Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lenti á væng Discovery Yfirmenn NASA segja að annar einangrunarfroðuklumpurinn sem datt af geimferjunni Discovery hafi lent á væng ferjunnar. Í gær var fullyrt að stykkin sem duttu af ferjunni hefðu ekki lent á vængjum hennar en nú er komið annað hljóð í strokkinn. 29.7.2005 00:01
Londonárásir: Einn til handtekinn Yfirvöld í Afríkuríkinu Sambíu hafa handtekið mann sem talinn er hafa átt þátt í sprengjuárásunum í Bretlandi sem kostuðu fimmtíu og tvo lífið. Maðurinn er breskur ríkisborgari en af indversku bergi brotinn. Hann verður væntanlega framseldur til Bretlands. 29.7.2005 00:01
Rice áhrifamesta kona heims Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, er nú á toppi lista tímaritsins <em>Forbes </em>yfir eitt hundrað áhrifamestu konur heimsins. Næst á eftir henni kemur Wu Yi, heilbrigðisráðherra Kína, sem jafnframt hefur viðurnefnið „Járnfrúin“ líkt og Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands. 29.7.2005 00:01
Fjögur lík finnast á Mont Blanc Lík fjögurra fjallgöngumanna fundust á Mont Blanc í gær en mannanna hafði verið saknað í frönsku Ölpunum frá því á mánudag. Líkin fundust í um 3.900 metra hæð en mennirnir hugðust halda á fjallið fyrir viku. 29.7.2005 00:01
Munch-rán: Látinn laus Þrjátíu og átta ára gamall maður í Noregi, sem var handtekinn í tengslum við þjófnað á tveimur málverkum eftir Edvard Munch, var látinn laus í dag eftir þriggja mánaða gæsluvarðhald. Tveimur af frægustu verkum málarans, „Ópinu“ og „Madonnu“, var stolið úr Munch-safninu í ágúst á síðasta ári og hefur ekkert til þeirra spurst síðan. 29.7.2005 00:01
Lyf sem lætur fólk gleyma Hefðbundið blóðþrýstingslyf gæti nýst til að hjálpa fólki sem hefur lent í áföllum við að gleyma atburðum. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar geðlækna við Cornell-háskólann geta svokallaðir „beta blokkerar“, sem alla jafna eru notaðir við of háum blóðþrýstingi, fengið fólk til að gleyma streituvaldandi atburðum. 29.7.2005 00:01
Lík de Menezes komið til Brasilíu Komið var með líkkistu Jean Charles de Menezes til heimabæjar hans í Brasilíu í gær. Vika er í dag síðan lögreglan í Bretlandi skaut Menezes til bana á lestarstöð fyrir mistök. 29.7.2005 00:01
Talinn hafa skipulagt árásirnar Maðurinn sem handtekinn var í Afríkuríkinu Sambíu í morgun í tengslum við hryðjuverkin í London er talinn hafa skipulagt árásirnar. 29.7.2005 00:01
Svæði girt af í London Vopnaðir lögreglumenn hafa girt af svæði í vesturhluta London og sent vegfarendur burt. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvers vegna svæðinu hefur verið lokað en fréttir hafa borist af nokkrum litlum sprengjuárásum á svæðinu og vitni segjast hafa heyrt skothvelli. 29.7.2005 00:01
Írak: Hundruð milljóna horfin Endurskoðandi sem fylgist með því fjármagni sem stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt til uppbyggingarstarfs í Írak segir milljónir dala, eða hundruð milljónir króna, hafi horfið. Er talið að bandarískir embættismenn og fyrirtæki hafi stolið peningunum. 29.7.2005 00:01
Tveir handteknir í umsátrinu Breska lögreglan hefur nú handtekið þrjá af fjórum mönnum sem lýst var eftir vegna misheppnaðra sprengjuárása í Lundúnum þann 21. júlí. Tveir þeirra voru handteknir í dag eftir vopnað umsátur lögreglunnar um hús í vesturhluta borgarinnar. 29.7.2005 00:01
Bretar rífa varðturna sína Bretar byrjuðu í dag að rífa varðturna sína á Norður-Írlandi en þeir hafa í áratugi verið tákn um veru breskra hersveita í landinu. Ákveðið var að byrja þegar að rífa turnana eftir að Írski lýðveldisherinn. IRA, lýsti því yfir í gær að hann hefði lagt niður vopn og myndi hér eftir stunda pólitíska baráttu fyrir markmiðum sínum. 29.7.2005 00:01
Condoleezza Rice valdamest Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna og ráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, er talin valdamesta kona heims, samkvæmt tímaritinu Forbes. Þetta er annað árið í röð sem Rice trónar efst á lista 100 valdamestu kvenna heimsins. 29.7.2005 00:01
London: Allir fjórir handteknir Breska lögreglan hefur greinilega blásið til meiriháttar sóknar gegn hryðjuverkamönnum í dag og er nú, með aðstoð lögreglunnar á Ítalíu, búin að handtaka alla þá fjóra sem lýst var eftir vegna sprengjutilræðisins í Lundúnum hinn 21. júlí. 29.7.2005 00:01
Tvær sprengingar á Spáni Tvær sprengjur sprungu við þjóðveg nærri Madríd á Spáni í dag. Enginn er sagður hafa slasast í sprengingunum. ETA, aðskilnaðarsamtök Baska, lýstu tilræðunum á hendur sér. 29.7.2005 00:01
Þúsundum fanga sleppt Þúsundir fanga byrjuðu í dag að streyma út úr fangelsum í Afríkuríkinu Rúanda eftir að yfirvöld ákváðu að sleppa þrjátíu og sex þúsund föngum. Níu af hverjum tíu þessara fanga hafa viðurkennt að hafa tekið þátt í morðunum á 800 þúsund mönnum af ættbálki Tútsa árið 1994. 29.7.2005 00:01
Fuglaflensa greind í Rússlandi Rússnesk yfirvöld greindu frá því í gær að fuglaflensuveira, sem fannst nýlega í fuglum í Síberíu, væri af þeirri skæðu gerð sem getur borist í menn. Veirusýkingin drap hundruð far- og alifugla í Síberíu fyrr í þessum mánuði, en engar fréttir hafa borist af því að hún hafi borist í menn. 29.7.2005 00:01
Lundúnasprengjumenn handteknir Allir mennirnir fjórir, sem voru eftirlýstir fyrir að hafa reynt að sprengja sprengjur í jarðlestum og strætisvagni í Lundúnum þann 21. júlí, eru nú í haldi lögreglu, að því er breskir fjölmiðlar fullyrtu í gær. 29.7.2005 00:01
ESB og Marokkó semja um fiskveiðar Fulltrúar Evrópusambandsins og Marokkó undirrituðu á fimmtudag samning um aðgang fiskiskipa ESB-landa að fiskveiðilögsögu Marokkó í Atlantshafi. Samkomulagið, sem gildir til næstu fjögurra ára, er einkar mikilvægt fyrir sjávarútveg á Spáni og í Portúgal. 29.7.2005 00:01
Biður Karadzic að gefa sig fram Yfirmaður friðargæsluliðs Atlantshafsbandalagsins í Bosníu fagnaði því í gær að eiginkona Radovans Karadzic, fyrrverandi leiðtoga Bosníu-Serba sem eftirlýstur er fyrir stríðsglæpi, hefði opinberlega skorað á mann sinn að gefa sig fram. 29.7.2005 00:01
9 milljarðar í lottópottinum Margur verður af aurum api segir málshátturinn. Sá sem vinnur stóra vinninginn í Evrópulottóinu í kvöld verður þá væntanlega górilla því að nærri níu milljarðar eru í pottinum. 29.7.2005 00:01
Víðtækustu aðgerðir í sögu London Alls hafa nærri þrjátíu manns verið handteknir einungis vegna árásanna misheppnuðu í London í síðustu viku í víðtækustu aðgerðum í sögu lögreglunnar í borginni. Fjórmenningarnir sem gerðu árásirnar hafa allir verið handteknir. 29.7.2005 00:01
Þrjár konur handteknar í London Breska lögreglan handtók þrjár konur í suðuhluta London í gær en þær eru grunaðar um að tengjast mönnunum sem gerðu misheppnaða tilraun til að sprengja lestar og strætisvagn í borginni þann 21. júlí síðastliðinn. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið en konurnar voru handteknar í íbúð nálægt Stockwell lestarstöðinni. 28.7.2005 00:01
Franskir barnaníðingar fá dóm Dómstóll í Frakklandi dæmdi hóp fólks í 28 ára fangelsi í gær fyrir að misnota og selja börn, aðallega þeirra eigin. Alls voru börnin sem um ræðir 45 talsins en þau voru seld af foreldrum fyrir sígarettur og áfengi á árunum 1999 til 2002. 28.7.2005 00:01
Lík Menezes flutt til Brasilíu Flogið var með lík mannsins sem lögreglan í London skaut á Stockwell lestarstöðinni í vikunni, til Brasilíu í gær. Hinn 27 ára Jean Charles de Menezes var skotinn í höfuðið, alls átta sinnum, eftir að hafa hunsað fyrirmæli lögreglunnar um að stoppa. 28.7.2005 00:01
Dómur fyrir að skipuleggja árás Maðurinn sem skipulagði sprengjuárás á flugvöll í Los Angeles á gamlárskvöld árið 1999 hefur verið dæmdur í tuttugu og tveggja ára fangelsi. Hinn 38 ára gamli Ahmed Ressam sýndi lítil viðbrögð þegar dómurinn var kveðinn upp í Seattle í gær. 28.7.2005 00:01
Eldgos í Mexíkó Eitt virkasta eldfjall Mexíkó, Colima, gaus í gær með þeim afleiðingum að grjót og aska þeyttust allt að 2700 metra upp í loftið. Engar fréttir hafa borist af mannfalli eða skemmdum en fjallið er staðsett í um 700 kílómetra fjarlægð frá Mexíkó borg. 28.7.2005 00:01
Enn fleiri handtökur í Bretlandi Breska lögreglan fann sextán sprengjur í skotti bíls sem einn af mönnunum sem gerðu hryðjuverkaárás á London hafði á leigu. Þykir þetta sýna svo ekki verði um villst að árásirnar á London sjöunda júlí hafi bara átt að vera byrjunin á mun fleiri árásum. 28.7.2005 00:01
NASA slær geimferðum á frest Bandaríska geimferðastofnunin NASA ætlar að slá frekari geimferðum á frest á meðan sérfræðingar rannsaka stykki sem duttu af eldsneytistanki geimferjunnar Discovery við flugtak á þriðjudaginn. 28.7.2005 00:01
Sextíu látnir í hitabylgju Yfir 60 manns hafa látist af völdum hita og raka í Bandaríkjunum að undanförnu. Hitabylgjan hefur valdið miklum óskunda í níu ríkjum, aðallega á austurströnd landsins en hæst fór hitinn í 38 gráður. 28.7.2005 00:01
Flóð á Indlandi Nærri fjögur hundruð og fimmtíu hafa látist af völdum mikilla flóða og aurskriðna í Indlandi undanfarna þrjá daga. Þúsundir manna hafa neyðst til að flýja heimili sín og samgöngur eru lamaðar. Þá hefur skólum verið lokað og mestöll atvinnustarfsemi liggur niðri. 28.7.2005 00:01
IRA leggur niður vopnin Írski lýðveldisherinn ÍRA mun frá klukkan þrjú í dag hætta öllum vopnuðum aðgerðum og framvegis beita friðsamlegum aðgerðum til að ná fram markmiðum sínum. 28.7.2005 00:01
Eldur í olíuborpalli á Indlandi Tólf manns létust og 367 var bjargað af brennandi olíuborpalli við vesturströnd Indlands í gær og í morgun. Fólk fleygði sér í sjóinn þegar eldar fóru að loga og tekist hefur að bjarga flestum en enn er þó nokkura saknað. 28.7.2005 00:01
Þekkti ekki skilti frá staur Færeyskur lögþingsmaður var handtekinn fyrir að aka drukkinn á ljósastaur, um síðustu helgi. Torbjörn Jacobsen, yfirgaf bíl sinn eftir áreksturinn og neitaði í fyrstu að opna fyrir lögreglunni þegar hún kom heim til hans. 28.7.2005 00:01
Mubarak býður sig enn fram Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, tilkynnti í dag að hann ætli enn einu sinni að bjóða sig fram til forseta. Mubarak hefur verið forseti Egyptalands í tuttugu og fjögur ár, og vill sitja í sex ár í viðbót. Hann er nú sjötíu og sjö ára gamall. 28.7.2005 00:01
Vill endurreisa ríkisstjórnina Gerry Adams, formaður Sinn Fein, hins pólitíska arms Írska lýðveldisherins segir að ríkisstjórnir Bretlands og Írlands verði nú að endurreisa ríkisstjórn Norður-Írlands þar sem kaþólikkar og mótmælendur skipti með sér völdum. 28.7.2005 00:01
Sýknaðir af nasistahyllingu Hæstiréttur Þýskalands sneri í dag dómi yfir þrem mönnum sem höfðu verið sakfelldir í undirrétti fyrir að heiðra SS hersveitir Adolfs Hitlers. Mennirnir þrír sem tilheyra hægri öfgasamtökum komu sér upp símsvara þar sem var að finna upplýsingar um hvar og hvenær skrúðgöngur þeirra færu fram. 28.7.2005 00:01
Fánasaumur á Gaza Saumastofur á Gaza svæðinu vinna nú nótt sem nýtan dag við að sauma fána sem á að flagga þegar Ísraelar yfirgefa Gaza, um miðjan næsta mánuð. Heimastjórn Palestínu hefur pantað sextíu þúsund palestínska fána. 28.7.2005 00:01
IRA segist hættur vopnaðri baráttu Írski lýðveldisherinn, IRA, sem drap og limlesti þúsundir manna í 35 ára vopnaðri baráttu gegn breskum yfirráðum á Norður-Írlandi, lýsti því yfir í gær að hann væri hættur að beita ofbeldi sem pólitísku baráttutæki. Bæði írska og breska stjórnin, sem og ráðamenn víðar um heim, fögnuðu þessu sem mikilvægum áfanga í átt að varanlegum friði á Norður-Írlandi. 28.7.2005 00:01
Lúkasjenkó tekur Pólverja fyrir Viðleitni Pólverja til að ýta undir lýðræði í nágrannaríkinu Hvíta-Rússlandi hafa framkallað æ harðari viðbrögð af hálfu stjórnvalda í sovétlýðveldinu fyrrverandi. Þessi núningur náði nýju hámarki í gær er Pólverjar kölluðu sendiherra sinn heim frá hvít-rússnesku höfuðborginni Minsk. 28.7.2005 00:01
Discovery tengdist geimstöðinni Geimferjan Discovery tengdist alþjóðlegu geimstöðinni í gær, eftir að hafa tekið snúning alveg upp við hana til þess að unnt væri að taka nærmyndir af neðra byrði ferjunnar úr myndavél í stöðinni. Myndatakan er liður í rannsóknum á hugsanlegum skemmdum á ytra byrði geimferjunnar. 28.7.2005 00:01
35 ára stríði lokið á Írlandi Írski lýðveldisherinn, IRA, hefur ákveðið að leggja niður vopn. Þar með lýkur þrjátíu og fimm ára blóðugu tímabili í sögu samtakanna, sem talin eru bera ábyrgð á dauða nærri tvö þúsund manna. 28.7.2005 00:01
Afsláttarfargjöld á háu verði Afsláttarfargjöld danska flugfélagsins Sterling, sem nú er í eigu sömu manna og eiga íslanska flugfélagið Iceland Express, eru í sumum tilvikum þrefalt hærri en fargjöld keppinautanna, að því er kemur fram í Jótlandspóstinum í dag. 27.7.2005 00:01
Undur og stórmerki á Ítalíu Þúsundir manna komu saman í kirkju heilags Péturs í Acerra í suðurhluta Ítalíu um helgina. Ástæðan er að stytta af Maríu mey er sögð hafa hreyfst frammi fyrir augum kirkjugesta. Fréttin fór sem eldur um sinu um landið og segjast sífellt fleiri hafa séð styttuna hreyfast. 27.7.2005 00:01
Uppruni Kínaflensu óljós Alþjóða heilbrigðisstofunin fylgist nú grannt með framvindu mála vegna hins dularfulla sjúkdóms sem herjað hefur á bændur í Kína að undanförnu. Alls hafa 24 manns látist vegna sjúkdómsins og yfir 80 veikst þar af 17 lífshættulega. 27.7.2005 00:01