Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Götuhátíð í Lundúnum Dansað var um götur Notting Hill hverfisins í Lundúnum í gær á árlegri götuhátíð. Mikið var um dýrðir en talið er að um ein milljón manna taki þátt í hátíðinni sem hófst í gær en lýkur í dag. 27.8.2007 12:19
Merkel í Kína Angela Merkel kanslari Þýskalands hitti Wen Jiabao forsætisráðherra Kína á fundi í morgun. Fundurinn markaði upphaf vikulangrar ferðar Merkel um Asíu. 27.8.2007 12:17
Grunuðum sleppt Fjórum þeirra sem voru handteknir í tengslum við morðið á hinum ellefu ára Rhys Jones í Liverpool á miðvikudaginn hefur verið sleppt án ákæru. Fólkið, var á aldrinum 15-19 ára, tveir drengir og tvær stúlkur. Tveimur öðrum drengjum, 16 og 19 ára, var sleppt gegn tryggingu meðan rannsókn málsins fer fram. 27.8.2007 11:37
Hroðaleg hefnd Argentínskur unglingur fór á húðflúrstofu nýlega til þess að láta tattóvera nafn uppáhalds fótboltaliðsins stórum stöfum á bakið á sér. Liðið heitir Boca Juniors. Ekkert óvenjulegt við það, í Argentínu. Unglingurinn var hinsvegar svo óheppinn að rata inn á stofu þar sem eigandinn hélt ákaflega upp á knattspyrnuliðið River Plate. 27.8.2007 11:11
Handtökur vegna morðs á rússneskri blaðakonu Tíu manns hafa verið handteknir vegna morðsins á rússnesku blaðakonunni Önnu Politkovskaju. Hún var skotin til bana fyrir utan heimili sitt í Moskvu 7. október á síðasta ári. Tass fréttastofan segir að ákærur á hendur mönnunum verði birtar innan skamms. 27.8.2007 10:57
Eldar loga um helming Grikklands Eldar loga nú um meira en helming Grikklands, og hafa fleiri en sextíu látist þeim. Grísk stjórnvöld heitið milljón evrum í verðlaun fyrir upplýsingar sem geta leitt til handtöku þeirra sem kveiktu þá. 27.8.2007 10:01
Kosningar í Tælandi 23. desember Tælendingar munu ganga til kosninga þann 23. desember næstkomandi. Stjórnvöld í Tælandi höfðu ákveðið að halda kosningar eftir að ný stjórnarskrá yrði samþykkt í landinu en það gerðist fyrir viku síðan. Um 58% kjósenda samþykktu stjórnarskrárbreytingarnar sem fólu í sér takmörkun á valdi forsætisráðherra landsins. Fyrrverandi forsætisráðherra Tælands, Thaksin Shinawatra, hefur verið sakaður um að misnota vald sitt sem ráðherra. 27.8.2007 08:47
Met í brjóstagjöf Víetnamar settu í dag heimsmet í brjóstagjöf þegar rúmlega tólfhundruð mæður komu saman í þremur borgum og gáfu börnum sínum brjóst samtímis. Með þessu vildu mæðurnar leggja áherslu á mikilvægi brjóstagjafar fyrir hvítvoðunga. 26.8.2007 19:30
Fargað vegna fuglaflensu Fuglaflensa af hinum hættulega H5N1 stofni hefur greinst í fuglum á fuglabúi í suðurhluta Þýskalands. 400 fuglar drápust úr flensunni þar á skömmum tíma. Öðrum fuglum þar verður nú fargað - öllum 160 þúsund. Ekki er vitað með vissu hvernig sjúkdómurinn barst í fuglana á búinu. 26.8.2007 19:15
Hákon styður systur sína Hákon krónprins Noregs styður englaskóla Mörtu Lovísu systur sinnar þar sem hún ætlar að kenna fólki að tala við engla og dýr. Þetta sagði prinsinn við blaðamenn þar sem hann og Mette Marit kona hans afhentu góðgerðarsamtökum jafnvirði nærri 6 milljóna króna úr sjóði sínum sem notaðar verða til að hjálpa munaðarlausum börnum í Rússlandi. 26.8.2007 19:15
Berst fyrir því að dóttir sín fái meðferð Faðir 6 ára palestínskrar stúlku, sem lamaðist í loftárás Ísraela fyrir rúmu ári, berst fyrir því að hún fái áfram meðferð á sjúkrahúsi í Jerúsalem. Ísraelar vilja ekki leyfa það þeir vilja senda hana í meðferð á Vesturbakkanum þar sem vantar tæki sem halda henni á lífi. 26.8.2007 19:00
Enn loga eldar í Grikklandi Hvítri ösku rignir yfir íbúa Aþenu, höfuðborgar Grikklands, en skógareldar þar í landi hafa teygt sig að jaðri borgarinnar. Enn logar víða á Pelops-skaga og slökkvistarf gengur hægt. 56 hið minsta hafa týnt lífi í eldunum og menningarsöguleg verðmæti Grikkja í hættu. 26.8.2007 18:45
Mynd af morðingja og vitni gefur sig fram Lögreglan í Liverpool segist hafa upptökur úr öryggismyndavélum af þeim sem myrti hinn 11 ára gamla Rhys Jones. Hettuklæddur unglingur hjóli skaut Rhys þar sem hann var að ganga heim af knattspyrnuæfingu á miðvikudagskvöldið. Enginn hefur formlega verið kærður fyrir morðið. 26.8.2007 18:45
Morðingjar Rhys Jones náðust á mynd Lögreglan í Liverpool segist hafa upptökur úr öryggismyndavélum af þeim sem myrtu hinn 11 ára gamla Rhys Jones. Þetta var upplýst eftir að sjö ungmenni voru handtekin í gær. Kona sem lögreglan telur að geti verið lykilvitni í málinu hefur gefið sig fram við lögreglu. 26.8.2007 17:16
Skýstrókur vekur athygli í Bogota Hundruð þúsunda eru án rafmagns eftir flóð og hvifrilbyli í Miðvesturríkjum Bandaríkjanna. Á sama tíma festu íbúar í Bogota í Kólubmíu mikinn skýstrók á filmu en þeir sjást nær aldrei þar í borg. 26.8.2007 12:17
Vann 20 milljarða í lottói Það var einn heppinn íbúi í Indiana-ríki í Bandaríkjunum sem vann jafnvirði rúmlega tuttugu milljarða íslenskra króna í bandaríska ofurlottóinu í gær. Potturinn var orðinn svona stór því enginn hafi hreppt fyrsta vinning síðan í lok júní. Hægt er að kaupa miða í tuttugu og níu ríkjum Bandaríkjanna. 26.8.2007 11:28
Fjörutíu og tveir fórust í sprengingu á Indlandi Lögreglan á Indlandi leitar vísbendinga um hver hafi komið fyrir tveimur sprengjum sem urðu minnst fjörutíu og tveimur að bana í borginni Híderabad í suðurhluta landsins í gær. Nærri fimmtíu særðust í ársinni. Sprengjurnar sprungu með stuttu millibili nærri vinsælum veitingastað þar sem fjölmargir sátu utandyra og snæddu. 26.8.2007 11:06
Opnaði iPhone Sautján ára unglingsstrák hefur tekist að aflæsa iPhone, nýjustu tæki Apple tölvurisans. Tækið kemur ekki á markað í Evrópu fyrr en seinna á þessu ári en nú geta tækniþyrstir utan Bandaríkjanna tekið forskot á sæluna. 25.8.2007 19:15
Deilt um hvort Kastró sé allur eða ekki Fídel Kastró, Kúbuforseti, er látinn. Þetta fullyrti sænskt héraðsfréttablað í gær og sagði haft eftir öruggum heimildum. Ekki hefur þetta fengist staðfest en orðrómur um andlát leiðtogans kraumar meðal Kúbverja í Bandaríkjunum. 25.8.2007 19:00
Hestaflensa í Ástralíu Hestaflensa hefur skotið sér niður í nágrenni við veðhlaupahesta í Ástralíu. Veikin er bráðsmitandi og ógnar íþrótt sem skilar Áströlum milljörðum í kassann. 25.8.2007 18:45
Neyðarástandi lýst yfir í Grikklandi Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Grikklandi vegna skógarelda sem loga þar á nærri tvö hundruð stöðum. Vel á fimmta tug manns hafa farist í þeim og óttast að margfallt fleiri hafi týnt lífi. Yfirvöld segja að kveikt hafi verið í á sumum stöðum og einn maður handtekinn. 25.8.2007 18:30
Stunginn vegna bragðvondrar pylsu Deilur um franska pylsu enduðu með því að maður var stunginn í brjóstið á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn í nótt. Árásarmaðurinn á langa afbrotasögu að baki. 25.8.2007 12:56
Varð alelda og skall til jarðar Minnst 11 slösuðust og tveggja er saknað eftir að eldur kviknaði í loftbelg og hann hrapaði á tjaldsvæði nærri Vancouver í Kanada í gærkvöldi. Loftbelgurinn varð nær alelda þegar hann var nýlega kominn á loft og í tæplega 8 metra hæð frá jörðu. 25.8.2007 12:35
Aftur kosið í Síerra Leóne Önnur umferð forsetakosninga verður haldin í Afríkuríkinu Síerra Leóne eftir hálfan mánuð. Kjörstjórn landsins tilkynnti í morgun að einginn frambjóðenda hefði fengið hreinan meirhluta í fyrri umferð. 25.8.2007 12:33
Kastró sagður allur Fídel Kastró, Kúbuforseti, er látinn samkvæmt sænska héraðsfréttablaðinu Norra Skåne. Blaðið birti þessa frétt í gær og hafði eftir heimildarmönnum sínum að formlega yrði tilkynnt um þetta á miðnætti í gærkvöldi. Engar fréttir hafa borist af andláti Kastrós í morgun og aðrar fréttir hermdu í gær að byltingarleiðtoginn aldni væri við góða heilsu. 25.8.2007 12:27
Mannskæðir skógareldar í Grikklandi Rúmlega 40 manns hafa týnt lífi í miklum skógareldum sem geisa í Suður-Grikklandi. Óttast er að enn fleiri eigi eftir að verða eldunum að bráð. 25.8.2007 12:21
Neitar að hafa orðið Madeleine að bana Gerry McCann, faðir Madeleine McCann, svaraði í gær ásökunum portúgalsks dagblaðs sem hefur sakað foreldrana um að myrða Madeleine með því að byrla henni lyf. Hann segir fullyrðingarnar vera rógburð. 25.8.2007 11:46
Dyraverðir særðust í Liverpool Tveir dyraverðir særðust í skotárás fyrir utan veitingastað á Penny Lane í Liverpool á Englandi í gærkvöldi. Fyrr í vikunni var ellefu ára piltur skotinn á bílastæði við knæpu í borginni. Strákurinn lést af sárum sínum og þrír unglingar hafa verið handteknir vegna málsins. 25.8.2007 10:38
Bretar mega flytja út nautakjöt á ný Útflutningsbanni Evrópusambandsins á lifandi búfénað, kjöt og mjólkurafurðir frá Bretlandi hefur verið aflétt. Bannið var sett á þegar gin- og klaufaveiki greindist á tveimur nautgripabúum í Surrey á Englandi fyrr í mánuðinum. 25.8.2007 10:26
Ólýsanlegur harmleikur í Grikklandi Fjörutíu og einn hafa týnt lífi í skógareldum sem geisa í Suður-Grikklandi. Óttast er að fleiri hafi farist í eldunum sem hafa logað á Pelopon-nese-skaga síðan á föstudag. Ekki tókst að rýma sum svæði áður en eldarnir breiddust út. 25.8.2007 10:19
Bandaríkjamenn neita að framselja fyrrum leiðtoga Panama Dómari í Bandaríkjunum hefur hafnað kröfu um að stöðva framsal Manuels Noriega, fyrrverandi leiðtoga Panama, til Frakklands. Þar í landi verður Noriega gert að afplána tíu ára dóm sem hann hlaut fyrir peningaþvætti. Árið 1992 var Noriega, sem er sjötíu og tveggja ára, dæmdur í fangelsi í Bandaríkjunum fyrir eiturlyfjasmygl og gróðabrask í Miami. Afplánun vegna þess lýkur í næsta mánuði. 25.8.2007 10:10
Framtíð fríríkisins handsöluð Eftir margra mánaða erfiðar samningaviðræður hafa Kristjaníubúar og stjórnvöld í Danmörku loks náð samkomulagi um framtíð fríríkisins. Samkomulagið felur í sér að fasteignafélagið Realdania megi byggja allt að 24 þúsund fermetra af nýju íbúðarhúsnæði í Kristjaníu, sem þó verður að vera í stíl við þá byggð sem er þar fyrir. Þá innifelur samningurinn að ríkið megi ekki krefjast niðurrifs húsa á útivistarsvæði á jaðri fríríkisins. 24.8.2007 23:29
Skorast ekki undan friðargæslu í Súdan Íslensk stjórnvöld skorast ekki undan friðargæslu í Darfúr-héraði, en beðið verður eftir að byssurnar þagni. Vopn streyma til héraðsins þrátt fyrir bann Sameinuðu þjóðanna og sendifulltrúum ESB og Kanada var hent úr landi í morgun. 24.8.2007 19:00
Risapanda ól afkvæmi Risapanda ól lifandi afkvæmi í dýragarði í Vínarborg í Austurríki í gær. Þetta er í fyrsta sinn sem það gerist í Evrópu í aldarfjórðung en það var í dýragarði í Madríd á Spáni. 24.8.2007 19:00
16 ára drengur grunaður um morðið í Liverpool Breska lögreglan hefur handtekið 16 ára unglingsstrák sem er grunaður um að hafa myrt 11 ára dreng í Liverpool í fyrrakvöld. 24.8.2007 18:45
Eðlishvöt réð viðbrögðum Kanadamaðurinn sem bjargaði lífi Íslendings í flugslysi í Kanada fyrir tæpri viku segir það eitt hafa komist að í huga hans að draga vini sína úr flaki flugvélarinnar. Eðlishvötin réð viðbrögðum hans. 24.8.2007 18:45
Unglingsstrákur handtekinn vegna morðs á ellefu ára dreng Sextán ára drengur hefur verið handtekinn vegna morðsins á ellefu ára breskum dreng í Liverpool á miðvikudaginn. Hinn myrti hafði verið að spila fótbolta með vinum sínum og var á leið heim þegar hann var skotinn í hálsinn. Móðir drengsins hélt á honum í 90 mínútur á meðan sjúkraliðar reyndu að endurlífga hann. 24.8.2007 17:24
Mamma ætlar að sofa Þýskum manni óx svo í augum að undirbúa jarðarför móður sinnar að hann lét hana sitja áfram í uppáhalds stólnum sínum í tvö ár eftir að hún lést. Mamman var 92 ára gömul. Þegar hún lést í júlí árið 2005 var læknir til kvaddur. Hann úrskurðaði að hún hefði látist af eðlilegum orsökum. Hann gaf út dánarvottorð en skráði ekki dauðdagann. 24.8.2007 16:22
Sjáldséð pöndufæðing í Austurríki Fyrsta pandan í Evrópu sem var getin með eðlilegum hætti í dýragarði fæddist í Austurríki. Flestar risapöndur sem fæðast í dýragörðum eru getnar með tæknifrjóvgun, en stjórnandi Schoenbrunn dýragarðsins í Vínarborg vildi leyfa móðir náttúru að vinna sitt verk. 24.8.2007 15:45
Hommarnir elska Putin Myndir af Vladimír Putin, berum að ofan við veiðar, hafa vakið heimsathygli. Rússlandsforseti er vel stæltur og þegnar hans eru mikið hrifnir af karlmannlegri ímynd hans. Jafnvel hið virðulega blað Pravda birti stórar myndir af fáklæddum forsetanum með leiðbeiningum um hvernig karlmenn geti fengið vöðvabyggingu eins og hann. Konur eru sagðar hafa klippt myndirnar út og límt þær upp á veggi sína. 24.8.2007 15:34
Dýrt að vingsa túttunum Abbi-Louise Maple og Rachel Marchant eru báðar 21. árs gamlar. Á sumrin fara þær oft á baðströndina í West Worthing, í Englandi, þar sem þær eiga heima. Þar voru þær staddar fyrr í sumar þegar þær veittu athygli eftirlitsmyndavél sem notuð er til þess að fylgjast með ströndinni. Flissandi biðu þær eftir að vélin beindist að þeim. Þá lyftu þær upp bolunum og vingsuðu herlegheitum sínum. Svo veltust þær um í sandinum, skríkjandi af hlátri. 24.8.2007 14:40
Margar falskar nauðgunarkærur Danska lögreglan hefur af því áhyggjur hvað hún hefur fengið margar falskar nauðgunarkærur í sumar. Síðast í dag játaði fimmtán ára gömul stúlka að hún hefði logið þegar hún sagði að fjórir útlendingar í rauðum fólksbíl hefðu nauðgað sér í Kaupmannahöfn í vikunni. Upplognu kærurnar taka mikinn tíma og mannskap frá lögreglunni. 24.8.2007 14:10
Faldi lík af nýburum á heimili sínu Kona á fertugsaldri er nú í haldi lögreglu í Frakklandi eftir að lík þriggja nýbura fundust falin á heimili hennar í frönsku Ölpunum. Talið er að konan hafi átt börnin á árunum 2001 til 2006. 24.8.2007 12:45
Foreldrar Madeleine vilja kæra portúgalska sjónvarpskonu Foreldrar Madeleine McCann hafa hótað að lögsækja portúgalska fréttakonu fyrir ærumeiðandi ummæli sem hún lét falla í beinni sjónvarpsútsendingu í gær. Þar gaf fréttakonan í skyn að Kate McCann, móðir Madeleine, bæri ábyrgð á hvarfi stúlkunnar. 24.8.2007 12:32
Bandarísk herþota varpar sprengju á breska hermenn Þrír breskir hermenn létu lífið í suðurhluta Afganistan í morgun og tveir særðust eftir að bandarísk herþota varpaði fyrir mistök sprengju á þá. Hermennirnir voru að berjast við sveitir Talibana þegar atvikið átti sér stað. 24.8.2007 11:33