Fleiri fréttir

Árekstrarhætta við JFK-flugvöll tvívegis á einni viku

Atvik sem átti sér stað við John F. Kennedy-flugvöllinn í New York í gær hefur vakið spurningar um öryggi flugumferðar við völlinn. Flugmaður Boeing 757-farþegaþotu misreiknaði aðflugshorn sitt og þurfti að fljúga í hring til að gera aðra tilraun. Flaug þotan þá í veg fyrir aðra sem hafði nýhafið sig til flugs.

Seiðmaður sem drap 42 konur tekinn af lífi

Fjöldamorðinginn Ahmad Suradji, sem var kallaður Seiðmaðurinn, var tekinn af lífi í gær. Ahmad drap 42 konur og ungar stúlku. Hann taldi að drápin færðu honum yfirnáttúrlega krafta.

Væntanleg heimsókn Obama til Berlínar veldur ólgu

Stjórnvöld í Þýskalandi neita fyrir að Bandaríkjastjórn hafi sett pressu á kanslara Þýskalands, Angelu Merkel, að koma í veg fyrir að Barack Obama haldi ræðu í Berlín í lok júlí.

Olmert áfram rannsakaður vegna gruns um spillingu

Lögreglan í Ísrael heldur áfram rannsókn sinni á ásökunum um spillingu á hendur forsætisráðherra Ísrael, Ehud Olmert. Kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu frá lögreglu og dómsmálaráðuneyti landsins að hann sé grunaður um að tvöfalda kostnað við ferðir hans erlendis sem kostaðar eru af almannafé.

ESB heitir að gefa fé til uppbyggingar í Kosovo

Evrópusambandið hefur heitið að gefa 500 milljónir evra í sjóð til styrktar uppbyggingu í Kosovo. Hið nýstofnaða ríki er að reyna að safna 1,5 milljörðum evra til þess að byggja upp land og þjóð. Kosovo lýsti yfir sjálfstæði frá Serbíu í febrúar síðastliðnum eftir að hafa verið verndarsvæði Sameinuðu Þjóðanna í 9 ár eftir Kosovostríðið.

Fjórir stungnir til bana í London í gær

Fjórir menn, þar á meðal einn unglingur voru stungnir til bana í London í gær. 42 ára maður fannst særður fyrir aftan krá í Tottenham, 19 ára unglingur dó í árás í Edmonton, 20 ára maður með stungusár dó eftir að hafa klesst bíl sinn í Leyton og ráðist er á fjórða manninn í Walthamstow. Allir þessir staðir eru í norðurhluta London.

Ríkisstjórn mynduð í Líbanon

Samsteypustjórn hefur verið mynduð í Líbanon sem gefur Hizbollah-samtökunum og bandamönnum þeirra næg völd til þess að beita neitunarvaldi. Er það samkvæmt samningi sem komst á þar í landi í maí síðastliðnum og batt enda á stjórnmálakreppu í landinu.

Tilraunir Írana sýna að varnir BNA séu óþarfar

Nýlegar flugskeytatilraunir Írana sanna að varnaráætlun Bandaríkjamanna í Evrópu er óþarfi að mati utanríkisráðherra Rússa, Sergei Lavrov. Hann telur tilraunirnar sanna að eldflaugarnar nái ekki lengra en 2000 kílómetra.

Pakistanar vilja að SÞ rannsaki morðið á Bhutto

Utanríkisráðherra Pakistan hefur farið formlega fram á það að Sameinuðu þjóðirnar komi á laggirnar nefnd til að rannsaka dauða Benazir Bhutto fyrrum forsætisráðherra landsins en hún var myrt í desember s.l.

Kæfði eiginkonu og tvö ungabörn

Lögreglan í Pennsylvaníu hefur handtekið 38 ára gamlan mann sem er grunaður um að hafa drepið fyrrverandi eiginkonu sína og tvö börn með því að kæfa þau til dauða.

Íranir falsa ljósmynd

Ljósmynd sem birtist á forsíðum stærstu dagblaða heims af eldflaugatilraunum Írana var fölsuð. Á myndinni sáust fjórar eldflaugar lyfta sér frá jörðu en í raunveruleikanum voru þær aðeins þrjár.

Andstæðar fylkingar í Simbabve tala saman

Stjórnarflokkurinn í Simbabve, Zanu-PF og báðar fylkingar í stjórnarandstöðuflokknum MDC hafa byrjað viðræður í Suður-Afríku. Þetta eru fyrstu viðræður þeirra síðan forsetakosningarnar voru í lok júní.

Veiddu 76 punda lax

Tveir norskir ellilífeyrisþegar fengu nýverið 76 punda lax á stöng í svo nefndum Breiðuvíkurbotnum og náðu að innbyrða hann í bát sinn. Mörg vitni voru að þessum atburði og sáu þegar laxinn var vigtaður með viðurkenndri vigt.

Miðnæturbörn valin besta Booker-verðlaunabókin

Bresk-indverski rithöfundurinn Salman Rushdie fékk í dag verðlaunin ,,Besta Booker-verðlaunabókin". Verðlaunin fékk hann fyrir bókina Miðnæturbörn (Midnight's Children) sem hlaut Booker-verðlaunin árið 1981. Verðlaunin eru veitt nú til að fagna 40 ára afmæli Booker-verðlaunanna sem eru ein virtustu bókmenntaverðlaun í heimi.

Kynlíf á ströndinni gæti kostað sex ár í fangelsi

Ensk kona sér fram á allt að sex ára fangelsi í Dubai eftir að hún stundaði kynlíf með ferðafélaga sínum á opinberri baðströnd í landinu. Kynlíf utan hjónabands er stranglega bannað í Dubai.

Offita er vaxandi vandamál í Kína

Offita er nú vaxandi vandamál í Kína og talið er að fimmti hver Kínverji sé of þungur. Fjöldi of feitra Kínverja hefur vaxið eftir því sem velmegun þjóðarinnar hefur aukist á undanförnum árum.

12 ára drengur barði 18 mánaða stúlku til dauða

Tólf ára drengur í Miami hefur verið dæmdur til refsivistar á unglingaheimili fyrir að berja 18 mánaða stúlku til dauða. Drengurinn var úrskurðaður hæfur til að fara fyrir rétt af sálfræðingum en slapp við fangelsisvist.

Foreldrar sex ára fegurðardrottningar drápu hana ekki

Yfirvöld i Bandaríkjunum hafa loksins hreinsað fjölskyldu JonBenet Ramsey af grun um að hafa átt hlut í dauða hennar. JonBenet var drepin árið 1996 þegar hún var sex ára og dáð fegurðardrottning í heimabæ sínum.

McCain vil drepa Írani með sígarettum

Forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum, John McCain, lét miður heppileg ummæli falla við blaðamenn í gær þegar hann var spurður út í síaukinn útflutning bandarískra vindlinga til Írans. Sagði McCain að kannski væri þetta ein leið til að drepa Írani.

Sextán ára sonur Osama hvetur til eyðileggingar Vesturlanda

Eplið fellur sjaldan langt frá eikinni. Ljóð sem sagt er samið og flutt af sextán ára syni Osama Bin Laden í tilefni þess að þrjú ár eru liðin frá hryðjuverkaárásinni á London birtist í gær á vefsíðu öfgamanna. Myndband á síðunni hefst á stuttri kynningu á Sheikh Hamza Bin Laden, sem er yngstur átján sona Osama, sem svo flytur ljóð þar sem hann er hvetur til eyðileggingar Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands og Danmerkur.

Sex látnir eftir skotbardaga í Istanbúl

Þrír lögreglumenn og þrír árásarmenn liggja í valnum eftir skotbardaga fyrir utan ræðismannaskrifstofu Bandaríkjanna í Istanbúl í morgun. Tveir til viðbótar liggja særðir á sjúkrahúsi.

Skæruliðar rændu þýskum túristum

Kúrdískir skæruliðar rændu í morgun þremur þýskum túristum sem voru í klifurferð um austurhluta Tyrklands. CNN greindi frá þessu nú fyrir stundu.

Hafnaði dönskum riddarakrossi

Hinn sextugi danski leikari Jesper Christensen sagði nei takk við Margréti Þórhildi Danadrottningu þegar hún ætlaði að veita honum riddarakrossinn danska fyrir störf að leiklist.

Obama heimsækir Evrópu í næstu viku

Barak Obama ætlar að fara í fyrstu Evrópuferð sína í næstu viku, sem forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum. Hann áætlar að heimsækja sjö ríki á jafnmörgum dögum.

Búist við meiri skógareldum í Bandaríkjunum

Almannavarnir á Vesturströnd Bandaríkjanna hafa nú miklar áhyggjur af því að viðvarandi þurrkar á þessum slóðum muni kveikja mun umfangsmeiri skógarelda en þá, sem Kaliforníubúar glíma við og hafa ekki séð fyrir endan á.

Sjá næstu 50 fréttir