfir því að bandarískt herlið hafi farið inn á sýrlenskt landsvæði nærri landamærum Íraks og myrt átta óbreytta borgara í gær. Fjögur börn eru sögð meðal hinna látnu.

McCain tapar að mati veðbanka

Útlitið er ekki gott fyrir John McCain, forsetaframbjóðanda repúblikana í Bandaríkjunum, þessa dagana. Flestar skoðanakannanir benda til þess að hann muni lúta í lægra haldi fyrir Barack Obama, frambjóðanda demókrata og ekki batnar staðan þegar horft er til mats veðbanka.

Segir Rússa enn í viðræðum við Íslendinga um lán

Alexei Kudrin, fjármálaráðherra Rússlands, staðfesti í dag að Rússar ættu enn í viðræðum við Íslendinga um hugsanlegt lán vegna efnahagsástandsins á Íslandi. Þetta kemur fram á fréttavef rússneska miðilsins RIA Novosti.

Viðræður milli Norður- og Suður-Kóreu

Herstjórnendur frá Norður- og Suður-Kóreu hittust á fundi í morgun og ræddu þar meðal annars leiðir til að auka samskipti ríkjanna og bæta þau.

Stöðvuðu smygl á 10 tonnum af kókaíni

Kólumbíska lögreglan kom í gær í veg fyrir að meira en tíu tonnum af kókaíni yrði smyglað úr landi. Hún hefur þegar gerð upptæk yfir hundrað tonn af kókaíni það sem af er árinu.

Bill Clinton fer á framboðsfund með Obama

Barack Obama forsetaframbjóðandi Demokrata mun í næstu viku njóta aðstoðar Bills Clinton fyrrverandi forseta í kosningabaráttunni, þegar þeir mæta saman á framboðsfund í Orlando í Flórídaríki.

Hátt í 60 hafa farist í flóðum í Jemen

Að minnsta kosti fimmtíu og átta hafa látið lífið í flóðum í Jemen eftir að hitabeltisstromur gekk yfir landið. Tala látinna kann að reynast hærri þar sem margra er enn saknað. Þúsundir eru heimilislausir eða innilokaðir eftir flóðin.

Segja Livni hafa gefist upp á að mynda ríkisstjórn

Tzipi Livni, leiðtogi Kadima-flokksins í Ísrael, hefur gefist upp á að reyna að mynda ríkisstjórn í landinu. Þetta kemur fram á fréttavef Breska ríkisútvarpsins og er vitnað til orða ráðgjafa hennar

Erlendir fjölmiðlar fjalla mikið um lántökuna frá IMF

Víða er fjallað um lántöku Íslendinga hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í erlendum miðlum. Flestir gera þau nokkuð úr því að Ísland sé fyrsta vestræna ríkið sem fær lán frá sjóðnum frá árinu 1976.

Samfélag offitusjúklinga kaus sér formann

Félagar í Samfélagi offitusjúklinga, sem eru leiðandi fag- og vísindasamtök á sviði offitu, kusu Robert Kushner lækni í embætti formanns, á ársfundi samtakanna sem fram fór þann 3-7 október síðastliðinn.

Sjá næstu 50 fréttir