Fleiri fréttir

Tugir farast í flóðum

Í það minnsta 47 hafa látið lífið í flóðum og aurskriðum í Víetnam síðustu daga. Nokkurra er saknað og því viðbúið að tala látinna eigi eftir að hækka.

Snjóar í tvær vikur samfellt

Snjónum kyngir niður yfir Yantaiborg í Kína og ástandið er orðið svo slæmt að borgaryfirvöld hafa lýst yfir neyðarástandi. Fyrstu snjókornin féllu á Yantai fyrir tveimur vikum og síðan hefur snjóað kvölds og morgna, dags og nætur.

Makedónía fær að sækja um aðild

Leiðtogar Evrópusambandsríkja samþykktu á fundi sínum í nótt að Makedónía skyldi vera meðal umsóknarríkja um aðild að sambandinu. Þeir sögðu hins vegar að ákvörðun um aðild yrði að bíða þess að ákveðið hefði verið hvernig staðið skyldi að frekari stækkun sambandsins.

Árið 2005 það heitasta á norðurhveli

Það stefnir í að árið 2005 verði það heitasta á norðurhveli frá því að mælingar hófust. Þá er útlit er fyrir að það verði það næstheitasta frá upphafi mælinga ef horft er til heimsins alls.

Aukin harka færist í mótmælin

Aukin harka hefur færst í mótmæli vegna fundar Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í Hong Kong. Lögregla átti í átökum við mótmælendur sem reyndu að komast að fundarstaðnum og reykur sást rísa frá svæði skammt þar frá.

Náðu samkomulagi um fjárlög

Ríki Evrópusambandsins náðu í nótt samkomulagi um langtímafjárlög fyrir árin 2007 til 2013. Samkomulagið náðist í lokin á sautján klukkustunda átakafundi í Brussel sem lauk ekki fyrr en skömmu fyrir klukkan tvö í nótt.

Birtu myndband af árás á Abu Ghraib

Al-Qaida liðar í Írak hafa sent frá sér myndband þar sem árás þeirra á Abu Ghraib fangelsið nærri Bagdad fyrr á árinu er útlistuð. Markmið árásarinnar var að sprengja sér leið inn í fangelsið og frelsa fanga ásamt því að valda Bandaríkjamönnum sem mestu tjóni.

Viðbótarhermenn frá Írak eftir um mánuð

Þeir viðbótarhermenn frá Bandaríkjunum sem sendir voru til Íraks til þess að auka öryggi í þingkosningum sem fram fóru í gær fara frá landinu um mánaðamótin janúar-febrúar. Þetta sagði George Casey, yfirmaður herliðs Bandaríkjamanna í Írak í dag.

Sakfelldur fyrir sölu á kjarnorkubúnaði til Pakistans

Dómstóll í Alkmaar í Hollandi dæmdi í dag hollenskan kaupsýslumann í eins árs fangelsi fyrir að selja kjarnorkubúnað til Pakistans á ólöglegan hátt. Henk Slebos sendi stofnun í Pakistan fimm sendingar með kjarnorkubúnaði á árunum 1999 til 2002, en samkvæmt hollenskum fjölmiðlum má nota búnaðinn til að búa til kjarnorkusprengju.

SAS hyggst segja upp allt að 300 flugmönnum

Norræna flugfélagið SAS hyggst á næstunni segja upp allt að þrjú hundruð flugmönnum í sparnaðarskyni. Frá þessu er greint á vefmiðli danska blaðsins Politiken. Þar er greint frá því að félagið hafi átt í viðræðum við flugmenn í þessari viku vegna fyrirhugaðra uppsagna, en SAS hefur átt á brattann að sækja undanfarin misseri.

Fundu 4,5 tonn af kókaíni í skipi

Spænska lögreglan greindi frá því í dag að hún hefði nýlega lagt hald á 4,5 tonn af kókaín í skipi sem stöðvað var undan vesturströnd Afríku. Þá var níu manna áhöfn frá Venesúela handtekin.

Sprenging við rússneskt kjarnorkuver

Einn lést og tveir slösuðust mjög alvarlega í slysi í kjarnorkuveri fyrir utan Pétursborg í Rússlandi í gær. Ekki liggur fyrir hvað gerðist nákvæmlega en kjarnorkustofnun Rússlands hefur gefið misvísandi upplýsingar um málinu.

Lestasamgöngur í Danmörku liggja niðri

Stór hluti lestakerfisins í Danmörku hefur verið stopp í allan morgun vegna verkfalls starfsmanna. Um er að ræða DSB-lestirnar sem ganga á milli borga og bæja en lestir á Kaupmannahafnarsvæðinu ganga samkvæmt áætlun.

Hannar einn fimm nýrra turna þar sem Tvíburaturnarnir stóðu

Breski arkitektinn Norman Foster hefur verið valinn til að hanna einn af fimm skrifstofuturnum á staðnum þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður. Á meðal verka Fosters eru nýju Hearst-turnarnir á Manhattan, flugstöðin í Peking og höfuðstöðvar svissneska tryggingarisans Swiss Re í Lundúnum.

Farþegaflugvél nauðlenti á eyju við Venezuela

Betur fór en á horfðist þegar farþegaflugvél með fjörutíu manns innanborðs nauðlenti á eyjunni Margarita við Venezuela í gær eftir að eitt hjólanna vildi ekki fara niður. Flugvélin, sem er af gerðinni Turboprop Dash 7 og er í eigu flugfélagsins Vonviasa, lenti heilu og höldnu og slasaðist enginn í lendingunni.

35 fórust í eldsvoða á sjúkrahúsi í Kína

Að minnsta kosti 35 manns fórust og á annan tug eru slasaðir eftir að eldur kom upp í fjögurra hæða sjúkrahúsi í norðausturhluta Kína í gær. Fjöldi fólks reyndi að bjarga sér með því að henda sér út um glugga sjúkrahússins til að forða sér frá eldinum.

Enn eitt ránið í Svíþjóð

Peningaflutningabíll frá Securitas var rændur skammt frá Södertälje, suður af Stokkhólmi, í Svíþjóð nú í morgun. Ræningjarnir notuðu sjálfvirka riffla og sprengjur við ránið sem er að verða algeng aðferð við rán í Svíþjóð.

Rannsóknin á morðinu á Hariri víkkuð út

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt að víkka út rannsóknina á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Hins vegar var ekki samþykkt að setja á laggirnar alþjóðlegan dómstól í tengslum við málið, eins og líbönsk stjórnvöld óskuðu eftir.

Fyrrverandi yfirmaður ETA framseldur

Frönsk yfirvöld hafa framselt Francisco Xabier Garcia Gaztelu, fyrrverandi yfirmann í aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA, til Spánar en Gaztelu er gefið að sök að hafa myrt baskneskar þingmann árið 1997.

Enn ósamkomulag um langtímafjárlög ESB

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna undirbúa sig nú fyrir erfiðar viðræður um langtímafjárlög ESB fyrir árin 2007-2013. sagði að loknum kvöldverðarfundi leiðtoga aðildarríkja Evrópusambandsins í Brussel í gær að enn væri mikill munur á hugmyndum leiðtoganna um tillögur að langtímafjárlögum ESB.

Bush hrósaði þingkosningunum í Írak

George Bush, forseti Bandaríkjanna, hrósaði þingkosningunum í Írak sem fram fóru í gær og sagði þær mikilvægt skref í að stofna lýðræðislega bandalagsþjóð Bandaríkjamanna í Mið-Austurlöndum. Þá sagði hann kosningarnar marka upphaf að brottflutningi bandarískra hermanna frá Írak.

Starfaði sem læknir í átta ár án leyfis

Lögreglan í Tokyó handtók í dag mann sem hefur starfað sem læknir án leyfis í heil átta ár. Maðurinn hefur starfað á tuttugu heilbrigðisstofnunum í Japan, án þess að hafa tekið svo mikið sem einn tíma í læknisfræði.

Væri hægt að forða 9 þúsund mönnum frá dauða

Það væri hægt að forða níu þúsund Evrópubúum frá dauða á næstu árum með því að auka skatt á áfengi um tíu prósent í löndum Evrópusambandsins. Þetta eru niðurstöður nýrrar skýrslu sem heilbrigðissérfræðingar unnu fyrir sambandið. Drykkja ungmenna um alla álfuna hefur aukist verulega síðstliðinn áratug.

Ómannúðleg meðferð bönnuð

Stjórnvöld í Washington hafa samþykkt að banna ómannúðlega meðferð á föngum í baráttunni gegn hryðjuverkum. Öldungadeildarþingmaðurinn John McCain lagði fram tillögu þessa efnis fyrir stuttu og nú hefur Hvíta Húsið samþykkt tillögu McCains að sögn talsmanns hans.

Allt í hnút

Flest bendir til að lokatilraun til að berja saman fjárlagafrumvarp fyrir Evrópusambandið fari út um þúfur. Á maraþonfundum næstu tvo dagana munu leiðtogar sambandsríkjanna reyna að ná saman.

Hefja rannsókn á ásökunum um leynifangelsi

Evrópuþingið hefur ákveðið að hefja rannsókn á ásökunum þess efnis að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi haldið úti leynifangelsum í Evrópu. En því hefur verið haldið fram að bandaríska leyniþjónustan hafi haldið úti leynilegum fangelsum í Rúmeníu og Póllandi og hafi notaði flugvelli landa Evrópusambandsins á leið sinni þangað.

Kjörstaðir opnir lengur

Kjördagur í Írak hefur gengið betur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Kjörsókn þingkosningunum var miklu betri en búist var við og opnunartími kjörstaða var framlengdur um klukkustund af þeim sökum. Minnst tvær vikur eru í að endanleg úrslit liggi fyrir.

Óttast hryðjuverk í Noregi

Yfirmaður norsku öryggislögreglunnar segir aðeins tímaspursmál hvenær öfgasinnaðir múslimar geri hryðjuverkaárás í Noregi. Hann segir íslamska uppreisnarmenn nýta sér frelsið á Norðurlöndum til að skipuleggja hryðjuverk í öðrum löndum Evrópu og gagnrýnir norsk stjórnvöld harðlega fyrir að taka ekki harðar á þessum málum. Norðmenn studdu ekki innrásina í Írak árið 2003 en yfirmaður norsku öryggislögreglunnar segir orðspor landa í Skandinavíu um frelsi og opið samfélag hafa orðið til þess að öfgasinnaðir múslímar hafi í auknum mæli ákveðið að flytja þangað.

Skaut ellefu manns til bana

Nepalskur hermaður batt enda á deilur sínar við hóp óbreyttra borgara og myrti ellefu manns og særði nítján þegar hann skaut úr vélbyssu sinni. Ekki er vitað nákvæmlega hvers vegna maðurinn hóf skothríð en frá þessu greindi nepalski herinn í morgun. Hermaðurinn féll sjálfur fyrir byssukúlu en hver batt enda á líf hans, er ekki vitað. Atburðurinn átti sér stað í gærkvöldi í bæ norðaustur af Katmandú, höfuðborg Nepals. Herinn hefur sætt harðri gagnrýni frá mannréttindasamtökum fyrir að beita of miklu valdi og myrða óbreytta borgara.

Kjörsókn góð í Írak

Kjörsókn hefur verið góð í þingkosningunum sem fram fara í Írak í dag. Súnní múslimar hafa lofað að gera ekki árásir á kjörstaði en sprengja sprakk þó við kjörstað í borginni Mosul í dag og varð einum að bana.

Nektarmynd af kennara send til nemenda

Lögreglan á Kýpur rannsakar nú all sérstakt mál þar sem nakinn kennari kemur við sögu. Þannig er að umræddur kennari, sem er kvenkyns, þurfti að bregða sér frá í miðri kennslustund á dögunum.

Barði konu og dætur sínar til bana

Maður í Indiíana í Bandaríkjunum hefur viðurkennt að hafa barið eiginkonu sína og þrjár dætur til bana vegna deilna við konuna um hver ætti að sjá um húsverkin á heimilinu. Maðurinn sagði við lögregluna að hann hefði verið undir miklu álagi að undanförnu en hann missti vinnuna fyrr á árinu. Hann á yfir höfði sér lífstíðardóm.

Danir duglegir að gefa fé til góðgerðarmála

Aldrei hafa jafn mikil fjárframlög safnast til góðgerðarmála í Danmörku og á þessu ári. Árið er metár fyrir danska Rauða krossinn og UNICEF en einnig hefur verið sérlega mikið um stór fjárframlög til Neyðaraðstoðar kirkjunnar og Lækna án landamæra í Danmörku.

Þingkosningar í Írak í dag

Þingkosningar fara fram í Írak í dag. Gríðarleg öryggisgæsla er í landinu öllu en þar sem uppreisnarmenn úr röðum súnni-múslíma hafa lofað að gera ekki árásir á kjörstaði er búist við því að kjörsókn verði meiri fyrir vikið.

Segir það tímaspursmál hvenær gerð verði hryðjuverkaárás í Noregi

Yfirmaður norsku öryggislögreglunnar segir aðeins tímaspursmál hvenær öfgasinnaðir múslimar geri hryðjuverkaárás í Noregi. Hann segir íslamska uppreisnarmenn nýta sér frelsið á Norðurlöndum til að skipuleggja hryðjuverk í öðrum löndum Evrópu og gagnrýnir norsk stjórnvöld harðlega fyrir að taka ekki harðar á málum þessum.

Albanir vilja að Kosovo fái sjálfstæði en ekki Serbar

Albanar vilja að Kosovo fái sjálfstæði en Serbar vilja að Kosovo verði áfram hluti af Serbíu. Forsetar Makedóníu, Búlgaríu og Serbíu hittust í Ohrid í Makedóníu í gær til að ræða um framtíð Kosovo en búist er við að þeir gefi út sameiginlega yfirlýsingu um framtíð svæðisins í dag.

Öryggisverðir á aukaæfingum vegna atviksins á Miami-flugvelli

Bandarískir öryggisverðir sem gæta öryggis í flugvélum taka nú þátt í æfingum um borð í lestum og öðrum farþegaflutningatækjum og munu æfingarnar standa yfir í þrjá daga. Gripið var til þessa ráðs eftir að öryggisverðir um borð í vél American Airlines skutu farþega til bana á flugvellinum í Miami í síðustu viku sem sagðist vera með sprengju.

Viðurkennir að upplýsingarnar hafi verið rangar

George Bush bandaríkjaforseti viðurkenndi í dag að upplýsingar um gereyðingarvopn Íraka hefðu að mestu leyti verið rangar. Það breytti því ekki að Bandaríkjamenn mættu ekki draga herlið sitt burt fyrr en stöðugleiki kæmist á í landinu.

400 þúsund hermenn á götum úti

Nærri fjögur hundruð þúsund manna lið lögreglu og hers verður til taks í Írak á morgun, þegar kosið verður til þings í landinu í fyrsta sinn síðan Saddam Hússein var steypt af stóli. Landamæralögreglan í Írak lagði í gær hald á fimm þúsund falsaða kosningaseðla sem reynt var að flytja til landsins í vöruflutningabíl frá Íran.

Frakkar hafna útspili Breta

Frakkar höfnuðu áðan nýjasta útspili Breta um fjárlagafrumvarp Evrópusambandsins fyrir árin 2007 - 2013. Utanríkisráðherra Frakka sagði að þeir gætu ekki samþykkt tillögur Breta, sem gera ráð fyrir að Frakkar gefi eftir stóran hluta landbúnaðarstyrkja sinna, nema endurgreiðslur sambandsins til Breta yrðu endurskoðaðar frá grunni.

Þrír Palestínumenn féllu á Gaza í dag

Þrír Palestínumenn létu lífið í loftárás Ísraelsmanna á Gaza ströndinni eftir hádegið í dag. Að sögn vitna var sprengju skotið úr flugvél og hafnaði hún beint á bifreið sem í voru palestínskir uppreisnarmenn. Fjórir slösuðust í árásinni. Bíllinn var hlaðinn sprengiefni og því myndaðist mikil sprenging þegar loftskeytið lenti á bílnum.

Segir helförina sögusögn

Helförin er sögusögn sem var notuð sem átylla til að skapa gyðingaríki í hjarta hins íslamska heims. Þetta sagði forseti Írans í morgun og tókst með því enn og aftur að fá leiðtoga heimsins upp á móti sér.

Sjá næstu 50 fréttir