Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjölmargra saknað eftir að ferja sökk Fjölmargra er saknað eftir að farþegaferja með allt að hundrað farþega sökk undan austurströnd Indónesíu í gærkvöld. Slæmt var í sjóinn á svæðinu. Í febrúar fórust 40 manns þegar ferja sökk á þeim stað þar sem slysið varð í gær. 18.4.2006 10:00
Stuðningmenn forseta Tsjad láta í sér heyra Stuðningsmenn Idriss Deby, forseta Tsjad, söfnuðust saman á götum höfuðborgar landsins í gær en rétt um hálfur mánuður eru í kosningar þar í landi. Uppreisnarmenn reyndu í síðustu viku að velta forsetanum úr sessi en hann hefur verið við völd í 16 ár. 18.4.2006 09:15
57 létust í rútuslysi í Mexíkó 57 manns biðu bana þegar rúta ók út af fjallvegi í Mexíkó í gær. 60 farþegar voru í rútunni sem var aðeins með sæti fyrir 46 manns. Allir hinna látnu voru mexíkóskir ríkisborgarar á leið heim úr páskafríi í vesturhluta landsins. 18.4.2006 08:30
Hamas-liðar varaðir við að verja hryðjuverk Bandarísk stjórnvöld hafa varað Hamas-hreyfinguna við því að verja hryðjuverk. Formælandi samtakanna sagði í gær að sjálfsvígsárás í Tel Aviv í Ísrael í gær hefði verið lögmæt sjálfsvörn. 18.4.2006 08:25
15 lík finnast í úthverfum Bagdad 15 lík fundust á tveimur stöðum í Bagdad, höfuðborg Íraks, í gær. 12 líkanna fundust í í suður hluta borgarinnar og þrjú í hverfi sjía-múslima. Að sögn lögreglu var fólkið handjárnað og síðan skotið til bana. Mörg hundruð múslimar hafa fallið eða særst í átökum í Írak síðustu vikur en upp úr sauð þegar einn mesti helgidómur sjía var sprengdur í loft upp í Samarra-borg í febrúar. 18.4.2006 08:15
Olíuverð í sögulegu hámarki Heimsmarkaðsverð á olíu náði sögulegu hámarki í gær og var rúmir 70 dalir á tunnu. Ástæðan er sögð meðal annars kjarnorkudeila vesturveldanna við Írana. 18.4.2006 08:00
Flugskeytaárás á Gaza-borg 17 ára Palestínumaður beið bana þegar Ísraelsher gerði flugskeytaárás á bæinn Beit Lahiya í gærkvöldi. Herinn gerði einnig árás á meintar bækistöðvar palestínskra vígamanna í Gaza-borg, en að sögn talsmanns palestínskra yfirvalda féll enginn í þeirri árás. 18.4.2006 07:39
Flóðin hvergi í rénun Vatnsborð Dónár hélt áfram að hækka í dag, íbúum á vatnasvæði hennar til enn frekara angurs og ama. Þá varð að rýma fjölda húsa í Georgíu vegna flóða. 17.4.2006 21:00
Hvalveiðisinnar í meirihluta? Ríki sem eru hlynnt hvalveiðum hafa náð undirtökunum í Alþjóðahvalveiðiráðinu að mati breska blaðsins Independent. Sjávarútvegsráðherra segist fagna tíðindunum en kveðst þó vonlítill um að Íslendingar muni sækja gull í greipar ráðsins á ársfundi þess í sumar. 17.4.2006 20:00
Mannskæðasta sjálfsmorðsárásin í rúmt ár Sextán ára gamall liðsmaður palestínsku samtakanna Heilagt stríð varð í dag níu manns að bana í Tel Aviv í Ísrael. Formælandi Hamas-hreyfingarinnar segir árásina, sem er sú mannskæðasta í rúmt ár, lögmæta sjálfsvörn. 17.4.2006 19:01
Sex látnir eftir sjálfsmorðsprengjuárás í Tel Aviv Í það minnsta sex manns létust og þrjátíu særðust í sjálfsmorðsprengjuárás í Tel Aviv í Ísrael í morgun. Að því er Reuters-fréttastofan hermir sprengdi meðlimur í palenstínsku Al-Aksa-herdeildunum sprengjuna við skyndibitastað nærri fjölfarinni umferðarmiðstöð. 17.4.2006 12:45
Heimsmarkaðsverð á olíu komið upp í 70 dali Heimsmarkaðsverð á olíufatinu er komið upp í sjötíu dali og hefur ekki verið hærra í átta mánuði. Ófriðurinn í Írak og óvissan um framleiðslu í Íran vegna kjarnorkuáætlunar klerkastjórnarinnar eru á meðal ástæðna fyrir hækkuninni. 17.4.2006 11:45
30 særðust í sprengingu í Istanbúl Þrjátíu manns særðust, þar af tveir alvarlega, í sprengingu í úthverfi Istanbúl í Tyrklandi í gær. Lögregla telur að öflugri handsprengju hafi verið komið fyrir í ruslafötu og hún sprungið með þessum afleiðingum. 17.4.2006 11:00
Hafa órækar sannanir fyrir fjöldamorðum Saddams Írakskir saksóknarar segjast hafa órækar sannanir fyrir því að Saddam Hussein hafi undirritað skjöl sem tengjast fjöldamorðum á sjíum. Réttarhöld yfir einræðisherranum fyrrverandi hófust á ný í morgun. 17.4.2006 10:00
Íranar styðja heimastjórnina Stjórnvöld í Íran hafa ákveðið að styrkja heimastjórn Palestínu um tæpa fjóra milljarða króna. Íranar feta þar með í fótspor Rússa, sem tilkynntu í gær að þeir myndu veita heimastjórninni rekstrarfé. 16.4.2006 19:30
Blóðbað í Írak Tugir létust og enn fleiri slösuðust í fjölmörgum árásum í Írak á páskadag. Hinn kristni minnihluti íröksku þjóðarinnar gerði þó sitt besta til að halda daginn hátíðlegan. 16.4.2006 18:45
30 slösuðust í sprengjuárás í Istanbúl Þrjátíu slösuðust í sprengjuárás í úthverfi Istanbúl í Tyrklandi í dag. Sprengju hafð verið komið fyrir í ruslatunnu fyrir framan verslunarhverfi nærri alþjóðaflugvellinum. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á tilræðinu. 16.4.2006 18:06
Stærsta stökk mannkynssögunnar Upprisa krists er stærsta stökk mannkynssögunnnar, sagði Benedikt Páfi í miðnæturmessu í Basilíku heilags Péturs í Róm. 16.4.2006 11:30
Enn eykst þrýstingurinn Wesley Clark, fyrverandi yfirmaður herafla Atlantshafsbandalagsins, hefur bæst í hóp þeirra sem telja að Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna ætti að segja af sér. 16.4.2006 11:00
Munu ekki styðja hernaðaraðgerðir Tony Blair hefur tilkynnt George Bush Bandaríkjaforseta að Bretar geti ekki stutt innrás inn í Íran, jafnvel þó að alþjóðasamfélagið veiti sinn stuðning. Þetta hefur dagblaðið Skotsman eftir embættismönnum úr utanríkisráðuneyti Bretlands. 16.4.2006 10:15
Bökuðu kjarnorkuköku Háskólastúdentar í Íran fögnuðu fæðingardegi Múhameðs spámanns í dag með því að baka gula kjarnorkuköku. Með bakstrinum vilja nemendurnir sýna í verki stuðning sinn við stjórnvöld í Íran. 15.4.2006 18:45
Kínverji fékk nýtt andlit Önnur andlitságræðsla sögunnar fór fram í Kína í gær. Aðgerðin, sem tók meira en hálfan sólarhring, heppnaðist með ágætum. Aðgerðin er sú fyrsta sinnar tegundar í Kína. 15.4.2006 18:00
Neitar að játa ósigur Romano Prodi krafðist í dag afsökunarbeiðni frá Silvio Berlusconi, fyrir að hafa haldið því fram að brögð hefðu verið í tafli í nýafstöðnum þingkosningum á Ítalíu. 15.4.2006 16:57
Rússar styrkja Palestínumenn Rússar hafa ákveðið að hlaupa undir bagga með heimastjórn Palestínumanna og veita henni rekstrarfé. Evrópusambandið og Bandaríkin ákváðu fyrir skemmstu að hætta öllum styrkveitingum til heimastjórnarinnar á meðan hún viðurkenndi ekki Ísraelsríki. 15.4.2006 13:00
Bush treystir Rumsfeld Bush Bandaríkjaforseti segist treysta Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra fullkomlega og að ásakanir um að hann hafi enga stjórn á málum herliðsins í Írak séu úr lausu lofti gripnar. Sex fyrrverandi hershöfðingjar í Bandaríkjaher hafa undanfarið gagnrýnt Rumsfeld opinberlega og sagt réttast að hann segði af sér vegna alls þess sem hefur klúðrast hjá herliðinu í Írak. Bush telur þessar ásakanir fráleitar og sagði í gærkvöldi að stjórnunarhæfileikar Rumsfeld væru einmitt það sem þjóðin þyrfti á þessum hættulegu tímum. 15.4.2006 12:30
Harðir bardagar milli öryggissveita og uppreisnarsveita talibana Nærri fimmtíu féllu í hörðum bardögum milli öryggissveita og uppreisnarmanna úr röðum Talibana í suðurhluta Afghanistan í gær. Afghanskir og bandarískir hermenn gerðu áhlaup á vígi uppreisnarmannanna, með þeim afleiðingum að fjörutíu og einn féll í valinn. 15.4.2006 12:00
Göngugarpur rekinn frá Rússlandi Breskur göngugarpur og bandarískur ferðafélagi hans voru gerðir burtrækir frá Rússlandi í dag eftir að hafa gengið og synt yfir Beringssundið milli Alaska og Síberíu. 14.4.2006 19:06
Sigurvonir Berlusconis bresta Vonir Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, um að hnekkja úrslitum þingkosninganna í síðustu viku, urðu að engu í dag. Í ljós kom að óvissuatkvæði eru mun færri en áður var talið. 14.4.2006 19:01
Sprenging rýfur kyrrð í Kasmír Fimm manns létu lífið í árásum byssumanna í Kasmír fylki á Indlandi í morgun. Tiltölulega kyrrt hefur verið í Kasmír undanfarið, þangað til nú. 14.4.2006 12:40
Aðeins tvö þúsund atkvæði sem deilt er um Ítalska innanríkisráðuneytið tilkynnti nú fyrir stundu að atkvæðaseðlar, sem deilt er um í þingkosningunum um síðustu helgi, séu aðeins rúmlega tvö þúsund. Áður var talið að um rúmlega 43 þúsund atkvæði væri að ræða. Jafnaðarmaðurinn Romano Prodi sigraði í kosningunum, en þangað til fyrir nokkrum mínútum var sá sigur í óvissu vegna vafaatkvæðanna. 14.4.2006 12:34
Fleiri krefjast afsagnar Rumsfelds Tveir uppgjafarhershöfðingjar hafa bæst í hóp þeirra sem krefjast afsagnar Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Alls hafa því sex hershöfðingjar, sem nú hafa látið af störfum, hvatt ráðherrann til að segja af sér. Þeir segja að hann beri ábyrgð á röð mistaka sem hafi verið gerð við innrásina í Írak 14.4.2006 11:15
Píslardauða Krists minnst víða um heim Píslardauða Krists er minnst víða um heim í dag, föstudaginn langa. Í Jerúsalem komu hundruð manna saman í morgun og gengu um götur borgarinnar eftir Via Dolorosa til grafarkirkjunnar. Kirkjan er byggð á staðnum þar sem menn álíta að Golgata hæð hafi verið, þar sem Jesús var krossfestur og grafinn. Sumir báru krossa eftir leiðinni. 14.4.2006 11:00
Tveir létu lífið í götusprengju Tveir Írakar létu lífið og fjórir breskir hermenn særðust í götusprengju í Basra í sunnanverðu Írak í morgun. Írakarnir voru í bíl sem ók framhjá breskum hermönnum, sem virðast hafa verið skotmörk árásarmanna. Í gær létu að minnsta kosti fimmtán manns lífið í bílsprengju á markaðstorgi í norðurhluta Bagdad borgar. Tuttugu og tveir særðust. Þá var ellefu starfsmönnum byggingarfyrirtækis rænt í Basra borg í morgun og þeir allir myrtir. Slíkar árásir á fyrirtæki og starfsmenn þeirra hafa ágerst að undanförnu. 14.4.2006 10:30
Bíllinn hans Brjesneffs á uppboði Nú stendur fyrir dyrum í Moskvu, höfuðborg Rússlands, uppboð á bílum af ýmsum stærðum og gerðum. Það væri svosem ekki í frásögur færandi nema að bifreiðarnar voru eitt sinn í eigu fyrrverandi ráðamanna landsins. 13.4.2006 20:45
Hjarta fjarlægt úr stúlku Breskum læknum hefur tekist að fjarlægja hjarta úr tólf ára gamalli stúlku sem grætt var í hana fyrir áratug síðan. Stúlkunni heilsast ótrúlega vel en hún kveðst samt finna fyrir tómleikatilfinningu annað slagið. 13.4.2006 20:00
Íslendingar netvæddastir allra Íslendingar eru netvæddasta þjóð í heimi að því er ný rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sýnir. 13.4.2006 19:15
Íranar sitja fast við sinn keip Enginn sáttatónn var í Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, í dag þegar hann ræddi um kjarnorkuáætlun klerkastjórnarinnar. Forstjóri Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar situr nú á rökstólum í Teheran með írönskum ráðamönnum. 13.4.2006 19:15
Vökvinn hérlendis sagður hættulaus Bandaríska fyrirtækið, Bausch & Lomb sendi frá sér yfirlýsingu í gær í kjölfar fregna af Renu Moisture Loc-linsuvökvanum sem talinn er geta valdið blindu. 13.4.2006 19:03
Flutningaskip strandaði eftir að áhöfnin sofnaði Grunur leikur á að áhöfn rússnesks timburflutningaskips, sem strandaði við norðurströnd Sjálands í Danmörku í nótt, hafi sofnað á vaktinni. 13.4.2006 16:30
Drápu eftirýstan al-Qaida liða í Pakistan Félagi í al-Qaida samtökunum sem eftirlýstur hefur verið vegna aðildar að sprengingunni í sendiráði Bandaríkjanna í Kenía árið 1998 var skotinn til bana í Pakistan, nærri afgönsku landamærunum, í gærkvöld. Þetta er haft eftir innanríkisráðherra Pakistans. 13.4.2006 16:03
Fjöldaslagsmál í tengslum við knattspyrnuleik í Danmörku Til átaka kom á milli áhangenda dönsku knattspyrnuliðanna OB og Horsens sem áttust við í Óðinvéum í dag. Gestirnir frá Horsens létu ófriðlega strax við komuna á brautarstöðina í Óðinsvéum og ollu þar skemmdum en síðan héldu þeir á knæpu þar sem stuðningsmenn OB sátu. 13.4.2006 15:56
Vilja ekki sjá Playboy í Indónesíu Indónesíska lögreglan hefur beðið útgefendur tímaritsins Playboy um að hætta dreifingu þess í landinu. Fyrsta hefti tímaritsins kom út í Indónesíu fyrir nokkru og brugðust þá heittrúaðir múslimar hart við. Víða um landið voru kröfugöngur haldnar og í höfuðborginni Jakarta var grjóti látið rigna yfir skrifstofur Playboy. 13.4.2006 13:45
Lögðu undir sig stjórnarráðið í Ramallah Hópur herskárra Palestínumanna lagði undir sig stjórnarráðið í Ramallah í morgun. Mennirnir, sem voru um tuttugu talsins og allir gráir fyrir járnum, hertóku skrifstofurnar í rúma klukkustund en að lokum sannfærðu lögreglumenn þá um að leggja niður vopn. 13.4.2006 13:30
30 hafa farist í aurskriðum í Kólumbíu Óttast er að allt að þrjátíu manns hafi farist í aurskriðum í Kólumbíu í gær. Mikil úrkoma hefur verið í suðvesturhluta landsins að undanförnu og því hafa ár flætt yfir bakka sína svo um munar. 13.4.2006 12:45
Íran orðið kjarnorkuveldi Forseti Írans, lýsti því yfir í morgun að Íran væri orðið kjarnorkuveldi og klerkastjórnin myndi ekki gefa þumlung eftir í viðræðum um kjarnorkuáætlun sína. Forstjóri Alþjóða-kjarnorkumála-stofnunarinnar kom til Teheran í gær til að freista þess að telja Írönum hughvarf. 13.4.2006 12:15