Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Saka stjórnvöld í Úganda um ýta undir andúð gegn samkynhneigð Alþjóðleg mannréttindarsamtök hafa sakað stjórnvöld í Úganda um að ýta undir andúð gegn samkynhneigðum þar í landi. Samkynhneigð er refisverð í Úganda samkvæmt lögum sem voru samþykkt á meðan landið var enn bresk nýlenda. Árið 1990 voru refsiákvæði laganna þó hert til muna. 24.8.2007 08:49
Litlar risaeðlur sneggri Litlar risaeðlur voru fótfrárri en þær stærri og gætu stungið strút af. Þetta er niðurstaða breskra vísindamann sem hafa rannsakað spretthraða þessara forsögulegu dýra. 23.8.2007 18:57
Björgunarhringurinn þurrkaður af Sarkozy Franska tímaritið Paris Match hefur orðið uppvíst að því að falsa myndir af Sarkozy forseta Frakklands. Myndir sem birtust af forsetanum róa á kajak í sumarfríi í Bandaríkjunum sýna örlítinn björgunarhring um mitti forsetans, sem vart er í frásögur færandi, en Sarkozy er 52 ára. 23.8.2007 18:19
Bráðnun hafíss opnar leið milli Asíu og Evrópu Vísindamenn telja að á næstu árum muni siglingaleiðin milli Evrópu og Asíu styttast um þriðjung, þegar Norðurskautsísinn bráðnar og hægt verður að sigla norður fyrir Kanada að sumarlagi. Frumbyggjar í norðurhéruðum Kanada segjast þegar finna fyrir hlýnun jarðar. 23.8.2007 18:03
Skotinn og fangelsaður í Danmörku Maður sem danskir lögregluþjónar skutu eftir að hann hafði sært tvo þeirra með hnífi, hefur verið úrskurðaður í hálfs mánaðar gæsluvarðhald. Lögregluþjónarnir höfðu verið sendir til þess að aðstoða við að bera fjölskyldu út úr íbúð í Amager. Húsaleigan hafði ekki verið greidd í marga mánuði. Þegar fulltrúar fógeta komu á vettvang hafði fjölskyldan víggirt sig. 23.8.2007 15:21
Tíu milljón ára gamlar tennur Níu steingerðar tennur sem fundist hafa í Eþíópíu virðast vera úr áður óþekktri tegund risaapa. Steingervingarnir eru um 10 milljón ára gamlir og hefur skepnan verið nefnd Chororapithecus abyssinicus. 23.8.2007 15:19
Velja flottasta bossa í heimi Danir eru frjálslyndir í besta lagi, en sumum þeirra misbýður þó nýjasta markaðsátak danska undirfatarisans Sloggi. Fyrirtækið ætlar að láta velja fallegasta bossa í heimi á netinu og hvetur stúlkur og drengi til þess að senda myndir af afturendanum á sér, náttúrlega í Sloggi nærbuxum eða þveng. Tugþúsundir unglinga hafa svarað kallinu, enda er sigurvegaranum heitið fyrirsætustarfi. 23.8.2007 14:30
Æstur múgur ræðst á lögreglumenn Hópur manna réðst að sex frönskum lögreglumönnum á flugvelli í Gíneu þegar þeir voru að flytja ólöglega innflytjendur frá Frakklandi. Sparkað var í mennina og þeir kýldir með þeim afleiðingum að þeir mörðust illa og hlutu skrámur í andliti. Árásarmennirnir voru að mótmæla harðri stefnu franskra stjórnvalda gagnvart innflytjendum. 23.8.2007 12:59
Innflutningssbanni á breskar landbúnaðarvörur aflétt Evrópusambandið hefur ákveðið að aflétta banni á innflutningi á bresku nautakjöti, mjólkurafurðum og lifandi skepnum. Bannið mun þó gilda áfram um afurðir frá Surrey. Evrópusambandið setti bannið á eftir að gin- og klaufaveiki greindist í nautgripum í Surrey á Englandi. 23.8.2007 11:23
Rændu foreldrunum en skildu börnin eftir Óprúttnir menn vopnaðir skambyssum réðust inn á heimili fjögurra manna fjölskyldu í bænum Ganlöse í Danmörku í nótt og höfðu húsráðendur á brott með sér. Mennirnir létu hins vegar tvö sofandi ungabörn á heimilinu í friði. Þeir skeyttu engu um það þó að móðir barnanna grátbæði um að fá að vera eftir til að passa upp á börnin. 23.8.2007 10:36
Björk ein af sex mikilvægustu konum skemmtanaiðnaðarins Tímaritið Variety er eitt af stærstu og áhrifamestu tímaritum í skemmtanaiðnaðinum. Það fjallar ekki síst um þann iðnað út frá viðskiptasjónarmiðum. Variety hefur nú valið Björk Guðmundsdóttur sem eina af sex mikilvægustu konunum í þessum bransa. Og það eru engar smástelpur við hliðina á henni. 23.8.2007 10:30
Telja að Madeleine hafi látist af slysförum Portúgölsk lögregluyfirvöld telja nú að Madeleine McCann hafi látist af slysförum á hótelherbergi sínu í Portúgal samkvæmt heimildum vefútgáfu breska dagblaðsins The Mirror. Heimildarmenn blaðsins segja ennfremur að portúgalska lögreglan hafi undir höndum gögn sem sanni þetta. 23.8.2007 09:57
Myndband af þýskum gísl sent fjölmiðlum Ræningjar þýsks verkfræðings sem rænt var í Afganistan fyrir rúmum mánuði sendu fjölmiðlum í gær myndband með manninum. Þar biðlar maðurinn til þýskra stjórnvalda um að þau dragi herlið sitt í Afganistan til baka til að honum verði sleppt. Verkfræðingurinn er hjartveikur og í myndbandinu segist hann einungis eiga eftir þriggja daga skammt af hjartalyfi sínu. 23.8.2007 09:07
Tveir unglingspiltar handteknir grunaðir um morð Breska lögreglan handtók í morgun tvo unglingspilta sem grunaðir eru um að hafa myrt hinn 11 ára gamla Rhys Jones í Liverpool í gær. Hinir handteknu eru á 15. og 19. aldursári. Morðið hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi. 23.8.2007 08:32
Vilja stórar og æsandi geirvörtur Brjóstastækkanir hafa lengi verið gerðar. Raunar eru fáir líkamshlutar eftir sem læknar hafa ekki verið fengnir til þess að krukka í. Til þess að stækka eða fegra. Og nú eru stórar geirvötur að komast í tísku. Lýtalæknirinn Bruce Nadler í New York hefur sérhæft sig í að stækka geirvörtur. Hann segir að konurnar sem í slíkar aðgerðir komi vilji fá "ögrandi" útlit fyrir barm sinn. 22.8.2007 16:21
T-rex myndi hlaupa uppi fótboltamann Skaðræðis risaeðlan Tyrannosaurus rex mun hafa hlaupið hraðar en knattspyrnumaður á sínum tíma. Þetta kemur fram nýrri rannsókn sem styðst við tölvulíkan. 22.8.2007 14:36
Umhverfisskaðlegt efni í tveimur tegundum Colgate-tannkrems Komið hefur í ljós að tvær tegundir Colgate-tannkrems hafa að geyma umhverfisskaðlegt efni sem yfirvöld í mörgum evrópskum löndum, þar á meðal Danmörku, Svíþjóð og Þýskalandi, hafa ráðið fólki frá að neyta. 22.8.2007 14:13
Legg ég svo á og mæli um Þýskur maður skilaði egypska sendiráðinu í Berlín útskurðarmynd af egypskum faraó sem fósturfaðir hans stal meðan hann var í heimsókn í Egyptalandi árið 2004. Maðurinn taldi að bölvun faraós hefði fylgt fósturföðurnum til Þýskalands. Þegar þangað kom þjáðist hann af ógleði, lömun, hitasóttum og krabbameini. Hann lést fyrir skömmu. 22.8.2007 13:30
Vill selja forsetagallana á netinu Fyrrverandi forseti Lettlands Vaira Vike-Freiberga er að hugsa um að selja forsetafötin sín á netinu til þess að endurheimta eitthvað af þeim peningum sem hún varði til þess að líta forsetalega út meðan hún gegndi embættinu. Í viðtali við lettneska útvarpsstöð sagði hún að hún hefði varið öllum launum sínum í föt til þess að vera landi sínu til sóma við opinberar athafnir. 22.8.2007 13:15
Slapp lítið slasaður úr flugslysi Tvítugur Kanadamaður vann frækilegt afrek þegar hann bjargaði Íslendingi og kanadískri konu úr flaki flugvélarinnar sem hrapaði í Kanada á laugardaginn. Faðir Íslendingsins segir hann hafa sloppið vel. Annar Íslendingur fórst í slysinu en hann flaug flugvélinni. 22.8.2007 12:20
Þingmenn vilja ekki í fíkniefnapróf Þingmenn á serbneska þinginu deila nú hart um tillögu þessa efnis að þingmönnum verði framvegis gert skylt að fara í fíkniefnapróf. Stjórnarandstaðan segir tillöguna vera móðgandi. 22.8.2007 12:00
Lögreglan í Kaupmannhöfn ræðst gegn fíkniefnasölum í Kristjaníu Fjölmenn liðsveit frá lögreglunni í Kaupmannahöfn kom sér fyrir á götum Kristjaníu í morgun. Aðgerðir lögreglu beinast fyrst og fremst að sölu ólöglegra fíkniefna á svæðinu. 22.8.2007 11:19
Hörð átök milli stúdenta og lögreglu í Bangladesh Einn maður lét lífið og yfir þrjú hundruð særðust í átökum sem brutust út milli lögreglu og stúdenta í borginni Dhaka í Bangladesh í morgun. Mótmælin hófust á mánudaginn þegar hermenn réðust á stúdenta sem voru að mótmæla veru þeirra á háskólalóðinni. 22.8.2007 10:47
Konur hafa bleik gen Ný rannsókn hefur leitt í ljós að ást á bleika litnum er í genum kvenna. Anya Hurlbert sem er prófessor við háskólann í Newcastle telur að það megi rekja til aftur til steinaldar þegar mannskepnan lifði á veiðum og tínslu. Karlmennirnir veiddu dýr en konurnar tíndu ávexti og annan jarðargróður í matinn. 22.8.2007 10:30
Kona deyr af völdum fuglaflensu í Indónesíu Heilbrigðisyfirvöld í Indónesíu hafa staðfest að kona sem lést á spítala á eyjunni Bali í gærmorgun hafi látist af völdum H5N1 veirunnar sem veldur fuglaflensu. Konan, sem verslaði með fuglakjöt, var aðeins 28 ára gömul. 22.8.2007 10:08
Þrír menn særast í átökum í Kaupmannahöfn Þrír menn særðust þegar til átaka kom á Norgesgade í Amager í Kaupmannahöfn í morgun. Átökin brutust út eftir að maður neitaði að yfirgefa íbúð á svæðinu. 22.8.2007 09:33
Um 20 láta lífið í sjálfsmorðsárás í Írak Að minnsta kosti 20 létu lífið og 40 særðust í sjálfsmorðssprengjuárás í Írak í morgun. Árásarmaðurinn ók tankbíl hlöðnum eldsneyti beint á lögreglustöð. 22.8.2007 08:54
Fjórtán bandarískir hermenn láta lífið í þyrluslysi Fjórtán bandarískir hermenn létu lífð þegar herþyrla hrapaði í norðurhluta Íraks í morgun. Þetta er eitt mannskæðasta flugslys hjá bandaríska hernum frá því innrásin í Írak hófst fyrir fjórum árum. 22.8.2007 08:31
Dregur úr styrk Deans Fellibylurinn Dean skall á Júkatan skaga í Mexíkó í dag. Heldur dró úr veðurofsanum þegar bylurinn fór yfir land en óttast að hann sæki í sig veðrið þegar hann fer yfir Mexíkóflóa. 21.8.2007 19:00
Gæti verið elsta þekkta fótsporið Fornleifafræðingar í Egyptalandi hafa fundið mennskt fótspor sem gæti verið það elsta sem fundist hefur. Sporið fannst á steini í Siwa eyðimerkurvininni í vestari eyðimörk landsins. Það hefur verið stigið í leðju sem síðan hefur orðið að steini. 21.8.2007 17:20
Vildi jómfrúrskoðun á þúsundum stúlkna Hávær mótmæli urðu til þess að héraðsskólameistari í Indónesíu féll frá því að láta skoða þúsundir ungra námsmeyja til þess að gá hvort þær væru óspjallaðar. Meistarinn fékk þessa hugmynd þegar myndir af tveimur nemendum í ástarleik fóru að ganga á milli farsíma. Indónesía er fjölmennasta múslimaríki heims og þar er ætlast til skírlífis kvenna þartil þær giftast. 21.8.2007 17:16
Bróðir dómsmálaráðherra Frakka dæmdur fyrir eituryfjasmygl Áfrýjunardómstóll í Frakklandi dæmdi í dag bróður dómsmálaráðherra Frakka, sem áður hafði verið dæmdur fyrir eiturlyfjasmygl, í ársfangelsi fyrir neyslu og sölu heróíns, einungis nokkrum klukkustundum eftir að systir hans kom því í gegn að refsingar fyrir endurtekin lögbrot yrðu hertar. 21.8.2007 17:02
Geimferjan Endeavour lent Geimferjan Endeavour lenti heilu og höldnu á Florida klukkan 16:32 í dag að íslenskum tíma. Ferjan lenti nákvæmlega á réttum tíma eftir tveggja vikna dvöl í geimnum þar sem hún var tengd við Alþjóðlegu geimstöðina. Nokkur uggur var í mönnum fyrir lendinguna vegna skemmda á hitaskildi í flugtakinu. En allt fór að óskum. Sjö manna áhöfn var um borð í Endeavour. 21.8.2007 16:45
Gíslataka í París Vopnaður maður ruddist fyrir stundu inn í tískuverslun í París og heldur þar fólki í gíslingu. Ekki er vitað hversu mörgum. Lögreglan hefur girt verslunina af. Verslunarstjórinn sagði í samtali við franska sjónvarpsstöð að maðurinn segði að hann væri fórnarlamb franskrar réttvísi. Hann væri hinsvegar rólegur og biði eftir því að lögreglan hefði samband. 21.8.2007 16:45
Geimferjan lent Geimferjan Endeavour lenti heilu og höldnu á Florida klukkan 16:32 í dag að íslenskum tíma. Ferjan lenti nákvæmlega á réttum tíma eftir tveggja vikna dvöl í geimnum þar sem hún var tengd við Alþjóðlegu geimstöðina. Nokkur uggur var í mönnum fyrir lendinguna vegna skemmda á hitaskildi í flugtakinu. En allt fór að óskum. Sjö manna áhöfn var um borð í Endeavour. 21.8.2007 16:37
Dauðadrukkin á grafarbakkanum Þýsk kona sem var á leið í kirkjugarðinn til að votta látnum ættingja virðingu sína fékk sér full mikið í aðra tána áður en hún lagði af stað. Að sögn lögreglu í Mitterteich í Þýskalandi missti hún stjórn á bíl sínum, þar sem hún keyrði á vegi sem liggur gegnum garðinn. Hún keyrði niður legsteina og grafhýsi áður en hún staðnæmdist í opinni gröf og komst ekki upp. 21.8.2007 16:22
Geimferjan á leið til jarðar Hreyflar geimflaugarinnar Endeavour voru ræstir fyrir stundu, fyrir heimferð hennar. Endeavour á að lenda á Kennedy geimstöðinni eftir fáar mínútur, eða klukkan 16:32 að íslenskum tíma. 21.8.2007 16:09
Bláeygir farsælli en aðrir Augnlitur gæti ákvarðað afrek þín í lífinu. Þetta gefur ný bandarísk rannsókn til kynna. Hún sýnir að fólk með blá augu sé líklegra til að skara framúr í námi en þeir sem eru með brún. Þau séu gáfaðri og gangi betur í prófum. 21.8.2007 14:48
Styrkur Dean dvínar Fellibylurinn Dean ferðast nú yfir Yukatan skaga með ofsavindi og úrhellisrigningu. Bylurinn er að veikjast. Vindhraði er nú um 56 metrar á sekúndu og mælist stormurinn nú tveir á Saffir-Simpsons kvarða að sögn bandarísku fellibyljastofnunarinnar. 21.8.2007 13:59
Sjóránum fjölgar gríðarlega Fimm danskir sjómenn eru enn á valdi sjóræningja sem rændu skipinu Danica White undan austurströnd Sómalíu fyrsta júní síðastliðinn. Vitað er um 147 aðra sjómenn í höndum ræningja. Árásir sjóræningja eru orðnar svo tíðar að þær eru orðnar alheims vandamál. Árásunum fjölgar ár frá ári og sömuleiðis þeim sem sjóræningjar slasa eða drepa. 21.8.2007 13:15
Kannt þú tölvunörda brandara ? Danir eru að velja sína bestu tölvunörda brandara. Hér er einn, úr blaðinu Computerworld. Tveir tölvunördar sátu saman á bjórkrá, að vinnu lokinni. "Veistu, í gærkvöldi hitti ég rosalega flotta blondínu á bar á Strikinu." "Og hvað gerðir þú ?" "Nú ég bauð henni heim. Við fengum okkur nokkra drykki og komumst í stuð. Svo allt í einu bað hún mig um að klæða sig úr öllum fötunum." 21.8.2007 13:09
Hamas biðja um olíu fyrir Gaza ströndina Leiðtogi Hamas samtakanna hefur beðið Evrópusambandið að byrja aftur að veita olíu til stærstu orkuveitu Gaza strandarinnar. Hann hefur lýst því yfir að alls ekki standi til að leggja á nýja skatta á sölu á rafmagni. Vegna olíuskorts hafa stór svæði á Gaza ströndinn verið án rafmgns undanfarna daga. 21.8.2007 13:00
Segja súdönsk stjórnvöld ábyrg fyrir fjölda nauðgana og mannrána Mannréttindastofnun sameinuðu þjóðanna salaði í dag vígamenn sem eru hliðhollir stjórnvöldum í Súdan um að hafa rænt og nauðgan fjölda kvenna og stúlkna í Darfúr héraði. Í skýrslu sem stofnunin sendi frá sér í dag hvetur hún stjórnöld í Súdan til að rannsaka fullyrðingar um að vígamennirnir hafi í árás á þorp Fur ættbálksins síðastliðinn desember, rænt fimmtíu konum og stúlkum, haldið þeim í mánuð og nauðgað ítrekað. 21.8.2007 12:47
McDonalds vill opna fleiri veitingastaði í Evrópu Bandaríska skyndibitakeðjan McDonalds hyggst verja tæpum 72 milljörðum króna á þessu ári í uppbyggingu McDonalds veitingastaða í Evrópu. Stjórnendur keðjunnar eru bjartsýnir á að fjárfestingin skili sér þrátt fyrir minnkandi sölu í álfunni á undanförnum árum. 21.8.2007 12:22
Gæludýrin að kafna úr spiki Meira en helmingur hunda og katta í Bretlandi eru of feit, að sögn bresku dýraverndunarsamtakanna RSPCA. Vefsíða hefur verið sett á laggirnar til að hjálpa eigendum að kljást við stækkandi mittismál kisu og voffa. 21.8.2007 11:50