Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tilræðismaður við páfa fær frelsi Tyrkinn sem reyndi að myrða Jóhannes Pál páfa annan fyrir aldarfjórðungi var í dag látinn laus úr fangelsi. Tyrkneskir þjóðernissinnar fögnuðu Mehmet Ali Agca eins og þjóðhetju þegar hann kom út úr fangelsinu. 12.1.2006 19:45
Annað áfallið á hajj trúarhátíðnni Síðasti dagur trúarhátíðar múslíma í borginni Mekka breyttist í blóðbað í dag. Talið er að yfir 300 manns hafi látist í miklum troðningi við brú þar sem fjölmargir höfðu safnast saman til að grýta veggi sem eiga að tákna djöfulinn. 12.1.2006 19:26
Vilja draga Íran fyrir öryggisráðið Utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fjalli um kjarnorkuáætlun Írana. Þeir komu saman til fundar í Þýskalandi í dag og fóru yfir stöðu mála. 12.1.2006 17:00
Bachelet sigurstrangleg Vinstrisinninn Michelle Bachelet, sem stefnir að því að verða fyrsti kvenkyns forseti Síle, hefur fimm prósentustiga forskot á keppinaut sinn Sebasitan Pinera þremur dögum fyrir kosningar samkvæmt nýrri skoðanakönnun. 12.1.2006 16:53
Ráðherrar Likud segja sig úr stjórn Þrír ráðherrar úr Likudbandalaginu sögðu sig í dag úr ísraelsku ríkisstjórninni. Búist er við að fjórði og síðasti ráðherra flokksins segi af sér embætti á ríkisstjórnarfundi næsta sunnudag. 12.1.2006 16:23
345 tróðust undir Heilbrigðisráðherra Sádi-Arabíu staðfesti rétt í þessu að 345 hefðu látist í troðningnum í Mena þar sem hundruð þúsunda manna biðu þess að taka þátt í trúarathöfn þar sem ímynd djöfulsins er grýtt. 12.1.2006 16:11
Grænlenskir ísbirnir eitraðastir Meiri eiturefni safnast upp í ísbjörnum á Austur-Grænlandi en á nokkrum öðrum stað í heiminum samkvæmt rannsóknum sem Danmarks Miljøundersøgelser tóku þátt í fyrir skemmstu. Áður höfðu rannsóknir sýnt að mest var af eiturefnum í ísbjörnum á heimskautssvæðinu norðan Svalbarða. 12.1.2006 15:11
Sprengdi sig í loft upp Palestínskur maður sprengdi sig í loft upp nærri ísraelskum hermönnum í borginni Jenín á Vesturbakkanum. Hermennirnir höfðu gengið hús úr húsi í leit að palestínskum vígamönnum sem þeir hugðust handtaka þegar maðurinn réðist að þeim. Maðurinn lést en hermennirnir sluppu ómeiddir. 12.1.2006 15:00
Á fjórða hundrað létust í troðningi Talið er að yfir 300 manns hafi látið lífið í miklum troðningi við Jamaratbrú í Mena í Sádi-Arabíu þar sem fjöldi fólks tók þátt í trúarathöfn á síðasta degi Haj, árlegrar trúarhátíðar múslima. 12.1.2006 14:50
Fuglaflensan hefur greinst í 30 héruðum í Tyrklandi Fuglaflensan hefur greinst í yfir 30 héruðum í Tyrklandi að undanförnu, þar með talið á ferðamannasvæðum við Eyjahaf og við borgirnar Ankara og Istanbúl. 12.1.2006 11:37
Krefjast afsagnar menntamálaráðherrans Íhaldsmenn á breska þinginu og fjölmargir foreldrar í Bretlandi krefjast nú afsagnar menntamálaráðherra landsins, Ruth Kelly, eftir að í ljós kom að dæmdur kynferðisbrotamaður fékk vinnu sem kennari í skóla þar í landi. 12.1.2006 11:00
24 lík finnast á Haítí Tuttugu og fjögur lík fundust í vegkanti í Dóminíska lýðveldinu í gær. Lögreglan í landinu segir að þau séu af ólöglegum innflytjendum frá nágrannaríkinu Haítí en þau fundust skammt frá þar sem lögreglan stöðvaði vöruflutningabíl sem var með sextíu ólöglega innflytjendur innanborðs. 12.1.2006 10:00
Hvetja Öryggisráð S.þ. til aðgerða gegn Íran Ríkisstjórnir Bretlands og Bandaríkjanna hvetja Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til aðgerða gegn Íran vegna kjarnorkurannsókna þeirra. Á miðvikudag sagði forseti Írans að staðið yrði við kjarnorkuáætlanir landsins þrátt fyrir áhyggjur alþjóðasamfélagsins. 12.1.2006 09:31
Fuglaflensan hefur fundist í 30 héruðum Fuglaflensa hefur nú fundist í 30 héruðum í Tyrklandi. Evrópusambandið segir veikina nú mikla ógn við landið sem og löndin í kring. 12.1.2006 08:34
Sharon sýnir ótrúlega hröð batamerki Læknar Ariels Sharons, forsætisráðherra Ísraels, segja hann sýna ótrúlega hröð batamerki. Hann er talinn úr lífshættu en er enn á gjörgæsludeild. 12.1.2006 07:16
Glæpum fækkar í Ísrael Glæpum hefur fækkað um meira en helming í Ísrael eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var fluttur á sjúkrahús í Jerúsalem í síðustu viku vegna alvarlegs heilablóðfalls. Segir lögreglan skýringuna vera þá að glæpamenn, líkt og aðrir, sitji límdir við sjónvarpsskjáinn og fylgist með líðan forsætisráðherrans. 11.1.2006 13:00
Íranar ætla að halda áfram með kjarnorkuáætlanir sínar Ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna og Bandaríkjanna fordæma ákvörðun Íransstjórnar um halda áfram með kjarnorkuáætlanir sínar. Bandaríkjamenn hafa hvatt Sameinuðu þjóðirnar til að beita refsiaðgerðum gegn Írönum. 11.1.2006 12:47
Tveir létust í Kína af völdum fuglaflensu Tveir í viðbót hafa látist í Kína af völdum fuglaflensunnar, að því er Alþjóða heilbrigðisstofnunin greinir frá, en þeir létust í síðasta mánuði. Þá var sex ára gamall drengur fluttur alvarlega veikur á sjúkrahús í Hunan-héraði í Kína í fyrradag og var fullyrt að veikindin stöfuðu af fuglaflensuveirunni. 11.1.2006 10:30
Ítalir skammast sín meira fyrir fitu en framhjáhald Ítalir skammast sín meira fyrir að fitna en að halda fram hjá. Þetta er niðurstaða könnunar ítalsks sálfræðitímarits þar sem eitt þúsund manns á aldrinum 25 til 55 ára voru spurðir hvað vekti hjá þeim mesta sektarkennd. 11.1.2006 10:15
Stærsta farþegaflugvél heims í heimsreisu Stærsta farþegaflugvél heims, Airbus A380, lenti í norðausturhluta Kólumbíu í gær en vélin er í reynsluflugi um þessar mundir og flýgur til hinna ýmsu staða í heiminum. Flugvélin er gríðarlega stór, yfir 70 metrar á lengd en ekki þó eins löng og vængirnir sem eru um 80 metrar á lengd. 11.1.2006 10:00
Vatnsskortur yfirvofandi í Frakklandi Umhverfisráðherrar Frakklands og Spánar hafa áhyggjur af breytingum á loftslagi, þurrkum, gróðureldum og vatnsskorti á svæðinu. Vatnsstaðan í Frakklandi hefur verið erfið eftir hitabylgju árið 2003 og litla úrkomu árin 2004 og 2005. 11.1.2006 09:21
Réttað yfir kanadískum táningi á Guantanamo Réttarhöld hefjast í dag yfir kanadískum táningi sem haldið er í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu en hann er meðal annars sakaður um að hafa drepið bandarískan hermann í Afganistan. 11.1.2006 08:50
150 kíló af kókaíni um borð í skútu Lögreglan í Venesúela fann um það bil 150 kíló af kókaíni um borð í seglskútu við Margarítu-eyju í gær, um 320 kílómetra norðaustur af Karakas, höfuðborg landsins. Eigandi eiturlyfjanna var Þjóðverji sem sigldi undir belgískum fána. 11.1.2006 08:15
Sharon ekki lengur í bráðri lífshættu Ísraelar bíða nú í ofvæni eftir fréttum af líðan Ariels Sharons, forsætisráðherra landsins, sem haldið hefur verið sofandi eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudag í síðustu viku. Sharon er ekki lengur talinn í bráðri lífshættu og segja læknar hann hafa sýnt skýr merki um bata er hann hreyfði vinstri hönd sína í gær. 11.1.2006 08:00
Yfir 2000 kjúklingar drepast á Trínidad Yfir tvö þúsund kjúklingar hafa drepist á karabísku eyjunni Trínidad á síðustu fimm dögum. Mikil skelfing hefur gripið um sig meðal íbúa eyjunnar. 11.1.2006 07:54
Evrópuþjóðir og Bandaríkjamenn fordæma ákvörðun Írana Ríkisstjórnir Evrópusambandsríkjanna og Bandaríkjanna hafa margar hverjar fordæmt ákvörðun Íransstjórnar um að halda áfram með kjarnorkurannsóknir sínar. Vöruðu þær Írana við að Sameinuðu þjóðirnar gætu refsað stjórnvöldum með einhverjum hætti. 11.1.2006 07:03
Fjórir slösuðust í sprengingu Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar gassprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Utrecht í Hollandi í dag. Sprengingin varð í mannlausri lyfjaverslun. 10.1.2006 23:00
Íranir rufu innsiglin Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi. 10.1.2006 22:30
Lífstíðarfangelsi fyrir að nauðga 12 vikna barni Fertugur karlmaður, sem nauðgaði 12 vikna barni með hjálp kærustu sinnar sem átti að gæta barnsins, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nítján ára unnusta hans hefur verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar. 10.1.2006 22:24
Seinheppinn bankaræningi Seinheppinn ræningi í Salt Lake City í Bandaríkjunum skipulagði rán illa og uppskar í samræmi við það. 10.1.2006 22:20
Kjarnorkuáætlun Írana af stað á ný Kjarnorkuáætlun Írana er komin af stað á nýjan leik, Bandaríkjamönnum og Evrópusambandinu til mikillar gremju. Vesturlönd óttast að Íranar ætli að þróa kjarnavopn en þeir sverja og sárt við leggja að vinnslan sé í friðsamlegum tilgangi. 10.1.2006 22:17
Fjórir slösuðust í gassprengingu í verslunarmiðstöð í Hollandi Fjórir slösuðust, þar af einn alvarlega, þegar gassprenging varð í verslunarmiðstöð í bænum Utrecht í Hollandi í dag. 10.1.2006 22:09
Ríkisstjórn Úkraínu situr áfram þrátt fyrir vantraust Úkraínska þingið samþykkti í dag vantraust á ríkisstjórn landsins. Yushchenko forseti telur aðgerðir þingsins brjóta í bága við stjórnarskrá og ætlar að freista þess að fá atkvæðagreiðsluna ógilta. 10.1.2006 21:58
Svik og prettir vísindamannsins Svik og prettir er einkunnin sem verk Hwangs Woos-suks, eins virtasta fræðimanns heims á sviði stofnfrumurannsókna fékk í dag. Þetta er áfall fyrir rannsóknir í lífvísindum, segir íslenskur sérfræðingur á þessu sviði. 10.1.2006 19:30
Úkraínska stjórnin fallin Úkraínska þingið samþykkti vantraust á ríkisstjórn landsins með 250 af 450 atkvæðum í atkvæðagreiðslu í dag. Ástæðan fyrir vantraustinu er gassamningurinn sem stjórnin gerði við Rússa sem hefur í för með sér að Úkraína þarf að greiða hærra verð fyrir það gas sem hún fær. Viktor Jústsjenkó forseti ætlar að láta stjórnarskrárdómstól landsins kveða úr um lögmæti atkvæðagreiðslunnar. 10.1.2006 17:05
Hús rýmd í Kaupmannahöfn vegna sprengjuhótunar Danska lögreglan rýmdi í dag fjölda húsa í Kristjánshöfn og Kristjaníu í Kaupmannahöfn vegna sprengjuhótunar. Óttast var að sprengju kynni að vera að finna í bíl á svæðinu. 10.1.2006 17:00
Sharon sýnir frekari batamerki Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, sýndi frekari batamerki í dag þegar hann hreyfði vinstri hlið líkamans í fyrsta sinn síðan hann fékk mikið heilablóðfall í síðustu viku. 10.1.2006 16:55
Íranar ætla að auðga úran á ný Mohamed ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, greindi stjórn stofnunarinnar frá því í dag að Íranar ætluðu að hefja auðgun úrans á ný en þó ekki af fullum krafti. Þetta gengur í berhögg við fyrri yfirlýsingar stjórnvalda í Teheran en fulltrúar þeirra hafa neitað því að hefja ætti framleiðslu á kjarnorkueldsneyti í Natanz-kjarnorkurannsóknarstöðinni. 10.1.2006 16:46
Segist hafa stjórn á fuglaflensunni Tyrknesk stjórnvöld hafa náð tökum á útbreiðslu fuglaflensu sagði Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands. "Við höfum stjónr á ástandinu og höldum áfram að fylgjast vandlega með því. Þeir sem hafa smitast eru ekki langt leiddir og því er ekki mikil hætta á ferðum að svo stöddu." 10.1.2006 16:07
Nauðgaði tólf vikna barni Fertugur breskur karlmaður sem nauðgaði tólf vikna barni með hjálp kærustu sinnar sem átti að passa barnið hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. Nítján ára unnusta hans hefur verið dæmd til fimm ára fangelsisvistar. 10.1.2006 16:00
Ekki jafn mikil hætta í Tyrklandi og talið var Niðurstöður rannsókna á sýnum úr tólf sjúklingum í Istanbúl í Tyrklandi benda ekki til að þeir séu með fuglaflensusmit eins og óttast var. Mikil skelfing hefur gripið um sig í landinu vegna málsins sem og í nágrannalöndunum, Búlgaríu og Grikklandi, en heilbrigðisráðherrar Evrópusambandsríkjanna segja þó ekkert að óttast. 10.1.2006 13:06
Flest börn fæðast eftir miðsumarhátíðina í Svíþjóð Árið 2004 var metár í hjónavígslum í Svíþjóð en þá giftu sig 43.088 pör. Svo mörg pör hafa ekki gengið í hjónaband á einu ári síðan árið 1989 samkvæmt upplýsingum frá hagstofunni í Svíþjóð. Flestar hjónavígslurnar eða um tæplega 1500 talsins urðu á heitasta degi ársins það árið sem var 7. ágúst. Þá fæddust felst börn 30.mars sem er níu mánuðum frá miðsumarhátíðinni sem er stór og mikil árleg hátíð í Svíþjóð. Fæst börn fæddust 20. nóvember eða einungis 187 börn. 10.1.2006 11:46
Mörg veðmál í gangi í tengslum við skírn Danaprinsins Það styttist í konunglega skírn í Danmörku en sonur Friðriks Krónprins og Mary Krónprinsessu verður skírður 21. janúar næstkomandi. Hjá veðbankanum Nordicbet eru hin ýmsu veðmál í gangi varðandi skírnina. Þar er til að mynda veðjað um nafn litla prinsins en Christian þykir líklegt nafn svo það gefur ekki mikið af sér en veðji maður sem nemur 1000 íslenskum krónum, þá verður uppskeran um 1200 krónur verði prinsinn skýrður Christian. 10.1.2006 11:17
Þingkosningar framundan í Palestínu Þingkosningar verða haldnar í Palestínu þann 25. janúar en Ísraelar hafa lýst því yfir að þeir muni ekki koma í veg fyrir að Palestínumenn, sem búsettir eru í Jerúsalem fái að taka þátt í kosningunum eins og þeir höfðu boðað áður. 10.1.2006 10:58
Tíu menn handteknir í Madríd Tíu menn voru handteknir í Madríd, höfuðborg Spánar og Baskalandi í morgun, grunaðir um að afla nýliða meðal múslíma, til að gera árásir í Írak. Samkvæmt spænskum fjölmiðlum er einn mannanna talinn tengjast árás á ítalska herlögreglu í suður Írak árið 2003 en sjálfsvígssprengja lagði í rúst ítalska bækistöð og felldi átján Ítala og níu Íraka. 10.1.2006 10:54